Þjóðviljinn - 18.11.1966, Blaðsíða 5
Föstudagur l£. oóveraber 1956 — ÞJOÐVILJINN — SÍi'A g
255 þás. prentaðar bækur í Lands
Srókasafni og 11832 handritabindi
Árbók Landsbókasafns fyr-
ir árið 1965 er nýkomin út.
1 greinargerð landsbókavarð-
ar, dr. Finnboga Guðmunds-
sonar, um starfsemi ó því ári
er þess getið. að bókaeign
safnsins hafi í árslok numi'ð
rúmurn 255 þúsundum prent-
aðra bóka, en handritaeign
þess 11832 handritabindum-
Af meiri háttar bókagjöfum
er skýrt sérstaklega frá um
eitt þúsund binda bókagjöf
Þorleifs Erlendssonar kennara
Erlendis í'ylg.ja bókuni stund-
um hljómplötur, sem hafa að
geyma upplestur höfunda á
bókarefninu að mcira eða
minna leyti.
Det Schönbergske Forlag í
Kaupmannahöfn sendi Þjóðvilj-
anum á dögunum eina slíka
„plötu-bók“, Ijóðabókina „Min
h&nd 66“ eftir Per Höjholt, sem
virðist vera mikill framúi’maður
í Ijóðagerðinni og þó enginn
byrjandi, því að hann hefur
óður sent frá sér nokkrar ljóða-
bækur, þá fyrstu fyrir 17 árum.
Á hljómplötunni, sem fylgir
„Min hánd 66“, er upplestur
höfundar á úrvali ljóða úr bók-
inni, svo og ljóða úr annarri
bók sama höfundar sem sama
forlag gefur út samtímis og ber
heitið ,,Show“. Bókin „Min
h&nd 66“ er 48 síður og kostar
kr. 26;50 danskar með plötunni;
frá Jar'ðlangsstöðum í Mýra-
sýslu, og annarri áþekkri gjöf
Gunnars H. Róbertssonar, rit-
höfundar og leikstjóra, er lézt
1. desembcr 1964. Gunnar arf-
leiddi Landsbókasafn að á-
kveðnum hluta bóka sinna,
alls rúmlega 800 bindum. Er
þar einktrm um að ræða leik-
rit á ýmsum tungumálum og
hvens konar bækur aðrar, er
lutu að leiklist.
Gunnar Róbertsson gaf
Landsbókasafni einnig lalsvert
hin bók Pers Höjholt er í litlu
broti, 46 síöut og kostar d. kr.
14,75.
Til viðbótar skal hér getið
þriggja nýrra bóka Schönbergs.
„Kolingen & Co.“ er nafn á
nýrri útgáfu á skopteikningum
og sögum Alberts Engströms,
Kjeld Elfelt valdi og þýddi.
160 síðna bók og kostar kr.
19.75 danskar.
„Pomo-doter, 2x69“, er 63
síðna bók, úrval klámfenginna
smásagna og skrítlna, sem C. G
Grönvold hefur safnað en Jörg-
en Mogensen myndskreytt. Verð
d. kr. 9,75.
f>á er að nefna bókina „Smil
med politikeren", 68 síðna bók,
sem hefur að geyma 101 skrítlu
um danska þingmenn. Claus
Lemboum hefur safnað en
Eiler Kragh gert teikningar.
Bókarverð: d. kr. 9,75.
safn handrila, leikrit, sem
hann hafði sjlálfur samið, þýtt
eða unnið úr kunnum skáld-
verkum, cnmfremur kvik-
myndahandrit, ritgerðir, blaða-
greinar, bréf o. fl.
Af öðrum handritum, er
Landsbókasafni bárust árið
1965, má nefna handrit Björg-
vins Guðmundssonar tón-
skálds, er Mienntamálaráðu-
neytið íesti kaup á og fól safn-
inu til varðveizlu.
41 bréf Stephans G- Stephans-
sonar til Jakobs Normans í
Wynyard í Saskatchewan barst
safninu frá Steinunni Inge,
systur Jakobs, um hendur sr.
Benjamíns Kristjánssonar.
Margra annarra liandrita-
gjafa • er getið, þótt hér verði
ekki taldar.
í skýrslu landsbókavarðar er
ennfremur greint frá mynda-
deild safnsins, er gegnir sí-
vaxandi hlutverki, frá aðsókn
að safninu, nýjum starfsmönn-
um, endurbótum á Safnahús-
inu o. fi.
