Þjóðviljinn - 09.01.1968, Page 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 9. janúar 1988.
Minningarorð
Jón Magnússm, fréttastjórí
Vinarminni
Að rifja upp minningar um
Jón Magnússon er að rifja upp
þau ár, sem margir telja eftirá
björtustu ár ævinnar, mennta-
skólaárin og „stúdentsárin
æskuglöð“. Frá því er við tók-
um gagnfræðapróf vorið 1925
og þar til Jón lauk háskóla-
prófi í Stokkhólmi 1937 átti ég
meira saman við hann að sælda
en nokkum annan mann. Við
lásum iðulega saman lexí-.
urnar í menntaskólanum á
Akureyri og alltaf saman und-
ir próf. og i Sviþjóð bjuggum
við í fimm vetur undir sama
þaki. þar af fjóra í sama her-
berginu.
Það er mér minnisstætt frá
menntaskólaárunum, hversu
bráðnæmur Jón var og þó eink-
um, hvað hann var fljótur að
átta sig á aðalatriðum efnis og
fá almenna yfirsýn. Fimmta
bekk las hann að mestu heima
hjá sér á Sveinsstöðum í Húna-
vatnssýslu. en sum fögin lét
hann sér nægja að lesa aðeins
í upplestrarfríinu og nægði það
honum til hárra einkunna í
þeim.
Mér þykir líklegt. að ef
stærðfræðideild hefði í þann
tíma verið við Menntaskólann
á Akureyri, hefði Jón valið
hena, því hann var að upplagi
mesti stærðfræðingurinn í okk-
ar bekk. En utan hugðist hann
fara að loknu stúdentsprófi og
skildust leiðir okkar einn vet-
ur er hann fór til Stokkhcflms
til náms í sænskri tungu og
bókmenntum en ég til Hafnar
til náms í jarðfræði. En hann
lokkaði mig til Svíþjóðar þeg-
ar á næsta ári. Raunar var sú
dvöl áætluð aðeins sex vikur.
en varð nær 15 ár, og þótt ekk-
ert, hefði Jón annað fyrir mig
gert en lokka mig til Svíþjóð-
ar. stæði ég i mikilli þakkar-
skuld við hann.
Fram til þess tíma er Jón
hóf háskólanám í Svíþjóð höfðu
íslenzkir stúdentar lítt sótt í
sænska háskóla. Einn og annar
hafði stundað þar háskólanám
um skeið og man ég í svipinn
eftir Ásgeiri Ásgeirssyni, Guð-
laugi Rósinkranz, Bjarna Sig-
urðs. er ílentist sem arkitekt í
Svíþjóð. og séra Garðari Þor-
steinssyni. En Jón Magnús-
son og Sigurþyjm Einarsson,
eru, að því er ég bezt veit,
fyrstu íslendingamir, er luku
kandídatsprófi í Svíþjóð, og
mörkuðu þar með braut, sem
margir hafa síðan fetað. Þeg-
ar haustið 1934 voru íslenzku
stúdentamir í Stokkhólmi orðn-
ir það margir, að hinn 18. nóv.
1934 er stofnað Félag íslenzkra
stúdenta í Stokkhólmi, opið
ö^lum íslendingum í Stokkhólmi
og Uppsölum, en svo um hnút-
ana búið. að stúdentar réðu
málum félagsins. Er þetta félag
enn við lýði.eftir aldarþriðjung.
Jón var sjálfkjörinn fyrsti for-
maður þess.
Það var mikið lán þeim, er
komu til Stokkhólms næstu ár-
in á eftir Jóni, að hann hafði
þegar sinn fyrsta vetur þar
kynnzt fjölmörgum Svíum og
bundið vinfengi við ýmsa
sænska ágætismenn, svo sem
aðalkennara sinn, prófessor
Elias Wesséri. Gunnar Leij-
ström, síðar dósent. Hjalmar
Alving, hinn ágæta þýðanda
íslendingasagna, Sven B. F.
