Þjóðviljinn - 07.12.1966, Page 10
Jg HIÐA — ÞJÖÐVIIJINN — WP^trlfcaaaa®1 %
LEONARD GRIBBLE
22
— Allt saman rannsóknir?
— Já, að mestu leyti. Setchley
leit skyndilega upp — honum
var ljóst að spurningar leynilög-
reglumannsins voru bornar fram
í ákveðnum tilgangi. — Við ger-
um tilraunir . . baetti hann við
varfærnislega.
— Það hlýtur að vera mjög
spennandi, sagði lögreglufulltrú-
inn hugsi. Eigið þið eitthvert
Aconitin á lager?
— Já, auðvitað. Við eigum —
Rauðhærði knattspyrnumaðurinn
þagnaði allt í einu og það brá
fýrir leiftri i blágrænum aug’um
hans. — Jæja, var það svo —
Aconitin .... lútur — það skýrir
ýmislegt.
— Ég vona að það skýri allt,
sagði Slade þurrlega. — f fyll-
ingu' tímans.
Setchley §trauk sér um hárið.
— Það er vel gert að einangra
það svona fljótt, sagði hann' með
viðurkenningarhreim í röddinni.
— Það er oft erfitt að eiga við
lút. Það fer oft mikill tími í að —
Aftur þagnaði hann snögglega.
Ahyggjusvip brá fyrir á andliti
hans. — _ f>egar ég hugsa mig
betur um," þá lítur þetta ekki sér-
lega vel út fyrir mig, eða hvað?
— Einstök hending ræður
sjaldan úrslitum, sagði Slade
brosandi. Efnafræðingurinn kink-
aði kolli.
— Það er gott að þér skuluð
segja þetta, fulltrúi. En eins og
KP
m*
URA- OG
SKARTGRIPAVERZL.
KORNELlUS
JÓNSSON
SKOLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI: 18588
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð flyfta >
SÍMl 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI 33-968
stendur.........Það fór hrollur
um hann.
— Þér ætluðuð að fara að
segja eitthvað um aconitin rétt
áðán, sagði Slade. — Þér sögð-
uð „Við eigum“ og svo þögnuð-
uð þér. Munið þér það?
Slade bar höndina upp að nef-
inu. — Já, það er rétt. Þegar
þér minntuzt á efnið. Ég ætlaði
að segja að við hefðum notað
aconitin mikið á rannsóknarstof-
unni fyrir svo sem hálfu ári. Við
vorum að gera tilraunir með
hjartalyf. Aconitin og mótefnið
Digitalis. Það er mjög athygl-
isvert — á pappírnum. Hann
gaut augunum til Slade. — Ég
þarf víst ekki að segja yður, að
þetta er býsna sterkt.
— Það hef ég heyrt, sagði
Slade og kinkaði kolli. — Hversu
slæmt er það í rauninni?
Hann horfði beint á manninn,
en nú sýndist- Setchley alveg ró-
legur, að hugsa um vísindaleg
málefni.
— Örlítill skammtur hefur
reynzt banvænn, sagði Setchley.
— Vitað er um tilfelli þar sem
maður dó átta mínútum eftir að
hann hafði fengið það í blóð-
ið. Én það er auðvitað undir
líka,msástandi mannsins komið.
— Doyce var í beztu þjálfun.
Setchley kipraði 'Samán munn-
inn. — Já, þá hefur mótstöðu-
aflið að sjálfsögðu verið meira.
En hann var á hraðri hreyfingu.
Blóðrás hans var langtum ör-
ari en eðlilegt er. Það myndi
flýta áhrifunum.
— Og áhrifin myndu þá vera
býsna snögg?
— Já. Setchley dró djúpt and-
ann. — Ef þér hafið ekkert á
móti því, þá langar mig að kom-
ast í bað.
— Auðvitað — þökk fyrir
upplýsingarnar.,
Slade fór út úr búningsher-
berginu með Whittaker og Clint-
on á hælunum.
— Þetta hlýtur að vera til-
viljun, sagði Whittaker og
hringlaði lyklum sínum í buxna-
vasanum.
— Við sjáum til, sagði Slade
rólega. — Ég vil gjarnan að inn-
siglin á dyrunum að lækninga-
stofunni verði óhreyfð um stund,
herra Whittaker.
— Menn yðar hafa trúléga
ekki fundið neitt Aconitin á
nálunum og teiknibólunum sem
1*5 tðkoð héðan’? sagði Whíttsk-
er og brosti vtð.
— Nei — ég ea: búinn að skila
Sftn saman .
Saonferi þeirxa beindist síðan
að hversdagslegri hlutum og
skömmu síðar fóru lögreglu-
mennimir tveir burt úr iþrótta-
höllinni. Þegar þeir voru aftur
á leið til Scotland Yard, sagði
Clinton:
— Nú erum við kcmnii svolítið
áleiðis. Setchley héfur efnið í
hillunum hjá sér og Morrcrw hef-
ur haft tækifæri til að nálgast
það. Ég hélt satt að segja ekki
að þetta myndi ganga svona
auðveldlega.
Siade hristi höfuðið. — Clint-
on, þetta fer að virðast of gott
ta að geta verið satt.
— Hvers vegna þá? Þetta er
þó varla neitt snilldarmorð!
— Það veit ég svei mér ekki.
Við eurm ekki ennþá búnir að
finna vopnið, sagði Slade. — • Ég
átti líka aðeins við það, að þetta
kæmi næstum of vei berm við
málið gegn Morrow.
— Við höfum þrennt sem bend-
ir á sekt hans, rumdi í Clinton.
