Þjóðviljinn - 09.12.1966, Side 2
2 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN — Föstudagnr 9. desember 1966.
Að
græða
1 haust átti eirm af biaöa-
mönnum Þjóöviljans tal við
skólastjóra margra gagn-
fraeðaskóla hér í borginni, og
bar þeim saman um að nú
væru mun meiri brögð að
reykingum bama og unglinga
en verið hefði að undanförnu;
13 ára böm færu í sjoppur
í frímínútum og keyptu sér
sígarettur. Þetta eru alvarleg
tíðindi eftir að sannað hefur
verið á óvefengjanlegan hátt
að samhengi er á milli síg-
arettureykinga og krabba-
meins í lungum og hættan af
sígarettureykingum er þeim
mun meiri sem. menn eru
yngri er þeir hefja reyking-
ar- Eftir þá niðurstöðu vís-
indamannanna urðu viðbrögð
sígarettuframleiðenda sem
kunnugt er þau að magna
mjög auglýsingar sínar, og
hafa íslendingar ekki farið
varhluta af þeirri gagnsókn;
bandarísk tóbaksauðfélög hafa
hvatt menn óspart til aukinna
sígarettureykinga í blöðum,
kvikmyndahúsum og sjón-
varpi. Sumir skólastjóramir
kváðust ekki vera í neinum
vafa um það að auknar reyk-
ingar bama og unglinga væru
afleiðing þessarar auglýsinga-
herferðar, og margir hafa
látið á ljós undrun sína yfir
því að ekki séu reistar skorð-
ur við þessari áróðursherferð
í þágu gróða og krabbameins.
Annað er þó sem vekur mér
enn meiri undrun. Umræður
um -þessi mál í Bandaríkjun-
um leiddu til þess að þarlend
stjómarvöld neyddu tóbaks-
framleiðendur til þess að láta
prenta aðvörun á sígarettu-
pakka sem þar eru seldir; þar
er í stuttu máli greint frá
niðurstöðum vísindamanna
um hættur þær sem geta ver-
ið samfara sígarettureyking-
um. Tóbaksframleiðendur
reyndu að sjálfsögðu að
smokra sér undan þessari ó-
þægilegu skyldu, en hlutu
að lokum að hlýða. - Þegar
þessi mál bar fyrst á góma í
Bandaríkjunum benti ég á
það hér í -blaðinu, að varla
gæti þessi sjálfsagða ráð-
stöfun orðið neitt vandamál
hérlendis; hér annaðist’ ríkið
sjálft alla heildsölu á sígar-
ettum og gæti að eigin geð-
þótta varað við söluvörum
sínum; einnig lagði ég. til að
ríkið notaði hluta af tóbaks-
gróða sínum til þess að kynna
þann háska sem getur verið
samfara sígarettureykingum
— ekki með neinum leiðin-
legum og gagnslausum siða-
prédikunum, heldur með nú-
tímalegri auglýsingatækni. En
framkvæmdir hafa engar orð-
ið hjá Tóbaksverzlun ríkisins;
þær aðvaranir sem íyrirskip-
aðar eru í Bandaríkjunum
sjást ekki hér. Svo er að sjá
sem fjármálaráðherra íslands
faghi aðeins auknum tekjum,
ma- frá 13 ára skólabörnum.
ög vilji ekkert 'gera til að
skerða þær.
Þegar tekin var upp ríkis-
einkasala á áfengi og tóbaki
var sú ráðstöfun ekki aðeins
rökstudd með bví að sjálfsagt
væri að gróði af þvílíkum
varningí rynni í sameiginleg-
an sjóð þegnanna, heldur' var
og talið að ríkið myndi beita
áhrifum sínum til þess að
halda neyzlu þessa vamings
innan skynsamlegra marka-
En það er ekkert lögmál, ailra
sízt á viðreisnartímum. að
ríkisvald leggi siðferðilega
mælikvarða á athafnir sínar.
