Þjóðviljinn - 17.05.1967, Qupperneq 12
I
VVVVAAA^AA^OVW^O^^AAAAA^\VVVVVWVAVWVA\\\\AAAAAAAA^V\VVVVVVVVVtVVV^VVVWVVV /VtVWV\'VWWVAAAAA,VVAAAAAAAAVW\A\A.AAAVVA,\'WVAAAAA.\AAAVVVVVWVWVVWVVVAAAVWVAA^
Ólafur Ketilsson í erjum við lögregluna
Flutti unglinga í óleyfí að Laugarvatni
■ Allharðar sviptingar urðu um hvítasunnu-
helgina milli lögregluliðs og sérleyfishafans
Ólafs Ketilssonar út af unglingahópferðum til
vistar úti í guðs grænni náttúrunni að Laugar-
vatni, — varð öldungurinn að hverfa á braut
með æskulýðinn úr landi Laugarvatns á rúturn
sínum og flutti hann þá í svonefnda Álftarhóla
í Grímsnesinu og dunaði þar mikil unglinga-
gleði um helgina, — voru þar allt að 300 stykki,
— tuttugu voru teknir úr umferð fyrir ölvun
og ólæti og er það með minna móti.
Fyrir hvítasunnuhelgina
dundu tíðar auglýsingar í út-
varpinu frá skólastjórunum að
Laugarvatni, að bannað væri
að tjalda í landi Laugarvatns,
— jafnframt fylgdu x kjölfar-
ið aðrir landeigendur í Laug-
ardal og auglýstu bann í sínu
landi- Inn á milli var þó
skotið refslega auglýsingum
frá sérleyfishafanum, að hann
flytti fólk að venju til Laug-
arvatns um helgina og hefði
þar til umráða land undir
tjaldstæði fyrir blessað fólk-
ið, — þótti þá sýnilegt, að
draga myndi til tíðinda.
Út vil ek
Ólafur
sagði
Sérleyfishafinn er þekktur
fyrir að halda sínar einka-
brautir í lífinu, — reykvísku
lögreglunni þótti þó ráðlegt að
tilkynna Ólafi Ketilssyni sér-
leyfishafa áður en hann legði
af stað frá Umferðarmiðstöð-
inni, að hann hefði enga
heimild, — en út vil ek, sagði
Ólafur, og hélt af stað með
fjóraír rútur, eða á annað
hundrað unglinga til vistar að
Laugarvatni.
Þar tóku á móti honum
lögreglulið frá Selfossi og
Reykjavík og þótti nokkuð
harðsnúið, — Ólafur vildi
hleypa ungviðinu út úr bílun-
um, — það vildi lögreglan
ekki og urðu nú snarpar orða-
hnippingar.
Ólöglegt ökuskírteini
Þó þótti Ólafi skörin fær-
ast upp í bekkinn. þegar lög-
reglan hélt því fram, að hann
væri ekki með löglegt öku-
skirteini, — landsþekktur bif-
reiðastjórinn úr allskonar
volki vetur og sumar í ára-
tugi.
Hótaði lögreglan Ólafi að
svipta hann stjóm á bílum
sínum. Nú varð Ólafur reiður
enda henti hann nú mörg
spjót á lofti og sendi jafn-
harðan til baka, gaf eldsnögg-
ar fyrirskipanir á báða bóga
— mátti hann hörfa frá Laug-
arvatni á rútum sinum og
fór með ungviðið í svpnefnda
Álftarlhóla í Grímsnesi, — þar
risluðu svo unglingamir sér
við drykkju og gleði yfir helg-
ina.
Þjóðviljinn hefur haft sam-
band við þrjá deiluaðila út
af þessu máli og vill greina
frá athugasemdum þeirra allra
við þessa deilu.
Hvað segár löggan?
Fyrst skal stuðst við lög-
regluskýrslur á Selfossi og í
Reykjavík.
Báðar löggumar skýra svo
frá, að ósk hafi komið frá
skólastjórum skólanna á
Laugarvatni, að truflaður
væri sem minnst próflestur
unglinga við skólana fyrir
væntanleg próf og utanað-
komandi unglingum yrði ekki
hleypt til ærsla og óláta í
landi Laugarvatns yfir helg-
ina.
