Þjóðviljinn - 02.10.1966, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 2. október 1966.
Otgefandi: Sameiningarflokk'ur alþýdu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýeingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 Iínur). Askriftairverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Þunnt lýðræðislag
Vrmsum þeim sem lásu Morgunblaðið og önnur
málgögn Sjálfstæðisflokksins árin sem Hitler
var að brjótast til valda í Þýzkalandi og þá ekki
síður á valdatíma hans fram að heimsstyrjöldinni
mun koma það einkennilega fyrir sjónir þegar
þessi blöð tala nú um nazismann og valdatíma Hitl-
ers sem eitt hið mesta böl. Oft hefur verið rifjað
upp með beinum tilvitnunum að Mórgunblaðs-
menn höfðu þá stundum annað til málanna að
le£gja- Háttsettir menn úr Sjálfstæðisflokknum
sóttu áróðursþing nazistanna og heimkomnir rit-
uðu þeir stundum blaðagreinar og bæklinga til
lofs og dýrðar nazis'funum þýzku. Þess má minn-
ast að núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson kaus Hitlers-Þýzkaland sér
til ,,framhaldsnáms“ og hóf fyrir alvöru pólitísk-
an feril sinn heimkominn úr því námi með því að
bræða saman íslenzka nazistaflokkinn og Sjálf-
stæðisflokkinn til sameiginlegs framboðs í bæjar-
stjórnarkosningum í Reykjavík. Ýmsir aðalmenn
íslenzku nazistanna hafa síðan orðið áhrifamenn í
Sjálfstæðisflokknum og dyggustu meðreiðarmenn
Bjarna til valda þar, eins og t.d. Birgir Kjaran, án
þess að vitað sé að þeir hafi skipt um skoðun né
álit á þýzka nazismanúm. Þessir menn hafa hvað
efíir annað sveigt áróður Sjálfstæðisflokksins fyr-
ir kosningar mjög í átt til nazistafyrirmynda og
skipulagt svart varðlið Heimdallar við ýms tæki-
færi. Allt hið skynsemdarsnauða í áróðri Morgun-
blaðsins, hin alræmda „barátta gegn kommúnism-
anum“ er hvort tveggja arfleifð frá Hitlersnazism-
anum og eftiröpun bandarísks nýnazisma. Fyrr og
síðar hefur lýðræðislagið reynzt þunnt á Sjálf-
stæðisflokknum, hann hefur þá gripið til hvers
konar ofbeldisaðgerða, þvingunarlaga gegn verka-
lýðshreyfingunni og annarra álíka.
Auðsæít mun verða þegar vel er rakin íslands-
'?a þessara áratuga hvernig íslenzk alþýðu-
samtök hafa stig af stigi neytt Sjálfstæðisflokkinn
til að leggja meiri áherzlu á lýðræðisleg vinnu-
brögð, áð'minnsta kosti í orði kveðnu. Hið þýzka
form nazismans telur Morgunblaðið sýnilega ekki
eiga sér viðreisnar von, og sé þá sjálfgert að sparka
í hræið, þó samtímis sé gælt, við bandaríska ný-
nazismann og vígorð Göbbels og McCarthys um
„baráttu gegn kommúnismanum“ sé enn leiðar-
stjarna Morgunblaðsins; það vígorð notað til að
afsaka hvers konar svívirðingu og jafnvel stríðs-
glæpi Bandaríkjaauðvaldsins í Víetnam. Enn mun
rétt að treýsta hóflega lýðræðisorðræðum Sjálf-
stæðisforingjanna, þær eru a.m.k. hjá sumum
þeirra einungis þunnt yfirborðslag, sem endist
því aðeins að alþýðusamtökin haldi áfram að kenna
andsfæðingunum lýðræðislegar starfsaðferði): og
þjóðin haldi áfram að draga úr áhrifum og völd-
um Sjálfstæðisflokksins. Öll líkindi eru til að svo
verði gert í næstu þingkosningum; svo margir virð-
ast nú orðnir fullfrúa á nauðsyn þess að öflug
sveifla til vinstri verði aðaleinkenni kosningaúr-
slitanna 1967. — s.
Skákþáttur TR:
Frábær árangur
Bobby Fischers
Svo sem kunnugt er af frétt-
um er nýlokið í Santa Monica
í Kaliforníu skákmóti ársins
ef svo mætti segja. Úrslit
mótsins urðu þau að sovézki
stórmeistarinn Boris Spassky
bar sigur úr býtum eftir að
hafa haft _ forystu meirihluta
mótsins. í öðru sæti kom
bandaríski stórmeistarinn Ro-
bert Fischer sem hlaut 11 v.
eða aðeins hálfum vinningi
m'inna en Spassky. í þriðja
sæti var svo Larsen með 10 v.,
4.—5. Unzicher og Portisch
9%, 6.—7. Petrosjan! og Res-
hevsky 9, 8. Najdorf 8, 9. Ivkov
6%, 10. Donner 6 v.
