Þjóðviljinn - 03.07.1966, Side 5
Sunnúdagur 3. júlí 1366 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J
iBREF UR
i KÓPAVOGI
I til Lyndons B. Johnson,
| forseta Bandarikjanna
\
\
i
i
*
i
Herra Bandarikjaíorseti
Lyndon B. Johnson.
Vér íslendingar höfum lengi
verið höfðin-gjadjarfir, svo ég
biðst ekki afsökunar á þessu
tilskrifi
Þó kemur yður kannski
spánskt fyrir, að fá sendibréf
frá múgamanni norður hér.
Líkast til eigum við fátt
sameiginlegt, því ég má ekki
mannsblóð sjá. Aftur ó móti
var ég mikill hesta- og hunda-
maður og: það skiljið þér vel,
eftir þvi sem faðir vor Bjarni
hefur tjáð oss. Ég hef ekki
einu sinni getað eignazt pen-
inga sem er þó aðal hvers
frjálsborins manns — og
vegna þess hef ég lítið getað
gert fyrir þjóð mína, því hvað
má veslingur minn, sagði einn
íslenzkur öreigi fyrir mörgum
öldum Vig höfum náttúrlega
ekki búig í Guðseiginlandi, en
margan píuglitinn höfum við
fengið þaðan og svo voru
marshallkórtöflurnar góðar,
að af þeim stafaði beinlínis
mannfjölgun þó illa gengi að
feðra. Aftur á móti höfum
vig verið heppnir með það,
að í áratugi hafa stjórnir okk-
ar lands farið eftir óskum yð-
ar lands í einu og öllu, sagt
já og amen með höfuðhneig-
ingu hafi he.yrzt hundga í
fjarska. Svo höfum við yðv-
arn blessaða her sem innsigli
eilífrar sáluhjálpar. Þaðan
hefur oss mörg kviðfylli bor-
izt og ekki síður konum en
. körlum. Slikt er líka okkar
einasta von. þvi skeð getur
að fyrir hann þurfum við
heitara að baka, minnsta kosti
þeir smærri. Við vonum samt
að beir stærri sleppi. þvi ráð-
herrar okkar eru orðnir þjálf-
aðir flugmenn og ef til elds
kemur munu þeir hefja sig
til flugs í 'vestur. Þetta gefur
von um, að þjóðin muni ekki
deyja út og j Banóaríkjunum
verði til melagróður, gýlfa-
ginning. ingólfsóðöl, emils-
•afrek og hafsteinshæfni. 'Þar
af muq_og upp renna nýtt.við-
reisnarvor í yðvar ríki.
Þegar ég var á skólaskyldu-
aldri rar mér tjáð að éig væri
Evrópumaður. en nú hefur
þetta breytzt gins os svo
margt. annað os eftir nýjustu
heimildum ku ég nú vera
Améríkumaður og bar með
orðinn vðar undirsáti. Um
þetta tjáir ekki að fást. því
hafa verður það er sannara
reynist, þó svo framarlega að
sannleikanum hafi ekki verið
logið upp.
Þetta hefur nú verið svona
rabb um daginn og veginn,
líkt og í útvarpinu, en nú
skal snúið sér að aða-lverk-
efni þessa bréfs.
Ég hef alla mina tíð hugs-
að mikið um hið svonefnda
lýðraeði, en þar virðast nú
ekki allir á einu máli um
hvert sé þess raunverulega
innihald. Nú er það margra
mál, að það hafi náð hæstri
gráðu í Bandarikjunum og
þess vegna vilja aðrar þjóðir
lík.ia eftir þessu háþróaða lýð-
ræði. Við hér á íslandi (telj-
umst búa við lýðræði, en þar
ber margt á milli, og kannski
erum við bara á villigötum.
Ég lenti i harðri sennu við
einn vin minn fvrir stuttu,
sem gagnrýndi mjög lýðræðið
í Bandaríkjunum. Ég var nú
að malda í móinn, e^ rök
hans virtust mér svo þung
að ég vjldi fá úr því skorið,
hvort hann hefði rétt fyrir
sér. Það er þessvegna að ég
sný ,mér til yðar með þetta
mál. Fengi ég skýringu, er
ég viss um að bandaríska
upplýsingaþjónustan kemur
þvi á framfæri. Ég er þar að
sögn á skrá með smátt og
stórt-, svo mín æviatriði verða
víst aldrei nánar rituð.
