Þjóðviljinn - 18.11.1966, Síða 7
Föstudagur 15, nóvember 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SXOA J
Umsagnir um bækur
Framhald af 5. síðu,
Rínarhéruðum. Frá þessum dög-
um segir Axel Thorsteinsscm í
einni langri sögu og nokkrmp
þáttum, og byggir að mestu
leyti á persónulegum minning-
um. Sögurnar hafa flestar birzt
áður.
Hér segir frá ömurlegum
hversdagsleik hermannalífs, frá
lús, kulda og hungri, angurvær-
um minningum að heim^n og
skyndiástum, kynnum af því
fólki sem í gær taldist til óvina
og reyndust sem betur fer á-
nægjuleg, frá heimkomu her-
manna sem varð oft dapurleg.
Axel Thorsteinsson er ekki einn
þeirra, sem þessi styrjöld gerði
að lakari manni, síður en svo:
harm snýr aftur með þá hugsun
sterkasta að hermennska sé
viðbjóður, að hatur sé alþýðu
styrjaldarríkja „ekki rótgróin
tilfinning", hann fagnar af ein-
lægni hverju tilviki sem sýnír
að alþýðusynir, færðir í ein-
kennisbúning, eru famir að
skilja að þeir ,,em allir bræð-
ur“, eiga samstöðu. Og eðli-
lega skýtur upp beiskju í huga
höfundar þegar hann sér lof-
sungnar hetjur gærdagsins
standa í biðröð eftir atvinnu-
léysissúpu skömmu eftir , að
heim er komið — eftir ölmusu
frá þeim sem grasddu fé á því
að senda þá í sláturhúsið mikla.
Þessi afstaða er ekki ný tíðindi,
en jafn virðingarverð og hún
er sjálfsögð.
Góðvild og samúð setja mik-
inn svip á þessar sögur — þar
með er að sjálfsögðu ékki sagt
að þær séu vel gerðar. Þær
bera þess glögg merki að þær
eru yfirleitt skrifaðar fyrir um
það bil fjórum áratugum. HÖf-
undur er mjög margorður, nú-
tímalesari telur sig sakna sam-
þjöppunar, einstök atvik þessara
daga, sem vissulega er betra að
segja frá en ekki, eru ekki Ját-
in sjálf segja sögu, heildur er
jafnan lagt út af þeirn mjög
rækilega í kennimannlegum tón.
Og þessar útleggingar verða til
trafala ekki aðeins vegna þess,
að þær em of langdregnar, of
almenns eðlis og ofhlaðnar til-
finningadýrð, heldur og vegna
þess að þær eru endurteknar
tilbrigðalítið: það er ekki nema
gott að skrifa um bræðralag
allra manna, en það er tilgangi
höfimdar háskalegt að dreifa
þeim boðskap í einhæfu hófr
leysi um allstóra bók.
Báðar þær bækur sem hér er
sagt frá eiga margt sammerkt:
höfundar fást við merkileg við-
fangsefni, þeir ganga til starfa
fullir með samúð og kristilegt
hugarfar, sem freistar þeirra til
mjög almennra hugíeiðinga,
hversdagslegra útlegginga og
boðskapar — dugar hinsvegar
ekki til þess að sá veruleiki,
sem glímt er við verði á-takan-
legur, til að lesandinn finni sig
nema nýjan landsskika, til að
galdur hins óvænta heyrist
kveðinn.
A. B. %
jr
Islenzkt
/
dægurlaga-
kvðld
í Lídó í kvöld. Eingöngu ieikin ÍSLENZK DANSMÚSIK.
ÚRVALS SKEMMTIATRIÐI: Leikhúskvartettinn með und-
irleik Magnúsar Péturssonar. VALA BÁRA SYNGUR
ÍSLENZK LÖG. Einleikur á harmóniku: Gunnar Guð-
mundsson Sverrir Guðjónsson syngur á ný. DANSKI
SJÓNHVERFINGAMAÐURINN VIGGO SPAAR SKEMMT-
IR. Sextett Ólafs Gauks ásamt Svanhildi og Birni R. Eln-
arssyni. KYNNIR JÓNAS JÓNASSON. Missið ekki af af-
bragðs skemmtun. AÐEINS ÞETTA EINA KVÖLD. Matur
framrfeiddur frá kl. 7. BORÐPANTANIR í SÍMA 35936.