Um hundrað og fimmtíu
flöskur af áfengi voru teknar
úr ýmsum bifreiðum hér fyrir
utan bæinn og er talið að
miklum drykkjulátum hafi
verið afstýrt hjá unglingun-
um, — enda voru aðeins
tuttugu unglingar teknir fyr-
ir ölvun í Álftarhólum.
/
Hvað segir land-
eigandinn?
Þá hafði Þjóðviljinn sam-
band við Stefán Karlssbn hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
en sá mæti maður er land-
eigandi í Laugardalnum og
keypti tiu hektara fyrir þrjá-
tíu árum á fimm þúsund
krónur í svonefndu Stekkár-
landi og hafði hann leyft Ól-
afi tjaldstæði, fyrir átta til
tíu tjöld í landi sínu, — en
ekki dropi af áfengi mátti
vera með í spilinu og ein-
göngu rólegt fólk. Hér var
aðeins um tjaldstæði fyrir 30
manns .að ræða, — en ekki
á annað hundrað unglinga —
og heldur Stefán þvx fram,
að hann hafi ekki vitað um
f j öld ahópferði r Ólafs,. enda
kom hann til skjalanna aust-
ur á Laugarvatni með konu
sinni og komst þá upp um
strákinn Tuma.
Helvítin hjá útvarpinu
Að lokum náðum við tali af
Ólafi Ketilssyni og reyndist
hann svo hraðmælskur í sím-
anum, að ekki er víst, að allt
komist til skila hér í blað-
inu, er hann vildi segja um
málið.
Ljóst er þó, að Ólafur ætl-
ar að stefna fréttástofu ríkis-
útvarpsins fyrir falskar frétt-
ir af atburði þessum, — með-
al annars því að á annað
hundrað flöskur af áfengi hafi
verið í sérleyfisbílum til
Laugarvatns, — mig vantar
bara harðsnúinn lögfræðing,
sagði Ólafur.
Ég hef aldi-ei verið sprútt-
sali, sagði Ólafur, enda fund-
ust aðeins um níu flöskur af
áfengi hjá farþegum í mínum
bílum, — það er í fjórum
rútubílum. En það er rétt, að
skólastjóramir Benedikt Sig-
valdason og Árni Guðmunds-
son vildu ekki veita tjaldleyfi
. •. helvítin hjá útvarpinu
felldu þó niður níu fréttir ...
VVVWVWWWWWWWWWWWWWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWV\WWWWWl /WA WWWWVWWWWWWWWWWWWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWWWWl
Alþýðubanda-
lagið í
Hafnarfirði
Alþýðubanöalagsfólk Hafn-
arfirði. Stuðningsmenn
G-Iistans:
Rabbfundur verður í Góð-
templarahúsinu uppi ann-
að bvöld, fimmtudag, kl.
8,30.
Fjölmennið. — Stjómin.
■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■<
Fannst látinn í
Sundlaugunum
Á laugardagsmorgun fannst
maður látinn í Sundlaugunum
Þegar lögreglan kom á vett-
vang, var læknir kominn á
staðinn og byrjað-ur lífgunar-
tilraunir á manninum. Hálf-
tima síðar var þessum lífgun-
artilraunum hætt og öll von
talin úti.
Hinn látni hét Karl Tómas-
son og var til heimilis að Há-
teigsvegi 15, — 57 áraaðaldri.
Skipaðiy yfir-
læknir við
Vífilsstaðahæli
Heilbrigðismálaráðherra hefur
hinn 6. þ.m. skipað Hrafnkel
Helgason lækni, til að vera yfir-
laekni við Heilsuhæiið að Vífil-
stöðum frá 15. maí næstkiomandi
að telja. (Frá dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu).
^■•■■■•■•■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■•■■■\'
Laus hverfi
Tjamargata
Hringbraut
Kaplask j ólsvegur
ÞJÓÐVILJINN
Sími 17500.
Höfundarnir: Kristján, Oddur og Leifur.
Hornakórallinn frumsýndur í
Þjóðleikhúsinu innan tíðar
■ Á næstunni verður frumsýning í Þjóðleikhúsinu á nýj-
um íslenzkum söngleik. Söngleikur þessi heitir „Homa-
kórallinn“ og er eftir þrjá unga höfunda, þá Odd Björns-
son, Leif Þórarinsson og Kristján Ámason. Höfundar kalla
söngleik sinn„ Klínk-klínk-kómedíu og er hann í tveim-
ur þáttum. í leiknum koma fram margir leikarar og þokka-
dísir. Hljómsveitarstjóri verður Leifur Þórarinsson og verð-
ur hljómsveitin skipuð 12 hljóðfseraleikurum.
