Þjóðviljinn - 02.12.1966, Síða 10
1
i
Tillögur fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins á borgarstjórnarfundi
■ Auk fjárhagsáætlunar borgarsjóðs fyrir árið 1967,
sem getið er á forsíðu blaðsins í dag, voru ýmis mál
önnur á dagskrá borgarstjórnarfundarins í gærkvöld,
m.a. fjórar tillögur borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins.
Fara þær hér á eftir:
Um borgarsjúkrahósið í
Fossvogi.
,,Borgarstjórnin leggur mikla
áherzlu á að hraðað verði
fullnaðarfrágangi og búnaði
þéss hluta Borgarsjúkrahúss-
in's í Fossvogi, sem verið hefur
í byggingu í meira en hálfan
annan áratug, svo að unnt sé
að taka sjúk-rahúsið sem fyrst
í notkun.
Jafnframt ákveður borgar-
stjómin að undirbúin .skuli
bygging B-álmu sjúkrahúss-
ins þannig að framkvæmdir
víð hana geti hafizt strax og
núverandi framkvæmdurn
lýkur. Bendir borgarstjómin
á, að bygging B-álmunnar er
brýn nauðsyn vegna vöntun-
ar á sjúkradeildum og tryggir
um leið betri- og hagkvæmari
rekstur sjúkrahússins í heild.
Borgarstjómin vill leggja
áherzlu á, að undirbúningi
öllum og f járútvegun til bygg-
ingar B-álmu sjúkrahússins
verði hraðað þannig að Ijúka
megi framkvæmdum á sem
skemmstum tíma, og þannig
komið i veg fyrir, að þau
miklu mistök endurtaki sig,
sem orðið hafa við aðalbygg-
ingu hússins."
Um dagheimili fyrir Ár-
bæjarhverfi.
„Borgarstjóm ákveður að
undirbúin skuli og hafin á
næsta ári bygging dagheim-
ilis fyrir Árbæjarhverfi og
ennfremur að stofnuð verði
tvö fjölskylduheimili af svip-
aðri gerð og Skáli við Kapla-
skjólsveg. Skal staðsetning
þeirra ákveðin í samráði við
bamaheimila- og leikvalla-
nefnd“.
Um byggingu skóla fyrir
Breiðhoitshverfi.
„Borgarstjórnin telur ó-
hjákvæmilegt að undirbúin
verði og hafin S næsta ári
bygging skóla fyrir hið nýja
Breiðholtshvejfi, er tekið
geti við börnum á skólaskyldu-
aldri um leið og hverfiðbygg-
bt.
Þá telur borgarstjórnin einn-
ig nauðsynlegt að hafizt veröi
handa á órinu við 2. áfanga
Hvassaleitisskóla með tilliti til
hinnar nýju byggðar á Foss-
vogssvæðinu. Er borgarráöi
falið að annast allan nauð-
synlegan undirbúning þess-
ara framkvæmda
við fræðsluráð."
í samráöi
Um skattlagningu þjónustu-
fyrirtækja borgarinnar.
„Borgarstjómin ákveður að
hætta þeirri skattlagningu
Rafmagnsveitu, Hitaveitu og
Vatnsveitu til borgarsjóðs, sem k
viðgengizt hefur um alllangt "
árabil, og felur borgarráði að
gera milli umræðna þær
breytingar á frumvarpi að
fjárhagsáætlun borgarsjóðs og
þessara borgarstofnana fyrir
árið 1967, er af þessari a-
kvörðun leiða. Jafnframt er
borgarráði falið að taka t!l
athugunar, hvort ekki sé rétt
að lækka gjaldskrár a.m.k..
Rafmagnsveitu og Hitaveitu
sem þessum upphæðum nem-
ur“.
Umræðna uia tillögumar
verður getið síðar hér í blað-
kr. rúmmefr-
inn í 1. áfanga
Árbæjarskélans
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum í gær, að taka tilboði
lægstbjóðanda, Böðvars S.
Bjarnasonar húsasmíðameistara
í byggingu fyrsta áfanga Árbæj-
arskóla, en tilboð Böðvars hljóð-
aði upp á 17.963.000 kr. Önnur
tilboð sem bárust voru frá Önd-
vegi hf. 19.350.000 kr„ Halldóri
Bachmann 19.416.000 kr„ Brún
hf. 20.100.000 kr„ Sveinbirni Sig-
urðssyni 21.177.000 kr„ Haraldi
Eíharssyni og Jóhannesi Kristins-.
syni 22.998.000 kr.