Félag íslenzkra dægurlagahöfnnda.
Styrkveitingar
Félagsmenn éða ekkjur þeirra, sem óska eftir
styrk úr styrk,tarsjóði Meistarafélags húsasmiða í
Reykjavík, sendi skriflegar umsóknir til ’skrif-
stofu félagsins, Skipholti 70, fýrir 10. des. n.k.
f umsókn skai greina heimilisástæður.
Stjórnin.
Þökkum sýndan vinarhug við andlát og jarðarför
HELGU MARÍU ÞORBERGSDÓTTUR.
frá Krossi.
Vandamenn.
Lukkuriddarinn
Framhald af 5. síðu.
gestum í gott skap á þeim 60
árum, sem liðin eru síðan hann
var fyrst sýndur í Dublin. Leik-
urinn þótti mjög byltingar-
kenndur og hneyksíanlegur,
þegar hann var fyrst sýndur
árið 1907, ,og það lá við að
hann yrði bannaður, en silíkar
hafa vinsældir leiksins verið að
segja má að hann hafi verið
sýndur einhverstaðar í heimin-
um á hverju ári síðan, þótt ekki
hafi hann komið fyrr á ís-
lenzkt leiksvið-
Leikstjóri er Kevin Palmer,
og er þetta þriðji leikurinn sem
hann stjórnar fyrir Þjóðleikhús-
ið Una Collins gerir leikmynd-
ir. Leikendur eru alls 14, og
fara eftirtaldir leikarar með
helztu hlutverkin: Bessi Bjama-
son, Kristbjörg Kjeld, Helga
Valtýsdóttir, Baldvin Halldórs-
son, Ævar Kvaran, Jón Sigur-
bjömsson, en með minni hlut-
verk fara: Þóra Friðriksdóttir,
Klemenz Jónsson, Valdimar
Lárusson, Margrét Guðmunds,
Brynja Benediktsdóttir og Sig-
ríður Þorvaldsdóttir og fl.
íþróttir
Framhald af 2. síðu.
A. Stúlkur:
Bringusund 10x33 jó m.
Gagnfræðaskóli Hafnarfjarð-
ar vann 1961 (5.12.9) Árið 1962
vann Kvennask. í Rlykjavfk
(5.20.5). Árið 1963 vann G.
Keflavíkur á tímanum 5.00.1.
Árið 1964 vann G. Keflavíkur á
4.47.2. Síðastl. ár var keppt um
útskorna styttu frá Kongó og
vann G. Keflavíkur á 5.03.5
rm'n. Bezta tíma á þessu sundi
á Gagnfræðaákóli Keflavíkur,
4.47.2 eða meðaltfma einstak-
lings 28.8 sek.
B. Piltar:
Bringusund 20x33% m.
Menntaskólinn í Reykjavík
vann 1961 (tími 8.28.7 éða með-
altími 25.4 sek). Árið 1962 vann
Kennaraskóli íslands (8.03.5) en
1963 vann sveit Menntaskólans
í Reykjavik á 8.39.5 og sami
skóli vann 1964 á 8.25.8. Meðal-
tími 25.2 sek. Síðastl. vetur var
keppt um útskoma styttu frá
Kongó og vann hana Mennta-
skólinn i Reykjavík á 8.21.1
mín.
Tilkyrmingar um þátttöku
sendist sundkennurum skólanna
í Sundhöll Reykjavíkur fyrir
yngri flokka föstudaginn 2. des.
fyrir kl. 16 og fyrir eldri flokka
miðvikudaginn 7. des. fyrir kl.
16.
Hið síðara sundmót skólanna
1966—‘67 fer að öllum líkindum
fram í Sundhöll Reykjavíkur
v fimmtudaginn 3. marz. n.k.
Nefndin.
vcitingaJiús i Ó
Smurt brauð
Snittur
við Oðinstorg.