Jansson. (,,Janne“), nú þjóð-
minjavörð Svía, og marga fleiri.
Nutum við. sem á eftir kom-
um, góðs af, og Jón átti drýgsta
þáttinn i því, að islenzkir
Stokkhólmsstúdentar voru frá
upphafi í tiltölulega náinni
snertingu við Svía og sænska
menningu og einangruðu sig
ekki eins og löndum hættir til
að gera erlendis.
Á síðari ipámsárum sírium
vann Jón mikið starf sem arin-
ar aðalhöfundur íslenzk-
sænsku orðabókarinnar, sem er
að miklu leyti samin áður en
hann fór heim, þótt ekki kæmi
hún út fyrr en 1943. Jón má
með réttfci kallast brautryðj-
'>ndi á sviði íslenzlc-sænskr'’
íhenníngartengsla.
Við gömlu Stokkhólmsfélagar
Jóns eigum aðeins bjartar
minningar um hann. Jón sam-
einaði á einstakan hátt bjarta
lund og raunsæi, geðprýði og
skapfestu. Hann var löngum
glaðvær án hávaða og hafði þá
traustu þekkingu, sem veitir
öryggi og þarf ekki að auglýsa
sig. Allir, sem honum kynnt-
ust, eru á einu máli um það.
hversu notalcgt var að vera i
návist hans: Maðurinn var aU-
Handa
frumstæðum þjóðum
Sá atburður sem vakið hef-
ur einna mesta athygli hvar-
vetna um heim að undan-
fömu eru neyðarráðstafanir
Bandaríkjamanna í efnahags-
málum, en með þeim er við-
urkennt að gengi dollarans sé
orðið mjög valt- HefurBanda-
ríkjastjórn gripið til þess að
taka upp haftastefnu á ýms-
um sviöum, m.a. á nú að
hverfa frá þeirri kenningu
að fjármagnsflutningar séu
eitt ágætasta einkenni hins
„frjálsa heims“ — á að tak-
marka bandaríska fjárfest-
ingu erlendis til mikilla
muna og banna hana í sum-
um löndum heims. Ýmsar
aðrar ráðstafanir eru fyrir-
hugaðar, og svo langt er
gengið að ætlunin er að tak-
marka ferðafrelsi Banda-
ríkjamanna verulega, þeim
er ætlað að sætta sig við
einskonar átthagaifjötra. Á-
stæðan fyrir þessum neyðar-
ráðstöfunum er styríöldin f
VSetnam sem kostar nú
Bandaríkin hátt í 100 miljón-
ir dollara dag hvem og hef-
ur leitt til verðbólgulþró-
uriar innanlands, mikils halla
á ríkisreikningum og mesta
greiðsluhalla í sögu Barida-
ríkjanna.
Eftir að þessar staðreyndir
voru kunnar var mjög furðu-
legt að hlýða á frásögn sem
fréttamaður ríkisútvarpsins í
Bandarikjunum flutti í út-
varp á föstudagskvöld um
efnahagsástandið í hinu vest-
urheimska stórveldi trm þessi
áramót. Fréttamaðurinn virt-
ist ekki hafa minnstu hug-
mynd um þá atburði sem
voru að gerast, meginatriðin
í málflutningi hans voru stað-
hæfingar um það að efna-
hagsástandið í Bandaríkjun-
um hefði aldrei verið betra
en nú. Hann lagði mikla á-
herzlu á það að öll efnahags-
ur svo dæmalaust huggulegur,
hið ytra sem innra. Það, sem
maður veitti fyrst eftirtekt í
útliti hans, voru fögur augu
undir dökkum augnahárum,
óvenju löngum og þéttum, og
munnsvipur, sem einkenndist
af dálítið glettnu og stundum
eilítið spotzku, óræðu brosi,
sem við félagar hans nefndum
okkar á milli Mónu-Lísubrosið
hans Jóns.
