Þjóðviljinn - 02.12.1966, Qupperneq 3
\
Föstudagur 2L desember 1966 — ÞJÓÐVHJINN — SÍÐA 3
Vestur-þýzk stjórn undir forsæti
Kiesingers var mvndui í gær
BONN 1/12. — Kristilegir demókratar (CDU) og sósíal-
demókratar (SDP) hafa myndað stjórn í Vestur-Þýzka-
landi. Þingið í Bonn kaus í dag Kurt Georg Kiesinger í
embætti forsætisráðherra með 340 atkvæðum gegn 109 en
23 sátu hjá, og er það meiri stuðningur en búizt hafði verið
við.'I gærkvöld urðu heitar umræður um stjórnarsamstarf
á fundi þingflokks Sósíaldemókrata, sem lauk með því að
meir en þriðjungur þingmanna greiddi atkvæði gegn slíkri
stjórnarmyndun eða sat hjá. Níu ráðherrar af 20 eru úr
SDP og er foringi þeirra, Brandt, utanríkisráðherra.
Á þingflokksfundi SDP greiddu
126 atkvæði með stjórnarsam-
starfi við CDU, 53 gegn, átta sátu
hjá og um 15 hafa ekki tekið
þátt í atkvæðagreiðslunni. Það
kom því á óvart að ekki skyldu
nema 109 vera beinlínis andvigir
Kiesinger í embætti forsætisráð-
herra, því að öllum líkindum
hafa allir 49 þingmenn Frjálsra
démókrata, sem nú eru í stjórn-
arandstöðu einir flokka, 'greitt
atkvæði gegn honum.
Leiðtogi sósíaldemókrata, Willy
Brandt, verður varafórsætisráð-
herra og utanríkisráðherra og
Herbert Wehner fer með mál er
varða báða hluta Þýzkalands og
v •
sjö aðrir ráðherrar frá SDP eru
í stjórninni. En sósíaldemókrat-
ar verða að bíta í það súra epli
ag Franz Josef Strauss verður
fjármálaráðherra, Schröder, fyrr-
um utanríkisráðherra, verður
varnarmálaráðherra.
Kiesinger og Strauss
Kiesinger, sem CDU valdi sem
forsætisráðherraefni . sitt fyrir
skömmu, hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir fortíð sína í
nazistaflokknum, en hann vill nú
láta telja sig frjálslyndan kaþól-
ika. Hann hefur nú um skeið
verið talinn einhver helzta
stjarna flokks síns í ræðustól.
Síðan 1958 hefur hann verið for-
sætisráðherra í fylkinu Baden-
Wúrttemberg.
Franz Jose( Strauss, sem nú
verður fjármálaráðherra, hefur
Wilson étur ofan í sig stóryrðin
verið einhver umdeildasti maður
á vettvangi vesturþýzkra stjórn-
mála. Hann hrökklaðist úr emb-
ætti varnarmálaráðherra árið
1962, er vikuritið Spiegel hafði
birt greinar, sem færðu líkur að
því að hann hefði misnotað að-
stöðu sína í auðgunarskyni.
Héldu þá margir að pólitískum
ferli hans væri lokið, en Strauss
hefur verið í sterkri aðstöðu í
Bæjaralandi en þar er hann
formaður kristilegra demókrata
(CDÚ). Strauss varð fyrst ráð-
herra árið 1953 þá 38 ára gam-
all.
Willy Brandt, sem nú tekur við
embætti varaforsætisráðherra og
utanrikisráðherra er fæddur 1917."
Han gekk snemma í æskulýðp-
samtök sósíaldemókrata, en flúði
lagði stund á blaðamennsku. í
land eftir valdatöku Hitlers,
Noregi og síðar í Svíþjóð, eftir
að Noregur var hernuminn. Hann
hefur átt sæti í borgarstjórn
Vestur-Berlínar síðan 1957. Árið
1964 tók hann við formennsku í
SDP eftir fráfall Kurts Schu-
machers.
Herbert Wehner, ráðherra sem
fer með mál beggja hluta Þýzka-
lands. er fæddur 1906. Hann varð
þingmaður fyrir kommúnista
1929. var kjörinn í miðstjórn út-
lægra þýzkra kommúnista i
Moskvu eftir valdatöku Hitlers.
en fór siðan til Svíþjóðar og
sneri þar baki við kommúnisma.
Hann hefur setið á þingi siðan
Bonnþingið varð til og verið
varaformaður flokksins síðan
1957. Hann hefur haft forgöngu
í því að flokkurinn fórnaði hin-
um róttækari stefnumiðum sin-
um til að breyta honum úr verka-
lýðsflokki í flokk „allra stétta“
— óg þar með rutt brautina að
því stjórnarsamstarfi sem nú
hefur teklzt.
Leit að verkum
Marx og Leníns
DJAKARTA 1/12 — Stórir hópar
vopnaðra hermanna og lögreglu-
manna gerðu nákvæmar húsrann-
sóknir í úthverfum Djakarta í
dag að leit að kommúnistum og
stuðningsmönnum þeirra. Voru
úthverfin rækilega umkringd áð-
ur en leitað var í hverju húsi.
