Þjóðviljinn - 02.12.1966, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Pöstudagur 2. desember 1966.
Yfirlýst stefna rí kisstjórnarinnar
í verðlagsmálum fær ekki staðizt
■ Hér fer á eftir kafli úr ræðu Lúðvíks Jósepssonar við 1.
umræðu frumvarps ríkisstjórnarinnai- um heimild til
verðstöðvunar. Svarar Lúðvík fyrst Gylfa Þ. Gíslasyni
sem reynt hafði að gera sem allra mest úr erfiðleikunum
vegna verðfalls á sjávarafurðum erlendis og ræðir síðan
stefnu ríkisstjórnarinnar í verðlagsmálum sem beðið hef-
ur eftirminnilegt skipbrot.
Herra forseti. Ég tel að þær
upplýsingar sem viðskiptamála-
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason var
að gefa hér úr þessum raeðu-
stóli um áhrif verðlagsbreyt-
inga, séu vægast sagt mjög
hæpnar, ég minnist þess sérstak;
lega að hann gaf nokkuð svip-
aðar upplýsingar þessu haustið
1961, það var rétt um miðjan
nóvembermánuð, og þá kom
hann með áþekka útreikninga
þessum, um það, hvernig fara
mundi á því ári með þjóðar-
framleiðsluna og þjóðartekjurn-
ar og það fór heldur illa fyrir
þeim útreikningi Ég held iíka
að þessir útreikningar sem við-
skiptamálaráðherrá kom hér
fram með, séu mjög villandi og
lítið á þeim byggjandi. Ég V’l
þó ekkí draga úr þvi á neinn
hátt, sem vakti fyrir honurn
eflaust, að undirstrika að við
höfum orðið £yrir allmiklu á-
falli nú á síðari hluta ársins,
með verðfalli á okkar útflutn-
ingsafurðum; það er rétt, en
enn sem komið er vitum við
harla lítið um það, hvað þetta
áfall er mikið.
★
Sannleikur málsins er sá, að
verðið á útflutningsvörum okk-
ar yfirleitt hækkaði mjög veru-
lega á fyrri hluta þessa' árs,
en hins vegar lækkaði verðið
nokkuð á seinni hluta ársins.
Mjög mikið af þeim afurðum,
sem framleiddar hafa verið n j
á seinni hluta ársins, hafa ekki
verið seldar ennþá, vegna þess
að þeir, sem framleitt hafa
þessar vörur, hafa ekki viljað
sætta sig við það verðlag sem
hefur verið skráð á vörunum
nú í bili, enda er þegar komið
í Ijós, að þasj vörur sem eink-
,um hafa lækkað í verði, eins
og síldarlýsi, eru þegar famar
að hækka aftur. Það er um
talsverða hækkun að ræða nú
einmitt síðustu dagana, og
margt bendir til þess, að það
reynist rétt, sem hinir stóru
framleiðendur í Noregi, og víða
. hér í kringum okkur hafa hald-
ið fram, að það ætti enginn vafi
að leika á því, að verð á þess-
um vörum myndi fara hækk-
andi nú á næstunni. En Norð-
menn höfðu einmitt valið þá
leið, að Selja lítið sem ekkert
af framleiðsluvöru sinni, en
stafla henni hins vegar upp.
Slíkir útreikningar sem við-
skiptamálaráðherra gaf hér eru
mjög villandi, og segja harla
Lúðvík Jósepsson.
lítið urn það hvemig staðan sé
í raun og veru, að ég tali nú
ekki um þá meðferð, að reikna
út alla framleiðslu ársins 1966
á því verðlagi, sem menn hafa
vitað Iægst að varð á því ári,
og finna út að þannig sé áfall-
ið allmikið! Slíkt segir vitan-
lega ekki nokkum skapaðan
hlut og getur ekki haft aðra
þýðingu en þá, að hjálpa til aó
draga upp einhverja hryllings-
mynd,‘. sem á raunverulega
ejigan siafl.l veruleikanum...
