Þjóðviljinn - 05.06.1966, Side 4
I
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 5. iúní 1966.
Otgefandi: Sameiningarflokkux alþýöu — Sósíalistaflokk-
urtnu.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson.
Síguröur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Siguröur V. Fiiðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva’dur Jó’-armesson.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 5.00.
Sókn gegn afturhaUi
"lyTikilsvert er að menn láti ekki þvargið um kosn-
ingaúrslitin dylja fyrir sér þá athyglisverðu
s'taðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er nú, sam-
kvæmt þeim kosningaúrslitum, minnihlutaflokk-
ur í Reykjavík. Áttmenningarnir sem mynda
meirihluta í borgarstjóminni geta ekki talað eða
starfað í nafni meirihluta borgarbúa. Á þetta var
rækilega minnt á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu
borgarstjómar er Guðmundur Vigfússon borgar-
fulltrúi og borgarráðsmaður Alþýðubandalagsins
skýrði frá viðleitni í þá átt að fá alla fullfrúa
hinna þriggja flokkanna, sem hafa nú meirihluta
kjósenda í Reykjavík bak við sig, til þess að hef ja
samvinnu í borgarstjóminni með kjör í nefndir.
og á öðrum trúnaðarmönnum. Alþýðuflokkurinn
skars't þar úr leik, og var nú orðið lítið eftir a’f
kokhreysti þess flokks og íhaldsandstöðu sem
flaggað var í Alþýðublaðinu nokkrar vikur fyrir
kosningamar. Flokkurinn er í Reykjavík undir-
lagður vilja þeirra flokksforingja, sem um sjö ára
skeið hafa gert flokkinn að íhaldshækju og látið
hann bera ábyrgð á afturhaldsstjórn í landinu, og
ífulltruar hans í borgarstjórn virðast ekki mega svo
mikið sem styggja elsku samstarfsflokkinn með
því að taka þátf í samstarfi, sem kjósendur hljóta
að telja að væri ekki annað en eðlilegt framhald
af kosningabaráttu flokksins. Eða var kjósendum
ekki sagt að Alþýðuflokkurinn væri stærsta og
heilsfeyptasta stjórnmálaaflið vinstra megin við
íhaldið? Og einungis með íhaldsandstöðuáróðri
sínum vann Alþýðuflokkurinn hinn margumtal-
aða „stórsigur“ í Reykjavík, að fá ekki nema
'fimmtíu atkvæðum færra en við kosningar fyrir
þremur árum, þrátf fyrir mikla fjölgun kjósenda.
Sá á nóg sér nægja lætur.
★
17'osningasigur Alþýðubandalagsins í Reykjavík
er beizkur biti fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Framsókn, eins og enn má sjá á blöðum þeirra.
Þar er hafinn sami síbyljusöngurinn og kvað við
fyrir kosningarnar um sundrung innan Alþýðu-
bandalagsins. Þar er ýmist sagt að sósíalistar í
Reykjavík hafi setið hjá við kosningarnar eða að
Þjóðvamarmenn 'hafi ekki komið nærri þeim.
Kosningaúrslitin sjálf eru bezt svar við slíkum
áróðri, um eitt þúsund fleiri kjósendur vottuðu
Alþýðubandalaginu fylgi en í kosningunum 1963,
og margt af nýju fólki kom til -liðs við Alþýðu-
bandalagið og til kosningastarfsins einmitt við
þessar borgarstjórnarkosningar. Sóknarmöguleik-
ar Alþýðubandalagsins, bæði í Reykjavík, þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í minnihluta, og
um allt land eru ótvíræðir. Óttinn við þá sókn
skín þegar út úr blöðum andstæðinganna. Kosn-
ingaúrslitin ættu að kenna þeim hvers virði eru
vonir afturhaldsins um sundrungu Alþýðubanda-
lngsins. Reynslan mun sanna að þaðan er sam-
heldni og sóknar að vænta. — s.
Klakstöðvar brezku
ur. Frjálsleg skipulagning og
aðstæður heimavistar leyfa nem-
endum að yelja sér aukanáms-
greinar eftir sínum smekk:
tónlist eða sögu, silfursmíðar,
— m.ö.o. hvaða verkefni sem
getur vakið áhuga kennara,
sem reiðubúinn er að halda sér-
stakt námskeið um tiltekið
efni.
„Public schools“ draga tilsín
beztu kennarana, enda erþeim
betur borgað en í ríkisskolum
og þeir hafa ókeypis húsnæði.
Árangurinn er sá, að helm-
ingur stúdenta við háskólana í
Oxford og Cambridge hafa al-
izt upp í „public schools“. Þetta
þýðir samt ekki að í þeim sé
kennsla jafnan á hærra stigi
en í ríkisskólunum, „gramm-
ar schools". En „public schools“
ala upp í mönnum venjur og
einkenni sem erú óhjákvæmi-
leg til þess að geta brölt upp
þjóðfélagsstigann.