Og svo er að sjá sem íslenzka
ríkið sé þess jafn fýsandi og
tóbaksauðhringar að niður-
stöður vísindamanna um
skaðsemi sígarettureykinga
liggi í þagnargildi. — Austri.
NÝKOMIÐ FRÁ MARKS & SPENCER
Fóðurundirkjólar
Fóðurpils
Náttkjólar
Húfur, Treflar
Peysur á konur og karla
Handklæði
Peysur og pils
samlit í settum
Prjónakjólar á böm
Prjónaföt á börn
Peysur á börn
Töflur
GERIÐ .7ÓLAINNK ATTPIN TÍMANLEGA,
Skólavörðustíg 12
Ritdómar um „Æskufjör
og ferðagaman"
„Það getur nærri að maður, sem svo langa sögu
hefur lifað sem Björgúlfur læknir hafi frá ýmsu
að segja, ekki sízt höfundur með jafn ótvíræða
ritgáfu og ritgleði og hann“.... „Gamansemi af
þessu tagi er annað stíleinkenni Björgúlfs sem
hvarvetna yljar frásögn hans, og gerir þætti
hans skemmtilegri en hliðstæð efni yrðu í
höndum ólagnari höfunda".
Ó. J. Alþ.bl. 23.11. 1066.
........Þessar æviminningar hans eru mjög
frábrugðnar öðrum þeim aragrúa slíkra bóka,
sem út hafa komið á íslenzku og rekja oft og
tíðum ýmis smáatvik, sem fáa skipti nema höf-
undinn sjálfan".
„Það sem gefur henni þó mest gildi er það, að
hún er ekki aðeins skemmtilestur heldur skil-
merkileg þjóðlífslýsing frá þeim tíma sem nú
er að verða jafnfjarlægur og miðaldirnar. Mun
því oft á komandi árum og öldum verða til
hennar vitnað, sem merkilegrar heimildar um
aldamótaskeiðið"
P.V.G. Kolka. Mbl. 25. 11 196r
Unglsngur óskast
piltur eða stúlka, til sendiferða og inn-
heimtustarfa, nú þegar. — Gott kaup.
ÞJÓÐVILJINN.
Skrífstofu- og
eftiríitsstörf
Nokkra starfsmenn vantar til skrifstofu- og eftir-
litsstarfa.
Umsóknir um störfin, ásamt upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf, sendist sem fyrst.
Skrifstofa verðlagsstjóra
Borgartuni 7.'
TRY6GIKGAFELAGIÐ HEIMIR"
UMÐAR6ATA 9 REYKiAVlK SlMI 21260 SfMNEFNt ■ SURETY
„Allt sem þér
þurfíS að
vita um..
í bók þessari er „alit, sem
þér þurfið að vita um Skúla
fógeta“. Bók þessi er í nýj-
um bókaflokki:
„MENN í ÖNDVEGI“.
í sama flokki er „Gissur
jarl“ (100 bls. kr. 344) eftir
Ólaf Hansson.
skáldsaga eftir Guðmund
Daníelsson.
Þetta er fjórða bindið í rit-
safni Guðmundar, stórat-
hyglisverð skáldsaga. —
212 bls. kr. 365,50.
Ar
Athugið hvort ekki vantar
í bókasafn yðar:
RIT ÞÓRIS BERGSSONAR,
þrjú bindi, 89 sögur. sam-
tals 1120 bls. Verðkr. 1290.
BÓLU-HJÁLMAR.
RITSAFN.
Þrjú bindi, 1350 bls.
Kr. 994,50.
SIMNOTENDUR:
RIT ÞORSTEINS
ERLINGSSONAR.
Þér eigið forkaupsrétt að happdrættismið-
um með símanúmerum yðar í símahapp-
drættinu til 10. des n.k. Eftir þann tíma
má selja miðana hverjum, sem hafa vill.
Dregið á þorláksmessu — og þá strax hringt
í vinningsnúmer og tilkynnt rnn vmninga.
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA OG FATLAÐRA.
Tómas Guðmundsson ann-
aðist útgáfu. Þrjú bindi,
966 bls. Kr. 994,4CK
I