Þjóðviljinn - 02.12.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.12.1966, Blaðsíða 5
Föstudagur 2. ðesember 1988 — ÞJÓÐVXUTNN — StÐA g bokmenntir Krístin menning og heiðindómur liermann Pálsson: Sið- fræði Hrafnkels sögu. Hehnskringla. Rvík 1966. 136 síður. Hér er á ferðinni eitt af þeim ritum. sem marka tímamót í ís- lenzkum fræðum. Hermann Páls- son hefur gert þá stórmeriai upp- götvun úti í Edinborg, að ísl. fornsögur séu skráðar ogsamdar af kristnum mönnum og ætlað- ar kristnum mönnum til fróð- leiks, skemmtunar og menningar- auka. Þetta er ýkjulaust ein af mestu uppgötvunum, sem gerðar hafa verið í íslenzkum fræðum á 20. öld. Ekki er svo að skilja, að það hafi verið öllum hulinn leyndardómur fram til ársins 1966, að ísl. fomsögur væru ekki skráðar af heiðingjum. Árið 1956 segir prófessor Magn- ús Már Lárusson í ritgerð í Andvara, að það sé eftirtektar- vert, „hversu skjótt tekst að uppræta heiðinn sið“ hér á landi. „Þótt leitaö sé með log- anda ljósi, er vart mögulegt að finna nokkra vcrulega heiðna leif í heimildum vorum frá kristna tímanum og má ekki ætla, að þær hafi verið svo hreinsaðar af öllu þess háttar af einhverjum ásetningi" (Magnús Már Lárusson: Biskupskjör á Islands, Andvari 1956, — 68-89) Hér ber þess að gæta, að allar heimildir vorar um fomar ald- ir eru skráðar af kristnum mönnum, en hluti Eddu- og dróttkvæða telst einn til orðinn fyrir árið 1000. Ég hef ekki orðið þess var,^ að nokkur sála hafi veitt orð-® um Magnúsar athygli, og ekki urðu þau Hermanni leiðarhnoð á fræðibrautum erlcndis. Hér hafa menn fimbulfambað um hundheiðnar lífsslcoðanir for- feðra vorra allt fram á þennan dag án þess aö hugleiða t’l neinnar hlítar, hvar heiðnar og kristnar lífsskoðanir greini á. Kerlingin sagði, að það væri ekki gaman að guðspjöllunum, þvi enginn væri í þcim bardag- inn. Þetta hefur verið trúarjátn- ing íslenzkra fræöimanna. Helg- ar bókmenntir íslendinga frá miðöldum (sögur postulanna, Maríu og helgra manna) éru miklar að vöxtum, cn engar þeirra hafa verið gefnar út hér á landi enn þá nema sögur fsl. dýrlinganna, og hin helgu rit eru þó gmndvöllur fsl. bók- mennta. Meðan menn sniðganga ritningar fræða sinna, er þcss að vænta að kerlingabækur verði þeim helzti hjartfólgnar. Árið 1940 birti Siguröur Nor- dal bækling um Hrafnkötlu og komst þar að þeirri einhlítu niðurstöðu, að sagan væri skáldrit. En þar með eru ekKÍ allar gátur ráðnar. Menn hafa verið tröllriðnir af þrá til list- sköpunar á öllum öldum, en nauðasjaldan svalað sér með því að berja saman bók á borð við Hrafnkötlu. Hermann hef- ur tekið sér fyrir hendur að skýra, úr hvaða jarðvegi hún sé sprottín, og finnur fyrir sér íslenzka frjómold hgkristinnar menningar um miðja 13. öld. Kristur kenndi mönnum í dæmisögum, og jafnan síðan hefur slíkt verið siður kristinr.a kennimanna. Hrafnkatla er dæmisaga, eins og Sigurður skólameistari sýndi fram á og stendur djúpum rótum í krist- inni siðfræði. En sagan er dá- h'tið meira; höfundur hennar var ckki einungis kcnnimaöur, heldur einnig einn af mestu listamönnum sem íslenzk þjóð hefur alið, og nefnir Hermann hann Brand ábóta Jónsson af ætt Svínfellinga. fslenzkir boð- endur heilagra kenninga á 12. og 13. öld voru engir útafdauð'r andlegir guðsgeldingar, heldur sálnahirðar og leiðtogar; menn sem st<x)u mitt f lífsins stríði með fólkinu f landinu. Hrafn- katla er siðfræðilegt skemmt'- rit, samið til þess að vera les- in og sögð í veizlum og á síö- kvöldum, og fólk tók þessu riti tveim höndum. Hreppakerlingar á Austfjörðum kunnu Hrafn- kötlu