Þjóðviljinn - 17.09.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 17. september 1%6 — 31. árgangur — 211. tölublað.
Bandaríkjamenn jafna við
jörðu tvö sveitaþorp
nyrzt í Suðar- Vietnam
Síða Q
■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>
Langir fundir í
sex manna nefnd
Þessa dagana heldur
sáttasemjarí, Torfi Hjartar-
son, fundi meö sex manna
nefndinni til þess að á-
kveða verðlag á landbúnað-
arafurðum í liaust- Stóðu
fundir yfir allan daginn í
gær og átti fundur að hefj-
ast í gærkvðld kl. 8-30. Ná-
ist ekki samkomulag fyrir
helgi verður málinu vísað
til yfirnefndar sem þá á-
kveður vcrðið.
í sex manna nefnd eiga
sæti af hálfu bænda Gunn-
ar Guðbjartsson, Vilhjálm-
ur Hjálmarsson og Einar
Ólafsson og af hálfu neyt-
enda Ottó Schopka, Sæ-
mundur Ólafsson og Torfi
Ásgeirsson. Ritari nefndar-
innar er Sveinn Tryggva-
son.
Fyrir mánaðamót hélt
nefndin marga fundi en 1-
september var málinu vís-
að til sáttasemjara og hefur
hann haldið fjölmarga
fundi með nefndinni síðan.
ALLT MÁ HÆKKA - NEMA KAUPIÐ:
FramfœrsluvÍJitalan
hefur senn tvöfaldazt
□ Himnaflug óðaverðbólgunnar hélt áfram í
ágústmánuði, og hækkaði þá vísitala framfærslu-
kostnaðar um þrjú stig. Er hún nú 198 stig, og
van’tar aðeins tvö stig upp á að hún hafi tvöfald-
azt síðan viðreisn hófst fyrir sex árum. Vísitala
vöru og þjónustu er fyrir löngu komin yfir það
mark; hún er nú 230 stig, og hækkaði um tvö stig
í ágústmánuði.
Vanskil borgarsjóðs Reykjavíkur
ATTI AÐ FA 2 'ilLJONIR
FÉKK 150.000 KRÓNUR!
■ Eins og vikið var að í forustugrein Þjóðviljans í
fyrradag hefur borgarsjóður Reykjavíkur verið mikil van-
skilastofnun í allt sumar. Hafa viðskiptavinir borgarinnar
átt í mjög miklum örðugleikum með að fá umsamdar
greiðslur, og einatt verið biðraðir af innheimtumönnum á
borgarskrifstofunum. Ástæðan er sú að ráðamenn Reykja-
víkur sóuðu ó'hemjulegum fjármunum ív sýndarmennsku
fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Sem dæmi um ástandið getur I verktaki einn hefur í sumar unn-
Þjóðviljinn greint frá því að I ið að framkvæmdum á vegum
Óvissa um úrslit í bæjar-
stjérnarkosningum í Svíþjóð
STOKKHÓLMI 16/9 — Varla
nokkru sinni hefur ríkt jafn
mikil óvissa um úrslit bæjar-
stjórnakosninganna í Svíþjóð cg
nú, en kosningarnar fara fram
á sunnudag. Enginn fæst til að
fullyrða neitt um úrslitin.
Sænskir kjósendur eru yfir-
leitt vanáfastir og óvenjulegt að
miklar breytingar verði á fylgi
flokkanna, en ýmsar ástæður
eru til þess að á annan veg
kann að fara nú. Ein þeirra, er
Framhald á 7. síðu.
borgarinnar- Átti hann að fá
greiðslur á vissum gjalddögum,
samtals 12 miljónir króna. Ný-
lega átti hann samkvæmt samn-
ingum að fá 2 miljónir af þessari
upphæð — en borgarsjóður
greiddi honum aðeins 150.000
krónur! Af þessum ástæðum
lenti verktakinn að sjálfsögðu í
vanskilum við sína viðskipta-
menn, og er ekki að vita hversu
víðtæk þau keðjuáhrif hafa orð-
ið áður en lauk.