Við skulum nú líta á eina
snotra vinningsskák eftir
Fischer úr þessu móti en hún
er tefld í 10. umferð.
Hvítt: R. Fischer.
Svart: B. Ivkov.
SIKILEYJARVÖRN.
1. e4 c5
2. Rf3 e6
3. d3 -----
(Fischer kýs að fefla kóngs-
indverja með skiptum litum).
3. ----Rc6
4. g3 d5 ^
5. Rld2 Bd6
6. Bg2 R8e7 .
7. 0—0 0—0
8. Rh4-----------
(Fischer bíður ekki boðanna
heldur ræðst beint á kóngs-
stöðu andstæðingsins).
8. ----------- b6
9. f4 dxe4
10. dxc4 • - Ba6
11. Hel c4.
12. c3 Ra5?
(Algjörlega tilgangslaus leik-
ur, mun betra var að leika
Bc5f, Dc7 og síðan Had8, þótt
hvítur standi vissulega betur
eftir sem áður).
13. e5 Bc5t
14. Khl Rd5
15. Re4 Bb7
16. Dh5 Re7
17. g4 Bxe4
(Það að Ivkov telur sig
neyddan til þessara uppskipta
sýnir bezt hve miklir yfirburð-
22. Rxg6 Dd7
(Svartur má auðvitað ekki
þiggja riddarann).
23. Rf4 Had8
24. Rh5 Kh8
25. Rf6 Rxf6
26. exf6 Hg8
27. Bf4 Hxg4
28. Hadl Hag8
(Síðasta hálmstráið).
29. f7! Gefið.
Varla er lokið einvígum um
heimsmeistaratitilinn þegar ný
svæðamót hefjast. Á svæði X.
(A-Asía) sigraði O. Savagsu
(Nýja Sjáland) 6% v., 2. Nav-
anja (Filipseyjar) 6 v., o. sv.
frv. Þátttakendur voru alls 10.
Á S.-Ameríku svæðinu urðu
efstir og jafnir þeir Bolbochan,
Panno, Foguelmann (allir Arg-
entínu) og fjórtán ára gamall
Brasilíumaður H. Mecking,
hlutu þeir 12%, 5.—6. García
og Schweber 10%.
Jón Þ. Þór.
Innritun í haustmót Taflfé-
lags Reykjavíkur fer fram í
skrifstofu félagsins að Freyju-
götu 27 n.k. þriðjudag, fimmtu-
dag og föstudag eftir kl. 20.
ir hvíts eru orðnir).
18. Bxe4 gG
19. Dh6 Rd5
20. f5 He8
21. fxg6 fxg6
„Inez“ geisar enn
á Karíbahafi
SANTO DOMINGO 29/9 — Felli-
bylurinn Inez sem í fyrradag olli
gífurlegu tjóni á 'eynni Guade-
loupe skall í dag á San Domin-
go og var vindhraðinn þá 250
km á klst. Hann jaínaði heil
þórp við jörðu, reif hundruð
trjáa upp með rótum og stór-
spillti uppskeru. Enn er ekki
vitað um fleiri en þrjá menn
sem beðið hafa bana. Á Guade-
loupe varð fellibylurinn 23 mönn-
um að bana.
Nýtf Afríkuríki
í dag, Botswana
GABERONES 29/9 — í dag
bættist enn eitt lýðveldið í hóp
Afríkuríkja, Botswana, áður
brezka nýlendan Betchuanaland.
Það er bæði strjálbýlt og fá-
tækt land, eitt það fátækasta í
allri Afríku, ekki sízt vegna
hinna miklu þurrka sem þar
hafa verið undanfarin sjö ár.
Á þriðjudaginn fær nýlendan
Basutoland sem alveg er um-
kringd af Suður-Afriku sjálf-
stæði og tekur nafnið Lesotho.
Tvö bílslys
Tvö umferðarslys urðu I bæn-
um á föstud., það fyrra rétt fyrir
kl. 5 á horni Hringbrautair og
Biæðraborgarstígs, þar varð átta
ára stúlka, Anna Olafsdóttir,
fyrir bíl og fékk talsvert höfuð-
högg Og skurð á enhi. Kl. hálf-
sex - varð Ingibjörg Þorleifsdótt-
ir fyrir bíl á mótum Vitastígs og
Hverfisgötu og var hún flutt á
Slysavarðstofuna, talin hafa fót-
brotnað.
EINKAUMBOÐ
[
MARS TRADING
SIMI 17373
Útboð á hita- og
hreinlætislögnum
Tilboð óskast í hita- og hreinlætislagnir fyrirhug-
aðra póst- og símahúsa á HELLU, BRÚARLANDI
BÍLDUDAL og SUÐUREYRI.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu símatæknideild-
ar Landsímahúsinu. 4. hæð, eða til viðkomandi
símastjóra.
Tilboðin verða opnuð á skrifstolu símatækxrideild-
ar, miðvikudaginn 12. október 1966, kl. 11.