og Gunnar§ þátt Þiðranda- bana og sögðu nær orðréttar allt fram á þessa öld. Ein slfkra var Sögu-Helga Jónsdóttir Gíslasonar frá Fremraseli í Tungu Jónssonar Sigurðs- sonar á Bessastöðum í Fljóts- dal. Sögu-IIelga var fædd um 1805 og lifði í nær lOOár og sagði Hrafnkötlu og margar aðrar sögur mönnum til mikill- ar skemmtunar (Sögn Benedikts Gíslasonar frá Hofteigi.) Bók Hermanns er samin af myndugleik og þrótti, eins og vcra ber, þegar pennanum stýr- ir einn af frægustu rýnendum íslenzkra bókmennta fornra. verið langdvölum mér þykir örla á í garð íslenzkra #• • U ! Fjölmiðlun og firring Hann hefur erlendis og misskilningi fræðimanna, einkum Nordals. Hermann viðurkennir víðar en á cinum stað, að hann standi fræðilega á herðum hans, en gerir hins vegar allmikið úr skcðanamuni sínum og hins aldna prófessors á uppruna Ilrafnkötlu. Nú er málum þann- ig háttað, að cnginn ísl. .fræði- maður er og hefur verið frjáls- lyndari í skoðunum á ísl. fræð- um en Sigurður Nordal, opnari fyrir nýjungum. og jákvæðari gagnvart alls konar kenningum og skoðunum, jafnt þótt þær riðu í bág við það, sem hann hafði haldið fram um sama efni. Ég geri ckki ráð fyrir, að þá Hermann og Sigurð greindi að ráöi á um Hrafnkötlu, ef þeir ræddust við. Sigurður sá það réttilega, að sag/n er skáldrit, en hann fór aldrei út í þá sálma, að rekja fræði henn- ar til upptaka í samtíð höfund- ar, eins og Hcrmann hefur gert. Háskóli íslands ætti að bjóða I-Iermanni Pálssyni að koma 1 kynnisför til fyrirlestrahalds. Hann getur frætt okkur miklu< rækilegar en hann gerir í litlu bókinrii sinni um kristna sið- fraeði og íslenzkar fomsögur, og þessar 'margfróðu bókmenntir em afsprengi hákristinnar menningar. Bók Hermanns er skemmtileg og markar tímamót í rannsókn- um ísl. fornsagna. Björn Þorsteinsson. ann frítíma, sem ekki fer í þetta lífsþægindakapp- hlaup, nota menn helzt ekki til að lifa hann, einir eða með samskiptum við aðra, heldur er hann drepinn. Fjöl-_ miðlunartæki hins nýja menn- ingarstraums eru í hlutverki böðulsins og drepa tímann. Þau flytja menn burt frá - fjölskyldu sinni, náunganum og sjálfum sér og láta menn gleyma því, scm kringum er mcðan þeir lesa hlusta eða horfa á spennandi, skemmti- lega eöa fróðlega hætti og atburöi einhvei’s staðar úti í heimi. Ljóst dæmi til skýr- ingar þessu er mörgum kunn- ugt af eigin raun: kunningj- unum, scm koma í heimsókn til að ræða við húsráðendúr. er boðið sæti framan við sjónvarpsskerminn og ætlazt til að þeir hafi hægt um sig. Þannig verka lífsþæginda- kapphlaupið og fjölmiðlunar- tækin í sömu átt og tilbreyt- ingarlaus vinna í tækniþróuðu þéttbýli, draga úr lifandi, frjóum samskiptum við nátt- úruna, umhverfi sitt og hvers við annan, og í kjölfar slfkrar einangrunar fylgir vanmátta- kennd, lífsleiði og tilfinning um fánýti og tilgangsleysi mannlífsins.“ Þessi tilvitnun er úr grein eftir Hörð Bergmann sem birtist í nýútkomnu hefti Tímarits Máls og menningar. Hún gefur sjglf til kynna, að að hann verði að sinni að sleppa þvf að gera jákv^eðum hliðum fjölmiðlunartækja skil. tímarit það eru ekki smá og lítilsverð efni sem um er fjalliað, enda ber hún heitið „Fjöldamenn- ing og áhrif fjölmiðlunar- tækja“. Og það sést einnig a tilvitnuninni að viðfangséfni greinarinnar er tengt „firringu mannsi,ns í þjóðfélagi nútím- ans“ (um það skrifaði Loftur Guttonnsson grein i 4. hefti Réttar árg. ‘65) — og þar með eru nefnd einmitt þau vanda- mál, sem eru efst á baugi hjá öllum þeim sem áhyggjur hafa af þjóðfélagsþi'óun í okkar heimshluta, og þótt víðar