Efni Árbókarinnar er aö
öðru leyti skrá um íslenzk rit
árið 1964, skrá um rit á er-
lendum tungum eftir íslenzka
menn eða um íslenzk efni, og
hefur Ásgeir Hjartarson sam-
ið þær.
Þessar ritgerðir eru í Ár-
bókinni: ritgerð Ólafs M.
Ólafssonar um Völuspá Kon-
ungsbókar, þar sem freistað er
ýmissa nýrra skýringa á þessu
forna kvæði, ritgerð Jóns Þór-
arinssonar um Björgvin Guð-
mundsson tónskáld, og fylgir
skrá um handrit hans, ritgerð
Gríms M. Helgasonar um
handrit Þorsteins Erlingssonar,
en börn Þorsteins og frú Guð-
rúnar Erlings, Svanhildur og
Erlingur læknir, gáfu safninu
fyrir nokkrum árum mikið
safn' handrita skáldsins.
Pétur Sigurðsson ritar um
eintak Landsbókasafns af Jesp-
ersens Gradual frá 1573, og
Finnbogi Guðmundsson grein-
ina: Nokkurar sögur — í hjá-<j>.
verkum uppskrifaðar, en hún
fjallar um myndskreytt sagna-
handrit vestan af Fellsströnd
frá scinni hluta 19. aldar, er
Landsbókasafn eignaðist á ár-
inu.
Árbók Landsbókasafns er að
þessu sinni 155 blaðsíður og
fæst hún í safninu og kostar
kr. 100,00.
Eldri árgangar Árbókarinn-
er, þ.e. frá 1944—1964, eru enn
fáanlegir, alls rúmlega 2000
blaðsíður, og geta þeir, sem
þess óska, keypt þá í Lands-
bókasafni fyrir aðeins kr.
500,00, meðan upplag endist.
Er þar einnig tekið við nýjum
áskrifendum.
Ný kosningalög
PARlS 16/11 — Franska stjórn-
in hefur ákveðið að leggja fyrir
þingið frumvarp um breytingar
á kosningalöggjöfinni, sem talið
er að vekja muni upp mikil
mótmæli stjómarandstöðunnar.
Þýðingarmesta atriði breytingar-
innar er það, að sá frambjóðandi
sem ekki nær tíu prósent at-
kvæða í fyrstu umferð, geti ekki
boðið sig fram í annarri um-
ferð. .
Upplestur höfundar fy/gir
Ijóðabókinni á hljómplötu
Hús Landsbókasafns við Hverfisgötu.
„Lukkuridiarfsin"
í Þjóileikhúsfliu
Föstudaginn 25 þ.m. verður
frumsýning í Þjóðleikhúsinu á
leikritinu „Lukkúriddaranum'‘
eftir írska skáldið John Milling-
ton Synge. Leikrit þetta hét
upphaflega „The playboy of the
western world“, en þvi hefur
nú verið lítið eitt breytt með
tónlistarívafi og söngvum í
raddsetningu Mairin og Nuala
O'Farrell. Lögin sem sungin
eru og leikin í leiknum eru
þekkt írsk þjóðlög.
Jónas Árnason, rithöfundur,
hefur þýtt leikinn, en hann
þýddi einnig leikritið „Gísl“
eftir Brendan Behan fyrir Þjóð-
leikhúsið, og þótti sú þýðing
með afbrigðum snjöll.
Höfundur „Lukkuriddarans"
John Millington Synge, er
fæddur í Dublin árið 1871. For-
eldnar hans voru mótmælendur
að ættarhefð, en mikill meii'i-
; :------------:---———«>
John Milliúgton Synge ,
bokmenntir
Merk atvik og almennar útleggingar
Ingólfur Jónsson.
Axel Thorsteinsson.
Ingólfur Jónsson i'rá
Prestbakka. Láttu loga,
drengur. Dagar fjármála-
manns. Skáldsaga.
Skuggsjá, 157 bls.
Axel Thorsteinsson. Horft
inn í hrcint hjarta — og
aðrar sögur frá tíma fyrri
heimsstyrjaldar.
