Þjóðviljinn - 04.10.1966, Side 3
Þriðjudagur 4. ofctóber 1066 — ÞJÖÐVHJÍNKT — SlÐA 3
Schlesinger telur að innrás í
N-Vietnam sé yfirvofandi
Ráðgjafi Kennedys segir að allt bendi til að Johnson
hafi þegar ákveðið að magna enn stríðið í Vietnam
NEW YORK 3/10 — Allar stiaðreyndir síðustu vikna —
stjórnarathafnir, uppljóstranir um undirbúnar fyrirætlan-
ir, og jafnvel viss beizkja í ræðum Johnsons forseta —
gefa til kynna að hann hafi þegar tekið þá ákvörðun að
færa enn út stríðið í Vietnam. — Þannig kemst Arthur
Schlesinger, ráðgjafi Kennedys heitins forseta, að orði í
langri grein sem hann hefur ritað um Vietnam í „New
York Times“.
— Og komi loftárásirnar Ho
Ghi Minh ekki á kné eða bindi
þær ekki enda á aðstoð þá sem
hann veitir skaeruliðum í Suður-
Vietnam; heldur Schlesinger á-
fram, er innrás í Norður-Viet-
nam sevinlega lokaúrræðið.
Hann rninnir á að Ky hers-
höfðingi hafi hvað eftir annað
krafizt þess að gerð verði inn-
rás í Nórður-Vietnam og að
„Rusk utanríkisráðherra hafi
á tveimur blaðamannafundum
neitað að útiloka þennan mögu-
leika“. Grundvallarforsendan
fyrir þeirri stefnu Bandaríkjanna
að færa stríðið í Vietnam út
jafnt og þétt sé sú „blekking að
hægt sé að ráða stríðinu í S-
Vietnam til lykta í Norður-Vi-
etnam“.
Þessi blekking sé „augljós af-
leiðing þess að við höfum hlust-
að of lengi á okkar eigin áróð-
ur. Stjóm okkar hefur háldið
því svo fast fram að Vietnam-
stríðið stafi af árás* að norðan
að hún er farin að trúa því sjálf
að Hanoi hafi átt upptökin að
strlðdnu og þar eigi að binda
enda á það“.
Schlesinger vefengir að hugur
fylgi máli þegar Bandaríkjastjórn
lýsír ýfir friðárvilja sínum og
segir þrennt nauðsynlegt til að
greiða fyrir friðarsamningum:
Hætta verði loftárásunum á
Norður-Vietnam, losna verði við
Ky hershöfðingja — sem hann
kallar „eina af þessum Franken-
stein-ófreskjum sem við i leikum
okkur að að særa fram í 'löndum
sem okkur eru háð“ — og mynd-
un stjórnar í S-Vietnam semeigi
einhvern stuðning' fólksins þar
„Og vilji slík stjórn", segir
hann að lokum, „taka upp hlut-
leysisstefnu, reyni hún að scmja
við Vietcong, vilji hún jafnvel að
við förum frá Vietnam, þá ætt-
um við ekki endilega að halda
að heimsendir sé á næstu grös-
um“.
Eisenhower, fyrrverandi for-
seti, sagði f dag við blaðamenn
að hefði hann enn verið forseti
Bandaríkjanna myndi hann ek:u
hafa útilokað að til greinakæmi
að bejta kjarnorkuvopnum til að
binda enda á stríðið í Vietnam
Eisenhower sagði fyrir pokkrum
dögum að hann hefði veríð
reiðubúinn til að beita kjarna-
sprengjunni í Kóreu.
Curtis LeMay, fyrrverandi yf-
irmaður bantíaríska flughersins,
segir í viðtali sem í dag birtist
í vikublaðinu „U.S. News and
World Report" að Bandaríkja-
menn ættu að herða loftárásimar
á Norður-Vietnam. Það væri eina
leiðin til að binda skjótan enda
á stríðið. Ráðast ætti á öll mik-
ilvæg skotmörk í Norður-Viet-
nam, olíugeymslur, mikilvægar
verksmiðjur, samgöngutæki og
leiðir og akra og áveitukerfi. —
Við verðum að vera reiðubúmr
að eiga stórstríð á hættu, sagði
hershöfðinginn.
Harðir bardagar.
Enn berast fregnir af hörðum
bardögum á landi í Suður-Vieí-
nam. Bandaríkjamenn segjast
hafa fellt 227 skæruliða og „norð-
urvíetnamska hermenn“ í bar-
dögum í gær og í dag. Harðasli
bardaginn var háður í námunda
við Qui Nhonh, rétt fyrir norðan
mitt landið. Þar skutu þjóðfrels-
ishermenn niður bandaríska þyrlu
og síðan tvær aðrar sem sendar
voru til hjálpar áhöfninni. Var
þá mikið bandarískt herlið sent
á vettvang með þyrlum og sló
i harðan bardaga við um 300
þjóðfrelsishermenn.