væri leitað. Grein Harðar er gott yfirlit um fjöldamenningu og áhrif hennar, oft haganlega tengd dæmum í næsta umhveríi. Eðli hennar sem yfirlitsgrein- ar setja henni takmörk: það verður ekki farið nógu itar- lega í ýmsa hluti — höfund- ur telcur t.d. sjálfur það fram, En fyrst og fremst eru grein- k ar sem beirra Harðar oa * ar sem þeirra Harðar og Lofts nauðsynleg byrjun. Þeir, sem gera tilraun til þess á Is- landi að skrifa eða reeða um félagsleg fyrirbæri, menning- arpólitísk vandamál, verða þess áþreifanlega varir fljótt að þeir verða í ótrúlega rik- um mæli að reiða sig á brjóst- vitið og þefvísina. Og ber tvennt til: annarsvegar eru frumrannsóknir á þýðingar- miklum félagslegum fyrirbaer- k um ekki til, skýrslugerð mjög || takmörkuð — og hinsvegar eru jafnvel almennar umræður, byggðar á erlendum fróðleik. um fjöldamenningu, firringu og skyld vandamál mjög á frumstigi. Framtak sem það er birtist í nefndum yfirlits- greinum er þvi mjög jákvaett: það færir vandamálin napr, kynnir helztu röksemdir sera þeim er tengdar. Það er éinnig mjög jákvætt vegna þess, að það eru einmitt um- ræður um þessa hluti, sem eru hTdégastar til að hleypa fjöri í róttæka hugsun og róttæka þjóðfélagsgagnrýni — ekki mun af veita. i Rit um Jóhann skáld Sigurjónsson Nýjurbækurs Sissur juri og Skúíi fégeti • ÍSAFOLD er nú að hefja útgáfu á nýjum flokki bóka, ævisögum nokkurra mann:a sem borið hefur hátt í sögu íslenzku þjóðarinnar- „Menn í öndvegi“ nefnist þcssi bóka- flokkur og fjalla tvær fyrstu bækurnar um Gissur jarl og Skúla fógeta. Fulltrúi norskra stúdentasamtaka í boði háskólans Kristian Ottosen, forstjóri fé- lagsstofnana stúdenta við Oslo- arháskóla, kemur hingað til lands hinn 1. des. n.k. í boði Háskóla Islands og dvelur hér nokkra daga. Ritstjóri bókaflokksins er Egill Jónsson Stardal, söng- kennari í Verzlunarskólanum. Hann scgir i formála íymtu bókar flokksins að þctta verði flokkur „lítilla, handhægra rita um ýmsa menn, sem á liönum öldum hafa borið einna hæsf' í lífi þjóðarinnar í menn- ingarlegum, stjórnmálalegum og trúarlegum efnum, menn sem hafa skipað iindvegi i sögu hennar, — til ills cða góðs eftir því scm framvinda sögunnar hefur lcitt í ljós. Ilugmyndin er að út verði gefin bók um cinhvern cinstakan fulltrúa frá flestum tímabilum Islandssög- unnar. Þessar bækur eru clcki ætlaðar fræðimönnum til þess að finna þar ný sannindi eöa kenningar, hcldur æskufólki, sem vildi kynnast flciru en skyldunám skólanna leggur þeim á herðar og einnig þeim meðal hins almenna lesanda, er auka vildi þekkingu sína um þvílíkt efni.“ Fyrsta bókin í flokknurn „Menn í öndvegi“ er „Gissur jarl“, eftir Ólaf Hansson menntaskólakennara, röskar 150 síður. Bókarskraut og kápu gerði Halldór Pétursson list- málari. önnur bókin í flokknum er „Skúli fógeti“ eftir Lýð Björns- son, cand. mag., 100 síðna bók. Boðað er að næsta bók í flokknum „Menn í öndvegi“ verði Jón Loftsson eftir Egil Stardal, en síðan komi bækur Úlafur Hansson. um Hallgrím Pétursson, Jón biskup Arason og Jón Sigurðs- son forseta. Helge Toldberg: Jóhann Sígurjónsson. Gísli Ás- mnndsson þýddl. Heims- kringla 1966, 222 bls. Enn eru ekki til ýkjamörg rit um frcmstu skúld okkar og rit- höfunda, og það lilýtur að verða fagnaðarefni þegar þeim fjölgar, eins og nú hefur gerzt fyrir tilstilli dansks fræðimanns og Heimskringlu. Og nafn Jó- hanns Sigurjónssonar hlýtur af sjálfu sér að ýta undir forvitni manna: ferill hans var óneitan- lega ævintýralegur og yfirtak ,,skáldlegur“, auk þess var hann einhvcr ágætastur fulltrúi þess