Þjóðviljinn - 09.01.1968, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 9. janúar 1968 — 33. árgangur — 6. tölublað.
Eldur í íbúðarkúsi ú Patreksfírði
Aðfainótt laugardags kom
upp eldur í íbúð að Aðal-
stræti 23 á Patreksfirði. Þetta
er steinhús með timburlofti,
2 hæðir og ris. Kviknaði i
timburþili út frá miðstöðvar-
ofni og urðu töluverðar
skemmdir, einkum af reyk, og
var allt kolsvart, jafnvel upp
í rishæð.
Eldri hjón á miðhæðinni
vöknuðu af tilviljun um kl.
4 um nóttina og urðu eldsins
vör. Vakti konan strax konu,
sem bjó á neðstu hæð óg
björguðust allir ómeiddir.
Slökkviliðsstjórinn á Pat-
reksfirði, Bergsteinn Snæ-
björnsson, sagði í viðtali við
Þjóðviljann i gær, að á skrá
hjá slökkviliðinu bar væru30
manns og mættu þeir allvel.
Var eldurinn slökktur á um
það bil klukkustund.
Alþýðubandal'ag-
ið í Kópavogi:
Tilkynning
um árshátíð
Árshátíð Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi verð-
ur haldin laugardaginn 20.
jan. n.k. í Félagsheimili
Kópavogs. Borðhald. Góð
skemmtiatriði. Dans. Nán-
ar auglýst síðar.
Miðar að hátíðinni verða
til sölu hjá Eyjólfi Ágústs-
syni, Borgarholtsbraut 57,
sími 40853.
— Stjórnin.
I gær varð vinnuslys í grjót-
námu í Hamranesi hjá Hoehtief.
Þar féll maður ofan af bílpalli.
Sagði lögreglan í Hafnarfirði að
hann hefði meiðst á höfði og
verið fluttur á Slysavarðstofuna.
Slitnað hefur upp úr samn-
ingumum kjör bútasjómanna
- segir Jón Sígurðsson, form. Siómannasambands fslands
□ Það hefur slitnað upp úr samningum um kjör
bátasjómanna. Hefur enginn samningafundur ver-
ið boðaður á næstunni, sagði Jón Sigurðsson, for-
maður Sjómannasambands íslands í viðtali við
Þjóðviljann í gærdag.
Samningafundur var haldinn
s.l. laugardag í bækistöðvum
LítJ í Hafnarhvoli og stóð þessi
fundur frá klukkan 14 til 18 um
daginn. Þarna komu saman að-
ainefndir frá hálfu sjómannafé-
laga og útgerðarmanna ogþreif-
uðu menn fyrir sér um samn-
ingsgrundvöll. Hins vegar fékkst
engin niðurstaða á neinu og
myndi ég telja bilið milli samn-
ingsaðila mikið eins og stendur,
sagði Jón.
Er óhætt að fullyrða, og sízt
oí sterkt til orða tekið, — að
slitnað hafi upp úr samningum
í bili, sagði Jón ennfremur.
Ef ekki þýðir að halda fleiri
samningafundi — á hvaða stig
færist baráttan þá hjá sjómönn-
um? spurðum við Jón.
Þessu get ég ekki svarað á
þessu stigi málsins, en óhætt ar
Efnamælirinn sem vinniur á við 6—8 rannsóknarstúlkur. — (Ejósnu Þjóðv. AJK..).
Rannsóknarstöð Hjartaverndar formlega tekin í notkun:
Fjáröf iunarnef nd H jartaverndar saf n-
aði 6 milj. — Gefendur 62 að tölu
að .fullyrða um samstöðu sjó-
manna til ýmissa hugsanlegra
aðgerða, sagði Jón að lokum.
Ötsvör á Akur-
eyri áætluð um
68,8 milj. kr.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar
Akureyrarkaupstaðar fyrir ár-
ið 1968 verður til umræðu í bæj-
arstjórninni þar nyrðra i dag.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar
eru 113,4 milj. kr. Helztu tekju-
liðir eru útsvör, sem áætluð eru
68,8 miljónir, aðstöðugjöld 16,7
miljónir, fasteignagjöld 12 milj-
ónir og framlag úr Jöfnunarsjóði
6,7 milj. kr.