Ilökkur. 317 bls.
ví er ekki að neita að o£t
skýtur upp kollinum ósk
um að fá sannfróðlega bók um
það, hvernig auður verður til á
íslandi. Ekki er að svo komnu
máili hægt að búast við því að
við fáum samvizkusamlega fé-
lagsfræðilega rannsókn á því
fyrirbæri, og sjaldan eru æv:-
sögur „athafnamanna" sem kall-
aðir ern, teknar saman af þeirri
hreinskilni að nægi til að gefa
nokkra íullnægjandi mynd af
íslenzkri auðsöfnun. Þó má vel
halda því fram, að við séum að
þessu leyti betur settir ef litið
er til fyrri áratuga — hinsvegar
hefur sú ævintýralega og stór-
furðulega auðsöfnun sem átt
hefur sér stað á síðari árum
ekki hlotið verðuga greinargerð.
A.m.k. ekki svo okkur reki
minni til.
Það hlýtur því að vera for-
vitnilegt að opna bók þá, sem
bcr undirtitilinn „dagar fjár-
málamanns“ og Ingólfur Jóns-
son írá Prestbakka hefur saman
skrifað. Það kemur hinsvegar
fljótt á daginn, að við höfum
gert okkur rangar vonir. Ævi-
dagar okrara þess, sem er aðal-
persóna sögunnar, eru svo sér-
stæðir, að þeir eru í sjálfu sér
hæpin heimild um það fyrir-
bæri sem að ofan greinir.
Lausaleiksbarn, kryplingur, sem
í uppvexti mætir ekki öðru en
kulda, fyrirlitningu og hatri,
herðist smám saman í hörmu-
legum átökum við heiminn og
hefnir sín á honum með því að
féfletta menn undir kaldri
grímu okrarans, felandi þó
undir þessari grímu ást á feg-
urð og skálldskap. Þetta er í
stuttu máli sú saga sem sögð
er. Og höfundur tekur hana
þeim tökum, að ekki er líklegt
til að hún verði til þess að
varpa birtu góðri á þær aðstæð-
ur sem skapa slíkan mann.
Sögunni er skipt í þætti,
sem hverjum um sig er ætlað
að lýsa þýðingarmiklum skref-
um á ferli olnbogabarnsins sem
varð auðkýfingur með skugga-
legum hætti. Atvik þessi eru- ef
til vill ekki ómerk í sjálfu sér.
En þau reynast of fá: það er
til að mynda allsendis óljóst
hvernig persónu sögunnar tekst
að koma fram éformi sínu og
BARNABÆKUR
Nína Tryggvadóttir:
Skjóni.
Helgafell 1966.
Það er sannarlega gleðilegt
að fá í hendur nýja bók eftir
Nínu Tryggvadóttur. Fyrri bæk-
ur hennar hafa notið slíkra vin-
sælda, að þær eru bókstaflega
lesnar upp til agna. Barnabæk-
ur slitna mjög í meðförum eins
og skiljanlegt er, jafnvel þótt
reynt sé að gæta þeirra, en
margir foreldrar álíta, að bækur
handa litlum börnum séu bein-
línis til þess að rifa þær, þess
vegna þarf að endurprenta góð-
ar barnabækur jafnóðum og
þær seljast upp.
ná valdi í krafti auðs, hvemig
auður hans verður til, mjög yf-
irborðleg lýsing er látin nægja.
Og höfundur leyfir þessum at-
vikum ekki að tala sínu máli,
þau hverfa í óstöðvandi til-
hneigingu hans til að leggja iit
af þeim í vondum ræöustíl,
fullum með hátíðlegar glósur.
Viðhorf höfundar em ekki
nema góðra gjalda verð: samúð
með olnbogabami, hatur á sam-
félagi, sem er fullt „af þessum
gapandi úlfum, sem eru alls
staðar í kringum okkur, bíðandi
eftir tækifæri til að bíta.“ En
þessi viðhorf ná einfaldlega
skammt. Þau duga hvergi til að
byggja upp sannfasrandi mann-
lýsingu, oftar er hitt að drættir
persónunnar drukkni í velvilj-
aðri mælsku. Þar að auki gerir
höfundur lesendanum þann 6-
Nínu Tryggvadóttur lætur
einkar vel að segja litlum böm-
um skemmtilega sögu, bæði með
orðum og myndum, og er hvort
tveggja svo listilega samanofið
að tæpl. finnst galli. Myndirn-
ar eru ekki útskýrðar með orð-
um né heldur eru þær óþarft
skraut, sem er aukið við frá-
sögnina, þær segja sinn hluta
sögunnar og koma þá £ stað
orða án þess að endurtaka sagð-
an hlut. önnur opna bókarinnar
er gott dæmi um þetta samspil
orða og mynda. Kunningjar
Skjóna aru ekki nefndir, heldur
aðeins sagt: „Hér eru þeir.“
Höfundur eftirlætur litlum
ieik að gei'a honum aUt ljóst og
fyrirhafnarlaust f rá upphaf1:
þegar á fyrstu blaðsíðum bók-
arinnar segir okrarinn hug sinn
allan — ef ég hefði ekki féflett
fíflin hefðu aðrir gert það, allir
munu sparka í þig ef þeir geta,
láttu því ekki á betri tilhncig-
ingum bera og bíttu frá þér ..