Hér á eftir fylgja nokkrir
punktar í samanburði vinar
míns á lýðræði íslands og
Bandaríkjanna.
Hér á íslandi, sagði hann,
erum við þó að burðast með
margskonar tryggingar fyrir
fólkið, elli-, örorku- og sjúkra-
tryggingar. Hjá • okkur er
aldrei sþurt um það ef ein-
hver þarf læknishjálpar, hvort
hann geti borgað. Ekkert er
sparóð til" að halda í honum
lífinu, jafnvél sendur til Banda-
ríkjanna, ef þár Hillir undir'
von. En hvernig er þét.ta- svo
í Bandaríkjunum? Þar verður
hver að deyja drottni sínum,
sem ekki á peninga fyrir
læknishjálp Þar eru engar
tryggingar til og læknir lítur
ekki á sjúkling nema vissa
sé um greiðslu. Lendi maður í
bílslysi er honum off blætt
út áður en vissa er fyrir þvi
að greiðsla sé fýrir hendi.
Sem sagt. allir sem ekki
eiga peninga eða verðmæti.
/ verða að deyja drottni sínum,
börn. gamalmenni og sjúkling-
ar. Hjá okkur er þó rejmt
Lyndon B. Johnson
að leysa vandamál svona
fólks. Kallarðu þetta lýðræði
í Bandaríkjunum, að hver
megi deyja drottni sínum sem
ekki á peninga?
Ég sagði nú si svona, að þeim
væri' nú kannski ekki eins
sárt utn mannslífið, því fólkið
væri svo margt og ég bætti
þvi við, að ég væri vi-ss um
að þér mynduð geta gefið
þessu fólki formúlu fyrir þvi
hvernig það gæti með léttu
móti eignazt nóga peninga.
jafnvel hundruð miljóna, en
ég er náttúrlega ekki viss um
að þér þekkið þessa formúlu.
Svo hélt hann áfram: —
Finnst þér ekki skrýtið að
flestir forsetar Bandarikjanna,
sem imprað hafa á almennum
mannréttindum. hafa verið
myrtir? Slíkt mundi vart
heyra undir lýðræði hjá okk-
ur.
Ég gat lítið við þessu
sagt, þó einhver skýring hljóti
að vera til á þvi. Spámaður
er ég ekki, en hef þó á til-
finningunni, að þér munuð
ekki verða myrtur, sem bet-
ur fer.
Hvernig geta hin viðfeðmu
glæpafélög Bandaríkjanría
heyrt undir lýðræði? Við er
um að reyna útrýma glæp-
um og finnst það heyra undir
lýðræði, en í Bandarikjunum
er talið að varla fari fram
svo lítilfjörleg kosning, að
glæpafélögin leiki þar ekki
sinn þátt, þau ráða jafnvel
heilum verkamannasambönd-
um að sögn Og það er með
þessa glæpamenn líkt og helga
menn, að þeim snýst a,llt til
góðs og þurfa aldrei að standa
neinum reikningsskap.
Hvað segir þú svo um lýð-
ræðið sem þeldökka fólkið býr
við? Það mundi lofa guð of
það kæmist undir dýravernd-
unarlögin hjá okkur. Stund-
um kvað þessu fólki velt upp
úr tjöru og fiðri og svo
kveikt i því. Og eitt er víst,
að hver sem tekur svari þessa
fólks er annaðhvort drepinn
eða er í stöðugum lífsháska,
jafnvel þó hann sé hvítur á
hörund. Þeir sem fyrir þessu
standa virðast alveg frið-
helgir.
Eitt er enn: Það fer ekki
framhjá manni, að sé mynduð
frjálslynd stjóm í einhverju
riki Bandarikjanna, þé er
eins og hún þurrkist burtu á
einhvern dularfullan hátt,
líkt og þegar fuglar deyja.
Kannski gætu auðjöfrarnir
gefið skýringu á _ þessu.
Og að síðustu segir hann:
'Ætlarðu ekki lika að verja
stríðið i Víetnam, sem væri
réttara að kalla sláturtið?