Aðalhlutverki n eru leikin af
Róbert Arnfinnssyni, Þóru Friðr-
iksdóttur, Erlingi Gíslasyni og
Sigríði Þorvaildsdóttur.
Þetta verður síðasta leikritið,
sem frumsýnft verður hjá Þjóð-
leikhúsinu, á þessu leikári.
Oddur Björnsison er leikhús-
gestum að góðu kunnur. Fimm
leikrit hafa þegar verði frum-
flutt eftir hann í leikhúsum hér
í bæ. En þessi leikrit eru: Jóð-
líf, sýnt hjá Þjóðleikhúsinu á
liðnu ári; Köngxxlóin, Parti,
Framhaldssaga og Amalía, öll
sýnd af leikflokki Grímu. \
Leifur Þórarinsson, er þegar
orðinn kunnur af tónsmíðum
sínum, sem vakið hafa verð-
skuldaða athygli, og þriðji höf-
undurinn, Kristján Árnason, hef-
ur um alllangt skeið lagt stund
á ijóðagerð og fyrir nokkni kom
út Ijóðabók eftir hann, er nefn-
ist „Rústir“ og hlaut góða
dóma.
Rétt er að skilgreina nánar,
hvem þátt hver hinna ungu höf-
unda eiga í þessum söngleik, er
Þjóðleikhúsið frumsýnir á næst-
unni. — Leiktexti er eftir Odd.
Tónlistin er eftir Leif og hafa
þeir báðir unnið sameiginlega
að þessu verki í langan tíma.
Söngtextamir eru allir eftir
Kristján.
IA og ÍBK í
úrslitaleik
Keflvíkingar og Akurnesingar
verða að leika aukaleik tii úr-
slita í Litlu bikarkeppninni eft-
ir sigur Akumesinga yfir Hafn-
firðingum 4:1 á Akranesi sl.
laugardag. — Ekki er enn ákveð-
ið hvenær úrslitaleikurinn fer
fram eða hvar.
MiðviIkudíagHr 17. maí 1967 — 32. árgangur
107. tiaiöibffiað.
Enn slasast fólk á
Keflavíkurvegi
■ Síðdegis annan hvítasnnnudag varð harður árekatur
milli tveggja fólksbíla á Keflavíkuirvegi, skammt fyrir
sunnan Lónakot, og slösuðust þama fjórar stúlkur. Var
erfiðleikum bundið um sfceið að ná sumum stú.lknanna
úr brakinu.
Annarsvegar var Skoda-bifreið
er kom aliiandi að sunnan á átta-
tíu ktílióim©tx*a ferð og mætti
Simca-bifreið er kom akandi á
móti og ók Sirrica-bfliinn yfir á
hægri akrein á áttatíu kílóimietra
hraða og stouilllu bílarnir þannig
saman með samtals 160 kmhraða
á klst.
TVær stúlfcur úr Reykjavík
voru í Simca-bílnum og ók önn-
ur stúlkan, en piltur úr Keflla-
vík ók Sfcoda-bílrmxm og steipp
hann að mestu ómeiddur.
Tvær stúlkur úr Grindavxfc
voru í Skoda-ibílnum og sHösuð-
ust þær báðar og jaÆnfranat stúiPr-
urnar í Simca-bílnum, — sikái’-
ust þær allar iMa í andiiti og
hiluitu hruflur, slkrámur og mörð-
ust. yoru allar stxxlkum'ar fkutt-
ar á Slysavarðstofuría í Reyfcja-
vík.
Hafnarfijai'ðarlögregten tólk sjö
ölvaöa við afcstur um helgina.
Sumarnámskeið verða haidin
hér fyrir börn og anglinga
I sumar verður efnt til ýmissa
námskeiða fyrir börn og ung-
linga á vegumi Reykjavíknrborg-
ar eða stofnana hennar, aukþess
sem starfsemi skólagarðanna og
Vinnuskóla Reykjavíkurborgar
verður eins og undanfarin ár.
