Þjóðviljinn - 04.10.1966, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Þri«judaguf 4. október 1966.
/ vettvangi dagsins
Otgefandl: Sameiningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar *H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sfmi 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 105:00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Sænska frystihúsiS
Það eru mikil tíðindi og alvarleg að Ssenska
frystihúsið hætti freðfiskframleiðslu um miðj-
an síðasta mánuð og sagði upp öllú því starfsliði
' sínu sem unnið hafði að fiskvinnslu. Þetta frysti-
hús var eitt af reyndustu og afkastamestu frysti-
húsum landsmanna og búið góðum vélakosti; það
hafði verið starfrækt frá 1929 og tekið þátt í þeirri
fiskiðnaðarbyltingu sem varð eftir styrjöldina,
þegar freðfiskframleiðsla varð einn af hornstein-
um íslenzks sjávarútvegs. Aðaleigandi þess er ekki
heldur neinn útjaðramaður í íslenzkum atvinnu-
málum, heldur sjálfur Gunnar Guðjónsson, for-
maður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, einn af
máttarstólpum Sjálfs't’æðisflokksins — það er eins
og sjálft flag'gskip fiskiðnaðarins hafi verið skot-
ið niður. Ekki stafar ófarnaður Sænska frysti-
hússins heldur af því að þar hafi verið meiri ó-
stjóm en annarsstaðar; örlög þess eru táknrænt
dæmi um ástandið, sömu málalokin blasa við
mörgum öðrum frystihúsum.
\
’C'nda þótt örlög Sænska frystihússins séu alvar-
leg tíðindi koma þau ekki á óvart. Að þessu
' hefur stefnt langa hríð, eins og mikil áherzla hef-
ur verið lögð á hér i blaðinu, og Gúnnar Guðjóns-
son hefur meira að segja margsinnis fengíð að
vara við ófamaðinum í Morgunblaðinu. Á það hef-
ur verið bent að ekki aðeins væri óðaverðbólgu-
stefna viðreisnars’tjórnarinnar að kaffæra fisk-
iðnaðinn, heldur væri hann og að komast í þrot
vegna hráefnaskorts, eftir því sem togaraútgerð
drægist saman og afkoma smærri báta yrði örð-
ugri. En forsjál varnaðarorð og staðreyndir veru-
leikans hafa ekki hrinið á ráðherrunum fremur en
vatn á gæsum; sjávarútvegsmálaráðherrar Al-
þýðuflokksins, Emil Jónsson og Eggert G. Þor-
steinsson, virðast ekki hafa litið á sig sem neina
lækna heldur klerka sem þyrftu að vera tiltækir
að kasta rekunum þegar sjúklingurinn andaðist.
Ekkl. er neinn vafi á því að tómlæti viðreisnar-
stjómarinnar stafar af því að leiðtogar henn-
ar eru haldnir fullkominni ótrú á íslenzkum at-
yinnurekstri. Á sama tíma og útgerð og fiskiðn-
aður hafa staðið æ valtari fótum hafa ráðherrarn-
ir verið önnum kafnir við að greiða erlendum
auðfélögum leið inn í íslenzkt þjóðfélag; alúmín
og kísilgúr er þeirra framtíð en ekki útgerð og
fiskiðnaður heimamanna. Það er engin tilviljun
að sömu dagana og Sænska frystihúsinu var lokað
krafðist Alþýðublaðið, málgagn sjávarútvegsmála-
ráðherra, þess að framkvæmdum við Reykjavík-
urhöfn yrði frestað svo að greiðlegar gengi að gera
höfn handa svissneska alúmínhringnum í Straums-
yík. Þó má vera að ráðherramir geymi innst í hug-
skoti sínu drauma um að erlent fjármagn taki
einnig að sér fiskiðnaðinn hérlendis, að Sænska j
frystihúsið eigi eftir að rísa upp frá dauðum sem
svissneskt frystihús. — ro.
Fjölga þarf vinnu-
tækjum
Nýlega hafði Loftur Loftsson
samband við mig og lét mig
hafa myndir af lyftitækjum
sem eru mjög handhseg á fisk-
vinnslu- og síldarvinnslustöðv-
um, ásamt stálkössum sem
taka 850 lítra og eru setlaðir
til geymsly á niðurkældum
fiski og sild. Með gaffallyftara
getur einn maður flutt kassana
í geymslu og úr og staflað þeim
upp í margar hæðir, og einnig
hvolft úr þeim fiskinum þeg-
ar hann er settur í vinnsluna.