FiskverBii væntan-
legt á miðvikudag
■ Fundir eru nú haldnir daglega í yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins, en engin niðurstaða hefur fengizt ennþá,
sagði Sveinn Finnsson, framkvæmdastjóri í viðtali við
Þjóðviljann í gærdag.
★ Samkvæmt Iögum um fiskverð
er gert ráð fyrir að það sé
tilbúið um áramót og ákvarðar
Verðlagsráð sjávarútvegsins
fiskverðið á hverjum tíma.
Þegar sýnt þótti, að slíkt
mætti ekki verða uúna um
áramótin var þessi frestur
framlengdur til 7. janúar með
ráðherraleyfi. • ! "
k Nú er sjöundi janúar liðinn
og fiskverðið hefur ekki séð
dagsins ljós ennþá og fyrir
helgi var þessi frestur ennþá
framlengdur til 10. janúar eða
til næsta miðvikudags.
ir Nú er búizt við fundum dag
og nótt í Verðlagsráðinu og
með slíkum maraþonfundar-
höldum eru taldar líkur til
þess að fiskverðið komi á
morgun, miðvikudag, að Iok-
um.
■ Á laugardaginn var formlega opnuð hin nýja rannsókn-
arstöð Hjartavemdar að Lágmúla 9 að viðstöddum heil-
brigðismálaráðherra. borgarstjóra og íjölmörgum öðrum.
B Fjáröflunarnefnd Hjartavemdar safnaði 6 miljónum
króna sem gerði kleift að keyptar voru tvær hæðir að Lág-
múla 9 og er önnur hæðin búin tækjum. Voru gefendur
62 talsins, bankar og ýmis fyrirtæki önnur.
Við vígslu rannsóknarstöðvar-
innar fluttu þeir Pétur Bene-
díktsson alþingismaður og for-
maður fjáröflunarnefndar, Jó-
hann Hafstein heilbrigðismála-
ráðherra og Sigurður Samúelsson
formaðun Hjartaverndar, ávörp.
í ræðu Sigurðar kom m.a.
fram eftirfarandi: I fjáröflunar-
nefnd Hjartaverndar hafa starfað
þessir menn: Baldvin Einarsson,
forstjóri, Eggert heitinn Kristj-
ánsson, forstjóri, Helgi heitinn
Þorsteinsson, forstjóri, Kri.stján
Jóhann Kristjánsson, forstjóri,
Loftur Bjarnason, forstjóri, Pét-
ur Benediktsson, bankastjóri og
Sigurliði Kristjánsson, forstjóri.
Fyrst eftir stofnun samtak-
anna og þar til þau höfðu kom-
ið sér upp fastri skrifstofu hvíldi
dagleg stjóm og rekstur áherð-
um þeirra Eggerts heitins Kristj-
ánssonar, Sigurliða Kristjánsson-
ar og Péturs Benediktssonar.
Fjáröflunarnefnd leitaði sem
fyrr. segir til ýmissa aðfla og
gáfu 62 aðilar 6 miljónir t.il
rannsókharstöðvarinnar. Jóhann
Hafstein, heilbrigðlsmáiaráðl\prra
benti á þá leið að samtökin
sneru sér til heilbrigðisnefnda
Alþingis og hlaut beiðni Hjarta-
vemdar um hluta af tappagjaldi
af öli og gosdi-ykkjum einróma
samiþykki heilbrigðisnefnda Al-
þingis og alþingismanna alllra.
Byrjað var að rannsaka ínýju
stöðinni í síðustu viku nóvem-
bermánaðar, en áður höfðu stúd-
entar, alþingismenn o.fl. „prufu-
keyrt“ stöðina eins og ÓlafurÓl-
afsson, læknir komst að orði í
viðtali við Þjóðviljann.
Rannsóknarstöðin er nú full-
búin og hefur verið kappkostað
að búa hana hinum beztu tækj-
um sem völ er á.
