Þjóðviljinn - 03.07.1966, Page 10
10 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 3. júli Í968
WILLIAM MULVIHILL
IFLUGVÉL
HVERFUR
vindjakkanum og fann þar eitt-
hvað, eitthvað hart, langa stein-
inn, spjótsoddinn sem hann hafði
fundið milli strútseggjanna.
— Það er of seint að berjast,
sagði O'Brien.
Grimmelmann kinkaði kolli.Of
séint, of seint. Hann tók utanum
langa tinnusteininrt; höndin var
þung; hann fann hvassan oddinn
standa útúr sveittri hendinni eins
og hnif. Hann var vopnaður
— Taktu skurnimar, sagði
O'Brien. Hann gekk skrefi nær
bg benti með byssunni á bakk-
ann.
Grimmelmann kinkaði kolli.
Nei. Aldrei. Honum var ljóst að
hann stóð einn, eins og nokkur
maður getur verið: hereró-pilfrur-
inn sem stóð einn þegar liðsfor-
inginn steig fram og lyfti byss-
unni; rússamir sem krupu í
snjónum ........
Hann ætlaði að berjast fram í
rauðan dauðann, hann ætlaði að
ná í byssuna. berja hana í sund-
ur; hann ætlaði að berja þrekna
manninn, hræða hann, særa
hann. Hann vildi ekki hlýða.
Hann dró krepptan hnefann
uppúr vasanum. Hann gekk nær.
— Stanzaðu, hrópaði O'Brien.
Stanzaðu!
En gamli maðurinn kbm nær
með upprétta hönd, ogútúrhnef-
anum stó oddhvass steinn; hann
gekk eins og í leiðslu, og augu
hans voru starandi. Gamla and-
litið var einbeitt og þrungið
hatri.
— Stanzaðu! hrópaði O'Brien og
Hárgreiðslan
Hárgreiffslu- og snyrtistofa
Steinu osr Dódó
Laugávegi 18 III hæð '(IjrftaV
SfMI 24-6-16.
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10. Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
Maria Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 — Sími 14-6-58.
Nuddstofan er á sama stað.
gamli maðurinn var kominn til
hans.
Hann beið fram á síðustu stundu,
svo stei^s hann skref til hliðar
og sveiflaði þungri byssunni.
Skotið hitti gamla manninn í
hægri handlegg. Grimmelmann
reikaði við, reyndi að ná jafn-
vægi aftur og valt þungiamalega
um koll.
— Gamla fíflið þitt. sagði 0‘-
Brien. — Sérðu ekki, að það er
um seinan að berjastj? Hann
stóð andartak og leit niður á
hann. Hann sneri sér við og
gekk leiðar sinnaf upp gilið.
49
Grimmelmann lá á sandinum.
Það blæddi úr hendinni á hon-
um. Hann hafði tekið of fast
um spjótsoddinn. Hann settist
upp og lét tinnusteininn falla
niður í sandinn. Hann var ham-
ingjusamur; ekki vegna þess að
hann var á lífi, heldur vegna
þess að hann hafði drýgt dáð.
Hann hafði barizt gegn hinu illa.
Nú var hann góður maður. Góð-
ur maður.
Hann svimaði. Hann varð að
koma sér útúr sólinni, hvíla sig
i skugganum, fara aftur heim
til stúlkunnar. Kannski beið O'-
Brien einhvers staðar eftir þvi
að geta skotið hann, en það gerði
ekkert til. Hann var gamall og
var búinn að reyna svo margt,
og nú var hann góður maður....
góður ...... Hann var dofinn í
hendinni. Hann neri henni við
fótinn. þurrkaði burt blóðugan
sandinn og honum varð Ijóst að
hann myndi deyja; að það myndi
gerast á fáeinum mínútum.
Lófinn var blár; dökkar rákir
lágu út að fingurgómunum og
upp úlnliðinn. Það hafði verið
búskmannaeitur í örvaroddinn;
hann hafði haldið of fast um
hann og skorið sig. Hann hafði
sigrað O'Brien, en samt sem áð-
ur, myndi hann deyja af gamla
eitrinu.