Jarn-
tjaldið
Engum íslendingi þarf að
dyljast hvar járntjaldið er
statt um þessár mundir, eftir
að bandarísk stjórnarvöld
hafa reynzt ófáanleg til að
leyfa einum blaðamanni Þjóð-
viljans að kynna ' sér starf-
semi Loftleiða vestanhafs í
eina viku- Er neitunin rök-
studd með lögum sem tryggja
eiga öryggi Bandaríkjanna,
og mun naumast nokkur ön.n-
ur ríkisstjórn i veröldinni
telja si.g standa jafn ótraust-
um fótum — færi betur að
það mat væri rétt- Til sam-
anburðar má minna á að
Sovétríkin hafa um langt
skeið kappkostað að fá til sín
erlenda blaðamenn sem sízt
verða grunaðir um tilhneig-
ingar til kommúnisma; á
þessu ári ferðuðust til dæmis
tveir blaðamenn frá Morgun-
blaðínu og einn frá Tíman-
um um hið austræna stór-
veldi vikunum saman og hafa
síðan sagt frá för sinni af
fullri hreinskilni, án þess að
vitað sé að þeir Kosygin og
Bresnéf telji öryggi sitt í
hættu- Einnig1 Kína hefur
opnað erlendum blaðamönn-
um allar dyr árum saman, án
tiliits til stjómmálaskoðana
þeirra. þar á meðal frétta-
manni frá íslenzka ríkisút-
varpinu sem segir frá ferð-
um sínum í dálitið annarri
tóntegund en rauðir varðlið-
ar ástunda, og er þó ekki vit-
að að Maó hafi látið sér
bregða. En bandarískir valda-
menn hafa lengi haft skiljan-
lega meinsemd í sálinni; fyr-
ir nþkkrum ánrm framdi
bandarískur hermálaráðherra
sjálfsmorð með bví að kasta
sér út um glugga efst á
ekýjakljúfi og heyrðist hrópa
á leiðinni til jarðar: „Rússar
eru að koma“; ef til vill hafa
menn óttazt að arftaki hans
nú myndi velja sér sömu ör-
lög með hrópunum: „Vilborg
er að koma“.
öll dagblöðin og ríkisút-
varpið hafa skýrt frá þessum
bandarísku hömlum á frétta-
frelsi ■ íslenzkra blaðamanna,
og gagnrýnin hefur ekki
leyntsér. Hins vegar hefur.ekki
heyrzt að hérlend stjórn-
arvöld ætli að láta málið til
sín taka, og er þó ærin á-
stæðá til- Þvi er nefnilega
þannig háttað að ekki er
neitt .jafnræði í samskiptum
tslánds og Bandaríkjanna á
sviði ferðamála. tslendingar
sem vilja fara vestur um haf
verða að fá leyfi og sæta nið-
urlægjandi spurningum og
njósnum-' Bandaríkjamenn
sem vilja koma til tslands
þurfa ekki að sætta sig við
neinar þvílíkar hömlur, þeir
þurfa enga vegabréfsáritun,
engin leyfi- Ég hygg að mis-
ræmi af þessu tagi sé eins-
dæmi í samskiptum sjálf-
stæðra ríkja, þótt slíkt fyrir-
komulag tíðkist að vísu í ný-
lendum og hálfnýlendum-
Væri ærin ástæða til að ís-
lenzk stjómarvöld breyttu
þessu ósæmilega ástandi og
létu bandaríska ferðamenn
hér sæta sömu kostum og ís-
Iendingum bjóðast vestan-
hafs. Vilji ríkisstjómin ekki
ganga svo langt í einu vet-
fangi gæti hún til bráða-
birgða tekið upp þá reglu að
gera einn starfsmann banda-
ríska sendiráðsins hér land-
rækati fyrir hvem þann ís-
lending sem neitað er um
fararleyfi tll hins vestræna
stórveldis; þegar starfsfólk
sendiráðsins þryti væri svo
hægt að taka til við vemd-
arana. — Austri.