Þessi 1. áfangi Árbæjarskóla
verður um 6000 rúmmetrar að
stærð. þ.e. tilboð lægs'tbjóðanda
er um 3000 kr. á rúmmetra. Á-
ætlun arkitekta hússins ög bygg-
ingadeildar borgarinnar hljóðaði
á 20.699.000 kr. Arkitektarnir
eru Þorvaldur Kristmundsson og
Sigurjón Sveinsson.
Föstudagur 2. desember 1966
31. árgangur — 276. tölublað.
Deierium bubonis
frumsýnt í kvöfd
— í samkomuhúsi Borgarness
í kvöld kl. 9 verður gaman-
leikritið Delerium bubonis, eft-
ir Jónas og Jón Múla Árnasyni,
frumsýnt í samkomuhúsi Borg-
arness. Syningin er haldin á
vegum Ungmennafélagsins Skalla-
gríms í tilefni af 50 ára af-
mæli félagsins.
Jónas Árnason stjómar leikn-
um og leikur jafnframt ráðherr-
ann. Aðrir leikendur em þesair:
Hilmar Jóhannssón, sem leikur
Ægi Ó„ Freyja Bjamadóttir leik-
ur frú Pálínu, Þórhildur Lofts-
dóttir leikur Guðrúnu Ægis, Geir
Björnsson leikur Leif Róberts,
Friðjón Sveinbjömsson leikur
skáldið, Þórður Magnússon bíl-
stjórann, Sigríður Héðinsdóttir
leikur Siggu vinnukonu og Jón
Kr. Gjiðmundsson leikur Einar í
Einiberjarunni.
Uppselt er á frumsýninguna og
í gær var laiígt komlð aðselja
miða á aðra sýningu sem verð-
ur á sunnudaginn. Vegna jóla-
anna sem í hönd fara er hæpið
að margar sýningar verði fyrir
jól og vafasamt þykir að leikritið
Jonas Arnason.
verði sýnt annarsstaðar en £
Borgarnesi að sinni.
Ýmis önnur hátíðahöld verða í
tilefni afmælis Ungmennafélags-
ins Skallagríms m.a. verður
haldin skemmtun á laugardags-
kvöldið.
Slys í Kóoavogi
Um hádegið varð það slys í
Kópavogi, að stórum fólksflutn-
ingabíl var ekið á fjögurra ára
dreng, sem var á þrjhjóli. Dreng-
urinn kom hjólandi niður Há-
braut, en bíllinn k'orn austur
Kársnesbraut og ætlaði að
beygja upp Hábrautina. Hann
var á mjög lítilli ferð. 1 fyrstu
hélt bílstjórinn að drengurinn
hefði ekki slasazt alvarlega og
bar hann heim til hans. Lög-
reglan var ekki látin vita um
slysið. Móðir drengsins, sem
heitir Þórður Daníelsson Hraun-
braut 18. lét síðan flytja hann á
Slysavarðstofuna, þar sem í ljós
kom að h'i-in var lærbrotinn.
Hann var fluttur á sjúkrahús.
Ekki verður nógsamlega brý.nt
fyrir mönnum að hrófla ekki
við slösuðu fólki, en láta sjúkra-
liða um það. Ennfremur á und-
antekningarlaust að láta lög-
regluna vita í' tilvikum sem
þessum. Það er lækna að skera
úr um hvort fólk er slasað, eða
ekki.
Sfldarleitarskip. í
smíðum í Bretlandi
Á síðasta aðalfundi LÍU var sam-
þykkt að séattleggja allan síld-
arafla um 0,25% að því tilskildu,
að jafnhátt framlag kæmi á
móti frá síldarkaupendum.
Bkattinum skyldi verja til að
láta .smíða síldarleitar- og síldar-
Slys í strætisvagni
í gær var strætisvagm ekiö
aftan á fólksbíl, með þeim af-
leiðingum að kona og barn, sem
voru í vagninum meiddust nokk-
uð, en þó ekki alvarlega. Fólks-
bíllinn stóð kyrr á Suðurlands-
brautinni og beið eftir aðbeygja
til hægri að verzlun (Junnars
Ásgeirssonar, begar strætisvagn-
inn bar bar að með fvrrgreind-
um afleiðingurr.