Hann sat í sólinni og fann
ekki til ótta. Það var betra að
deyja hér í sólskininu en í Evr-
ópu sgm var svo köld. Sólin
var hlý; hann hafði verið ung-
ur í þessu landi.
Búskmaðurinn hafði fyrir óra-
löngu setið með krnsslagða fæt-
ur og bjástrað við vopn og eit-
ur til að búa sig undir veiðarn-
ar og stríðið við hvítu mennina.
Hann hgfði smurt hinu hættu-
lega eitri á oddinn á nýja spjót-
inu.
Allt f einu var hann blindur
og fékk suðu fyrir eyrun, Hann
lagðist útaf og jörðin fór að
hringsnúast undir honum, hraðar
og hraðar.
.Eitrið náði til hjartans, það
fór hrollur um hann Pg hann dó.
Málmgljáandi vespa flýgur
lágt yfir bakkann og svipast um
eftir köngulóm. Hún á sér ból í
dálítilli skoru í svarta klettinum
og þar geymir hún matinn sinn;
hún ætlar að fylla það með
köngulóm og innsigla það.
Stór, brún fluga kemur auga
á hana og eltir hana með hægð.
Henni liggur ekkert á. Vespan
kemur auga á net sem stirnir
á í sólinni. Hún nálgast, svífur í
loftinu næstum án þess að
hreyfa sig.
Allt í einu heldur brúna flug-
ann vespunni milli langra lapp-
anna. Hún berst um, en flugan
lyftir henni æ hærra upp í loft-
ið. Vespan reynir að snúa sér
við og stinga fluguna með hin-
um hættulega broddi til að lama
hana. Flugan veit það og heldur
vespunni langt frá kúlulaga mag-
anum. Vespan reynir í örvænt-
ingu að losa sig. En hún ræður
ekkert við þessa sterku fætur.
Flugan rekur út úr sér lang-
an, hvassan broddinn og stingur
vespuna í bakið. Hún sleppir
takinu, vespan fellur til jarðar,
golan tekur hana og feykir
henni til. Hún er hol að innan.
Flugan hefur þurrsogið hana.
O'Brien kom aftur í hellinn
síðla dags. Grace beið við inn-
ganginn og hélt á nokkrum við-
arbútum. Hann var einn.
— Hvar er gamli maðurinn?
— Hann er dauður, sagði O'-
Brien.
—. Ég hafði eitthvert hugboð
um það þegar ég sá þig, sagði
hún. Nú voru þau ein, tvö ein.
Hún fúrðaði sig á því að dauði
Grimmelmanns skyldi ekki hafa
meiri áhgif á hana, og einhvem
veginn fannst henni sem hún
hefði búizt við þessu. Það var
önnur hugsun sem hún reyndi
að bægja frá sér og olli henni
skelfingu: Nú yrði meira handa
þeim að borða, O'Brien og henni,
hún hefði harin álveg fyrir sig.
— Hann skar sig á búskmanna-
spjótsoddinum, sagði 0*Brien. —
Það var eitur á honum og hann
dó af því. Við vorum að leita að
býflugum og hann dróst afturúr.
Þegar ég leit við, reikaði hann í
spori og slagaði eins og hann
væri veikur. Það blæddi úr
smásári á hendinni á honum.
Hann settist og handleggurinn
fór að verða svartur.; Eftir
fimm mínútur var hann dáinn.
Ég gat ekkert gert. Það var
skelfilegt, óhugnanlegt. Hann
fann spjótsoddinn hjá strútseggj-
unum og gekk með hann í vas-
anum. Hann gekk framhjá henni
inn í hellinn og setti byssuna á
sinn stað.
Grace bar inn glóðina rig lét
hana þar sem bálið hafði verið
nóttina á undan. 0‘Brien var
með fjórar eðlur og skorpið gras-
ker í pokanum. Það var búið að
hreinsa eðlumar og hún steikti
þær í skyndi á ristinni, sem
Smith hafði búið til úr stálvír.
