Þjóðviljinn - 02.10.1966, Qupperneq 1
ÞJÓÐVILJINN er tvö blöð 20 síður í dog - BLAÐ I
Sinfóníu- og jazztónleikar í dag kl. 3
í dag kl. 3 efnir Sinfónáuhljómsveit
íslands til fyrstu sunnudagstónleika
sinna á þessu starfsári og eru þeir að
þessu sinni haldnir í samvinnu við
Jazzklúbb Reykjavíkur. Á efnisskránni
eru fjölmörg verk: Lundúnarsvítan eft-
ir Coates, Negrasálmur eftir Gould,
Konsert eftir Lieberman og Improvisa-
sjónir eftir Dankworth. Leikur jazz-
hljómsveit með Sinfóníuhljómsveitinni
í tveim seinni verkunum. Mun mörgum
vafalaust leika forvitni á að heyra
hvemig Sinfóníunni ferð það úr hönd-
um að leika jazz. \
Yanskil borgarsjóðs eru tugmiljónir
□ Eftir margra vikna þögn viðurkenndi Geir Hall-V
grímsson borgarstjóri loks í fréttaauka ríkisútvarps-
ins í fyrrakvöld að höfuðborgin hefði átt og ætti í
miklum greiðsluörðugleikum. Kvað hann vanskilin
nema tugum miljóna króna.
Geir afsakaði þetta ófremdarástand með skýringum í fjórum
liðum. í fyrsta lagi kvað hann innheimtu hafa gengið mun verr
en í fyrra. í annan stað hefði borgarsjóður greitt í ár 6—7 milj-
ónir króna vegna bæjarútgerðarinnar. í þriðja lagi hefði fjárhags-
áætlun þessa árs verið miðuð við kaupgjald og verðlag í nóvem-
er í fyrra, líkt og ráðamenn borgarinnar hafi ekki enn haft j
spurnir af verðbólguþróuninni á íslandi! Og í fjórða lagi hafi
borginni ekki tekizt að fá nein aukin rekstrarlán. Borgarstjórinn
bar til baka þá kenningu að fjárhagsvandræðin nú stöfuðu af ó-
hagkvæmum sýndarframkvæmdum fyrir kosningar, en allir borg-
arbúar hafa samaniburðinn á framkvæmdunum þá og nú fyrir
augum.
Haldlausar afsakanir borgarstjóra
Afsakanir Geirs Hallgrímssonar á hinum stórfelldu vanskilum
borgarsjóðs standast að sjálfsögðu engan veginn. Til þess eru
kosnir forastumenn borgarmála og ráðnir embættismenn, að þeir
hafi stjórn á borgarmálefnum, hafi yfirlit yfir tekjur og gjöld,
hagi framkvæmdum í samræmi við greiðslugetu og stjórni borg-
inni þannig að hún hafi eðlilegt lánstraust og geti fengið rekstr-
arlán. Þegar borgarstjóri kveðst ekki hafa haft vald á þessum
málum er hann ekki að lýsa neinum óvæntum örðugleikum, held-
ur getuleysi ráðamanna borgarinnar.
Hvers vegna í Ríkisútvarpinu?
Það verður að teljast ákaflega óeðlilegt að Geir Hallgrímsson
skyldi hafa fengið að flytja varnarræðu sína á vegum ríkisút-
varpsins. Gagnrýnin á fjármálastjórn borgarinnar hefur fyrst og
■
pp I'
VvWv.' ■> .-vHwv.
•:• ■■• ' ;
' N 0 . V - V
:• >...
’
. , ,:> x'
fremst komið fram hér í Þjóðviljanum, og að eðlilegum hætti
hefði Morgunblaðið átt að svara fyrir borgarstjóra sinn. Það hef-
ur blaðið hins vegar látig ógert af einhverjum dularfullum ástæð-
um, en hins vegar fær hann ríkisútvarpið í þjónustu sína. Má ef
til vill vænta þess að fulltrúar minnihlutaflokkanna í borgarstjórn
fái svipaðan aðgang að útvarpinu eftirleiðis?