Skilur þú hversvegna verið er
að slátra öllu þessu fólki,
brenna það lifandi og eitra
gróður jarðarinnar? Því má
þetta fólk bara ekki verða
sjálfdautt? Nú, ef það vill
berjast innbyrðis, þá bara
lofa því að drepa hvert ann-
að. Það virðist engin ástæða
til að hjálpa mönnum við svo-
leiðis, nema hér sé um nýja
samhjálp að ræða.
Eiginlega skildi ég þetta
ekki heldur, en sagði þó að
ég hefði séð það haft eftir
yður að þetta hefði fljó'tt
lyft undir framleiðsluna í
Bandarí'kjunum og atvinnu-
leysingjum fækkað. Það væri,
sagði ég, með hergagnafram-
leiðslu eins og allt annað, að
það þyrfti að prófa þetta og
eyða því upp, líkt og bóndinn
þarf að hleypa til á vetuma
og slátra svo lömbunum á
haustin.
Svo sagði ég líka að ske
kvnni að bandarískur auður
væri i gang; austur þar eins
og víðar og peninga þyrfti
alltaf að verja til síðasta
manns, þeir væru afl þess
er gera skyldi. En þetta er
nú líkast til bara skynvilla
hjá mér.
Sumt af þessu sem hér hef-
ur verið sagt, er nú kannski
ýkt, því oft hefur verið log-
ið á skemmri leið en frá
Nýbýlavegi til New York.
Væri þetta hinsvegar rétt, sem
vinur minn heldur fram, þá
væru mér skýringar kær-
komnar. svo ég gæti rétt mig
af í lýðræðinu.
Til er máltækj á fslandi,
sem hljóðar svo: ..Skósmiður,
haltu þig yið leistinn þinn‘.‘.
Reyndist nú lýðrædið í
Bandaríkjunum ekki á rétt-
um kili, þá fyndist mér rétt
að hér byrjuðuð heima ,hjá
yður að kippa i lag, en létuð
l fólkið i Vietnam um sín mál.
Ég veit að þér munuð vera
mjög guðhræddur eins og
flestir bjargálna menn og
valdsmenn og ég er viss um
að guð mundi ekki misvirða
það við yður þó ekki væri
meira drepig austur þar um
sinn, því honum mun ekkert
liggja á þessu fólki í ríki
sitt.
Þegar þér aftur á móti
væruð búinn að kippa i lið-
inn heima, gætuð þér kannski
farið að dunda við drápið
austur þar á ný.
Með beztu kveðju og óskum
fil yðar og bandarísku þjóð-
arinnar — Yðar auðmjúkur
undirsáti
Halldór Pétursson,
Snælandi, Nýbýlavegi,
íslandi vestra.
!
i
I
Þjóðverjar sig-
ursælir í hsnd-
knattleik
VÍN 1/7 — Vestur-Þýzkaland
varð heimsmeistari í handknatt-
leik utanhúss en Austur-Þjóð-
verjar lentu í öðru sæti. Bronz-
verðlaunin tóku Austurríkis-
menn heim með sér.
í úrslitaleikjum á fimmtudags-
kvöld vann Vestur-Þýzkaland
Sviss með 8—2, Austur-Þýzka-
land vann Holland með 23:9 og
Austurríki vann Pólland með 9
:5.
Nýjar kertöflur
koma á marksðinn
Fyrstu nýju kartöflurnar á
þessu sumri koma á matkaðinn
á næstunni, og eru þær innflutt-
ar frá Portúgal, þessa árs upp-
skera. Þetta er þriðja kortöflu-
tegundin sem Grænmetisverzl-
unin flytur inn eftir að íslenzku
kartöflurnar voru uppumar,
fyrst voru fluttar inn írskar
kartöflur stórar sem þóttu hálf-
gert óæti og síðan pólskar er
reyndust vel þótt þær væru frá
í fyrra.
Hinsvegar verður bið á bví að
grænmeti verði almennt á boð-
stólum, því ekki er leyft að
flytja inn frá útlöndum á sumr-
in, en hætt er við að íslenzka
uppskeran verði seint á ferðinni
þetta árið.
