Þjóðviljinn - 04.10.1966, Síða 6
0 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 4. október 1966.
falt
falt
s°onslc
9°edavQrQ
EINKAUMBOD
LAUGAVEG 103 SIMI 17373
Sjónaukar Ódýru sjónaukarnir með bláu næturgleri
komnir aftur.
8x 30 verð 1150,00 kr.
7x 50 verð 1450,00 kr.
10x50 verð 1495,00 kr.
PÖSTSENDUM.
SPORTVAL Laugavegi 48, Sími 14390.
SPORTVAL HafnarfirðL
Frá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
Læknarnir Halldór Arinbjamar og Tryggvi
Þorsteinsson hætta störfum, sem heimilis-
læknar í þessum mánuði. Til miðs október
sinna þeir þeim samlagsmönnum sínum,
sem ekki hafa valið lækni að nýju.
Samlagsmenn þessara lækna þurfa að koma
í afgreiðslu samlagsins sem fyrst, sýna sam-
lagsskírteini sín og velja lækni.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
Læknaskipti
Þeir samlagsmenn, sem óska að skipta um
lækna frá næstu áramótum, snúi sér til af-
greiðslu samlagsins í októbermánuði og hafi
samlagsskírteini meðferðis. Skrá um lækna
þá, sem um er að velja, liggur frammi í af-
greiðslunni.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
nv I ■■ 111 1 i 2 1 1
lílllil rnm 1
Minningarathöfn um son okkar, bróður og tengdabróður
SIGURÐ THEÓDÓRSSON,
Réttarholtsvegi 55,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. október kl.
10.30. — Athöfninni verður útvarpað.
Karolína Sigurðardóttir. Theódór Ólafsson.
Hafdís Theódórsdóttir.
Ásthildur Theódórsdóttir. Ingimar Magnússon.
Jakobína Theódórsdóttir. Erlingur Guðmundsson.
Ólafur Theódórsson Sigriður Mikaclsdóttir.
• ítalskir sprelligosar í Víkingasal
• I»að eru nú meiri sprelligos-
arnir sem farnir eru að
skemmta í V íkingasal Loft-
leiðahótelsins. Þeir kalla sig
Dandy Brothers og eru bræður
í raun og veru, ættaðir frá San
Remo á Ítalíu og búsettir þar
— þ.e. þegar þeir eru ekki á
þveitingi út um allan hcim til
að liafa ofan af fyrir fólki sem
eyðir stundum sínum í fínustu
næturklúbbum stórborganna.
• Skemmtir í Lídó og á kvöldskemmt-
unum í Austurbæjarbíói á miðvikud.
Ingcla Brander með umboðsmanni sínum. Fritz Ruzicka.
Og nú er hún komin liún Ing-
cla litla og farin að skemmta
í Lídó. Við höfum áður sagt
frá henni hér í blaðinu og
kannski óþarft að endurtaka
það eða rámar menn í að Ing-
ela Brander er sænsk, saxófón-
leikari, dans- og söngkona og
rafmagnsverkfræðingur að
menntun?
— Nei, ég nota þá mennt-
un ekkert enn, sagði Ingela
blaðamönnum þegar hún hélt
með þeim smáfund ásamt um-
boðsmanni sínum, ,ieím mikla
ævinlýramanni Fritz Ruzicka,
sem komið hefur margri stjörn-
unni til vegs og vírðingar, m.a.
Nínu og Friðriki sem hér urðu
sem vinsælust.
— Ég var smákrakki þegar
ég byrjaði að spila á saxófón,
segir Ingela og pabbi var al-
veg á móti því, honum fannst
alveg fráleitt að lítil stelpa
léki sér að svona stóru hljóð-
færi. En hann lét sig fljótlega
þegar hann sá að mér var al-
vara, og átta ára var ég komin
svo langt að mér var boðið
að leika í danska sjónvarpið.
Ég varð auðvitað bæði stolt og
glöð. en datt svo allt í einu í
hug, að eiginlega hefði ég aldrei
fengið alvarlega kennslu. Þá
iabbaði ég upp í tónlistarskól-
ann í Malmö og sagðist vilja
fá tíma í saxófónleik. Allt í
lagi, sagði skólastjórinn, komdu
aftur á fimmtudaginn. Nei, það
er of seint, sagði ég þá. Ég á
að spila í útvarpið í kvöld! —
I>etta var bezti brandari sem
hann hafði heyrt. — Seinna
gekk ég svo f tónlistarskólann
í mörg ár.
Og hvernig stóð á því að Ing-
ela varð rafmagnsverkfræðing-
ur, vilja blaðamenn fá að vita.
— Jú, pabbi var skólastjóri
við Teknisk Institutt í Malmö,
en við bjuggum venjulega hálft
árið á Kanaríeyjum eða Suður-
Spáni og ég fékk frí úr skólan-
um upp á það að pabbi kenndi
mér. Ég var í kvennaskóla og
ætlaði að taka stúdentspróf
þaðan, en byrjaði í tækninámi
hjá pabba og fannst þá ekki
taka því að halda áfram í
kvennaskólanum, svo það varð
úr að ég tók próf inn í tækni-
skólann og lauk síðan námi
þaðan.
Ingela lætur sér ekki lengur
nægja að syngja, dansa og spila
á saxófón á skemmtistöðum,
hún er orðin heimsþekkt sjón-
varpsstjarna og heíur leikið í
sex kvikmyndum í Danmörku,
Júgóslavíu og í Þýzkalandi.
Hún hefur leikið og spilnð inn
á fjölmargar hljómplötur, þar
af tvær LP.
