Þjóðviljinn - 05.06.1966, Page 6
V
y
\
g SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 5. júní 1966.
Litið á hernámsframkvæmdir
i
Hér er nærmynd af flotprammanum og- má sjá hluta af áhöfn hans aff störfum. Kannski vcrður þessi Ilotprammi notaður við
að steypa múrninguna eða legufærin fyrir kafbáta á botni fjarðarins.
VIÐ ókum í hlaS um miðbik dagsins og litum yfir at-
hafnavæðið. Upp eftir allri hlíðinni stóðu langarma
mokstursvélar og skófluðu jarðveginum og þungir og
silalegir vörubílar skriðu upp og niður vegatroðninga hlaðnir
grjóti og mold og jarðýtur bröltu um hlíðarstalla og viku til
haugunum og andrúmsloftið var hlaðið spennu og átökum véla
og manna.
Niður við ströndina siluðust áfram stórir flutningavagnar með
langa stálbita og' þeir hlóðust upp með aðstoð lyftukrana og
úti á sjónum flaut mikill flotprammi með stórum krana og stál-
bitarnir sveifluðust til áður en þeir runnu lóðréttir niður í
djúpan mar. ,
Hvarvetna söng vélarhljóðið fyrir eyrum og mennirnir hlupu
til eins og maurar við framkvæmd verksins og upp á hálsadragi
blakti bandaríski fáninn á stöng yfir þessum hernaðarmann-
virkjum.
Við útjaðar þessa athafnasvæðis stendur veitingaskáli, og út
um opnar dyrnar berst þessi syngjandi hreimur frá bandarísk-
um útvarpsþul og er hann að lesa fréttir, og siðan heldur músik-
in áfram. -v
Við tökum okkur sæti við bardiskinn inn í skálanum og pönt-
um okkur kaffi og meðlæti og virðum fyrir okkur gesti dagsins.
Þarna standa tveir hermenn við diskinn og velta uppi í sér
jórturtuggunni og þolinmæðin ríkir ein í svipnum eins og á
kindum rétt fyrir burð á þessu vori.
Þrír strákar úr hvalstoðinni sötra kók og gantast við tvær
elskulegar stúlkur innan við bardiskinn og ekki leynir sér
skagasvipurinn á annarri þeirra.
Brezk hjón sitja virðuleg við borð úti í horni og borða pylsur
með þessari ensku háttvisi og manninum liggur nokkuð hátt
rómur, og þau eru að ræða um fuglaskoðun dagsins. Þau eru
víst að bíða eftir áætlunarbílnum til Reykjavíkur.
tár
Munurinn er tvö hundruð krónur
Við tókum ekki strax eftir honum og hann hallaði sér heldur
hljóðlátur upp að diskinum og drakk kók. Það var yfir hon-
Úm húnvetnskur karlmennskusvipur, og fas hans var rólegt.
Hann sýndi okkur síðasta vikuumslagið sitt, og voru þar
stjórnaði hann lyftukrananum á móti bandarískum verka-
manni frá New York.
Hann sýnd.i okkur síðasta vikuumslagið sitt, og voru þar
skráðar ríflega fi'mm þúsund og sjö hundruð krónur, — opinber
gjöld kr. þrjú þúsund höfðu verið dregin af honum þessa vik-
una, og sagðist hann hafa borgað þetta frá tvö þúsund til þrjú
þúsund frá áramótum.
Hvað hafði hann unnið langan vinnutíma yfir vikuna?
Þarna Voru skráðir 44 tímar í dagvinnu, — 8 tímar í eftir-
vinnu og 28 tímar 1 næturvinnu. Þá sagðist hann hafa frítt fæði
vinnudagana, frían vinnugalla, frítt húsnæði og fríar ferðir í
bæinn í vikulok.
Hann sagðist vera Reykvíkingur og hefði unnið áður hjá tog-
Þeir heita Ólaíur og Sigurður og eru að hagræða stálbitum á
ströndinni.
araafgreislunni á lyftukrana og 'þar áður hjá Vita- og hafnar-
málastjórn víða um landið á lyftukrana við staurafestingar og
hefði hann nær átta ára starfsreynslu í þessum efnum.
— En 'hvað heldurðu bandaríski verkamaðurinn háfi í kaup?
_ Hann fær sex doliara á tímann og vinnur tíu tíma á dag
fimm daga^ vikunnar og er það ríflega kr. 250.00 á klukkutím-
ann borið saman við kr. 56.00 á klukkutímann hjá mér eftir
Dagsbrúnartaxta.
Mér er ekki kunnugt urn annað en þeir fái ölf hlunnindi til
jafns við okkur þar að auki og ekki sýnir hann meiri fagreynslu
en ég er mér óhætt að fullyrða.
Þeir eru fimm frá New York þarna úti á flekánum á móti
sjö íslendingum, — íslenzka verkamannakaupið er orðið hlægi-
lega lágt og mikil raunasaga síðustu árin.
*
Vokí tokí tæki í fjallshlíð
í útjaðri þessa athafnasvæðis hafa risið sjö skálar fyrir starfs-
fólk íslenzkra aðalverktaka, og inni í einum af þessum skálum
eru skrifstofur fyrirtækisins.
Við gengum inn á fremri skrifstofu og þar sat hvíthærður og
léttklæddur maður yfir sendistöð og grínaðist við ungan kokk.
Á hverjum vinóustað uppi í fjallinu eru menn með voki tokí
tæki, og einnig eru slíkir menn með tæki niður ó ströndinni og
út á prammanum og virðist vera liðugt samband þarna á milli.