Framleiðsla á
pappír eykst
hröðum skrefum
Framleiðsla pappírs, pappírs-
kvoðu og pappa eykst hröðum
skrefum, að því er fram kemur
í nýgerðri rannsókn Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (FAO). Sam-
kvæmt útreikninguip mun
heimsframleiðslan á pappír og
pappa fara upp í 128 miljón
tonn, á pappírskvoðu yfir, 108
miljón tonn árið 1968.
Framleiðsla pappírs og pappa
hefur stigið úr 83 miljón tonn-
um 1960 upp í rúm 114 miljón
tonn árið 1966. Framleiðsla
pappírskvoðu hefur aukizt úr
66 miljón tonnum árið 1960
upp í 91 miljón tonna árið
1966. (S.Þ.).
Varaforseti Júgó-
slavíu segir af sér
BELGRAD 1/7 — Varaforseti
Júgóslavíu Aleksander R. Ban-
kovic, sem talinn var líklegastur
eftirmaður Tito forseta sagði í
dag aí sér öllum störfum sínum
í kommúnistaflokknum.
R aokovic er ritari í flokknum
og hefur stjórnað öryggismálum
ríkisins í mörg ár. Á fundi í mið-
stjóm flokksins i dag var hann
harðlega gagnrýndur.
HUÖMPLÖTUR SELDAR
Eftir síðasta uppgjör voru
teklurnar -af hævienvu hlióm-
plötunni ,AU Star Festival",
sem seld, var til ágóða fyrir
flóttamannahmlp S.Þ., komnar
upp í 1.481.000 dollara (tæpar
64 miljónir ísl. króna).
Síðasta hæggenga hljómplat-
an, slm seld er í þágu flótta-
mannahjálparinnar, „Internati-
onal Piano Féstival", hefur til
þessa selzt fyrir 133.820 doll-
ara (tæpar 6 miljónir ísk kr.).
Hinsvegar hafa ekki enn bor-
izt endanlegai tölur um söluna
í flugvélum, þar sem farþegum a
var gefinn kostur á að senda
plötuna sem ..kveðju úr loft-
inu“ til hvaða lands sem væri.
45.000 plötur hafa selzt með
þessum hætti, og búizt er við
að endanlegt upngiör liggi fyr-
ir í lok sumarsins. (S.Þ.).
Austur-þýzka skemmtiferðaskipið
Vöikerfreundschaft væntanlegt i dag
í dag kl. 4 síðdegis leggst hér ig er nokkuð af Þjóðverjum. Nær Akureyrar og ekur í bílum til
ytri höfnina í Reykjavik a- sex hundruð manns eru með Dalvíkur til þess að horfa á mið-
þýzka skemmtiferðaskipið Völ- skipinu og hafa þegar verið
kerfreundschaft. Skipið heldur skipulagðar ferðir á vegum
svo á brott kl. 4 síðdegis á mánu- ferðaskrifstofunnar Lönd og leið-
dag. ir með skemmtiferðafólkið að
Sænska ferðaskrifstofan Reso Gullfossi og Geysi og til Krisu-
hefur skipið á leigu og er meiri vikur.
nætursólina, — einnig fer þetta
fólk til Mývatns.
Sænska ferðaskrifstofan Reso
hefur skipulast ferðir bæði til
hluti farþegaana Svíar og einn- fimmtíu manns flýgur til íslands og Grænlands í sumar.
Ráðizt gegn
kommúnistum
BUENOS AIRES 1/7 — Hin nýja
ríkisstjórn í Argentínu hóf í dag
aðgerðir gegn skrifstofum lytmm-
únista um allt landið.
Þetta er fyrsta meiriháftar
pólitíska aðgerðin sem ríkis-
stjórnin framkvæmir síðan
hershöfðingjarnir hrifsuðu völd-
in fyrir nokkrum dögum.
Höfuðstöðvum kommúnista-
flokksins í Buenos Aires var
lokað og 29 hverfaskrifstofum.
Áróðursgögn voru gerð upptæk
og sex starfsmenn á skrifstofun-
um voru handteknir.
Skrifstofum fjögurra annarra
félaga, sem kommúnistar eru
taldir stjórna var einnig lokað.
Lögreglan gerði sams konar út-
hlaup í öllum héruðum landsins.