Leitin hófst nokkrum stunduiú
eftir að bann við að eiga rit
eftir Karl Marx, Lenín, Maó
Tse-tung og aðra marxíska höf-
unda gekk í gildi.
STOKKHÖLMI 1/12 — Fjórir
vópnaðir ræningjar rændu í dag
300 þús. kr. sænskum í Sænska
verzlunarbankanum í Stokk-
hólmi. Einn þeirra hefur þegar
náðst.
Fór í gær til Seynif uncfar við
lan Smith um Ródesíumálin
LONDON 1/12 — Wilson, forsaetisráðherra Bretlands, og
Iart Smith, forsætisráðherra minnihlutastjómar hvítra
manna 1 Ródesíu, flugú í dag til fundar, þar sem gera á
úrslitatilraun til að leysa þær deilur sem risið hafa milli
þessara aðila um réttindi þeldökkra manna í Ródesíu.
Um þessar mundir er runn-
inn út sá frestur er stjórn Wil-
sons hafði gefið stjórn Smiths,
sem hún hefur talið ólöglega, um
að taka upp breytta stefnu í þá
átt að blökkumönnum verði
tryggð jöfn réttindi á við hvíta
menn í landinu. Á þá að koma
til strangra refsiaðgerða gagn-
vart Ródesíu, og SÞ hefur, að
frumkvæði Afríkuríkja, lagt að
Bretum að beita valdi til að
steypa stjórn Smiths ef ekki vill
betur.
Wilson gaf þá skýringu á ó-
væntu ferðlalgi sínu í brezka
þinginu í dag, að hann hefði á-
stæðu thil að ætla að lausn væri
nú*möguleg, og að ekki yrði vik-
ið frá þeim grundvallaratriðum
sem Bretar hefðu sett að skil-
yrði fyrir samkomulagi. Var hann
þá minntur á það, að fyrir að-
éins viku hefði hann lýst því
yfir að hann myndi aldrei tala
við Smith nema sem fulltrú^ lög-
legrar stjórnar.
Smith lagði af ^tað frá Salis-
bury strax í morgun en Wilson
flaug af stað í kvöld oe stefndi
til Gíbraltar. Ekki hefur verið
gefin út opinber tilkynning um
það, hvar fundum þeirra beri
saman, en álitið er að það verði
um borð í beitiskipinu „Tiger“,
sem hefur verið stefnt til Gíbralt-
ar frá Casmblanca. Brezkum
blaðamönnum. sem ætluðu til
Gibrailar helur verið meinað að
fylgja Wilson eftir.
Frá Zambíu, nágrannaríki Ród-
esíu, berast þær fréttir, að stjórn
landsins telji þennan fund svik
við málstað blökkumanna í Ród-
esíu, og álíti að Wilson tryggi
hinum hvíta minnihluta áfram-
haldandi forréttindi. Afrískir
stjórnarfulltrúar í London létu
og í ljós ótta um, að Wilson
myndi lýsa stjórn Smiths dög-
mæta í einhverju formi og þar
með koma í veg fyrir allar refsi-
aðgerðir.
Ritdómar um „Æskufjör
og ferðagaman"
„Það getur nærri að maður, sem svo langa sögu
hefur lifað sem Björgúlfur læknir hafi frá ýmsu
að segja, ekki sízt höfundur með jafn ótviræða
ritgáfu og ritgleði og hann“..Gamansejni af
þessu tagi er annað stíleinkenni Björgúlfá sem
hvarvetna yljar frásögn hans, og gerir þætti
hans skemmtilegri en hliðstæð efni yrðu í
höndum ólagnari höfunda"
Ó. J. Alþ.bl. 23. 11. 1966.
„ . . . . Þessar æviminningar hans eru mjög
frábrugðnar öðrum þeim gragrúa slikra bóka.
sem út hafa komið á íslenzku og rekja oft og
tíðum ýmis smáatvik. sem fáa skipti nema höf-
undinn sjálfan".
„Það sem gefur henni þó mest gildi er það, að
hún er ekki aðeins skemmtilestur heldur skil-
merkileg þjóðlífslýsing frá þeim tíma sem nú
er að verða jafnfjarlægur og miðaldirnar. Mun
því oft á komandi árum og öldum verða til
hennar vitnað, sem merkilegrar heimildar um
aldamótaskeiðið"
P.V.G. Kolka, Mbl. 25. 11 1966.
VIBIIAFPDIIEITI S.I.B.S.
Dregið verður á mánudag um 2.000 vinn-
inga að fjárhæð krónur 5.000.000,00.
Hæsti vinningur:
kr. 1.500.000,00.
UMBOÐIN OPIN
TIL KL. 10 í KVÖLD
BDIHM ITmH UlICI IIIIIUIIK
HUSGAGNAMARKAÐUR
Svefnsófar 2gja manna
Svefnsófasett
Eins manns svefnsófar
Svefnbekkir
Kassabekkir
Svefnherbergissett
Sófasett
Sófaborð
Stillanlegir hvíldarstólar
með skemli.
MUNIÐ
20%
AFSLÁTTINN GEGN STAÐGREIÐSL
ÍSLENIK HÚSGÖGN H.F. AuBbrekku 63, Kópavogl. — Simi 41690