Þjóðviljinn - 04.10.1966, Blaðsíða 10
Þing brezka Verkamannaflokksins hafið í Brighton
Búizt við harðri gagnrýni á Wilson
vegna Vietnams og efnahagsstefnu
Hróp gert að Wilson (,hræsnari' — ,Vietnam') við messu í Brighton
á sunnudaginn — Flokksstjórnin á undanhaldi í ályktun um Vietnam
BRIGHTON 3/10 — Þing brezka Verkamannaflokksins
hófst í Brighton í dag. Búizt er við að allharðar sviptingar
verði á þinginu og þykir víst að hörð hríð verði gerð að
Wilson, ríkisst’jóm hans og flokksstjórninni vegna afstöðu
þeirra í ýmsum málum og þá einkum Vietnam-málinu og
efnahagsmálum.
Þegar áður en þingið varsett
í dag höfðu Wilson og félagar
féngið að kenna á þeim óvin-
saeldum sem þeir hafa bakað
sér með stefnu sinni baeði í
utanríkis- og irinanlandsmálum.
Bm þúsund bílasmiðir höfðu
safnazt saman fyrir framansam-
komuhúsið þar sem þingið or
haldið til að mótmæla stefnu
stjórnarinnar í efnahagsmálum
sem leitt hefur til samdráttar
og atvinnuleysis í bílaiðnaðinum.
Þeir hrópuðu að Wilson þegar
hann kom af setningarfundinum
í fylgd með lögreglumönnum:
Niður með kaupbindingarstefn-
una. Við viljum fá vinnu.
Hróp í kirkju
Vinstrisinnaðir stúdentar höfðu
í gær truflað guðsþjónustu sem
að venju var haldin fyrir þing-
setninguna í Brighton. Þeir
hrópuðu „hræsnarar“, „morð-
ingjar“ og „Vietnam", þegar
þeir Wilson og Brown utanrík-
isráðherra hófu að lesa ritning-
argreinar.
Blómabúðin Eden opnuð í Domus Medica
Sl. föstudag var opnuð í Dom-
ns Medica við Egilsgötu ný
blómabúð, EDEN, útibú frá
Garðyrkjustöðinni og verzluninni
Eden í Hveragerði.
Sagði forstjóri verzlunarinnar
í viðtali við Þjóðviljann, að þessi
verzlun væri nú opnuð hér í
Reykjavik til að bæta þjónust-
una og ná betur til viðskipta-
vinanna yfir vetrarmánuðina
þegar umferðin fyrir austan
minnkar.
Hjá Eden fást bæði pottablóm
og afskorin blóm í eins miklu úr-
vali og árstíminn leyfir, og er
mikill hluti þeirra ræktaður hjá
Eden en sumt aðkeypt. Einnig
verða til sölu í blómabúðinni
gjafavörur allskonar. Nú um
haustið er mest til af chrysantem-
um, sem eru sterk blóm og
skrautleg og standa lengi og eru
notuð við öll möguleg tækifæri,
sagði Bragi nema ekki í brúðar-
vendi. Aðsþurður hvað virtist
vera vinsælasta blómið hjá við-
skiptavinunum sagði hann, að
rósin væri alltaf eftirsóttust þeg-
ar hún fengist, en einnig væru
nellikur afar vinsælar. En chrys-
antemum er mikið að vinna á,
sagði hann.
Stúdentar höfðu komið sér
fyrir á mörgum stöðum í troð-
fullri kirkjunni og þegar Brown
stóð upp til að lesa úr biblíunni
var hrópað til hans „hræsnari",
en um þverbak keyrði þegar
Wilson hóf lesturinn. Hrópað
var að honum úr öllum hornum
kirkjunnar og gafst hann að
lokum upp við lesturinn. Lög-
regla var kvödd á vettvang og
rak hún um 25 pilta og stúlkur
úr kirkjunni; og voru níu þeirra
leidd fyrir rétt í Brighton í dag.
Á undanhaldi.
Stjóm Verkamannaflokksins
samþykkti í gær ályktun umut-
anríkismál sem lögð verðurfyrir
flokksþingið og felst í henni
nokkurt undanhald frá þeirri
stefnu sem stjóm Wilsons hefur
fylgt til þessa í Vietnam-málinu.
þótt enn sé lýst yfir stuðningi
við Bandaríkin.
í þessari ályktun er það tekið
fram að Þjóðfrelsisfylkingin í S-
Vietnam verði að eiga aðild að
ölium samningaviðræðum um Vi-
etnam. Þar er kveðið fastar að
orði um þetta atriði en byezka
stjómin hefur gert til þessa; hún
hefur látið sér nægja að taka
undir með Bandarikjastjóm sem
segir að samningsaðild Þjóð-
frelsisfylkingarinnar ætti ekkiáð
vera neitt vandamál.
Orðsending frá
Kvenfélagi
sosia
lista
Félagsfundur verður haldinn í
kvöld kl. 8,30, þriðjudaginn a.
okt., í Tjamargötu 20.