Bent hefur verið á f þess-
,.,úm, ixrjiræðum afl þafl,frumvarp
sem hér liggur fyrir frá ríkis-
stjóminni um heimild til stöðv-
unar á verðlagi, sé í rauninni
ekki um það sem hefur verið
Iátið f veðri vaka að frum-
varpið fjallaði tun, stöðvun á
verðlagi. Heldur sé miklu lík-
legra, að á bak við flutning
þess liggi tilhneiging ríkis-
stjórnarinnar að skjóta sér und-
an ákveðnum vanda nú, og láta
sem að hún vilji stefna að
verðstöðvun.
Ég v«:t að þingmenn hafa
tekið '*'ir því, að frumvarpið
er þannig uppbyggt, að það
mælir ekki fyrir um verðstöðv-
un, það eru engin lagafyrirmæli
f þessu frumvarpi sem segja
til um það að verðlagið skuli
stöðvast. Heldur er hér á ferð-
inni frumvarp sem leitar eftir
heimild handa ríkisstjóminni
til þess að mega grípa til slíkra
ákvarðana, ef henni sýnist svo
vera þörf.
Ef ríkisstjórnin hefði virki-
lega stefnt -að því að ætla sér
að stöðva verðlagið, eins og
það er nú komið, hefði auðvit-
að hin leiðin verið miklu eðli-
legri, að sett hefði verið lög-
gjöf um það að stöðva verðlag-
ið þar sem það er komið, og
síðan hefði þá verið að finna
í frumvarpinu ákvæði um und-
antekningu frá þessu, í þeim
tilfellum sem þótt hefði alveg
sérstök ástæða til að víkja frá
þeim. En sem sagt, ríkisstjóm-
in fer ekki þessa leið, af þvi
að hún virðist enn hikandi,
hvort hún eigi að stöðva verð-
lagið. Þess vegna biður hún að-
eins um að fá heimild sér t’l
handa, til þéss að geta fjallað
um þessi mál á þann hátt sem
hún telur sér henta.
Enda gat ég ekki betur ann-
að heyrt, á ræðu forsætisráð-
herra, en að það væri megintil-
gangurinn með því að flytja
þetta frumvarp og óska eftir
þessum heimildum, að ríkis-
stjómin teldi nauðsynlegt að
hafa þessar heimildir í höndun-
um í þeim samningum sem hún
ætti fyrir dyrum við launþega-
samtökin í landinu, um ákvörð-
un á kaupgjaldi. og svo þykir
ríkisstjórninni eflaust gott að
láta svo líta út í leáflirtni, að
það sé hún sem vilji fara verð-
stöðvunarleið, en það standi
jafnvel á öðrum að fara þessa
leið.
Það hefur verið stefna núver-
andi ríkisstjómar að láta fram-
boð og eftirspurn í landinu ráða
verðlaginu. Það hefur verið
stefna ríkisstjórnarinnar, að ekki
ætti að hafa nema sem allra-
minnst opinber afskipti af verð-
lagsmálum og því er það að
hún hefur haldið þannig á
þeim málum, að jafnt og þétt
hefur stefnt í þá átt að afnema
reglur um eftirlit með verðlagi;
sem í gildi hafa verið, eða gera
þær á annan hátt óvirkar með
miklu eftirlitsleysi, eða með því
að leyfa svo ríflega álagningar-
hækkun á þeim vömm sem
enn era undir verðlagsá-
kvæðum, að segja má að verð-
lagseftirlitið sé í rauninni að
mestu orðið óvirkt. Þetta hefur
verið stefna ríkisstjómarinnar,
svona hefur verið haldið á þess-
um málum allar götur þangað
til nú. Ég held það efist eng-
inn um það, sem lesið hefur t.d.
Morgunblaðið á undanförnum
ámm, að þar hefur þessari
kenningu verið haldið fram í
sífellu allan tímann, að hin op-
inberu afskipti af verðlagsmál-
um ættu að vera sem minnst
það ætti að ríkja fullkomið
frelsi hjá þeim sem hafa m-ð
sölu á vörum að gera að ákveða
verðlag vömnnar og svo ætti
frjálst framboð og eftirspurn
að ráða verðlaginu.