Þá eru einnig uppi í fjallinu mælingamenn með vokí tokí
tæki og miða út stálbitana fyrir prammamenn úti á sjónum.
— Þetta er bará eins og vígstöðvunum í seinni heimsstyrjöld-
inni sögðum við við framkvæmdastjórann Guðmund Einarsson,
verkfræðing.
Hann hló við athugasemdinni og sagðist einmitt hafa svona
tæki í bílnum sínum og gæti hann alltaf fylgzt með fram-
kvæmdurn undir akstri og komið á framfæri leiðbeiningum við
verkið.
— Mér þykir hvergi eins gott að hugsa eins og undir stýri á
bíl og ef mér dettur eitthvað í hug, þá get ég þegar komið því á
framfæri við menn mína.
Hann hafði boðið mér inn á ínnri skrifstofuna og sat þar við
mikið skrifborð með tvo eða þrjá síma fyrir framán sig.
Nú hringdi einn síminn og mér skildist eftir samtalinu hann
vera að ræða við hestakonu í bænum. Þá rauk hann í annan
síma og pantaði símtal við Stokkhólm og kvaðst bíða þarna á
meðan. . ' t <
— Jæja, — hvað hefur þú marga menn við störf hér?
— í dag eru hundrað og þrjátíu menn að vinna hér við þess-
ar framkvæmdir, sagði Guðmundur. Fimmtiu menn eru á bið-
lista og komast hingað og raunar höfum við skrifað niður um-
sóknir í ^ex vikur.'
Fjórði hluti þessa starfsfólks eru gamlir starfsmenn hjá fyrir-
tækinu og ég myndi segja að sextíu nýir menn væru úr Reykja-
vik.
— Hvaða framkvæmdir eru á döfinni hérna?
— Við höfum það verkefni að smíða fjóra olíutanka hér uppi
í hlíðinni og tekur hver tólf þúsund tonn af svartolíu upp-
komnjr.
Þá er ætlunin að smíða tvö hundruð og fimmtíu metra
öryggju hér út í fjörðinn og með uppfyllingum verður hún þrjú
hundruð metrar og verður T-laga, og þar eiga að geta lagzt að
stór olíuflutningaskip með birgðir í geymana. Mér skilst að
þær séu hugsaðar sem birgðastöðvar í framtíðinni fyrir skip,
sem nota eingöngu svartolíu.
Það getur verið bæði kaupskipafloti og herskipaflotL
Bandaríkjamenn reiknuðu vitlaust
— Á hvaða stigi eru þessár frainkvæmdir?
— Uppi i hliðinni erum við 1 dag að grafa fyrir undirstöðum
fyrir tankana og notum uppgröftinn í uppfyllingu fyrir bryggj-
una. ' /
Þá erum við að reka niður þrítugasta stélbitastaurinn í dag
af fjögur hundruð og fimmtíu í fyrirhugaða bryggju.
Hér er um að ræða gríðarlanga stálbita og eru þeir lengstu
svipaðir Hallgrímskirkju með turni að hæð, — þeir eru þetta
frá hundrað og sextíu fetum til tvö hundruð fet á lengd og eru
allir reknir niður á klöpp. Þessir stálbitar eru H-laga og fluttir
inn frá Vestur-Þýzkalandi og Englandi.
Bandarískir mælingamenn voru búnir að mæla fyrir þessum
stálbitum fyrir nokkrum árum og búnir að gera athuganir á
jarðlögum á sjávarbotni og samkvæmt þeim athugunum áttu
stálbitarnir aðeins að vera fimmtíu og fimm fet á lengd, —
hér var reiknað með mótstöðu í leirnum eða viðloðun fyrir
burðarþol bryggjunnar og er þetta ákaflega skemmtilegt úr-
lausnarefni á verkfræðivisu.
Allir þessir útreikningar hjá bandarísku mælingamönnunum
reyndust út í hött og höfðum við gert áætlanir um verkið á
þessum útreikningum, — kemur þetta til með að tefja verkið
og seinkar líklega framkvæmdum um hálft ár.
Annar þáttur hefur líka valdið töfum á verkinu. Það hefur
vorað mánuði seinna hér á landi en venjulega og klakinn þiðnar
seinna úr jörðu þar með.
Nú stóð verkfræðingurinn upp og gekk út að glugganum með
kíki til þess að athuga flotprammann út á firðinum. Hraðbátur
dólaði kringum prammann, og uppi i fjallinu var verið að miða
út stöðuna fyrir næsta stálbita.
— Þessi flotprammi er hollenzkur að gerð og var fluttur
híngað til lands í fjórum hlutum og settur hér saman, sagði
verkfræðingurinn. +
Pramminn hefur fjögur hundruð og fimmtíu tonna flotmagn
og bóman á lyftikrananum er hundrað og fjörutíu fet á hæð
ýfir sjávarmáli og getur lyft fimmtíu tonna þunga. Hann er
bara lipur í meðförum.
Hvað er C.P.M.?
— Ég veit ekki hvort ég á að segja þér frá C.P.M. Það er
eins og íslðnzkir blaðamenn fói gæsahúð, ef ég fer að tala um
C.P.M. Hversvegna vilja þeir ekki skrifa um C.P.M.? hefur þú
heyrt um C.P.M.? spurði hann mig. og ég stóð fullkomlega á
gati.
—' Við notum hér C.P.M. við þetta verk, og þetta er ein
merkilegagta nýskipun í íslenzku atvinnulífi frá upphafi.
Myndir og texti g.m.