Pundarefni:
1. Vetrarstarfið.
2. Erindi; Samband milli þýzku
rikjanna, Guðmundur Ágústs-
son hagfræðingur.
3. Sagt verður frá Neptún-skipa-
smíðastöðinni við Rostock.
4 Kvikmynd. — Kaffiveitingar.
Mætið vel og takið með ykk-
ur gesti. — Stjómin.
Launa-, kjara- og samningsréttarmáS
eru aðalviðfangsefnin á júngi BSRB
■ 24. þing Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja var sett
sl. sunnudag í Súlnasal Hótel
Sögu. Sitja það 123 fulltrúar
frá 27 bandalagsfélögum.
Forseti BSRB, Kristján
Thorlacius, setti þingið,
minntist látinna félaga og
bauð gesti þingsins velkomna
en síðan ávörpuðu gestirnir
þingið.
Fyrir hönd Alþýðusambands
fslands ávarpaði Jón Snorri Þor-
leifsson þingið, fyrir Farmanna-
og fiskimannasambandið talaði
Henrý Hálfdánarson, Sigurður
Öm Eiríksson frá Samfoandi ísl.
bankamanna og Kristján Karls-
son frá Stéttarsambandi bænda.
Fundarstjóri var kjörinn Stef-
án Árnason frá Starfsmannafé-
lagi Vestmannaeyja, 1 varafor-
seti Teitur Þorleifsson Sambandi
ísl. barnakennara. 2. varaforseti
Eiríkur Pálsson Starfsmanna-
félagi ríkisstofnana. Ritarar
þingsins voru kosnir Halldór Ól-
afsson Félagi opinberra starfs-
Kristján Thorlacius
manna ísafirði, Kristín Þorláks-
dóttir Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar, Ármann Halldórs-
son Landssambandi framhalds-
skólakennara og Ingólfur Guð-
mundsson Starfsmannafélagi
stjórnarráðsins.
Forseti bandalagsins, Kristján
Thorlacius, ræddi því næst
skýrslu stjómar er lögð var
prentuð fyrir fundinn, en megin-’
viðfangsefnin á starfsárinu voru
launa- og kjaramál. Auk þess var
mikil önnur starfsemi sem stjórn-
in hafði með höndum. Eru launa-
og kjaramálin aðalmál þingsins
ásamt samningsréttarmálinu og
skipulagsmálum sambandsins.
Næst flutti Einar Ólafsson
gjaldkeri bandalagsins reikninga
þess en síðan var umræðum um
skýrsluna og reikningana frest-
að til mánudags. Að lokum voru
kjörnir starfsmenn þingsins en
fundi síðan frestaðt
í gær hófst þingfundur kl. 4,15
síðdegis og fóru þá fram umræð-
ur um skýrslu stjórnarinnar.
Tóku þessir til máls: Haraldur
Steinþórsson, Lúðvík C. Magn-
ússon, Matthías Guðmundsson,
Guðjón B. Baldvinsson, Ólafur
Björnsson og Kristján Thorlacius.
Þriðjudagur 4. október 1966 — 31. árgangur — 224. tölublað.
r
Arangurslaus sáttafund-
ur í prentaradeilunni
■ Efckert hefur gerzt í vinnudeilu Hins íslenzka
prentarafélags og atvinnurekenda, og stendur því
hvort tveggja óbreytt, samþykktin um að vinna
ekki aukavinnu frá 1. október, og verkfallsboðun
prentarafélagsins f-rá 'og með n.k. laugardegi, 8.
október.
■ Á laugardaginn var haldinn sáttafundur með
deiluaðilum en sá fundur bar engan árangur. Annar
sáttafundur hefur verið boðaður á morgun, mið-
vikudag.
Kosningar til ASÍ-þings:
Allmörg félög völdu
fulltrúa um helginu
Stóðu umræður þar til á áttunda
tímanum í gærkvöld en þá var
fundi frestað.
í gærkvöld og í morgun áttu
nefndir að ljúka störfum en
fundur verður settur að nýju kl.
4,15 síðdegis. Verða þá ðg á
kvöldfundi afgreidd nefndarálit.
Á morgun mun fara fram
stjórnarkjör og síðan verða þing-
slit. ■
Um síðustu helgi völdu all-
mörg verkalýðsfélög fulltrúa
sína á þing Alþýðusambands
fslands sem haldið verður í
næsta mánuði.
17 fulltr. Verkakvennafél. Fram-
sóknar, í Reykjavík á ASl-þing
urðu sjálfkjörnir og fer hér á
eftir listi yfir þá: Jóhanna Eg-
ilsdóttir, Jóna Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Ingi-
björg Bjarnadóttir, Ingibjörg
ömólfsdóttir, Þórunn Valdimars-
dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Guðmunda Ólafsdóttir, Hulda
Ottesen, Guðbjörg Brynjólfsdótt-
ijr, Guðrún Björnsdóttir, ,Guð-
björg Guðmundsdóttir, Ingibjörg
Stefánsdóttir, Kristín Simonar-
•dóttir, Jenny Jónsdóttir, Inga
Jenný Þorsteinsdóttir og Helga
Guðmundsdóttir.