Fyrstu árin að háskólanámi
loknu starfaði Jón hjá Mennta-
málaráði, en fréttastjóri Ríkis-
útvarpsins varð hann 1941 og
mun Pálmi Hannesson hafa
ráðið nokkru þar um. Starf
hans sem fréttastjóra get ég að-
eins dæmt um sem fréttahlust-
andi, en ég hygg að það verði
vart ofmetið hvert lán það var.
að slíkur maður skyldi veljast
í þessa þýðingarmiklu stöðu á
viðsjárverðum tímum og gegna
því nær allan fyrsta áratug
hins íslenzka lýðveldis. Frétta-
flutningur Útvarpsins hefur all-
an þennan t.íma borið mjög af
öðrum fréttaflutningi hérlend-
is og þá framför í fréttaflutn-
ingi dagblaðanna, sem viður-
kennt skal að orðið hefur á síð-
ustu árum, má vafalaust þakka
að verulegu leyti því aðhaldi.
sem fréttaflutningur Útvarps-
■'"« veitti. Fyrir því hefi ég orð
þeirra, sem gerst vita, að Jón
hafi verið virtur og dáður af
starfsfólki sínu og samstarfs-
fólki í Ríkisútvarpinu.
Á íslandinu góða eru þeir,
því tniður, ærið margir, og
einnig úr hópi menntamanna,
sem verða að leggja á sig mik-
il aukastörf til þess að. fram-
fleyta fjölskyldu sinni og koma-
bömum sírium til menrita. Jón
Magnússon var enskukennari í
bréfaskóla SÍS frá stofnun
haps, og sjundiikspnari. í ensku
í Menntaskólanum í allmörg
ár, virtur af nemendum ogvin-
sæll í kennarastofunni. í lands-
prófsnefnd var hann frá stofn-
un hennar og er til þess tek-
ið. hversu farsæll hann var í
því starfi. Þar naut sín rétt-
sýni hans og það, hversu laus
hann var við alla smámuna-
semi. Bækur þýddi hann nokkr-
ar og samdi bók um Svíþjóð.
Ýmsir embættismenn freist-
ast eðlilega til þess að létta
nokkuð á ofvinnu með því að
þróun hefði 1 orðið jákvæð á ■
árinu 1967, enda miðaði nú j
greitt í átt að „þjóðfélagi |
hinu mikla“ sem Johnson for- :
seti hefði boðáð. Sérstaklega •
tíundaði fréttamaðurinn það j
sem mikil fagnaðartíðindi að 5
reynslan hefði sannað að j
Bandarí'kin hefðu vel efni á j
þvi að sinna í senn þjöðfé- j
lagsumbótum heima fyrir og S
styrjöldinni í Víetnam.
■
Bandaríkin hafa sem kunn- •
ugt er mikilli áróðursvél á ■
að skipa, og er áróðrinum j
hagað eftir þekkingarsti.gi •
væntanlegra viötakenda. Þær j
rósrauðu Paradísarlýsingar 5
sem fréttamaður ríkisútvarps- :
ins flutti um efnahagsástand- j
ið í Bandaríkjunum mundu j
að sjálfsögðu ekiki taldar j
frambærilegar í þjóðfélögum :
þar sem almenn stjómmála- •
þekking stendur á ssemilega j
háu stigi'; þær em ætlaðar j
frumstæðum þjóðum þar sem j
sjálfstæð dómgreind er ekki j
til trafala. En þótt svo illa j
tækist til að fréttamaður rík- j
isútvarpsins láti, mata sig á j
þyílíkum áróðri ætti ekki að j
vera nauðsynlegt að demba j
honum yfir hlustendur hér; j
ríkisútvarpið verður að gæta :
virðingar sinnar, jafnvel þótt j
fréttamaður þess í Bandaríkj- j
unum eigi hlut að máli.