— Það eru peningarnir, stúlkan
— sem lýgur eftir nótum — og
nú eftrið. Það ætti að duga.
— Við skuluni samt líta á
skýrsluna um þessa blaðaúr-
klippu. Þeir hringdu í morgun
og sögðu að hún væri á leiðinni.
Skýrslan lá á skrifborðinu hjá
Slade, þegar þeir komu inn. Hún
var frá lögreglunni í Ryechester.
Úrklippan hafði verið rákin til
eintaks af Ryechester Cronicle,
fjögra ára gamals. Með fylgdi af-
rit af likskoðunarskýrslu:
— Sem ég er lifandi! hrópaði
Clinton, sem las yfir öxlina á
Slade. — Dóttir Kindiletts! Fund-
in drukknuð eftir dansleik. Úr-
skurðuð látin af afleiðingum
slyss.
Slade lét skýrsluna síga niður
á skrifborðið. — Já, þetta ger-
ir dáiítið ■ sttik í reikninginn,
sagði hann alvarlegur.
— Ég get ekki séð að það
breyti einu eða neinu, stað-
hæfði Clinton. — Ryechester-P
Kindelett-Saxon Rovers. Þetta er
allt í tengslum! Morrow er
þarna enn — hann lék með Sax-
on Rovers fyrir fjórum árum.
Hann hlýtur að hafa vitað allt
um þéttá mál í Ryechester. Þetta
er einmitt það sem okkur vant-
ar til að reka smiðshöggið á
allt saman.
Þótt Slade viðurkenndi það
ekki fyrir starfsbróður sínum,
var hann hálf niðurdreginn. Hon-
um þótti böndin berast grunsam-
lega mikið að Morrow. Líkurn-
ar gegn honum hefðu naumast
verið meiri, þótt allt hefði verið
skipulagt viljandi til að grun-
ttr féffí á meðeiganda hins Mtnaf
Þetta hafði komið á daginn
smám saman eftir því sem ran?>-
sókninni nrwf.aðl áfram.
Auk þess höfðu athafnir
Morrows sjá’rfs ekki orðið til
að draga m þessum 'grun. Að
vísu hafði hann sjálfur komið
með skýringu, en hún var ekki
fullnægjandt. Hann hafði hag-
að sér grunsamlega á sunnudag-
inn, þegar hann hafði allt í einu
þotið burt af golfvellinum og
ekið til London. Þegar Slade
fylgdi honum eftir, kynntist hann
reiði mannsins i garð stúlku, sem
fullyrti að hún væri ekki trúlof-
uð honum. f dag hafði Morrow
forðazt ■ lögregluna. Slade hafði
séð hann á æfingavellinum. En
hann hafði ekki komið hlaupandi
til gamla félagans úr Saxon Rov-
ers, þegar hann féll til jarð-
ar.
Morrow hafði sannariega ekki
bætt aðstöðu sína með eigin
framferði. . Hann var eðlilega
hinn fyrsti sem grunurinn beind-
ist að, og sannanirnar gegn hon-
um hópuðust upp á álíka eðli-
legan hátt. >
— Og það er enn eitt, hélt Clint-
on áfram og truflaði Slade í
vangaveltum sínum. — Hann
er sá eini sem fellur alls staðar
inn í. Þú hefur hingað til alltaf
haldið því fram, að það sé ágæt
prófraun á hvern þanh sem grpn-
aður er.
— Áttu við að við höfum nóg
í höndunum til að taka hann
fastan?
— Ég á við það, að við ættum
að taka hann betur til athugun-
ar. Við gætum kannski þjarmað
að honum með því sem við höf-
um í höndunum, svo að málinu
Ijúki með játningu hans, Það
myndi ekki koma mér á óvart!
Slade kveikti í pípu sinni, með-
an hann velti röksemdum félaga
síns fyrir sér.
— Þú hefur margt til þíns
máls, Clinton, en ■— hann hristi
höfuðið — hvernig sem á því
stendur er ég ekki sannfærður.
Ekki fullkomlega .... Mér finnst
einhvern veginn sem þetta af-
brot hafi verið nákvæmlega und-
irbúið. Allt virðist benda til
þess — blaðaúrklippan, pakkinn,
stundin, allar- kringumstæðurn-
ar. Ég er viss um að þetta hefur
allt ákveðna þýðingu, ef við gæt-
um aðeins komizt að því hver
hún er. Ég held ennþá að morð-
inginn hafi búið þetta allt í hag-
inn fyrirfram af miklum klók-
indum. Auk þess held ég líka,
að hann sé of snjall til að láta
svo einfalda hluti koma sér á
kné.
— Einfalda! hvæsti Clinton.
*— Já, í rauninni er málið gegn
Morrow ákaflega einfalt.
SKOTTA
BTfiSTiTSSkl
I Isabella-Stereo
Jólasaga barnanna
Eftir Walt Disney
Engin furða að hún kemur méi kunnuglega tynr sjomr; þetta
er mín peysa, mitt pils og minn kærasti!
1. Apinn fer á antilópu yfir f jöllin . .
2- fugl flýgur með hann að norð-
urheimskautsbaugnum . . .
3- en þei-. lenda í snjóstormi og alls
kyns hrakningum.
TRABANT EIGÉNDUR
V iðgerðarverkstæði
Smurstöð
Y'firförum bílinn
fyrir veturinn.
FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði
Dugguvogi 7. Sími 30154.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
2'3'í'5 °A9 ® T1- MarsTradingCompanyhf
AogBgæðaflokkar Laugaveg 103 3 SJ 17373
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á. •
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 —- Sími 3-10-55.