Þau borðuðu kjötið og höfðu
hunang með og svo skiptu þau
graskerinu á milli sín.
Nóttin kom og það varð kalt.
Þau bættu viði á bálið, flýttu
sér í svefnpokarin og þrýstu sér
bétt saman í leit að hlýju og
öryggi.
— Hvernig stóð á því að hann
skar sig? spurði hún. Hún tók
um axlirnar á honum og fann
hve feykilega sterkur og aflmik-
ill hann var. Það var eitthvað í
sambandi við dauða Grimmel-
manns sem hann hafði ekki sagt
henni, eitthvað óljóst og ugg-
vænlegt, sem hún gat ekki áttað
sig á.
— Það er ekki meira að segja,
sagði hann. Hendur hans þreif-
uðu eftir andliti henriar, hann
sneri því til; hann kyssti munn-
inn. kinnarnar, hálsinn. Hún
hugsaði um fyrrverandi eigin-
mann sinn og hann virtist svo
fjarlaagur ......... Andrew Mon-
ckton, mildur, elskuhugi, vin-
gjamlegur og tillitssamur. Það
hafði hann verið og ekkert ann-
að, vingjarnlegur og tillitssam-
ur.
— Nú getum við komizt af,
sagði O'Bfien. — Þú og ég getum
sigrað þennan stað. Lifað. Við
tvö.
En nú var hún' ekki óróleg
lengur. Hún vafði örmunum um
hálsinn á honum og hún hafði
ekki áhyggjur af björguninni,
Grimmelmann eða neinu öðru en
honum. Það var ekkert annað
í þessum dimma, kalda heimi
{gntinenial
Útvegum eftir beiðni
fiestar stærðir hjólbarða
á jarðvinnslutæki
Önnumst ísuður og
viðgerðir á flestum stærðum
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35 — Sími 30688
og 31055
þórður
sjóari
4790 — Vindinn hefur lægt. Sjórinn er spegilsléttur og haldist
þetta svona munu vinimir fá gott tækifæri til að sýna hvað þeir
geta. — Á ákveðnum tíma kemur talstöðvarsambandið við Nor-
og þá á að geía skýrslu frá báðum skipunum. Skýrslurnar
eru heldur eínislitlar, ekkert markvert hefur skeð ennþá. — Þeir
em rétt að hefja keþpnina. Leiðin frá Norfolk til Nassau er um
800 mílur. Við góðar aðstaéður er hægt að komast þetta á átta
til tíu dögum og á þeim tíma getur margt komið fyrir.
SKOTTA
— Þú skrifar eina línu um forsetann en þrjár blaðsíður um
klæðaskáp forsetafrúarinnar!
FERÐIST MEÐ LANDSÝN.
Landsýn býður upp á álla hugsanlega ferða-
þjónustu innan lands og utan, með flugvélum,
skipum, járnbrautum og bifreiðum smáum sem
stórum, — sér um útvegun hótela og leigubif-
reiða hvort heldur er með eða án bílstjóra, —■
útvegar leiðsögumenn fil lengri eða skemmri
ferða-, útvegar vegabréfsáritun og sækir um
gjaldeyri svo nokkuð sé nefnt.
Landsýn býður Upp á lægra verðlag méð.hverju
ári og hagkvæm kjör, svo sem lánakjör Loftleiða
— „Flogið strax — fargjald greitt síðar".
Takið ekki ákvörðun um ferðina án þess að leita
upplýsinga fyrst hjá Landsýn.
1
Codok
i
fíElSEBURO
Intourist
LANDSyN ^
FERÐASKRIFSTOFA
LAUGAVEG 54 - SÍMAR 22890 & 22875 -BOX 465
LCDURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKAR
fyrir dömur
fyrir telpur
Verð frá kr. 1690,00
VIÐGERDIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLAS0NAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678.
\