Loftur er verkfræðingur að
menntun og hefur undanfar-
andi ár unnið að tæknilegum
framförum á vegum Sambands
ísl. fiskframleiðenda, hann er
brennandi í andanum og mikill
áhugamaður um tæknilegar
framfarir i fisk- og síldarfram-
leiðslu okkar fslendinga. Ég'
þakka Lofti hérmeð hið vin-
samlega bréf hans um þetta
efni, ósamt mynr1 og upplýs-
ingum. Með mai konar vél-
knúnum tækjum er hægt víða
á fiskvinnslustöðvum að létta
störfin og spara mannafla. Á
þessu sviði hafa að vísu orðið
nokkrar framfarir á síðari ár-
um, en betur má ef duga skal,
því þarna stöndum við aftar
en ýmsar aðrar fiskvinnslu-
þjóðir og ennþá er skilningur
banka og yfirvalda ekki nægi-
lega mikill á nauðsyn þessara
breytinga. í þessu sambandi er
fræg og landfleyg sagan af því,
þegar sagt var að viðskipta-
banki Haraldar Böðvarssonar
á Akranesi hefði neitað honum
um lán til kaupa á einum gaff-
allyftara. Og sagan segir að
þetta hafi átt að ske undir
allri viðreisninni.
En vélvæðing vinnu-
stöðva krefst betra
eftirlits
En í sambandi við aukna iðn-
væðingu bæði á fiskvinnslu-
stöðvum og annarsstaðar, þó
þarf að endurskoða gildandi
öryggislöggjöf og koma á eftir-
liti sérmenntaðs fólks. Á þessu
sviði höfum við reynslu margra
iðnaðarþjóða til að byggja á
og getum því ef rétt er á hald-
ið forðazt þá atvinnusjúkdóma
og slys sem fylgdu í kjölfar
þeirrar iðnvæðingar. í þessu
sambandi detta mér í hug orð
mikils metins Kaupmannahafn-
arbúa sem hér var á ferð fyr-
ir fáum árum. Hann sagði við
mig í sambandi við iðnvæð-
ingu, að við yrðum að vera vel
* á verði gegn atvinnusjúkdóm-
um sem jafnan fylgdu í kjölfar-
ið ef ekki væri staðið nógu vel
á verði.
Hann sagði að Danir hefðu
verið svo snemma á ferð með
sína iðnvæðingu, að þeir hefðu
ekki athugað hættuna nógu
snemma sem slíkri breytingu
fylgdi. „En þið fslendingar eig-
ið að geta lært í þessum efn-
um af okkar og annarra þjóða
reynslu". Það er t.d. mikil
hætta því samfara ef tæki sem
brennir benzíni eða olíu og gef-
ur þar af leiðandi frá sér „kol-
sýring“ er notað við vinnu inni
í húsi. Af þessari ástæðu er
t.d. strangt eftirlit með því i
þróuðum iðnaðarlöndum að að-
eins rafknúin tæki séu notuð
innanhúss og með því haft eft-
irlit að þessu sé framfylgt. Hér
hjá okkur virðast menn ekki
hafa fyllilega áttað sig á þess-
ari hættu ennþá, það er því
orðið tvímælalaust aðkallandi.
að settar séu um þetta strang-
ar reglur og eftirlit haft með
að þeim sé framfylgt. Hér er
verkefni sem Alþýðusamband
íslands þarf að láta til sín
taka, áður en lengra verður
haldið á okkar iðnaðarbraut.
Það er ekki aðeins að endur-
skoða þurfi lög og reglur á
þessu sviði, heldur þarf jafn-
hliða að skipuleggja víðtæka
fræðslustarfsemi.
Verðlækkun
bræðslusíldarafurða
Þegar þetta er skrifað, þá
situr Verðlagsráð sjávarafurða
á rökstólum og ræðir kröfu
síldarbræðslueigenda um lækk-
að hráefnisverð til sjómanna
og útvegsmanna á bræðslusíld.