Þetta er aðeins eitt dæmið af
fjölmörgum. Hins vegar mun það
einnig hafa gerzt í sumar að
ijorgarsjóður hafi látið innheimta
með lögtpkum útsvör hjá fyrir-
tækjum sem lenthöfðu í greiðslu-
vandræðum vegna skulda borg-
arsjóðs! i
Þetta ástand er dæmi um af-
leita og mjög óráðvawda fjár-
málastjórn- Mun trúlega leitun á
annarri höfuðborg í víðri veröld
þar sem ráðamenn teldu vanskil
af þessu taigi samrýmast sóma
sínum.
Hækkanirnar í ágnst eru þessar:
• Vísitalan fyrir matvörn hækkaði nm tvö stig og er
nú 252 stig.
• Vísitalan fyrir fatnað og álnavöru hækkaði nm tvö stig
og er nú 183 stig.
• Vísitalan fyrir ýmsa vöru og þjónustu hækkaði nm tvö
stig og er nú 236 stig.
• Meðalvísitalan fyrir vörur og þjónustu hækkaði eins
og áður er sagt einnig um tvö stig upp í 230 stig.
• Vísitalan fyrir húsnæði (sem er raiinar tilbúinn liður
langt á eftir raunveruleikanum) hækkaði um sjö stig
og er nú 140 stig.
• Vísitalan fyrir tekjuskatt, útsvar og ýms gjöld til op-
inberra aðila hækkaði um átta stig og er nú 145 stig.
• Vísitalan fyrir fjölskyldubætur (sem er frádráttarliður)
hækkaði um sjö stig og er nú 443 stig.
□ Morgunblaðið hefur að undanfömu lýst því
með miklum áherzluþunga að kaup megi ekki
hækka. Hins vegar hefur blaðið engar áhyggjur
af því þótt allt verðlag hækki jafnt og þétt.
Eins og sagt hefur verið frá í
fréttum hætti Kol og salt í
Reykjavík fyrir nokkru kolainn-
flutningi og sölu og er nú hvergi
hægt að fá keypt kol í höfuð-
berginni. Kemur þettá illa niður
á þeim scm enn búa við kola-
kyndingu, eins er þetta bagalcgt
fyrir þá sem ciga kolakynta
sumarbústaði eða garðskúra-
Verst hafa þeir oröið úti sem
búa i kolakyntu húsnæði í eigu
borgarinnar, en fá önnur ibúð-
arhús í bænum munu enn kynt
með kolum. Meðal kolakyntra
húsa borgarinnar eru t.d. öll hús-
in í Höfðaborgairhverfinu og hef-
ur horft til vandræða í því hverfi
I
I
Kviknar i gömlum glœSum h]á AlþýSublaÖinu:
n
Rétt að þjóðnýta alla olíusölu "
Alþýðublaðið gerir í gær að umtalsefni nýjustu kröfur olíu-
félaganna til. viðskiptavina sinna um sérstakt innheimtugjald
sem jafngildir lélegri þjónustu og talsverðri hækkun á vöru-
verði. Gagnrýnir blaðið þessar aðgerðir harðlega og kemst
m.a. svo að orði:
„Þessar síðustu aðgerðir olíufélaganna hljóta að endur-
vekja þá hugmynd hvort ekki sé rétt að þjóðnýta alla olíu-
sölu og dreifingu í landinu og fá dugmikinn kaupsýslumann
til að stjórna einu öflugu olíufélagi, sem að verulegu eða öllu
leyti yrði eign ríkisins. Mætti þá án efa spara stórfé í manna-
lialdi og skrifstofukostnaði, að ekki sé minnzt á dreifingar-
kerfið — og veita þó ekki síðri þjónustu en nú er veitt“.
