Þjóðviljinn - 17.05.1967, Page 1
Miðvikudagur 17. maí 1967 32. árgangur — 107. tölublað.
Hnfði Einar B. 136. grein-
ina eða þá 141. í huga?
í fréttum útvarpsins sl.
laugardag var það haft eftir
Einari B. Guðmundssyni, for-
manni landskjörstjórnar, að
hann teldi >að kjörstjómin
myndi að kosningum loknusn
úthluta uppbótarþingsætum í
samræmi við úrskurð sinn
fyrr um daginn, þ.e. leggja
atkvæðatölur utanflokka-list-
ans í Rvík við atkvæði Al-
þýðubandalagsins.
Af þessu tilefni er þeirri
spumingu beint til Einars B
Guðmundssonar, hvort hann
hafi haft eftirfarandi ákvæði
kcsningaiaganna í huga, þegar
hann ræddi, við fréttastofuna:
Úr 136. gr.:
— Ef þingmaður hefur ver-
ið í kjöri á tveimur listum í
kjördæmi ^ða kjördæmum eða
fyrir fleiri stjómmálaffldkka er
einn eða fyrir stjómmálaflokk
og jafnframt utan flokka við
hinar sömu alþingiskosningar,
úrskurðar Alþingi kosningn
hans ógilda.
Or 141. gr.: .
Það varðar sektum frá 400
til 4000 kr.: — Ef maður býð-
ur sig fram á fleiri listum en
einum eða fyrir fleiri en einn
stjórnmólafloikk eða fyrir
stjórnmálaflokk og jafnframt
sem utanflokkamaður.
. ..................................................................... ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
De Gaulle ekki á að
\
hleypa Bretum íEBE
Taídi á blaðamannafundi öll vandkvæði á að
þeir grætu fullnægt skilyrðum bandalagsins
PARÍS og LONDON 16/5 — Á fundi sem de Gaulle hélt
með blaðamönnum í París í dag taldi hann öll tormerki
á því að Bretar gætu fullnægt þeim skilyrðum sem Efna-
hagsbandalag Evrópu hlyti að setja fyrir aðild þeirra að því.
De Gaulle sagði að franska
stjórnin myndi ekki beita því
neitunarvaldi sem liún hefði til
að koma í veg fyrir að Bretar
fengju aðild að Efnahagsbanda-
laginu. Hins vegar hlytu Bretar
að verða að sætta sig við sömu
(kosti og þau rilki sem fvrir
eru í þandalaginu hafi við að
búa, og hann taldi öl! tormerki
á þvi að þeir myndu gera það.
Af ummælum hans þykir ljóst
að franska stjórnin muni alls
ófáanleg til að veita Bretum
nokkrar undanþágur frá þeim
reglum sem aðildarríkin hafa
þegar orðið sammála um. Það
er þannig talið líklegt að hún
muni krefjast þess þegar samn-
ingaviðræður hefjast með haust-
inu að Bretar fallist umsvifa-
laust á landbúnaðarskipan
bandalagsins og neiti að verða
við tilmælum þeirra um að fá
að gera það í áföngum. Það
eitt myndi stórum torvelda
brezku stjórninni að gerast. aðili
að EBE.
AP-fréttastofan hefur eftir
embættismönnum hennar að de.
Gaulle hafi á blaðamannafundi
sínum talið svt> mikil vand-
kvæði á brezkri aðild að EBE
að ætla megi að hann sé stað-
ráðinn í að gera Bretum hana
ókleifa.
Þeir brezkir stjómmálamenn
sem verið hafa ‘ andvígir um-
sókn Breta um aðild að EBE,
og þá er flesta að finna í Verka-
mannaflokknum, lýstu hins veg-
ar ánægju sinni með de Gaulle,
s^m þeir töldu sanna það sem
þeir hafa ævinlega haldið fram
að Bretar myndu verða að
sæta afarkostum ef umsóknin
ætti aö ná fram að ganga. Haft
er eftir einum þeirra að de
Gaulle muni því aðeins fallast
á brezka aðild að EBE að Bretar
breyti , þióðsöng sínum svo að
fyrsfca Ijóðlinan verði „Drottinn
varðveiti de Gaulle“.