Nú hefur reynslan alveg skor-
ið ótvírætt úr um það að þessi
stefna hefur leitt til stórhækk-
aðs verðlags í landinu. Svo
virðist að með flutningi þessa
fmmvarps sé ríkisstjómin nð
viðurkenna það að nokkru leyt.i,
að þessi stefna fái ekki staðizt,
það þurfi að vfkja frá henni,
þó að stjómin hiki ennþá í bví
Framhald á 7. síflu.
K örfukn aftl eikur:
Landsleikur við
Skota í janúarlok
Ákveðið hefur , verlð, að
Skotar og Islendingar leiki
Iandsleik í körfuknattlcik hér
á fslandi í lok janúarmánaðar
Undirbúningur þessa leiks er
þegar hafinn og hefur lands-
liðisnefnd Körfuknattleikssam-
bands Islands valið eftirtalda
leikmenn til að æfa undir
handleiðslu landsliðsþjálfarams
Helga Jóhannssonar, og úr
þessum hópi verflur síðan val-
inn tólf manna hópur til að
keppa fyrir hönd Islands í
fyrrgreindum landsleik.
Leikmennimir eru þessir:
Frá Ármanni: Birgir Birgis,
Hallgrímur Gunnarsson, frá
IR: Birgir Jakobsson, Hólm-
steinn Sigurðsson, Agnar Frið-
riksson, Jón Jónasson, Pétur
Böðvarsson, Skúli Jóhaínsson
og Tómas Zoéga. Frá KFR:
Einár Matthíasson, Marinó
SveinssDn og Þórir Magnússon-
Frá KR: Ágúst Svavarsson,,
Einar Bollason, Gunnar Gunn-
arsson, Guttormur Ólafsson,
Kolbeinn Pálsson, Kristinn
Stefánsson og Hjörtur Hansson-
Frá Iþróttafélagi stúdenta:
Bjöm Ástmundsson og Hjörtur
Hannesson.
(Fréttatilkynning frá KKÍ).
Körfuknattleiksmót íslands
hefst um miðjan janúar
Þátttökutilkynningar fyrir
fslandsmótið f körfuknattleik
árið 1967 þurfa að hafa borizt
Körfuknattleikssambandi fs-
lands fyrir 15. desember n- k-
Ráðgert er að mótið hefjist
um mfðjan janúar mánuð-
Tekið skal fram að hverju
félagi er einungis heimilt að
senda eitt lið til þátttöku í i
hverjum flokki.
Þátttökugjald, eins og það
var ákveðið á nýafstöðnu þingi
KKÍ, skal greiða um leið og
þátttökutilkynning er lögð
fram eða send.
Þátttökugjald er sem hér
segir:
Mfl. karla kr. 1000,—, 1., 2■
fl- karla og Mfl. kvenna kr.
250,—, é., 4. fl- karla og 2. ffl.
kvenna 100,—.
ÞátttökutiJkynninigar. .. skail
senda til:
Körfuknattleikssambands ís-
lands, íþróttahöllinni,
Laugardal Reykjavík-
Heimilisrafstððvar framleiða rafmagn
fyrir hundruð sveifaheimila hér á landi
Fjarstýrð stöðvun fró íbúð
Við afgreiðum vélarnar með
rafmagnsrœsi
öryggisstöðvunarbúnaði
hljóðd’eyfiþófum —■
ása.mt öðrum nauðsynlegum
búnaSi eins og mœlatöflum
höfuðrofa, eldsneytisgeymum,
og fjarstýrðri stöðvun frá íbúð.
Við getum afgreitt 6 kw
stöðvar sfrax upp úr áramófum
Verð þéirra er um kr. 56.200.00
tán raforkumálastjórnar er
kr. 52.000.00 til tíu ára —
afborgunarlaust fyrstu 2 árin
S. STEFANSSON & CO. HF,
GARÐASTRÆTI 6 - SÍMI 15579 - PÓSTHÓLF 1006