Þjóðviljinn - 02.12.1966, Qupperneq 4
I
4 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 2. desember 1966.
Otgetandi; áameinlngarfloltkui nlþýðu — Sósíalistaflolds-
uriim.
Bltstjórar: Ivar H. Jónssori (áb>. Magnús Kjartansson,
Siguróur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigui'ður V. Friöþjófsson
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 Unur). Askriftaarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð Æ. 7.00.
Ofseintað iðrast..:
^nnað aðalblað ríkisstjórnarinnar segir umbúða-
laust í forystugrein í fyrradag: „ . . . stöðvun
verðlagsins er einmitt ein þeirra ráðstafana, sem
samið var um í júnísamkomulaginu. Enda þótt
nokkur tími hafi liðið síðan, er það takmark jafn-
naíiðsynlegt fyrir- verkalýðinn og það hefur ver-
ið“. Hér er það afdráttarlaust játað að eitt atriði
júnísámkomulagsins svonefnda var fyrirheit rík-
isstjórnarinnar um stöðvun verðlagsins, enda þótt
það loforð muni ekki hafa. verið fest á blað og und-
irritað. sem samningsatriði. Undanfarið. hefur
Bjarni Benediktsson og Morgunblaðið margsinnis
fullyrt að ekkert slíkt loforð hafi verið géfið í
sambandi við júnísamkomulagið, enda þótt for-
ystumenn verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík
hafi hvað eftir annað deilt fast á vanefndir ríkis-
stjórnarinnar á þessu sviði, og þau mótmæli m.a.
verið skjalfest með undirritun verkalýðsfélags-
manna jafnt úr stjórnarflokkunum sem öðrum.
vegar er mönnum vorkunn þó þeir líti með
nokkurri tortryggni á háttstemmdar yfirlýsing-
ar þessarar sömu ríkisstjómar um verðstöðvunar-
ahuga nu, þegar ekki er nema hálft ár til kosn-
inga. Alþýðublaðið gefur enga skýringu á því hvers
vegna Ioforð ríkisstjórnarinnar í sambandi við.
júnísamkomulagið hafi verið svikin jafnherfilega
og' raun ber vitni, og ríkisstjórnin beinlínis kynt
verðhækkanabálið fram á þetta ár með beinum
hækkunarráðstöf unum. Þess er heldur ekki minnzt
hvers vegna ekkert varð úr því sem viðskiptamála-
ráðherra Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gíslason, lýsti
hátíðlega. yfir eftir kjarasamninga verkamanna-
og verkakvennafélaganna sumarið 1965, að beita
yrði verðlagseftirliti og öllum hugsanlegum ráð-
um-til þess að nýjar verðhækkanir yrðu ekki til
þéss. að ræna ávinningi verkamanna og vérka-
kvenna af samningagerðinni. Stjórnarflokkarnir
reyna ekki að gefa neina skýringu á því hvers
ypgha látið var líða ár eftir ár án þe:ss að ráðstafan-
ir væru gerðar til verðstöðvunar, heldur beinlínis
fylgt verðhækkunarstefnu, bæð; með beinum ráð-
stöfunum ríkisvalds og bæjaryfirvalda og með því
að afhenda kaupmönnum í sívaxandi mæli vald til
að skammta sér álagningu og verð. Fagnaðarboð-
skapur Morgunblaðsins og ríkisstjórnarinnar um
„frelsið“ í verzluninni sem átti að tryggja sann-
gjarnt verð og jafnvel lækkað verð, er orðið að fá-
ránlegri skrítlu gagnvart staðreyndum um gífur-
legar hækkanir á álagningu og vetðlagi, staðreynd-
um um einokun kaupmanna og leyrrisamtök til
að halda uppi verði og refsiaðge-rðum gegn þeim
sem vildu lækka verð
J>að er of seint að iðrast eftir dauðann og það er
fullseint fyrir ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðu-
flokksins að fara að iðrast nokkrum mánuðum fyr-
ir kosningar Bjarni Benediktsson og Gylfi Þ.
Gíslason hafa sýnt hvað þeir vilja og hvað þeir
geta Þeir hafa haft til þess nægan tíma. Og.þeir
verða dæmdir eftir verkurn' sínum í átta ár, ekki
sparisvinnum síðustu mánuði valdatíma síns. — s.
Fiskastellinu fylgja aðeins grunnir diskar því að eins og nafnið bendir til er það aðeins ætlað til
fiskáts-
Jólagjafirnar fyrir konur og
börn má fá í HAMB0RG
Flestlr hljóta að geta fundið
jólagjafir handa konum og
börnum í Hamborg, Laugavegi
22. Þar óir og grúir af alls
konar leikföngum og margur
hluturinn þar kæmi sér vel
fyrir húsmæður, enda þótt ekki
sé reiknað með því að ræst-
ingaráhöld vektu afskaplega
kátinu þeirra á aðfangadag.
1 Hamborg fæst einnig margt
til jólahaldsins t.d- gervijóla-
tré- ,
1 viðtali við verzlunarstjór-
ann, Sjgurð Sigurðsson kom
fratm að einna vinsselasta var-
an f Hamborg er keramik-
Fyrir nokkru hóf verzlunin
sölu. á þýzku keramiki, matar-
og kaffistellum, og fást nokkr-
ar gerðir og litir. Einnig hafa
hollenzk keramik-matarsteU
verið á boðstólum alllengi.