Síldarmjöl hefur lækkað nokk-
uð á heimsmarkaði en síldar-
lýsi þó miklu meira, þegar mið-
að er við markaðsverð ársins
1965, sem var óvenju hátt, sök-
um aflabrests við strendur
Perú. Nú í ár var hinsvegar
metveiði fyrri hluta ársins á
ansjósu-miðunum við Perú og
á sama tíma metveiði hjó
Norðmönnum á þeirra síldveið-
um bæði á Norðursjó og eins
við norðanverðan Noreg. Meira
framboð er því á mörkuðum
þessara afurða nú heldur en
oftast áður sem orsakar óneit-
anlega nokkurt vandamál í bili.
Þegar maður skoðar þetta
vandamál nú fer ekki hjá því.
að maður undrist það hvað
íslenzku síldarverksmiðjurnar
eða forráðamenn þeirra virðast
fjdgjast illa með því sem er
að gerast á sviði framleiðslu
mjöls og lýsis hjá öðrum þjóð-
um. Það var t.d. öllum- vitað
sem vildu vita strax á sl. vori.
að veiðar Perúmanna voru
orðnar þá óvenjulega miklar og
sama var með síldveiðar Norð-
manna. Ég sagði þá frá þessu
hvorutveggja hér í þessum
þáttum. Þegar svo stendur á,
sem stóð s.l. vor með veiðar
Perúmanna og Norðmanna, þá
var skynsamlegt að draga þá
ályktun að verð mundi ekki
fara hækkandi þegar Iiði á ár-
ið. Því segi ég þetta nú, að
í s.l. júnímánuði var ennþá
hægt að selja fyrir sæmilega
gott verð og þá seldi „Nord-
sildmel", sölusamtök Norð-
manna, mikið magn af síldar-
mjöli. Á sviði síldarlýsismark-í>
aðsins stöndum við íslending-1
ar mjög höllum fæti, þar sem
við þurfum að bjóða okkar
lýsi sem hráefni hverja einustu
smálest til lýsisherzluverk-
smiðja i öðrum löndum. Þarna
standa Norðmenn mikið betur
að vígi, þar sem þeir herða
meginhlutann af sínu Iýsi og
flytja það þannig á markað sem
unna vöru. Annars er margt
fleira sem nauðsynlegt er að
ræða af þessu tilefni. Nú þeg-
ar verðlækkun kemur á heims-
markaði ó síldarbræðsluafurð-
um þá kemur strax fram krafa
um lækkun á hráefnisverði til
sjómanna og útvegsmanna.
Hinsvegar minnist ég þess ekki
að talið hafi verið sjálfsagt að
hækka hráefnisverðið þó verð-
ið færi sífellt hækkandi á af-
urðum verksmiðjanna á s.l. ári.
Bara þessi tilvitnun sýnir að
þessi mál eru ekki í svo góðu
lagi hér hjá okkur sem þau
þurfa að vera. Ef sjómenn og
útvegsmenn eiga nú að taka
strax á sig lækkað verð afurð-
anna, þá hefði líka verið sann-
gjarnt að þeir hinir sömu hefðu
líka orðið aðnjótandi stöðugt
hækkandi verðs á síldarafurð-
um á, s.l. ári. en það var aldrei
svo mikið sem orðað.
Blað forsætisráðherra, Morg-
unblaðið, gerir þessi mál að
.umræðugfni í leiðara sínum 24.
f.m. og kemst að þeirri niður-
stöðu að síldarverksmiðjurnar
hafi á s.l. tveimur árum grætt
allmikið fé og af þeim sökum
væri ekki óeðlilegt að þær
tækju fyrst í stað á sig lækk-
að afurðaverð á heimsmarkaði.