Bandaríkjsmenn
irúa ekki á
Warrenskýrsln
WASHINGTON 3/10 — Flest-
ir Bandaríkjamenn eru þeirr-
ar skoðunar að ekki hafi ver-
ið sagður allur sannleikurinn
um morðið á Kennedy for-
seta, og þeir trúa því ekki
að Oswald hafi verið þar einn
að verki.
Þetta eru niðurstöður skoð-
anakönnunar sem birtar eru
í „Washington Post“. Sam-
kvæmt henni vefengja þrír af
hverjum fimm Bandaríkja-
mönnum meginatriði Warren-
skýrslunnar Flestir þeirra
halda að morðið hafi verið
þáttur í víðtækara samsæri,
en gera sér þó ekki grein fyr-
ir hverjir hafi staðið að baki
því samsæri. 11 prósent telja
að það hafi veríð kommúnist-
ar.
Sovétríkin auka enn
aðstoð við Vietnam
Nýr samningur um margháttaða aðstoð þeirra
undirritaður í gær eftir 12.daga viðræður
MOSKVU 3/10 — Skýrt var frá því í Moskvu í dag að Sov-
étríkin hefðu heitið Norður-Vietnam aukinni aðstoð og
höfðu fyrr um daginn verið undirritaðir samningar þess
efnis.
Tqlið að um þúsund manns
hafi látið iífíð i Nígeriu
EíAGOS 3/10 — Talið er aöþúí-
und' manns a.m.k hafi látið líf-
ið í ættflokkaóeirðurium í Norð-
ur-Nigeríu síðustu daga.
Óeirðirnar hófust fyrir hélgi
þegar menn af Hausa-stofni réð-
ust á karla, konur og böm af
Cnn blóðug átök í Djakarta
milli hermanna og stúdenta
DJAKARTA 3/10 — Hermenn í
brynvörðum vögnum vom á.
verði á götunum í Djakarta, höf-
uðborg Indónesíu, í kvöld eftir
að enn höfðu oi'ðið blóðugar
viðureignir milli stúdenta og her-
manria.
Síðustu daga hafa stúdentar og
unglingar staðið fyrir stöðugum
óeirðum í Djakarta. Þeir hafa
farið í stórhópum um götur
borgarinnar til að krefjast þess
að Súkarnó forseti verði settur
af og Ieiddur fyrir rétt til að
svara til saka fyrir þátt þánn
sem hann er sagður hafa átt í
hinni rrtisheppnuðu uppreisnar-
tilraun í fyrrahaust. Nú standa
yfir réttarhöld í máli nánasta
samstatfsmanns hans, Súbandri-
os, fyrrverandi utanríkisráðherra,
sem sakaður er um hlutdeild i
uppreisninni
Enda þótt herinn hafi allt síð-
asta ár beitt stúdentum og ung-
lingum fyrir sig i valdabarátt-
unni við Súkamo og fylgismenn
hans, vóm hermenn sendir til
að hleypa upp kröfugöngunum í
Djakarta um helgina og beittu ó-
spart byssuskeftunum og byssu-
stingjum sínum. Um 40 ung-
lingar em sagðir hafa særzt i
þeim átökum.
Ibo-stofni hvar sem til þeirra
náðist. Hausamenn em aðalætt-
flokkurinn í norðurfylki Nígeríu,
en Tbo-mann em flestir búsettir
i austurfylkinu og hefur löngum
verið gmnnt á því góða með
ættflokkunum. Fjandskapurinn
milli þeirra hefur magnazt und-
anfama mánuði vegna stjómar-
byltinganna tveggja sem orðið
hafa í landinu á þessu óri. Ir-
onsi sem stóð' fyrir þeirri fyrri
var af Ibo-ættum, en Gowan
sem steypti honum er Hausa-
maður.
Hausa-menn áttu upptökin að
óeirðunum, en í kvöld fréttist að
Ibo-menn hefðu hefnt sín með
árásum á Hausa-fólk í þeirra
byggðarlögum. Um 1.500 manns
af Ibo-stofni hafa verið flutt
með flugvélum frá norðurfylk-
inu.
„Inez“ stefnir nú
tvíefld á Bshama
MAIMI 3/10 — Fellibylurinn
,,Inez“ sem valdið hefur gífur-
legu tjóni og orðið hundruðum
manna að bana á eyjunum í Kar-
íbahafi hefur nú aftur harðnað
og stefndi þegar síðast fréttist
á eyna Great Abaco. sem er ein
nyrzta Bahama-eyjan. Vindhrað-
inn í stormmiðj’unni er talinn um
160 km á klst.