Atli Már hefur gert skemmti-
legar myndir við bókina, sem
er smekklega út gefin.
Höfundur bókarinnar „Horft
inn £ hreint hjarta“ gekk
í Kanadaher árið 1918, og kom
herdeild hans til Evrópu
skömmu áður en heimsstyrjöld-
inni lauk, munaði minnstu að
hún lenti í orustu síðustu sitund-
imar fyrir vopnahlé, síðan var
deildin sett til setuliðsstarfa £
Framhald á 7. síðu.
manni þá stolfcu gleði að benda
á hænsnin, kýmar og hundinn,
því þetta eru líka kunningjar
hans.
Sagan er ósköp einföld. Skjóni
vesalingurinn er hvorki svartur
eða hvítur eins og hinir hest-
amir á bænum. Hann einn er
skjóttur. Ógæfu af þessu tagi
skilja allir krakkar.
Myndimar eru svarthvítar
pennateikningar, dregnar fáum,
sterkum dróttum. Línan er
örugg, þó svo gáskafull, að hver
einasta mynd sindrar af fjöri
og klmni.
Vílborg Dagbjartsdóttir.
hluti írsku þjóðarinnar er sem
kunnugt er kaþólskur., Synge
stundaði nám við Trinity-há-
skólann og lilaut verðlaun fyrir
kunnáttu í írsku og hebresku.
Annars var það tónlistin, sem
átti hug hans allan á þessum
árum, og hafði hann í hyggju
að helga sig henni eingöngu.
H-ann ferðaðist með fiðluna
sína til nokkurra landa Evrópu
og hafnaði loks í París og hugð
ist setjast þar að. Um þær
mundir munu bókmenntir hafa
orðið honum hugleiknari en
tónlistin og tók hann nú þá á-
kvörðun að helga sig ritlistinni,
en París var þá sem oftar mið-
stöð ungra byltingasinnaöi'a rit-
höfunda og skálda, Þarna hitt-
ust þeir Synge og írska stór-
skáldið W. B. Yeats og varð sá
fundur afdrifaríkur fyrir þá
báða.
Yeats haf'öi mikil áhrif á
Synge. Eftirfarandi ræða er
höfð eftir Yeats „Synge, yfir-
gefðu París, hér skapar þú aldr-
ei neitt af vili. Farðu til Ai'an-
eyjanna á Irlandi. Lifðu þar
eins og þú værir þar innfæddur,
tjáðu það líf, sem aldrei hefur
áður verið tjáð“ Og Synge
kvaddi hina lífsglöðu París og
hélt til Ax-aneyja ái'ið 1898.
Þetta varð mjög öfíagaríkt
fyrir leikbókmenntirnar,' þvi að
dvöl Synge meðal blálátaúíra
eyjai'skeggja Aran var forsond-
an fyrir leikritum, sem eru al-
veg einstök í mörgu tilliti: Rid-
ers to the Sea ’04 (sýnt í Iðnó af
írsku.m stúdentum), The Well o£
the Saints 1905, The Playboy of
the Westei'n World 1907, sem
Þjóðleikhxísið sýnir nú. The
Tinkers Wedding 1908 og
Deirdre of the Sorrows, gefið
út að honum látnum árið 1910
með formála eftir Yeats. Leikrit
þessi eru í rauninni óður lil
hinnar frumstæðu náttúru Aran,
borin uppi af því undursamlega
málfari sem þetta frumstæða og
einangraða fólk talaði.
Synge andaðist ái'ið 1909 að-
eins þi'játíu og átta ára gamall.
-,Lukkuriridarinn“ er mjög
skenxmtilegur leikui', kryddaður
vinsælum þjóðlögum og hefur
leikurinn jafnan komið leikhús-
Framhald á 7. sí'ðu.
Samspil orða og mynda