Endanlegur úrskurSur yfírkjörsfjórnar:
Kiofningslistinn er utan flokka og
óvi&komandi Aiþý&ubandalaginu
■ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þing-
kosninganna 11. næsta mánaðar er nú hafin og er
kosið um framboðslista í sámræmi við úrskurði og
auglýsingar yfirkjörstjórnar í hinum einstöku
kjördæmum. Hér í Reykjavík eru 6 listar í kjöri
og er einn þeirra, klofningslisti Hannibals Valdi-
marssonar o.fl., listi utan flokka. Listabókstafur
Alþýðubandalagsins í Reykjavík og um land
allt er G.
Eins og getið var hér í blaS-
inu fyrir helgina, kvað yfirkjör-
stjórnin í Réykjaví'k upp þann
úrsburð á föstudaginn að listi
bdofningsmanna skyldi teljast ut-
an fllokka og merkti hann þess
vegna listabókstafnum I. Þessum
úrskurði skutu umiboðsmenn l-
listans til landskjörstjómar, sem
síðar kivað upp bann úrskurð á
laugardag, að listinn skyldi
rnerktur bókstöfunum GG!
Úrskurður landskjörstjórnar.
Landsikjörstjóm taildi að hún
ætti úrsteurðarvald um það,
hvemig listar væm merktir og i
samræmi við það sjónarmið kvað
hún upp fyrmefndan úrskurðum
listabókstafin'n og byiggði niður-
stöðu sína á þessum forsendum:
„í 27. gr. kosningalaga er svo
mælt, að framboðsl i sta skuli
fylgja skriflleg yfirlýsing meö-
mælenda listans um það, fyrir
hvem stjómmálaflokk listinn sé
borinn fram. Jafnframt er í 41.
gr. afdráttarlausit heimilað, að
fleiri en einn lista megi bjóða
fram fyrir sama stjórnmálaflokk
í kjördæmi, og skal þá merkja
iistana svo sem mælt er í grein-
Bæjakeppni Rvík
og Keflavík 1:1
Bæjarkeppni Reykjavíkar og
Keflávíkur fór fram í gærkvöld
og lyktaði leiknum með jafn-
tefli, 1 mark gegn 1. Keflvíking-
ár átfcu allt frumkvæði í fyrri
(hálffléi'k og fram í seinni hálf-
leik, en ekkert mark var skor-
að fyrr en á fyrstu mínútum
seinni hálfleiks að Jón Jóhanns-
son miðherji Keflavíkur skorar
eftir mistök 1 vörn Reykjavíkur-
liðsins. Á 27. mín. jafnar Reykja-
vík eftir mjög gott upphlaup,
Ingvar Eliasson skoraði. Eftir
það hafði - Reykjavíkurliðið
inni. Meðferð kosningalaga áAI-
þingi 1933 og 1959 sýnir, aðætl-
an löggjafans var sú, að ekki
þyrfti samaþyfkki stjómmálafioiklks
til þess að listi yrði borinn fram ; nokkra yfirburði í leiknum, en
fyrir fflolkíkinn. j tókst ekki að skora. Áhorfendur
Þegar landfejörstjórn kvað upp I voru allmargir. þótt KRR færi
þennan úrskurð kvaddi hún um- J sem laumulegast með að leikur-
boðsmenn framtooðslistanna og 1 inn a;tti að fara fram.
yfirkjörstjórnarmenn á sinn fund. ! Frímann skrifar um leikinn á
Greindi hún umtooðsmönnum (og j íþróttasíðu Þjóðviljans á morg-
Framhald á 3. síðu. i un.
Umferð um vegi er mí víða
takmörkuð vegna aurbleytu
Utankgörfundcirkosning
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin og fer fram í Mela-
skólanum kl. 10—12, 2—G og 8—10 alla virka daga, á snnnu-
dögum kl. 2—G. Listi Alþýðubandalagsins um land allt er
G-listi.
I Látið kosningaskrifstofur Alþýðubandalagsins í Tjamargötu 20
og Lindarbæ (símar 17512, 17511 og 13081) vita um aöa þá
stuðningsmenn Alþýðubandalagsins sem verða fjarverandi á
kjördag.
I Þeir sem eiga vini eða kunningja meðal kjósenda Alþýðubanda-
lagsins sem erlendis dvelja' eru beðnir að minna þá á kosning-
arnar og senda þeim upplýsingar um hvar hægt er að kjósa
næst dvalarstað viðkomandi (sjá yfirlit nm kjörstaði erlendis
sem birt hefur verið í
blaðinu).
9 Munið að utankjörfundar-
atkvæðin geta ráðið úrslit-
um um þingsæti — um
líf eða faH ríkisstjómar-
innar.
Til starfa fyrir G-listann!