England er að vísu talið
sæmilega lýðræðislegt land
— en engu siður eru þar
enn við lýði menntastofn-
anir sem hafa í reynd það
hlutverk að efla stéttaskipt-
ingu í Iandinu. „Public
schoo!s“ opna dyr'sínar fyr-
ir asna, klyfjuðum gulli,
nám þar opnar mönnum
allar götur upp í efstu
stigaþrep samfélagsins. .
Langafi minn sem var auðug-
ur húseigandi í London
hafði mikla nautn af því að
skrifa á eyðublöð .„séntílmað-
ur“ á þeim stað sem spurt var
um starf viðkomanda.
Sonur hans, Eric, lærði í Eat-
on og aðeins í Eaton. Árið
1917 lét hann drepa sig í her-
sveit sem bar hið göfuga nafn
„konungsvarðliðið". Eins og
meirihluti Eatonmanna trúði
Eric á guð í mynd Georgs
konungs fimmta og á brezka
heimsveldiö. Hann trúði einnig
á yfirburði Englendinga vfir
annað fólk og á yfirburði Eat-
onmanna yfir aðra Énglendinga.
En þrátt fyrir margra áradvöl
á hinum fræga „public school“
í Eaton var Eric fáfróður með
öllu. Hann hefði ekki einu sinni
getað tekið undir spaug rit-
höfundarins Sitwells, semsvar-
aði spurningu uppsláttarritsins
„Hver er maðurinn“ um mennt-
un á þessa leið: „Ég hlaut
menntun mína í sumarleyfum
langt frá Eaton“.
Leiðin til þekkingar hefur
núna verið opnuð að nokkm
leyti í Eaton og öðrum „public
schools“ á Englandi, En samt
sem áður em þeir sem fyrr
útungunarstofnanir fyrir séntil-
menn, þá sem munu sitja í
efstu sætum i stiga enskrar
stéttaskiptingar.
England er land þverstseðna.
Að því er varðar félagsiegt
frelsi, upplýsingastarfsemi, lög-
reglu er það vafalaust íremsta
borgaralegt lýðræðisríki í Vest-
ur-Evrópu. En að því er varðar
almenna menntun er England
sem fyrr land lævíslegs léns-
veldis. Á tindi hins þjóðfélags-
lega og uppeldislega pýramída
standa „publich schools“, ein-
angraðir í sínum nýgotnesku
byggingum.
„Public schóols‘‘ þýðir „Al-
menningsskólar“ og er sú nafn-
gift mesta fjarstæða. Þetta eru
algerir einkaskólar annarsstigs,
óháðir ríkinu og kennslugjöld
í þeim em mjög há. Til dæmis
taka sögufrægir skólar eins og
Eaton, Harroe, Rugby, Charter-
house, Saint Paul, Westminst-
er og Winchester um það bil
500 sterlingspund á ári aðeins
fyrir kennsluna. Einn kunn-
ingja minna, hálaunamaður,
sem hefur sett sýni sína þrjá
í „public school“, fer ekki í
sumarleyfi svo ámm skiptir og
nærist aðallega á makkarónum
og tómatsósu. Þeim mun verr
fyrir hann . . . og aðra milli-ý
stéttarmenn, sem leggja nótt
við dag til að geta haft börn
sín í þessum forréttindaskólum.
Um 8,7 miljónir barna og
unglinga sækja ýmiskonar und-
irbúningsskóla f Bretlandi. Af
þeim eru níu af hverjum tíu i
ríkisskólum og skólum sem
njóta opinbers styrks. Hinum
er komið fyrir „fyrir kunn-
ingsskap“ í óháðum skólum,
allt frá tilraunaskólum eins og
t.d. Dartington Hall til „publ-
ic schools“. Þetta eru aðallega
böm aristókratanna — með og
án aðalsnafnbótar — 5% af
ensku æskufólki. Þegar fram
líða stundir munu þeir koma
fyrstir í mark í hinu mikla
kaþphlaupi upp tröppustiga
þjóðfélagsins.
Flemming-nefndin sló því
föstu árið 1942, að af830
biskupum, háskólakennurum,
hálaui^uðum embættismöpnum,
landstjórum samveldislanda,
bankastjórum og forstjórum
járnbrauta vberu 76% fyrrver-
andi nemendur í „public
schools“. Þess skal og getið að
48% útvaldra meðal útvaldra
komu frá 12 frægustu skólun-
um.
Síðan brezka heimsveldið tók
að leysast í sundur og upp
komu svonefndar „nýjar stétt-
ir“, þá hefur hlutfallstala fyrr-
verandi nemenda „public
schools" í stétt valdamanna
lækkað, en samt er hún enn
mjög há. í viðskiptaheiminum,
í utanríkisþjónustunni, allstað-
ar „á toppinum“ er haldið á-
fram að taka Eatonstúdent,
sem hefur. ekki hlotið æðri
menntun, fram» yfir. alla há-
skólamenntaða menn frá ógöf-
ugri próvinsuháskólum lands-
ins. „Við þessu verður ekkert
gert“, segja- menn hér í hálfum
hljóðum „þessir strákar úr
„public schools" hafa vissa
þjálfun, háttvísi, sambönd“.