Póst- og símamálastjómin, — 30. 9. 1966.
HÍÍIIIHI ArabellaC-Stereo L B UÐlK
Leiíturbæfeur
Fátækt,
eftir M. Wilkins, í þýðingu Ara Arnalds. — Ari
Arnalds var meðal mikilhæfustu manna sinnar
tíðar, skarpgáfaður og lærður vel. Er það næg
trygging fyrir gildi sögunnar og handbragði
þýðingarinnar. — Kr. 180.00.
Prestskonan,
eftir Guðmund Jónsson. — Guðmundur Jónsson
er sérstæður maður. Aðalatvinna hans er garð-
yrkjustörf. En hann á sér mörg hugðarefni.
Guðmundur hefur á síðari árum beitt sér fyrir
stofnun minningarlunda, og gengur að fram-
kvæmd þess með oddi og egg. Að hans frum-
kvæði hefur nokkrum af okkar«beztu mönnum
verið reistir bautasteinar. Og fleira hefur hann
gott gert. — Ummæli um bækur hans hafa
verið góð. Til dæmis segir síra Benjamín Krist-
jánsson: „Ýmsar setningar eru svo snjaliar, að
vel sæmdi hverjum miklum rithöfundi". Og
hann nefnir nokkur dæmi. „Hann beið heim-
komu konu sinnar með jafnmikilli óþréyju og
sakamaður biður dóms". „Hann kyssti haria
með jafnmikilli áfergju og svangur hundur rif-
ur í sig góðmeti". — Engum þarf að leiðast,
sem les þessa bók. Guðmundar. — Kr. 150.00.
Molil,
leikrit i sjö þáttum eftir Sigurð Róbertsson. —
Þetta er níunda bók Sigurðar, og jafnframt
þriðja leikrit hans. Leikritið var flutt í Útvárpið
1965 og fékk þá ágæta dóma. — Kr. 180.00.
Ilúsið dnlarfnlla,
eftir Craig Rice og Ed. McBaine. Þýðandi Herborg
Gestsdóttir. — Eins og nafnið bendir til er þetta
dularfull saga og spennandi. — Ýmsir leyndar-
dómar bókarinnar bíða úrlausnar, áður en kom-
ið er i örugga höfn. — Kr. 180.00.
Rrædnrnir,
eftir Karen Plovgaard. Þýðandi Sigurður Þor-
steinsson. — Sagan er byggð á sögnunum um
landnám Grænlands. Bræðumir eru þeir Þor-
steinn og Leifur, synir Eiríks rauða. — Sagan
er vel rituð og skemmtileg fyrir unga og gamla.
— Kr. 125.00.
Hin göanln kynni,
eftir Steinunni Eyjólfsdóttur. — 1 bókinni eru 9
sögur, skrifaðar á liðlegu máli og vel með efnið
farið. Rétt er að veita þessum höfundi athygli.
Eftir þessari fyrstu bók hennar má nrikils af
henni vænta. Kr. 150.00.
Sfóra ævintýrabnkin -
Kinu sinnl var ...
Hér kemur aímæiis- og jólagjöfin handa böm-
um og unglingum. Stór og skínandi falleg ævin-
týrabók. 1 henni eru 23 ævintýri, öll skreytt
fallegum myndum. — Bókin er bundin I skraut-
band. — Kr. 260.00.
Mary Poppins,
eftir P. L. Travers. Myndir eftir Mary Shepard.
Þetta er sagan, sem nú er á hvers manns vör-
um. Ævintýrið fer sem eldur i sinu, vekur alls
staðar ánægju og gleði. Bókin kom út nokkr-
um dögum fyrir jól í fyrra, en i band komust
aðeins nokkur eintök. Nú fæst bókin i öllum
búðum. — Kr. 150.00.
Todda kvcdur Island,
eftir Margréti Jónsdóttur.— Ekki þarf að kynna
Margréti Jónsdóttur. Hún er ein af vinsælustu
höíundum okkar, hvort sem er heldur í bundnu
eða óbundnu máli. Sögumar af Toddu Utlu
eiga vini um allt land og nýir bætast daglega
í hópinn. — Kr. 92.50.
Bjart cr um licrnskunnar leid,
Söngtextar fyrir böm og unglinga eftir Geir
Sigurðsson frá Skerðingsstöðum. í bókinni eru
15 ljóð handa börnum og unglingum að læra
og syngja í skólum og við leika. — FaUegar
myndir prýða bókina. — Kr. 40.00.
Svo cru vinsæln bókaflokkarnir:
KIM og ósýnilegi maðurinn. — Kr. 110.00.
Fjársjóður í Silfurvatni, seinna bindið. Kr. 125.00.
BOB MORAN: Guli Skugginn. — Kr. 125.00.
BOB MORAN: Eyðimerkurrotturnar. Kr. 125.00.
ZORRO SIGRAR AÐ LOKUM (8. og síðasta bókin
í fiokknum). — Kr. 100.00.
4