■ Mifög mikil aurbleyta er nú á vegum um allt Suðurland,
Vesturland og Norðurland og eru margir vegir ófærir öðr-
um bílum en jeppum af þessum sökum og vegamálast'jórn-
in hefur takmarkað öxulþunga bifreiða á mörgum vegum
öðrum.
Samkvæmt dpplýsingum sem
Þjóðviljinn fékk í gær hjá vega-
málaskrifstofunni eru vegafcak-
markanimar í stórum dráttum
sem hér segir.
Suðurland
1 Árnessýslu er öxulþungi tak-
markaður við 5 tonn á öllum
vegum nema Suðurlandsvegi,
Eyrarbakkavegi, Þoriákshafnar-
vegi, Skeiðavegi og Gnúpverja-
vegi. Þó er aðeins fært jeppum
um Grafningsveg, GuHfossveg
og Geysisveg.
Vesturland
Á Vesturlandsvegi milli Esju-
bergs á Kjalarnesi og Akraness
■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■1
«■■■■■■■■■■
Sósíalistafélagsfundur
■ Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur félagsfund
í kvöld, miðvikudag, kl. 8,30 í Tjamargötu 20.
■ Til umræðu: Kosningamar. Framsögumaður
Páll Bergþórsson.
■ Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega. Sýn-
ið skírteini við innganginn. — Félagsstjóm.
■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
er leyfður 7‘tonna öxulþungi en
miUi vegamótanna við Eskiholt
og Daismynni í Norðurárdal er
ieyfður 5 tonna öxulþungi. Milli
Dalsmynnis og Skálmardals í
Barðastrandarsýslu er umferð
aðems leyfð jeppum, á SnæfeUs-
nesi og Mýrum er leyfður 5
tonna öxulþuingi. Einnig eru
aHir aðrir vegir í Dala- og Barða-
strandarsýslum nema Bíldudals-
vegur lokaðir nema fyrir jeppa.
Norðurland
Á Norðurlandsvegi milli Dals-
mynnis í Norðurárd-al og Gríms-
staða á Fjöllum er leyfður 5 tonna
hámarks öxulþungi. Sömuleiðis
er leyfður 5 tonna öxulþungi á
öllum öðrum vegum í Húnavatns-
Skagafjarðar- Eyjafjarðar- og
Þingeyj arsýslum, þó eru eftir-
taldir vegir á Norðurlandi aðeins
opnir fyrir jeppa: Skagavegur
milli Skagastrandar og Sauðár-
króks, Skagafjarðarvegur, Siglu-
fjarðarvegur miUi Hagpnesvíkur
og Hrauna, Ólafsfjarðarvegur í
Ólafsfjarðarmúla, Vegirnir um
Vaðlaheiði og Fljótsheiði, Þing-
eyjarsýslubraut milli Auðbjarg-
arstaða í Kelduhverfi og Kópa-
skers, Kollavíkur í Þistilfirði og
Þórshafnar.
Gils Guðmundsson
Geir Gunnarsson
lagið, Reykja-
neskjördæmi
Alþýðubandalagsfélögin í
Reykjaneskjördæmi tilkynna
það sem hér fer á eftir
um starfsemi sína í vikunni:
Félagsfuitdur
Alþýðubandalagið i Kópa-
vogl: Félagsfundur i fé-
lagsheimili Kópavogs ant»-
að kvöld kl. 20.30.
Kjördæmamálið
Kjördæmishátíð Alþýðu-
bandalagsins verður haldjn
í Garðaholti á fösfcudags-
kvöldið kl. 20.30. — Góð
skemmtiatriði.
Hafnarf jörður og
Seltjarnames
Félagsfundir verða á
næstunni í Hafnarfirði og á
Seltjamamesi. — Gils Guð-
mundsson og Geir Gurm-
arsson mæta á fundunum.
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Al-
þýðubandalagsins er að
Þinghól við Hafnarfjarðar-
veg, opin frá 17 alla
daga. Auk þess er opið
hús í iÞnghól á þriðju-
dags- og fimmtudagskvöld-
um.
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
REYKJANESKJÖRDÆMI.
K0SNINGA-
SKRIFST0FA
ALÞÝDU-
BANDALAGSINS
KOSNINGASKRIFSTOFUR Al-
þýðubandalagsins eru í Tjarn-
argötu 20, síml 17512 og 17511,
opið kl. 10—10, og í Lindar-
bæ, Lindárgötu 9, sími 18081,
opið kl. 9—6.
SJÁLFBOÐALIÐAR! — Hafið
samband við kosningaskrif-
stofumar.