Við þetta má bæta, að strák-
arnir frá „public schools“ bera
takamarkalausa virðingu' fyrir
ríkjandi skipulagi og hefðum
og eru oft ekki sérlega þroskað-
ir andlega.
Nokki-um þekktum „public
schools“ hefur tekizt að skapa
sér virðingu og aðdáun í öllu
landi vegna aldurs síns, því
þeir eiga rætur sínar að rekja
til fjórtándu aldar. Samthafa
þeir flestir verið stofnaðir á
Viktoríutímabilinu, frá 1850 til
1890, á hinu sæla blómaskeiði
heimsveldisins og heimsvalda-
stefnu. Síðan þá hafa þeirekki
breytzt — í þeim ríkir hinn
sami andi.
Allir þessir skólar reyna að
líkja eftir Eaton, munurinn er
aðeins fólginn i mismunandi
tilhögun kennslu. Til eru jafn-
vel skólar sem reyna að fylgj-
ast með tímanum. Með því að
heimsveldið er glatað er hægt
að leggja niður kriket ogskipta
um einkennisbúning — í Gor-
donstone (Skotlandi) hafa verið
teknar upp stuttbuxur, skyrtur
og siglingasport.
Námsskrár breytast einnig.
Um allangt skeið var gríska og
latína grundvöllur námsins. 1
dag er farið að sýna raunvís-
indum meiri virðingu. Við því
verður ekki gert: andblær tím-
ans segir til sín.
Ensk tunga er orðin náms-
grein í Eaton — fram til 1965
var talið að til kenpslu í móð-
urmálinu og enskum bókmennc-
um væri nóg að hafa einn kenn-
ara á 1184 nemendur. Að þvi
er landafræði varðar, þá hefur
hún enn ekki hlotið þar borg-
ararétt.
%
Ef sleppi er eyðum í fræðsl-
unni, þá er hægt að segja
með talsverðum rétti að publ-
ic-school-kerfið sé þeim út-
völdu að mörgu leyti til gagns.
Jafnvel. sjálft skipulag heima-
vistarlífs, strangt en ekki þæg-
indalaust, gerir ákveðið gagn.
í „public schools“ eru ófáir
spaugilegir siðir, sumsstaðar
njóta efribekkingar einir þeirra
heilögu réttinda að ganga með
í’egnhlíf eða aka á hjóli: áöðr-
um stað er busum refsað óf
þeir hafa hendur í vösum. Til
eru þeir skólar, þar sem þekkja
má efribekkinga á því hve
margar tölur vantar á vesti
þeirra. En það skiptir mestu
máli, að nemendur búa með
uppalara sínum, sem þekkir vel
sína pilta, vinnur með þeim,
er þeirra „vemdari“ — oft
reyndar í of ríkum mæli.
Kostir: hér er oft einn kenn-
ari á aðeins fimnatán nemend-
Það er varla hægt að búast
við snöggum breytingum á
þessum aðstæðum. Má yera
að reynt verði að breyta smám
saman aristókratískum skólum í
skóla sem valið er í eftir verð-
leikum hvers og eins. Ef menn
vilja að réttlætið sigri þá þarf
byltingu, en ekki hægfara þró- ■
un, og þessi bylting verður að
ógna allri brezkri hátimbrun —
allt frá „public schools“ til'
lávarðadeildarinnar og ensku
krúnunnar sjálfrar.
Sérstök nefnd hefur fengið
tvö ár til að ganga frá nýjum
lögum um „public schools". En
ekkert pr líþlegra en að þessir
skólar verði áfram ekki aðeins
endurspeglun brezkrar stéttar-
skiptingar heldur stuðli að þvi
að gera hana eilífa, og að pen-
ingar muni sem fyrr verða
helztur lykill að dyrum þeirra.
Starfsstúlknafélagið Sókn:
Félagsfundur
Starfsstúlknafélagið Sókn heldur félags-
fund mánlldaginn 6. júní 1966, kl. 9 e.h. T
Aðalstræti 12, uppi.
FUNDAEEFNI:
Skýrt frá viðræðum við atvinnu-
rekendur og rætt um hvað gera
skuli til þess að knýja fram
samninga.
Mætið vel og stundvíslega.
Sfcjórnin.
Byggjendur! Húsmæður!
Önnur bezta eldhúsinnrétting frá Vestur-Þýzka-
landi, merki OSTA, verður til sýnis í Málara-
glugganum við Bankastræti dagana 1. til 13. júní.
Ejpkaumboð á íslandi:
S K O R R I H. F.
Sölustjóri: Ólafur Gunnarsson
Hraunbraut 10, Kópavogi. Sími 41858.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í gatna- og holræsagerð. í hluta af
Kópavogsbraut.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu minni gegn
kr. 2.000.00 skilatryggingu.
Kópavogi, 3. júní 1966
Bæjarverkfræðingur.