— Austri.
vinna aukastör-íin að meira eða
minna leyti á kostnað aðal-
starfs þess, er fylgir stöðu
þeirra, en skyldurækni Jóns og
heiðarleiki voru meiri en svo,
að slíkt hvarflaði að honum.
Ekki er efi á því, að síðari ár-
in vann hann miklu meira en
biluð heilsa hans þoldi, en
hvers á heiðarlegur maður úr-
kostar? Þeir er málum ráða í
okkar landi hafa ærin tilefni
til að ígrunda það í alvöru,
hversu margir drepa sig nú
orðið á ofvinnu, hverjir það
eru, og hvers vegna þeir gera
það.
Að skilja við vin er að deyja
að nokkru, en lítið gjald er
það fyrir þá gæfu, að hafa
átt vináttu jafn góðs drengs
og þess, sem nú er genginn.
Trúföstum lífsförunauti hans
Ragnheiði Möller, og fjölskyldu
hans allri votta ég mína inni-
legustu samúð.
Sigurður Þórarinsson.
Jón Magnússon var á leið í
vinnuna eftir hádegíð 2. þessa
mánaðar þegar kallið kom. og
okkur á Skúlagötu 4 bárust
tíðindin skömmu síðar. Hann
hafði þá nokkrum klukkustuipd-
um áður fengið mér hádegis-
lesturinn með spaugsyrði á vör-
um eins og hans var vandi, —
gott ef hann spurði ekki hvort
herra fréttaþul tækist að kókl-
ast í gegnum þetta. Þá vorum
við flest fvrir löngu búin að
gleyma að Jón Magnússon þjáð-
ist af banvænum sjúkdómi sc-m
slær menn niður fyrirvaralaust,
enda heyrðu menn hann aldrei
minnast. á það mein, — hann
gekk um glaður og reifur eins
og ekkert væri, en hlýddi að
sjálfsögðu öllum fyrirmæ’um
lækjnavísindanna samkvæmt
sinni meðfæddu reglusemi og
þroskuðu, skyldurækni.
Jón Magnússon tók við
fréttastofunni á fertugsaldri,
kominn heim hámenntaður frá
Svíþjóð og ég komst í vinnu
hjá honum nokkrum árum eft-
ir stúdentspróf, og hafði ekkl
orðið sendibréfsfær í millitið-
inni. í vistinni hjá Jóni lag-
aðist þetta smámsaman, því
hjá honum lærðu allir ósjálf-
rátt án þess að hann væri yf-
irleitt að kenna neitt, líka að
ljúka störfum sinum af sam-
vizkusemi og’ eftir beztu getu,
án þess hann væri neitt að
stjórna þeim. Hann var nefni-
lega svoleiðis maður. Og öll
hans fínu háskólapróf segja
lítið um menntun hans og
menningu — hún var af þeirri
tegund sem skólavist ræður ef
til vill minnstu um, og spurn-
ingin: Hvað segir Jón Magn-
ússon um það? gilti um flest
svið mannlifsins, því dóm-
greindin var óskeikul, — þeir
sem þá og þá stundina voru á
öðru máli eins og gengur, sáu
oftast seinna að þeir höfðu
haft rangt fyrir sér. Ekki man
ég þó að hann hafi flíkað skoð-
unum sínum í tónlistarmálum,
og var þó músíkalskur líka, og
heyrðist stundum raula fyrir
munnj sér smálög á skrifstofu
sinni, — oft voru það sænskar
vísur. Hann átti það líka til
að hrista höfuðið yfir sænsku-
framburði annarra íslenzkra
sÖngvara, og einu sinni hafði
hann raunar í hótunum við mig
þegar ég ætlaði að geras.t
gluntasöngvari og lét hann
heyra nokkur stykki til frekara
öryggis. Stundum sást líka
bregða fyrir einkennilegu brosi
þegar hann las eða heyrði hæpin
tilbrigði kollega sinna í frétta-
flutningi, og engum leiddist
meira en honum þegar frétta-
stofunni varð það á að láta
frá séi- fara staðlausa stafi á
vondri íslenzku, því málsmekk-
ur hans var óbrigðull.