Á s.l. sumri efndi fræðsluráð
Reykjaivilkur tii námsfceiða í
hússtjóm fyrir böm sem lofcið
höfðu bamaprófi. Gáfust þessi
námskeið svo vel að nú er á-
formað að halda starfseminnd á-
fram og verða haidin tvö fjög-
urra vikna námsíkeið, annað x'
júní en hitt í ágúst. Á námskeið-
unuim hefst daigU'rinii hjá böra-
unum með sundtíma kl. 8 og
síðan er þeim kennt aMt, sem
lýtur að heimilisstörfum og
stendur sú kennste yfir tii bl. 2
eftir hádegi. Þátttaikendur greiða
1000 gr. í efnisgjald og er þá
jafnframt innifálinn morgunverð-
ur, miðdegisiverður og aðgangiir
að sundstöðunum. Innritunin fer
fram í Fræðsiluskrifstofu Rvfk-
ur, Tjarnargötu 12, daigana 18. og
19. maí M. 3—5 e.'h.
Sumamámskeið fyrir börn sem
Ijúka barn.aprófi í vor er nýmæii
sem borgarráð Rvíkur efnir til.
Verða námsbeiðm tvo í sumar og
bæfcistöðvarnar verða Melaskö1!],
Laugamesskóii og Breiðagerðis-
sfcóli, ef nœg þátttafca verður.
Verkefnd námsMðanina verða i-
þróttir og leikir, föndur, hjáSp í
vi^’lögum, umí'erðarreglur, nátt-
úru'sboðun, ferðaimiennstoa. Nám-
stoeiðsgjaildið er kr. 500 og greið-
ist það við innritun sem fraxn
fer x sfcrifctofu Æskulýðsráðs,
Fríkirkjuvegi 11, föstudaginn 19.
ma,, toL 14—20.
Iþrótta- og leifcjanámskeið
verður í suniar haldi'ð í 10. sfcipti
og verða þau á- 8 — K) sitöðum í
borginni fyrir böm á aldrinum
7 — 12 ára. Kennt verður ann-
an hvem dag á hverjum stað,
tvo tiíma í einu. Némskeiðin
hefjast um ménaðamótin maí-
júm og standa_yfir í einn má.i-
Framhald á 9. ,síðu.
ÆFR
FÉLAGAR! Salurinn verð- ■
ur opnaður aftur á morg- ;
un, fimmtudag, og verður ;
hann framvegis opinn und- j
antekningarlaust á þriðju- j
dags- og fimmtudagsikvöld- j
um. —' Lítið inn og takið :
með ýkkur gesti.
y m
m
Salstýra.
■ 5
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
Eitt bezta knattspyrnulið Skotlands í boði Vals
Hearst leikur gegn
Kefíavík á föstudag
Fyrsta erlenda knattspyrnulið-
ið sem hingað kemur í sumar er
eitt þekktasta lið Skotlands,
Heart of Midlothian frá Edin-
borg. Það kemur í boði Vals og
leikur hér þrjá leiki.
Fyrsti leikurinn er á föstudag
gegn Keflvíkingum, en .á mánu-
dag leikur Hearts gegn gestgjöf-
um sínum Val og síðasti leikur-
inn verður á miðvikudag gegn
úrvalsliði landsliðsnefndar.
Leikirnir fara allir fram á
Laugardalsvelli og hefjast kl.
8,30.
Hearts er eitt af beztu 1. deild-
arliðum í Skotlandi og hefur
leikið í deildinni frá því hún var
stofnuð og oftast verið í ein-
hverju af fimrn efstu sætum í
deildinni, en lenti í 10. sæti á
síðasta keppnistímabili sem nú
er nýlokið. Fjórum sinnum hef-
ur Hearst sigrað í 1. deild og
fimm sinnum í bikarkeppninni.
Forráðamenn knattspyrnu-
deildar Vals höfðu ekki enn ferxgið
n^egar upplýsingar um leikmenn
sem hin'gað koma, er þeir ræddu
við blaðamenn í gær, en þekkt-
asti leikmaður liðsins er Norð-
maðurinn Roald „Kniksen" Jen-
sen, sem varð frægur fyrir knatt-
leik sinn strax sem unglingur.
Markvörður liðsins hefur leik-
ið í landsliði og heyrst hefur að
tveir leikmenn aðrir hafi leik-
ið í landsliðinu.
Hingað kemur 19 manna hópur
leikmannaog fai*arstjórar og rauk
þess skozkur blaðamaður. Hóp-
urinn kemur á fimmtudag og
dvelst á Hóteli Loftleiða.
*
r