Síðasti fyrirlestur
Þórhalls á
sunnudaginn
Þórhallur Vilmundarson pró-
fessor flytur fjórða og síðasta j
fyrirlestur sinn um náttúru-
nafnakenninguna í hátíðasal Há-
skóla íslands sunnudaginn 4.
desember kl. 2,30 e.h. Fyrirlest-
urinn nefnist,: Bárður minn á
Tökli.
Öllum fer heimill aðgangur.
rannsóknaskip. Samstaða um
þetta mál fékkst hjá öllum að-
iium og er smíði skipsins hafin
í Bretlandi. Vonir standa til að
það geti hafið starfsemi síná í
júnímánuði nk. Skipið verður
450 tonn a6 stærð og búið öllum
beztu tækjum til síldarleitar og
síldarrannsókna.
Gangandi fólk
líka vegfarendur
ÁR EFTIR ÁR, alltaí sömu
vinnubrögðin viðhöfð þegar
ryðja þarf snjó af götum
borgarinnar: Götuheflarnir
sleikja vandiega snjóinn af ak-
brautum og ýta síðan öllum
ruðningi upp á gangstéttirn-
ar, svo að þar verður illfært
gangandi mönnum.
ÝMSIR TELJA æskilegt að
horfið verði. frá þessum gömlu
vinnubrögðum o.g tekið
meira tillit til þeirra semekki
eru á ökutækjum. — (Ljósm.
Þjóðv. Ari Kárason).
Kosygin í París
Vill „meira" en bætfa sambúð
PARÍS 1/12. — Forsætisráðherra Sovétríkjanna, Kosygin,
kom í opinbera heimsókn til Parísar um hádegi í dag og
var tekið á móti honum með viðhöfn sem annars er aðeins
sýnd þ’jóðhöfðingjum. Kosygin sagði þegar í upphafi heim-
sóknarinnar, sem varir í átta daga, að í tilgangi hennar fæl-
ist „nokkuð meira“ en að efla vináttu og gagnkvæman
skilning milli Frakka og Sovétþjóða.
De Gaulle tók sjálfur á móti
forsetanum á Orly-flugvelli og
lét skjóta 101 fallbjíisuskoti hon-
um til heiðurs. í ræðu sem
de Gaulle hélt við móttökuna
sagði hann, að frönsk-sovézk
vinátta væri þýðingarmikill lið-
ur £ þv£ að skapa jafnvægi og
efla velferð og frið f heiminum.
Hann sagði Kosygin velkominn
ekki fyrir sakir persónulegra
mannkosta heldur og sem leiö-
toga Sovétríkjanna, en Frakkar
gleymdu ekki frábæru framlagi
sovétþjóða til þess sigurs sem
tryggði framtíð Frakklands.
Kdsygin tók í ræðu sinni mjög
í sama streng og mælti meðenn
innilegri samvinnu milli land-
anna \ beggja. Moskvublaðið
Pravda birtir í dag mikla lóf-
grein um fransk-sovézka vináttu
og segir að fleiri tíðindi af á-
nægjulegu samstarfi landanna
mætti segja en unnt væri á þeim
fimm mánuðum sem liðin eru
síðán de Gaulle gisti Sovjtríkin.
Mikið stáss er gert með heim-
sóknina í Sovétríkjunum og er
her sovézkra blaða- og sjónvarps-
manna kominn á vettvang. Gátu
Sovétmenn fylgzt með móttök-
unni beint í dag, Frakkar hins-
vegar ekki — fyrir sakir verk-
falls franskra sjónvarpsmanns,
sem sagt er að kommúnistar
stjómi.
HARBOR BEACH 1/12 —
Bandarískt flutningaskip, Dani-
el J. Morrel, fórst í hvassviðri á
Huronvatni í gær. Aðeins ein-
um manni af 33 manna áhöfn
hefur verið bjargað, en sextán
er enn saknað. Skipið var sex-
tíu ára gamalt.
Gerið skif í
happdrcetti
Þjóðvilians
Þeir , sem fengið hafa
senda miða í Happdrætti
Þjóðviljans eru beðnir að
gera skil hið allra fyrsta.
Tekið er við skilum á af-
greiðslu biaðsins, Skóla-
vörðustíg 19, og í Tjarnar-
götu' 20. Dregið verður
þann 23. des. n.k. Aðalvinn-
ingar eru tvær Moskwitch
bifreiðar árgerð 1967. Verð
miðans er kr. 100.