Hér kemur Ingela Brander
fram tvisvar á kvöldi á veit-
ingahúsinu Lídó og á miðviku-
dag verður hún aðalstjarna á
tveim kvöidskemmtunum i
Austurbæjarbíói, en þar verður
einnig týzkusýning. Ömar
Ragnars skemmtir með nýju
númeri, Sextett Ólafs Gauxs
leikur og kannski syngur Fritz
karlinn Ruzicka eitthvað af
gömlu Vínarlögunum sínum.
—- v.h.
Toppkraftar, — kannski segir
það einhver jum eitthvað að þeir
hafa þrisvar komið fram í Ed
Sullivan show bandaríska sjón-
varpsins.
Þrjátíu ár hefur eldri bróð-
irinn starfað sem skemmti-
kraftur og 25 ár sá yngri. Áður
gengu báðir í tónlistarháskóla
í Padova og blés annar horn
en hinn söng. Hann syngur enn
og það svo að hver miðlungs-
hetjutenór gæti prfsað sig sæl-
an yfir röddinni. Sá eldri er
hættur að blása í hornið, en
flautar í þess stað — og þeir
reyndar báðir
Hvað er þá svona gaman?
Söngur og flaut? En sú vit-
leysa! Auðvitað er það vitleysa,
en skemmtileg. Og kostulegt að
sjá þessa litlu, feitu karla
dansa, syngja og leika af sömu
lipurð og tvítugir væru. Geisl-
andi af fjöri og fullir af gríni.
Þeir ætla að skemmta í Loft-
leiðahótelinu til 12. október,
komu hingað á sunnudags-
morgun frá Sviþjóð þar sem
þeir hafa verið við Folkepark-
ene í sumar, tóku eina æfingu
með hljómsveitinni kl. 5 og
komu fram um kvöldið við
afburða undirteklir í fullskip-
uðum Vikingasalnum. Hljóm-
sveit Karls Lilliendals stóð sig
með prýði við undirleikinn og
á hrós skilið fyrir að gc(,a
fylgzt jafnvel með ókunnum
kröftum eftir jafnlitla æfingu.
Loftleiðahótelið er nú búið
að ráða skemmtikrafta fram að
áramótum að því er Friðrik
Theódórsson sagði blaðamönn-
um. Á eftir Dandy Brothers
koma Los Valdemosa, 4 manna
hljómsveit spænsk með dans-
nra og söngkonu, síðan Vic
Domino, danskur jafnvægis-
listamaður, þá Mats Bahr
sænskur látbragðsleikari og
eftirherma og síðast egypzki
töframaðurinn Gally Gally sem
skemmti í Víkingasalnum í
sumar og verður hann frá 15.
des. fram að áramótum. — v.h.
13.15 Við vinnuna-
15.00 Miðdegisútvarp. Sigurður
Björnsson syngur. M- Pollini
og Philharmoniai í Lundúnum
leika Píanókonsert nr. 1 op.
11 eftir Chopin; P. Kletzki
stj- J. Hammond og C. Cnaig
syngja ástardúetta úr óperum
eftir Puccini.
16.30 Síðdegisútvarp. M. Mc-
Partland, F- Pourcel, C.
Tjader og T. Ferstl stjóma
hljómsveitum sínum. Los
Machucambos syngja og leikai
suðræn iög. E. Garner leikur
lög á píanó-
18.00 Lög leikin á píanó. W.
Malcuzynski leikur Prelúdíu,
sálm og fúgu eftir C. Franck
og smærri lög eftir Szyman-
owski, og Chopin-
20.00 M. Home syngur við
undirleik ópemhljómsveitar-
innar í Covent Garden.
20.20 Á höfuðbólum landsins-
Jón Helgason ritstjóri flytur
erindi um Leirá.
20.45 Prelúdía og fúga í Es-dúr
eftir Bach-Schönberg. Rúss-
neska ríkishljómsveitin leik-
ur; G- Rozhdestvenskij stj.
21.05 Skáld 19. aldar: Einar
Benediktsson. Jóhannes úr
Kötlum les úr kvæðum
skáldsins- Kristinn E. Andrés-
son ílylur íorspjall.
21.25 7’íanómúisik: Fou Ts‘ong
leikur sónötu eftir Scarlatti.
21- 45 Búnaðarþátttur: Landbún-
aður í Austur-Þýzkalandi.
Gísli Kristjánsson ritstjóri
flytur lokaerindi sitt.
22.15 Kvöidsatgan: Grunurinn.
22- 35 M. Elman leikur á fiðlu
og J. Seiger á píanó.
22.50 Á hljóðbergi Bjöm Th.
Bjömsson listfræðingur velur
efnið og kynnir: „The Rivals“,
leikrit eftir Richard Sheridan.
Aðalhlutverk leika Dame E..
Evans, P. Brown, MacLiam-
moir og J. Donald. Leiks+í-:
Howard Sackler.
• Vaknaði við
vondan draum
• Henry Tracy skreið að næt-
urlagi inn í auðan sendi-
ferðabíl og svaf þar af nóttina
svefni hinna réttlátu; þetta var
í bænum Bismarck í Dakóta.
Þegar hann vaknaði um morg-
uninn stóð bíllinn í miðjum
garði þess sama fangelsis, sem
Tracy hafði strokið úr daginn
áður!
Garðyrkjustöðin EDEN Hveragerði
hefur opnað útsölustað í Reykjavík.
Blómaverzlunin EDEN h.f.
í DOMUS MEDICA við Egilsgötu.
Bjóðum yður fjölbreytt úrval af nýafskomum
blómum og úrval pottaplantna.
Einnig margrskonar gjafavörur. Þar á meðal
norskar koparvörur og keramik blómavasa á
mjög hagstæðu verði. — Þar að auki ótal margt
fleira, sem aðeins fæst í EDEN.
Blómoverzlunin EDEN h.f.
Sími 2-33-90.
EDEN HVERAGERÐI
útvarpið