skáldahóps sem vann íslenzka bókmenntasigra í Danmörku, <-n um þau merkilegu tíðindi veit yngra fólk líklega miklu minnn en skyldi. Undrritaður býr ekki yfir ncinni þeirri þekkingu á Jó- hanni Sigurjónssyni, verkum hans og tíma að dugi til um- sagnar, sem mark verði á tékið, um það, hve trúverðuglega Helge Toldberg hefur unriið vcrk sitt. En ósérfróðum lesara vcitist auðvelt að komast oð þeirri niðurstöðu að nýlátinn® höfundur bókarinnar hafi unii- ið af dugnaði og samvizkusemi, að hann hafi varla látið sér sjást yfir margan fróðleik um verk Jóhanns Sigurjónssonar, sem nokkurs væri nýtur. Bezt virðist Ilelge Toldberg talcast að grcina frá leikritum Jóhanns, sköpunarsögu þeirra, sem oftlcga cr býsna flókin og beinlínis spennandi — er ekki ólíklcgt að þeir kaflar bókar- innar reynist nytsamlegastir frá fræðilegu sjónarmiði. Þá er og iíklcgt að vcnjulegur lesari vilji fallast á niðurstöður Toldbergs í lokakafla: um persónulega návist Jóhanns Sigurjónssonar í næsta gagnsæjum dulargervum í lcikverkum hans, um þá sterku ljóðrænu sem geti heM bjargað þeim undan miskun »r- leysi tímans. Hinsvegar getur það verið, að íslendingur sakni þess, að það sé sannað áþreifanlega í þessari bók að Jóhann Sigurjónsson hafi jafn „töfrandi persónu- leiki“ og af er látið — má þó vera, að Helge Toldberg hafi talið því verkefni að fullu sinnt í þeim minningarverkum og greinum sem til eru um skáldið. Hitt er áreiðanlega til trafaia í íslenzkri þýðingu bókarinnar, hve mikið er þar af óútskýrð- um nöfnum úr dönskum menn- ingarheimi, sem hljóta að verða fullkomlega dauð flestum nú- tímamönnum. Og Helge Told- lierg verður sakaður um að honum takist ekki sem skyldi að blása sönnu lífi í þann forða þekkingar og heimiWn, sem hann hefur viðað að sér, nefn- um ti;l að mynda fyrsta kafia bókarinnar, um íslenzkan bók- menntasigur í Höfn og tildrög hans, bráðskemmtilegt efni, sem verður miklu smærra og brotakenndara en efni standa ttl. Og það kemur fyrir að Helge Toldlierg fellur í þá algengu fílólógísku villu, oð tefla á twp- asta vaðið í tilrewn til að finna tengxli milli atvika. Nefnurn til dæmis þeswar skrýtnu setning- ar: „En landið hefur gefið Jó- hanni Sigurjónssyni annað en þennan dulda ótta. Það gerði hann að áhugasömum grasa- safnara, þangið, sem skolaðist upp i flæðarmálið, varð honum Jóhann Sigurjónsson. táknmynd í kvæðum hans, eg það vaknaði hjá honum óstöðv- andi dálæti á hafinu, sem kon honum til þess síðar meir í Kaupmannahöfn að taka á leijfa kvistherbergi, þaðan sem sást tft sjávar, eða þar sem götulíflð var svo fjarlægt, að það g*t komið í staðinn". Þá er þáð atvik í „Galdra-Lofti “ að Loft- ur lýsir þvi með aðdáun iA hann hefur séð Steinunni b*8a sig nakta í ánni á bls. 36 rakjð til persónulegra minninga Jó- hanns sjálfs um æskuunnustu Framhald á 7. síðu. Frásugnir úr sturfi ísienzkru sjómunnu „Menn i sjávarháska" nefnist ný bók sem Setberg gefnr út, en höfundur hennar er Sveínn Sæmundsson Maðafnlltrúi. Bökin hefur að geyma fimm- tán frásagnir „af barátfcunni við hafið; ef frækilegri framgöngu er menn lögðu líf sitt að veði til þess að bjarga úr sjávar- háska og börðust hetjulegri bar- áttu án þess að æðrast, þótt á stundum væri ekki annað sýnt en menn og skip týndust", eins og höfundur kemst að orði í eftirmála, en þar greinir hann ’einnig frá heimildum sínum. Margar myndir eru í bólrinni sem er 192 síður, prentuð í Set- bergi. Sveinn Sæmundsson samdi hliðstseða bók á síðasta ári, „1 brimjfarðinum.“ Sveinn Sæmundsspn,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.