Japönsk og pólsk maitar-. og
kaffistell eru ódýrari; 12 manna
matar.steil kostar kr. 2.950—
óg kaffistell er til með sama
mynstri- Svokallað fiskasteli
kostar kr. 1.350—, það eru sex
grunnir diskar, fat og kanna
með fiskamynstri og er ein-
göngu ætlað til fiskáts.
Koparvörur geta verið bæði
nytsamar og skemmtilegar
gjafavörur. I verzluninni má
finna vestur-býzka bakka og
könnur úr kopar og sömuleið-
is bakka, föt o- fl. úr stáli.
Sigurður sagði að mikið væri
af óbrothættu gleri t- d- skál-
um sem kosta frá 15 krónum
upp í 58, bollum á 45 krónur
parið, vatnsglösum á 11 krónur
stykkið-
Af einstökum hlutum sem
henta vel til jólagjafa nefndi
Sigurður hitakönnur, þær ó-
dýrustu eru japanskar og kosta
495,— krónur en líka eru til
hitakön.nur sem prýddar eru
með tágum.
„Sjónvarpssettið“ er dæmi-
gerð amerísk uppfinning, en
bað er bolli með kökudiski og
undirskál í heilu lagi og er
meiningin að fólk sitji með
bollaparið á hnjánum þegar
horft er á sjónvarp.
Hér hefur aðeins verið bent
á lítinn hluta af þeim vörum
sem borð og hillur svigna und-
an í verzluninni Hamborg. —
RH.
TIMARIT
MALS
OG
MENNINGAR
3. hefti 1966
EFNI
Jakob Benediktsson:
Sigurður Nordal áttræður
— ★ —
Halldór Laxness:
íslenzk kona
i Kaupmannahöfn
— ★ —
Jónas Árnason:
Bandaríkin eða Evrópa
— ★ —
Hörður Bergmann:
Fjöldamenning og
áhrif fjölmiðlunartækja
— ★ —
Gunnar Benediktsson:
Helgisagnir eða staðreyndir
Tómas Sæmundsson
og Finnur Magnússon:
Bréf
— ★ —
LJÓÐ
eftir Jóhannes úr Kötlum,
Stefán Hörð Grímsson,
Kristinn Reyr, Neruda,
Majakovski. Blaise Cendrars
— ★ —
Sögur
eftir Nataliu Ginzburg,
Jóhannes Straumland
— ★ —
Mál og menning
Laugavegi 18.
Myndin er af þýzku keramik-matarstelIi.
Sextugur í dag
Oskar Pétursson
BRIDGETOWN 30/11 — Á mið-
nætti í nótt var lýst yfir full-
veldi eylandsins Barbados sem
verið hefur brezk nýlenda í nær
hálfa fjórðu öld. Barbados er
austust Vestur-Xndía, íbúar um
250-000.
I dag a Úskai Peturssun,
einn kunnasti æskulýðsleiðtogi
landsins, sextugsafmæli,
Ungur að árum gerðist han.n
félagi í skátahreyfingunni og
kom fljótt fram að hann var
vel til fórystu fadlinn- Kom
þar margt til, hann var glæsi-
legur á velli, geðþekkur í allri
framkomu, og átti þvi auðvelt
með að umgangast ungt fólk
Það leit upp til hans, hins góða
foringja og félaga. Hanr
hefur alltaf tekið þau málefni
sem hann hefur beitt sér fyrir
með mikilli alvöru. Þó er hann
glaður og léttur í glöðum hópi
Hann varð því og er ákafleg?'
vinsæll maður og virtur af ö1’
um sem hamn umgangast
En Óskar hefur komið víðai
við en í skátahreyfingun.ni
Hann hefur verið, ef svo mætti
segja, með annan fótinn í í-
þróttahreyfingunni. Harm var
um langt skeið virkur félagi í
Ármanni og lét þar róður
mikið til sín taka. og sem ræð-
ari komst hann í fremstu röð,
og heíur í þeirri grein keppt
erlendis-
Hin síðari árin hefur hann
verið mikið starfandi í knatt-
spymufélaginu Þrótti, var um
skeið fbrmaður þess félags, og
hefur síðan stutt það félag með
ráðum og dáð og tekið virkri
hendi á þeim málum sem þar
ber hæst. Er það mikið lán
fyrir Þrótt að hafa éignazt svo
traustan mann til þess að taka
bátt í uppbyggingu félagsins,
sem segja má að sé enn <
deiglu-
Fyrir ungt félag a unglings-
■Srum er það mikilvægt að hafa
til ráðuneytis og starfa slíkan
öeiðursmann sem Óskar er
Óskar Pétursson hefur með
nskulýðsstarfi sínu ritað merk-
sn kafla í sögu æskulýðsmála
á IsJandi, í bráðum hálfa öld
Sú saga verður ekki rakin
hér," en með þessum fáu orð-
um er aðeins minnzt við Ósk
ar í þessum merku tímamótum
í ævi hans, honum þakkað 4-
nægjulegt samstarf, og árnað
heilla. Frímann.
B/að-
dreifing
Blaðburðarbörn
óskast í eftirtalin
hverfi.
Langholt
Skipasund
Sólheima
Tjamargötu
Laufásveg
Leifsgötu
Lönguhlíð.
Sími 17-500.
KÓPAVOGUR
Blaðburðarbörn
óskast í vestur-
bæinn.
3ími 40-753. '
ÞJÓÐVILJINN
B I L A
Ö K K
(irunnur
Fyllir
Sparsl
••ynnir
Bón.
EINKAUMBOÐ
ASGEIIt OLAFSSON öeildv
Vonarstræti 12 Sími IU175