Þjóðviljinn - 09.12.1966, Blaðsíða 4
4 StoA >Jöt> VljjJINN — FSstudagur 9. desember 1969.
CTtgefandi: Sameiningarfloidtui alþýdu — Sóslalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: IvaT H. Jónsson (áb). Magnús Rjartansson,
Siguróur G-uðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigui’óur V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 HnurJ. Askriftairverd kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
íhald á undanhaldi
gkyldi ekki höfundum stjórnmálagreina í Morg-
unblaðinu leiðast að skrifa greinina um yfir-
vofandi klofning og hrun Alþýðubandalagsins?
Þeir hafa setið við í tíu ár að skrifa þessa grein,
með nokkrum hvíldum, en hafa alltaf tekið til
á nýjan leik. Aðalatriðið er alltaf hið sama, til-
breytingin helzt í því hver eigi að sprengja Alþýðu-
bandalagið í það og það sinnið, stundum er það
Hannibal, stundum Lúðvík, stundum Einar 01-
geirsson, stundum var það Krústjoff eða Maó,
en sprengt skal það samkvæmt því sem stjórn-
málaritarar íslenzkra íhaldsblaða vita sannast og
réttast. Þó staðreyndirnar vilji aldrei koma heim
við þessar spár, Alþýðubandalagið hafi enn ekki
sprungið heldur leyfi sér að vera stærra og sterk-
ara nú en nokkru sinni fyrr, þá er alltaf haldið
áfram að skrifa greinarkornið um hina yfirvof-
andi sprengingu í Alþýðubandalaginu, enda þótt
jafngreinda menn og þá Morgunblaðsmenn ætti
fyrir löngu að vera farið að gruna að í þessu hafa
þeir reynzt svo oft og rækilega falsspámenn að hin
tíu ára löngu skrif um sprengingu og hrun Alþýðu-
bandalagsins gætu verið .farin . að orka svolítið
spaugilega á lesendur.
Pf að líkum lætur verður þessi gamla og síunga
grein birt oft í Morgunblaðinu og Vísi næstu
mánuði. Oft yar þörf en nú nauðsyn áð láta mönn-
um sýnast veruleikinn eins á svipinn og óskað er
í Morgunblaðshúsinu. Alþýðubgndalagið hefur á
þessu ári treyst skipulagt skipulag sitt og eflt
starfsemi sína, svo að það ætti að vera óvenju vel
búið til kosninga næsta sumar. Þegar gengið var
til borgarstjómarkosninga í vor, var Alþýðubanda-'
lagið í Reykjavík nýlega stofnað og sjaldan hafa
skrifin um sundrung þess og áhrifaleysi drunið
hærra í íhaldsblöðunum en um það. leyti. En kosn-
ingaúrslitin 1 Reykjavík urðu flokksstjórn Sjálf-
stæðisflokksins eitt mesta áfall sem hún hefur
lengi hlotið. Alþýðubandalagið vann ágætan kosn-
ingasigur, en Sjálfstæðisflokkurinn tapaði svo
ekki munaði nema nokkrum hundruðum atkvæða
að hann missti meirihluta sinn í höfuðborginni.
Einnig víða um landið annars staðar voru úrslit-
in uppörfandi fyrir Alþýðubandalagið. Kosning-
arnar sýndu að óvenjuleg hreyfing var að verða á
kjörfylgi flokkanna, hreyfing sem líklegt er að
aukizt hafi verulega einmitt eftir kosningaúrslit-
in á s.l. vori. Reynslan sýndi að hvorki fjáraustur
íhaldsins í kosningarnar né áhrif Morgunblaðsins
dugði til, fólkið sneri sér frá Sjálfstæðisflokknum,
ungu kjósendurnir fylgdu ekki íhaldinu. Sívax-
andi óvinsældir ríkisstjómar Bjama Benedikts-
sonar ýta undir þessa þróun. Það mun ekki reyn-
ast nóg að halda áfram að skrifa gömlu greinina
um að Alþýðubandalagið sé að hrynja; Alþýðu-
bandalagið er líkle^t til að valda Sjálfstæðis’flokkn-
um verulegu fyleistapi og áföllum í sumarkosn-
ingunum 1967. — s.
UPPBOÐ
sem auglýst var í 62., 63. og 64 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Álfheimum 54, 2. hæð til
vinstri, þingl. eign Þrastar Sveinssonar, fer fram
til slita á sameign hans og Körlu Sigurjónsdóttur
vegna hjónaskilnaðar þeirra, á eigninni sjálfri
þriðjudaginn, 13. desember 1966,j kl. 2,30 síðdegis/”
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Endurskoðunarskrifstofa
Svavars Pálssonar
er flutt að Suðurlandsbraut 10.
38175 — 38176.
Símar
Verkamannafélagið
Dagsbrún.
Félagsfundur
verður i haldinn í Lindarbæ sunnudaginn 11. des.
1966 kl. 2 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál.
2. Viðhorfin í samningamálum.
3. Önnur mál.
Félagsmenn eru beðnir að sýna skírteini við iwn-
ganginn.
Stjórnin.
SÍGILDAR
ilLiÆL
Víðkunnar úrvalssögur, sem um áratuga skeið hafa
verið vinsælasta lestrarefni fólks á öllum aldri og eru
alveg sérstaklega heppilegt lestrarefni handa stálp-
uðum unglingum. - Eftirtaldar sögur eru komnar út:
BEN HUR
L.Wallace
IYAR HLÚJÁRN
W.Seott
SKYTTURNAR 1-3
A.Dumas
BÓRNINÍ
NÝSKÓGUM
EMarryat
BASKERVILLE
A.Conan Doyle
GRANT SKIPSTIÓRI
J.Verne
Tvær bækur í þessum flokki eru nýkomnar út:
KYNJALYFIÐ, spennandi og skemmtileg saga eftir Síf Walter
Scott, höfund sögunnar íyar Hlújárn.
FANGINN I ZENDA, hin margeftirspurða, hörkuspennandi saga
eftir Sír Anthony Hope.
Ofantaldar bækur fást allar enn. Þær kosta kr. 135,00-195,00 hver bók
án söluskatts, flestar kr. 150,00—165,-00. Við sendum burSargjaldsfrítt
gegn póstkröfu um land allt. Seljum einnig gegn afborgunum.
IÐUNN Skeggjágötu 1 - Símar 12923 og 19156
Kuldajakkar og álpar
í öllum stærðum. Góðar vörur — Gott verð.
Verzlunm Ó. L.
rraðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu) •