Kosning fulltrúa Verkalýðsfél.
Vöku, Siglufirði, á ASl-þing fór
fram á fundi í félaginu fyrir
nokkm. Þessi vora kjörin sem
aðalfulltrúar félagsins: Óskar
Garibaldason, Þorvaldur Þor-
leifsson, Jón Gíslason, Guðrún
Albertsdóttir, Ólína Hjálmars-
dóttir og Anney Jónsdóttir.
Sl. laugardag klukkan 16.00
var útrunninn frestur til að
skila tillögum um fulltrúa Hins
íslenzka prentarafélags á 30.
þing Alþýðusambands íslands.
Aðeins ein tillaga kom fram og
eru því eftirtaldir menn sjálf-
kjörnir fulltrúar félagsins á
næsta þing A.S.Í.:
Aðalfulltrúar: Jón Ágústsson,
Óðinn Rögnvaldsson, Pjetur Stef-
ánsson, Stefán Ögmundsson.
Varafulltrúar: Ellert Ág. Magn-
ússon, Pálmi A. Arason. Jón
lyiár Þorvaldsson. Guðrún Þórð-
ardóttir.
Vegna þrengsla í blaðinu verða
fréttir af fulltrúakjöri í allmörg-
um félögum að bíða birtingar.
Eitranin
Framhald af 1. síðu.
skógar umhverfis verksmiðjuna
urðu brúnir og ná þau áhrif allt
upp I tíu kílómetra fjarlægff frá
bræðslunni. Einnig hafa blóm og
ávaxjatré í námunda bræðslunn-
ar látið mjög á sjá. Hins vegar
hefur ekki enn orðið vart við
tjón á jarðávöxtum og dýrum.
Kærur vegna þessa máls hafa
verið sendar svissneska auð-
hringnum, iðnaðarmálaráðuneyt-
inu norska og fleiri aðilum.
Sátfofundur
fram á nótt
Kl. 4 í gær hófst sáttafundur
í kjaradeilu starfsmanna Sem-1
entsverksmiðjunnar á Akranesi.
Er Þjóðviljinn leitaði fregna af
fundinum á ellefta tímanum í
gærkvöld höfðu samningar enn
ekki tekizt og var búizt við að
fundurinn stæði fram á nótt, en
verkfall átti að skella á hefðu
samningar ekki tekizt fyrir mið-
nætti.
Herðnbreið
Frarrfhald af 1. síðu.
i dag og skipið síðan dregið til
Reykjavíktir til fullnaðarviðgerð-
ar.
Ómögulegt er að segja hve
miklar skemmdirnar eru, sagði
Guðjón, en hugsanlegt er að und-
irstöður undir vélum og skrúfu-
ás hafi eitthvað haggazt og því
ekki þorandi að láta skipið
sigla með eigin vélarafli til
Reykjavikur.
Guðjón sagði að hætt væri við
samgöngutruflunum vegna þessa
óhapps, þar ‘sem Skipaútgerðiri
hefði nú aðeins Heklu og Herj-
ólf til strandferða auk Herðu-
breiðar, en verið er að búa Esju
undir sölu eins og áður hefur
verið skýrt frá í fréttum.
Gerði morðtilraunir og var látinn laus
Kl. rúmlega 7 e.h. á laugar-
dag fékk lögreglan í Keflavík
tilkynningu um að géðveill
maður handléki skotvopn við
heimili sitt þar í bæ og hót-
aði að skjóta bróður sinn. —
Maðurinn var handtekinn eft-
ir langt þóf, réðist þá á lög-
reglumenn með rýtingi en —
var síðan látinn laus!
Þegar lögreglumenn komu
að heimili vopnaða mannsins
vísaði bróðir hans þeim á
hann í skúr á lóðinni. Hafði
maðurinn læst skúrnum inn-
anfrá og v.ildi ekki koma út.
Þegar hann varð var við lög-
regluria hleypti hann af skoti
og svaraði ekki þegar til hans
var kallað eftir það.
Brutu lögreglumenn upp
skúrinn og sáu manninn i
einu horninu þar sem hann
var í hnipri og miðaði á þá
riffli. Eftir nokkrar málaleng-
ingar lagði hann riffilinn frá
sér og kom þá í ljós að byssan
var hlaðin og uppspepnt.
Maðurinn var handtekinn
og fluttur í fangageymslu lög-
reglunnar. Þar gerði hann
,sér lítið fyrir og réðist á tvo
lögreglurpenn og reyndi að
stinga þá með rýtingi sem
hann hafði falið í sokki sín-
um.
Var maðurinn afvopnaður
og eru vopnin bæði í geymslu
lögreglunnar, en manninum
var eins og fyrr segir sleppt
úr haldi af hvaða ástæðu sem
sú ráðstöfun hefur verið gerð.