Við stöðina starfa tveir sér-
fræðingar í læknisfræði og líf-
efnafræðingur auk sérhæfðs
starfsliðs, Auk þess nýtur stöðin
ráðlegginga fjölmargra sérfræð-
inga á ýmsum sviðum. Þessir
sérfræðingar og ráðgjafar Hjarta-
verndar hafa unnið um 5 mán-
aða skeið við skipulagningu á
öiilum rannsóknum stöðvarinnar
til úrvinnslu í rafreikni, áðuren
rannsóknir og læknisskoðun á
þátttakendum hófust. Á þennan
hátt verður að lokinni rannsókn
hægt að fá útskrift af sjúkra-
sögu og öllum rannsóknum. Hver
þáttakandi í rannsókninni þarf
að svara 300 spurningum og
segja kunnugir að það sé um
tveggja tiima verk. Þegar við
þetta bætist læknisrannsókn, all-
ar blóð- og þvagrannsóknir eru
hinir einstöku þættir órðnir um
700.
Er hér um að ræða úmfangs-
miMa gagnasöfnun sem vart
væri hugsaleg án notkunar nýj-
ustu tækni. Stundum hefur því
verið haldið fram að 30—^40%
ar vinnutíma lækna fari í skrif-
finnsku og má búast við gífur-
legri breytingu þar á með til-
komu nýrrar tækni sem- hagnýtt
verður í rannsóknarstöðinni; en
margt í því sambandi er algjör
nýjung á sviði læknisfræði hór
á landi.
Rannsóknarstöðin hefur nú
starfað um tveggja og hálfs
mánaðar skeið og rannsakaðir
hafa verið um 500 manns. Fyrsta
hói rannsóknin telur um 3000
karla á aldrinum 34—60 ára.
Gera má ráð fyrir að innan fárra
rnánaða liggi fyrir svo ítarlegar
niðurstöður að hægt verði að
Framhald á 3. síðu.
ti I r au n a I andsl ið-
inu á morgun
f gærkvöld fékkst loks leyfi
Handknattleiksráðs Reykjavíkur
fyrir því að pólska handknatt-
Ieiksliðið Spojnia leiki þriðja
leik sinn hér í Reykjavík. Mæta
Pólverjamrr úrvalsliði HSÍ í
Laugardalshöllinni annað kvöld,
miðvikudag. í Þjóðviljanum á
morgun verður nánar skýrt frá
leiknum og liði HSÍ.
í gærkvöld lék Spojnia fyrri
leik sinn á Akureyri gegn gest-
gjöfum sínum Haukum. Pólverj-
amir sigruðu með 25 mörkum
gegn 21. f leikhléi var staðan
14:7 Spojnia í vil, en síðari hálf-
leikinn unnu Hafnfirðingarnir.
Troðfullt hús áhorfenda var að
þessum fyrsta leik erlends hand-
knattleiksliðs á Akureyri.
f kvöld leika Pólverjarnir síð-
ari leik sinn á Akureyri, geen
úrvalsliði fþróttabandalags Ak-
ureyrar.
Vinnings
numerin
r f ■
a
★ Vinningsnúmerin í Happ-
drætti ■ Þjóðviljans 1967
verða birt hér í blaðinu á
fimmtudaginn og þurfa
full skil því að hafa borizt
fyrir þann tíma.
■k Þessa tvo daga sem eftir
eru verður tekið á móti,
skilum á afgreiðslu Þjóð-
viljans á Skólavörðustíg
19, sími 17500, til kl. 6 og
á skrifstofunni í Tjarnar-
götu 20, sími 17512, til
kl. 7.
★ Þeir sem búsettir eru úti
á landi óg enn eiga eftir
að gera skil eru vinsam-
lega beðnir að snúa sér til
næsta umboðsmanns eða
póstleggja skilin til skrif-
stofu happdrættisins.
Tjarnargötu 20. í síðasta
lagi á morgun. miðviku-
dag.
Alþýðubandalagið í Képavogi
Félagsfundur verður haldinn í Alþýðubandalaginu í Kópavogi
n.k. fimmtudagskvöld, 11. janúar, í Félagsheimili Kópavogs, niðri,
og hefst kl. 8,30.
FUND AREFNI:
1. Félagsstarfið. Framsögumaður Björn Kristjánsson.
2. Skýrt frá miðstjórnarfundi AlþýðubandaJagsins. Finnur
Torfi Hjörleifsson.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
I