Tass-fréttastofan skýrði frá
því að þeir varaforsætisráðherr-
arnir Vladimir Novikof og Le
Than Nghi hefðu undirritað
samninganna um aukna aðstoð
Sovétríkjanna við Norður-Viet-
nam eftir tólf daga viðræður !
Moskvu. Novikof sagði að samn-
ingarnir væru staðfesting á þvi
að Sovétríkin myndu í engu skor-
ast undan skyldum sínum gagn-
vart vietnömsku þjóðinni.
Ekki hefur verið frá því skýrt
í hverju aðstoð Sovétríkjanna er
fólgin, en talið er víst að urn sé
að ræða auknar sendingar á
vopnum óg vistum til Norður-
Vietnams, m.a. loftvarnabyssum,
flugskeyti og orustuþotum. Þessi
hergögn’ mun Norður-Vietnam íá
að gjöf frá Sovétríkjunum en
auk þess fær landið aukin lán.
Samningar voru einnig undirril-
aðir um viðskipti landanna ó
næsta ári.
— Sovétríkin og önriur sósía-
listísk ríki munu ekki bregðast
vietnömsku þjóðinni, sagði Novi-
kof. Árásarmennimir hafa þegar
fengið að kenna á því og ættu
að hafa það hugfast. Þetta eru
aðrir samningamir sem gerðir
eru á níu mánuðum um aðstoð
Sovétríkjanna við Norður-Viet-
nam. *
Rðfknúinn bíll í
smíðum hjá Ford
DETROIT 3/10 — Ford-félagið
bandaríska skýrði frá því í dag
að það væri komið langt áleiðis
með að smíða rafknúinn bíl af
nýrri gerð. Hann verður búinn
rafhlöðum sem geta geymt t5
sinnum meiri raforku en venju-
legar rafhlöður.
Fellibvlur olli
tioui í Pík'síau
DAGCA 3/10 — Hvirfilvindur
sem gekk yfir mikinn hluta A-
Pakistans um helgina munhafa
orðið 550 manns að bana. Um
100.000 manns hafa orðið að
flýja heimili sín. Mest varð
tjónið í hafnarborginni Citta-
gong, en tveggja metra há flóð-
bylgja gekk yfir borgina.
Útsvarsgjaldendur
í Kópavogi
Þriðji gjalddagi eftirstöðva útsvara 1966 var 1.
okt. síðastliðinn. Gjaldendur eru minntir á að
greiða reglulega á gjalddaga. Lögtök eru þegar haf-
in hjá þeim gjaldendum, sem ekki hafa greitt
gjaldfallna útsvarshluta.
Bæjarritarinn í Kópavogi.
NÝTT HAUSTVERÐ
Kr. 300,00 daggjald
ög 2.50 á ekinn km.
ÞER
LEIK
' '/V ’ - >•
IIIÉ
1BÍLALEIGAN
'ALUR ?
Rauðarársfíg 31
sími 22-0-22
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Laun V.R. hækka um 1,6%
Samkvæmt útreikningi kauplagsnefndar hækkaði kaupgreiðsluvísitalan frá 1.
sept. 1966 um 3 stig.
Samkvæmt því skal á tímabilinu 1. sept.— 30. nóv. 1966 greiða 15,25% verðlags-
uppbót á grunnlaun í stað 13,42%, sem áður gilti. Þessi hækkun samsvarar því að
öll laun hækka um 1,6% frá og með 1. sept. 1966.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Rafvirkjar í USA
WASHINGTON 3/10 —Um 15.000
bandarískír rafvirkjar hófu verk-
fall f dag til að knýja fram
kjarabætur og höfðu að engu til-
mæli Johnsons forseta að hætta
við verkfallið sem hann sagði
að myndi spilla fyrir hemaði
Bandaríkjanna í Vietnam. Allir
þessir 15.000 rafvirkjar vinna I
verksmiðjum félagsins General
Electric.
Flytjið vöruna fhig/eiðís
Flugfélagið heldur uppi áætiunarflugi milli 13 staða á
landinu.Vörumóttakatilallrastaðaalla daga. í Reykjavík
sækjum við og sendum vöruna heim.
Þér sparið tíma
Fokker Friendship skrú-
fuþoturnar eru hrað-
skreiðustu farartækin
innanlands.
Þér sparið fé
Lægri tryggingariðgjöld,
örari umsetning,
minni vörubirgðir.
,li!, ,s.i” r í
Þér sparið
fyrirhöfn
Einfaldari umbúðir, •
auðveldari meðhöndlun> ý
fljót afgreiðsla.
!fi
1
-•
FLUGFÉLAG ISLANDS
%
I