Tillögur um þjóðnýtingu olíufélaganna og eitt dreifingar-
kerfi — í stað þriggja hlið við hlið — hafa verið fluttar af
Sósíalistaflokknum og Alþýðubandalaginu árum og áratugum
saman en ekki fengið undirtektir. Því hljóta það að teljast
mikil tíðindi þegar Alþýðublaðið, málgagn viðskiptamálaráð-
herrans, lýsir nú stuðningi við þær tillögur. Verður þetta mál
vafalaust tekið upp á nýjum grundvelli þegar þing kemur sam-
an í haust.
Reykvikingar kaupa kol hjá
kaupfélaginu í Borgarnesi
m mmm
Kjartan Guðjónsson
MFÍK hefur
lisfaverka-
kynningú á
sunnudag
ilc Menningar- og friðarsam- :
tök íslenzkra kvenna efna {
til listaverkakynningar og •
kaffisölu á morgun, sunnu- |
dag, í Breiðfirðingabúð
og verður hún opnuð kl.
14.30.
★ Listayerkakynning sem
þessi er nýr liður í starfi
samtakanna og ef hún
tekst vel er áætlað að hún
verði fastur liður i starf-
inu á hverju hausti, i ein-
hverri mynd. Þeir lista-
menn sem sýna verk sín
á þessari fyrstu lista-
verkakyrmingu eru þess- -T
ir:
★ Sverrir Haraldsson hst-
niálari, sem jafnframt sér
um sýninguna, Hörðúr Á-
; gústsson listmálari, Kjart-
: an Guðjónsson listmálari,
j Barbara Ámason listmál-
j ari, Guðmunda Andrés-
dóttir listmálari, Eyborg
j Guðmundsdóttir listmál-
; ari, Ólöf Pálsdótfir mynd-
{ höggvari og Sigrún Jóns-
;» dóttir kennari, sem sýnir
: batik. Eitthvað af lista-
verkunum verður til sölu.
• Þá verður sú nýbreytni
að ‘ kaffigestir geta feng-
j ið teiknaðar af sér and-
{ litsmyndir á staðnum.
: ★ Sýningin er aðeins opin
þennan eina dag.
að undanförnu eins og sagt hefur
verið frá hér í blaðinu-
Hafa nú loks verið gerðar ráð-
stafanir til að sjá íbúum þessa
hverfis og * annarra kolakyntra
húsa' í eigu borgarmnar fyrir
kolum, að því er Sveinn Ragn-
arsson framfærslufulltrúi skýrði
Þjóðviljanum frá í gær og verða
fyrstu kolin 'keypt frá Borgar-
nesi en síðan verður fenginn
hluti af innflutningi Kaupfélags
Árnesinga-
Sagði Sveinn að ekki tæki því
að breyta kyndikerfi þessara
húsa og táka upp oHuhitun, þar
sem til stæði að rífa þau á næstu
árum. önnur hús kolakynt í eigu
borgarinnar eru einnig niðurrifs-
hús, sagði Sveinn.
Hefúr Þjóðviljinn frétt að aðrir |
borgarbúar sem af einhverjum ■
ástæðum þurfa á kolum að halda, ;
niuni einnig beina viðskiptum {
sínum til Kaupfélags Borgfirð- {
inga og staðfestl fulltrúi þess í ■
saimtali við blaðið I gær að nokk- :
uð hefði verið um pantanir frá {
Reykjavík, mest virtist þó vera {
sótzt eftir koksi, ekki bara til ;
Reykjavíkur, heldur bærust :
kaupfélaginu mikið að pöntun- i
um úr Kjós, af Snæfellsnesi og {
frá Vestfjörðum og hefðu þessir ■
aðilar líklega fengið þetta frá ■
Reykjavík áður. *'
Sverrir Haraldsson
Hernámsandstceðíngar
Gerið skil í happdrættinu. Dregið 5. október.
Skrifstofan í Mjóstræti 3, 2. hæð, tekiir á móti
skilum, sími 24701.