Á fréttastofunni hjá Jóni
Magnússyni var ég með annam
fótinn í rúma tvo áratugi, og
engum vinnustað hef ég kynnzt
þar sem ríkti betri andi, —
og sem betur fer eru menn og
,/konur á slíkum stað ekki allt-
af að hamra á vélar eða æpa
í simann, — inn af fréttastof-
unni er lítil kaffi-salon, þar
sem hitan er tekin á réttum
• tíma. og stundum skyndihitur
þess í milli, — og þar er iðu-
lega pípað hratt um heima og
geima, — þar hefur mörgum
þótt gaman að eiga orðastað við
Jón Magnússon og hans fólk,
og ekki var þar fréttastjórinn
dragbítur á konversasjónina.
Fínna kaffifélag' hefur aldrei
verið til. Það er hætt við að
eitthvað dragi nú úr virðingu
þess, en andi Jóns Magnússon-
ar á þó áreiðanlega eftir að
ríkja þar um skeið, og sælla
áhrifa hans vonandi að gæta í
fréttaflutningi útvarp'sins á
komandi árum. Að svo mæltu
þakka ég honum ailt og sendi
konu hans* börnum og frænd-
fólki samúðarkveðjur.
JMA. •
Það er ólýsanleg eftirsjá að
Jóni Magnússyni. Hann var
cinstakur maður ,og ógleyman-
iegur þeim, sem honumkynnt-
ust. Við sem áttum því lániað
íágna að starfa með honum óg
njóta, leiðsagnar hans og vin-
r.ttu, munum lengi búa að því.
ílann hafði fágæta hæfiBeika t.y.
að veita leiðsögn og fræðslu af
eftiríakanlegu raunsæi. Hann
var einstakur í frásögn og við-
ræðum; eins og ósjálfrátt hlaut
maður að hrífast með og verða
snortinn af anda hans og lífs-
skoðun. Hann tók virkan þátt
í áhugamálum okkar; var hlýr
og hjálpsamur og lagði það lil
máld, er bezt hann vissi. Hann
var dæmalaust skemmtilegur
maður,» gæddur mikilli kímni-
gáfu og hafði lifandi áhuga é
ölilu því, sem fram fór um-
hverfis hann. Við ábyrgðarmik-
iö starf sitt á fréttastofu rík-
isútvarpsins gegndi hann hlut-
verki hins grandvara ogskyldu-
rækna embættismanns. Hann
hafði miklar- mætur á bók-
menntum og listum og var eink-
ar annt um veg íslenzkrar
menningar og tungu; en áþessu
hafði hann ekki aðeins mætur
heldur og þekkingu. 1 skoðun-
um hans ríkti víðsýni og við-
móti og starfi fágaður stíll. Það
er ómetanleg gæfa að hafa
fengið að kynnast slíkum manni
sem Jóni Magnússyni. Við
söknum hans og minnumst i
þakklæti.
Jón Oddsson.
Jón Magnússon, fréttastjóri
Ríkisútvarpsins, átti sæti í
landsprófsnefnd miðskóla frá
stofnun nefndarinnar 1946 og
allt til andláts síns fyrir ald-
ur fram 2. janúar s.l.
Þessar fátæklegu línur eru
ritaðar til að þakka Jóni sam-
starfið. Þakka honum lipurð
hans og sveigj anleika, hnyttnar
tillögur og glöggar athuga-
'semdir, og ekki hvað sízt hina
launskörpu kímnigáfu, sem svo
oft yljaði okkur samstarfs-
mönnum hans um hjartgræt-
urnar.