Hinsvegar segir blaðið að þessi
gróði sé allur fastur þar sem
hann hafi. verið settur í aukn-
ar framkvæmdir hjá verk-
smiðjunum. Niðurstaða blaðs-
ins verður svo sú, að nauðsyn
beri til, að sjómenn og útvegs-
menn standi undir verðlækk-
un afurðanna með lækkuðu
hráefnisverði. í þessu sambandi
er nauðsynlegt að benda á þá
staðreynd, að norskt bræðslu-
sildarverð hefur um mörg
undangengin ár verið langt fyr-
ir ofan íslenzkt verð á bræðslu-
síld. Þessi verðmunur hefur
verið svo mikill eins og oft
hefur verið sýnt* fram á í þess-
um þáttum, að ekki gæti tal-
izt eðlilegt, ef þessum málum
væri jafn vel fyrir komið hjá
okkur sem Norðmönnum. Ég
hef áður í þessari grein bent
á herzlu Norðmanna á síldar-
lýsinu og þó verðaukningu sem
það skapar. Þó efast ég um að
allur verðmunurinn á hráefn-
inu fengist réttlættur gegnum
þann aðstöðumun. Hitt er mér
nær að halda að norskar síld-
arbræðslur eða forsvarsmenn
þeirra, hafi verið réttlátari i
samskiptum sínum við sjómenn
og útvegsmenn heldur en þeir
íslenzku, enda eru sjómenn og
útvegsmenn miklu meira ráð-
andi um hráefnisverð á síld og
fiski í Noregi heldur en hér,
svo þvi verður á engan hátt
samjafnað. Þessum málum er
líka mikið betur fyrirkomið hjá
Norðmönnum, þar selur f.d.
aðeins eitt fyrirtæki allt síld-
armjölið, það er Nordsildmel,
sem er sölusamlag allra verk-
smiðjanna. Þetta fyrirtæki
lagði í verðjöfnunarsjóð milj-
óna fjárfúlgur á sl. ári og
_ greiddu þó norsku síldarbræðsl- '
urnar mikið hærra hráefnis-
verð heldur en þær íslenzku.
Nú í ár getur svo farið ef
verðhækkun síldarafurðanna á
mörkuðunum verður varanleg,
að þá verði Norðmenn að
grípa til þessa verðjöfnunar-
sjóðs síns Hér er spegilmynd
af hinni gömlu hagfræði bónd-
ans, sem taldi á öllum tímum
nauðsynlegt að sjó fótum sin-
um forráð. Þar er horft fram
á veginn í stað þess að horfa
aðeins á tærnar á sjálfum
sér. íslenzka viðreisnar-þjóðfé-
lagið í dag ber hvergi á sér
þessi einkenni fyrirhyggjunn-
ar, hvorki í síldariðnaði né í
öðrum atvinnurekstri. Þar er
mest áberandi sjónarmið
brasksins, hins lausbeizlaða
gróða, sem fer sínar eigin leið-
ir án tillits til almennirftsþarfa.
Norski bræðslusíldariðnaður-
inn á síðustu árum, eftir að
hann slapp frá tímabili afla-
leysis, hann hefur tekið þessi
mál mikið skynsamlegri tökum.
Norðmennirnir hafa nú í hönd-
unum voldugan verðjöfnunar-
sjóð sem getur tekið ó sig þær
verðsveiflur sem verið hafa á
bræðslusíldarafurðunum nú í
sumar. Þetta hafa þeir getað
gert og þó hafa þeir greitt
mikið hærra hráefnisverð til
sjómanna og útvegsmanna
sinna. Þetta ætti að undirstrika
þá staðreynd, að þessi mál eru
ekki í svo góðu lagi hér hjá
okkur, sem þau gætu verið og
ættu að vera. Mikill gróði sild-
arverksmiðjanna á síðustu ár-
um er staðreynd. Miðað við
hvað Noi^Smenn hafa getað
greitt sjómönnum og útvegs-
mönnum fyrir síld í bræðslu,
þá hafa íslenzkir sjómenn og
útvegsmenn ekki fengið rétta
hlutdeild í þeirri verðmætis-
sköpun sem síldveiðarnar hafa
staðið að, ásamt síldarverk-
smiðjunum. Þessi mál öll þurfa
mikillar endurskoðunar við,
ekki sízt þar sem það er nú-
orðin staðreynd, að sjómenn og
útvegsmenn hafa strax í byrj-
un við fyrstu verðsveiflur á
mörkuðunum til lækkunar, orð-
ið að taka ó sínar herðar mikla
hráefnislækkun, eða úr kr. 1,71
fyrir síldórkíló í kr. 1,37 fyr-
ir kg.
Létt rennur
Gfidoó
FÆST í KAUPFÉLÖGUM OG
VERZLUNUM UM LAND ALLT