Simi 20-4-90.
B I L A
LÖKK
Grunnur
Fyilir
Sparsl
Þynnir •
Bón.
EINKAUMBOÐ
ASGEIR OLAFSSON heildv.
Vonarstræti 12. Sími 11075.
ASKUR
BÝÐUR
YÐUR
SMURT
BRAUÐ
& SNITTUR
ASKUR
suðurlandsbraut lli-
sími 38550
{gitlmeníal
HjólbarBaviðgerBir
OPIÐ ALIA DAGA
(LfKÁ SUNNUDAGA)
FRÁ KL 8 TIL 22
GÚMMÍmmWFAN HF.
Skipholti 35, Reykjavík k
SKRIFSTOFAN: sími 3 06 88
VERKSTÆÐIÐ: sfmi310 55
Regnklæðin
sem spurt er um, eru þau
sem halda mýkt frá byrj-
un til enda.
Þau fást á hagstæðu
verði hjá
VOPNA
I Aðalstræti 16.
úr og skartgripir
KORNELlUS
JÚNSSON
skólavbrdustig 8
Viðgerðir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta. ‘
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Brötugötu 3 B.
Sími 24-6-78.
Vélrítun
Símar:
20880 og 34757.
ÞVOTTU R
Tökum frágangsþvott
og blautþvott.
Fljót og góð afgreiðsla
Nýja þvottahúsið,
Ránargötu 50.
Sími 22916.
Pússningarsandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir af
pússningarsandi heim-
fluttum og blásnum ínn.
Þurrkaðar avikurpiötur
og einangrunarplast.
Sandsalan við
Elliðavog s.f.
EUiðavogi 115. Sími 30120.
p; mm
SÍMASTÓLL
Fallegur - vandaður
Verð kr. 4.300.00.
Húsgagnaverzlun
AXELS
EYJOLFSSONAR
Skipholti 7. Sími 10117.
Guðjón Styrkársson
hæstaréttarlögmaður
AUSTURSTRÆTl 6.
Sími 18354.
KENNSLA OG
TILSÖGN
í latinu, þýzku,
ensku, hollenzku,
frönsku.
Sveinn Pálsson
Sími 19925.
Tilkynning um
sölu á kolum
Hafin verður sala á kolum til upphitunar þeirra
íbúða í Reykjavík sem hafa kolakyndingu, svo og
til þeirra fbúða á hitaveitusvæðinu, sem hafa kola-
katla til vara og vilja notfæra sér þá.
Vegna þess hve kolabirgðir eru nú takmarkaðar,
verður einungis unnt að selja kol til upphitunar
íbúða í Reykjavík og verða kolin fyrst um sihn
skömmtuð, þannig að hver notandi (íbúð) getur að-
eins fengið 2 poka af kolum í senn, á viku hverri.
Kolin verða seld á kr. 125,00 pr. 50 kg. poka,
og eihungis gegn staðgreiðslu.
Afgréiðsla kolanna fer fram í afgreiðslu Malbikun-
arstöðvar Reykjavíkurborgar við Elliðaár, sími
17848, þessa og næstu viku, daglega, fró kl. 1 til 5,
nema laugardaga, en eftir það aðeins á miðviku-
dögum frá kl. 1 til 5.
Kaupendum ber að sýna afgréiðslumanni borgar-
innar nafnskírteini og verða reikningar géfnir út
á nöfn kaupenda. v
Um heimsendingu á kolum verður ekki að ræða.
Ekki verður unnt að selja kol til utanbæjarmanna
eða til upphitunar á öðru húsnæði en íbúðum.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Forstöðukona óskast
að leikskóla vió Háagerði.
Umsóknir sendist skrifstofu Sumargjafar, Fom-
haga 8, fyrir 12. des. n.k.
Stjórn Sumargjafar.
ÚTB0F
Tilboð óskast i sölu á 15.000 rúmmetrum af hrá-
efni til framleiðslu á muldum ofaníburði. '
Útboðsskilmála má vitja í skrifstofu vora, Vonar-
stræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurhorgar.
RHftS