Grein um guðleysi eftir
Lagercrantz er ó bls. 6
Þjónusta við bílaeigendur
........ ■■ ...... .. .' • ••■■• >.
Engin bilbugur á fjármálaráðuneytinu:
Reynt að halda uppi loft-
skeytaþjónustu í Gufunesi
★ í aukablaðl Þjoðviljans í
dag eru kynntir nýjustu
bílarnir sem hér eru á
markaðnum.
★ Rætt er við bílstjóra sem
ekið hefur leigubíl í Rvik
í 40 ár.
★ Sagt er frá starfi nokk-
urra manna sem bíleigend-
ur eiga viðskipti við.
★ Hér á myndinni sést einn
þeirra manna sem veita
bíleigendum þjónustu.
★ Hann heitir Guðmundur
Sveinbjamarson, kom til
Reykjavíkur sveitamaður
ofan úr Borgarfirði fyrir
22 árum og hefur alla tíð
síðan veitt bíleigendúm
hér í borg þá þjónustu a<
þvo fyrir þá bílana. Fyr-
var liann á þvottaplaniir 1
við Ilafnarstræti en nú á
planinu við smurstöðina á
Klöpp við Skúlagötu.
(Bjósm. Þjóðv. Hj. G.)
■ Eins og frá hefur ver-
ið skýrt hala um 60 sím-
ritarar og loftskeyta-
menn í Gufunesi og
Reykjavík sagt upp
störfum. Málin hafa nú
víxlazt þannig, að sim-
ritarar í Reykjavík
hætta ekki starfi en fall-
ast á hið upprunalega
tilboð fjármálaráðuneyt-
isins, hinsvegar er ekki
annað vitað en afstaðai
Guf unessmanna sé ó-
breytt.
„Þjóðviljinn átti í gær tal
ið póst- og símamálastjóra,
^’innlaug Briem, um þessi
mál, og er þersýnilega engan
bilbug á ráðuneytinu að
finna^Hann kvað loftskeyta-
menn og símritana, sem sagt’
hefðu upp í Gufunesi, vera
46 talsins að yfirmönnum
símritaranna meðtöldum, en
þess bæri að gæta, að ekki
hættu allir þessir menn
Framhald á 7. síðu.
Búðareyri
★ BÚÐAREYRI við Reyðar-
★ f jörð er einn af meirihátt-
★ ar síldarstöðunum eystra.
★ Þar lifa menn á síld og
★ sildarinnar vegna, eins og
★ myndin hér að ofan sýnir
★ mjög ljóslega. Því miður
★ verður ekki sagt með vissu
★ hvaða bátur liggur við
★ bryggjuna, en söltunar-
★ stöðin er greinilega yfir-
★ hyggð, eins og nú er mik-
★ ill siður þar í sveitum. En
★ það eru fleiri myndir frá
★ Reyðarfirði á 7. síðu á-
★ samt stuttaralegu spjalli
★ um staðinn. Mynd: G. O.
Sósíalistafélag Kópavogs
Sósíalistafélag Kópavogs heldur fund í Þing-
hól þriðjudaginn 4. október kl. 9,30.
DAGSKRÁ: 1. Kosning fulltrúa á 15. flokksþing
Sósíalistaflokksins. 2. Félagsmál. 3. önnur mál.
Stjómin.
Verkamannasamband ákvað
að taka upp viðræður á ný
í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynning frá
Verkamannasambandi íslands:
Framkvæmdastjórn Verkamannasambands íslands hefur á fundi
sínum 30. sept. 1966 ákveðið að aftur verði teknar upp viðræður
um kjaramál almennu verkalýðsfélaganna í framhaldi af þeim
viðræðum, sem fram fóru í júní sl. og leiddu þá til bráðabirgða-
samkomulags.