Það vakti mikla athygli mína,
í stuttri, allt of stuttri sam-
vinnu, hve Jón var afskaplega
fljótur að átta sig á breyttum
viðhorfum og nýjum hugmynd-
um, svo og hve aðdáanlega
fljótur hann var að vinna, að
skila vandasömum verkum
gaumgæfilega unnum. Af fjöl-
mörgum mönnum, sem ég hef
átt samvinnu við, tel ég afar
fáa hafa búið yfir jafnsérstök-
um verkhæfileikum sem Jón
Magnússon. Skarðið eftir hann
látinn mun vandfyllt, hvar sem
verka hans hefur notið.
Fyrir hönd samstarfsmanna
Jóns Magnússonar í landsprófs-
nefnd votta ég eftirlifandj ást-
vinum hans djúpa samúð.
Andri ísaksson.
Jón Magnússon var fæddur
„1. janúar 1910 á Sveinsstöð-
um í Þingi, Austur-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans voru þau
Magnús Jónsson bóndi þar og
Jónsína Jónsdóttir kona hans.
Stúdent varð Jón frá Mennta-
skólanum á Akureyri vorið
1931, en síðan lagði hann stund
á nám í norrænum málum,
ensku og bókmenntasögu við
háskólann í Stokkhólmi og þar
lauk hann fil. kand. prófi árið
1937. Hann var að loknu há-
skólanámi starfsmaður Mennta-
málaráðs í Reykjavík frá árinu
1938 til 1041, er hann var ráð-
inn fréttastjóri Ríkisútvarpsins.
Því starfi gegndi hann til
dauðadags.
Auk starfs síns við frétta-
stofu útvarpsins fékkst Jón
Magnússon löngum mikið við
kennslu. Hann var stundakenn-
ari í ensku við Menntaskólann
í Reykjavík lengst af á árun-
um 1938-1955 og enskukennari
, Bréfaskóla SÍS og ASÍ var
hann frá stofnun. f landsprófs-
nefnd miðskéfe var Jón frá
stofnun hennar 1946 og próf-
dómari við BA-próf fí saéhskú
við Háskóla íslands um ára-
bil.
Jón Magnússon lét til sín
taka í félagsmálum, ekki hvað
sízt í samtökum íslenzkra
blaðamanna. Hann átti sæti í
stjórn Blaðamannafél. íslands
í allmörg ár, var fyrst kos-
inn í félagsstjórn 1942 og síðan
öðru hverju. Á námsárum sín-
um í Svíþjóð var hann um
skeið formaður Félags ís-
lenzkra stúdenta í Stokkhólmi.
Þá átti hann og sæti í stjóm
íslenzk-sænska félagsins.
Jón Magnússon var höfund-
ur íslenzk-sænskrar orðabókar,
ásamt Gunnari Leijström. Kom
bókin fyrst út í Stokkhólmi
1943, 2. útgáfa 1955. Þá tók
hann saman bókina Svíþjóð,
sem Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs gaf út í bókaflokknum
Lönd og lýðir 1950. Nokkrar
bækur þýddi hann, m.a. Böðul-
inn. eftir Pár Lagerkvist (á-
samt Sigurði. Þórarinssyni),
Sálkönnunina eftir Alf Ahlberg
og Gunnar Gunnarsson eftir
Stellan Arvidson. Kunnastur
verður Jón Magnússon samt
fyrir það margvísléga efni er
hann lagði útvarpinu til, ekki
aðeins i almennum fréttatím-
um, heldur og undir öðrum
dagskrárliðum, m.a. nú -síðustu
misserin í þáttunum Víðsjá.
Árið 1938 kvæntist Jón
Magnússon Ragnheiði Möller,
sem lifir mann sinn, ásamt
þrem sonum þeirra hjóna.
Frá HúsmæBrakennara-
skóla Islands Háuhlíð 9
6 vikna dagnámskeið hefst mánudaginn 15. jan.
Innritun í síma skólans 16145.
Skólastjóri.