Þjóðviljinn - 09.01.1968, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 9. janúar 1968.
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120,00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7,00.
Að velja og hafna
r
J Reykjavíkurbréfi sínu í fyrradag heldur Bjami
Benediktsson forsætisráðherra enn áfram að
fimbulfamba um menn sem hann telur harma það
að einangrun íslands hafi verið rofin, öfl sem
haldi að ekki sé unnt að tryggja íslenzka menningu
nema landið sé í sem minnstri snertingu við um-
heiminn. Þau öfl sem ráðherrann hefur á þennan
hátt vérið að deila við árum saman eru að sjálf-
sögðu ekki til, ef til vill að undanskildum fáeinum
sérvitringum sem ekki hafa nein áhrif. Því aðeins
heldur þessi þjóð velli að hún geti starfrækt sam-
félag sitt sem nútímaþjóðfélag og tekið þátt í
þeirri þróun sem er ævinlega að gerast umhverf-
is okkur.
j£n við verðum að taka: þátt í þessari þróun af fyr-
irhyggju og framsýni, gera okkur grein fyrir
vandamálunum og leysa þau, í stað þess að láta
berast imeð straumnum. Þess eru fjölmörg dæmi
að smáþjóðir, sem misst hafa þá vernd sem ein-
angrunin veitti áður, hafa á skömmum tíma runn-
ið inn í stærri heildir, glatað menningu sinni og
sjálfsstjórn. Slíkt gerist til að mynda ef smáþjóð-
ir hafa ekki dug til þess að taka af eigin rammleik
upp ýmsar áhrifaríkar nýjungar í menningu og
tækni heldur eftirláta þau verkefni öðrum. Sú
varð um skeið raunin hér á landi, þegar hernáms-
liðið var látið háfa einokun á hinu áhrifamikla
fjökniðlunartæki, sjónvarpinu, og þúsundir heim-
ila höfðu breytzt í bandarískar menningarnýlend-
ur. Þeirri ógæfu var hrundið, en ekki fyrir til-
verknað Bjarna Benediktssonar.
'rl
sama hátt verðum við að gera okkur grein fyr-
ir því að ekkert ríki heldur sjálfstæði sínu til
frambúðar nema það starfræki sjálft alla megin-
þætti atvinnumála sinna og efnahagsmála. Á því
sviði hefur undirstaða íslenzks fullveldis nú verið
þrengd til mikilla muna með því að eftirláta er-
lendum aðilum að koma hér upp fyrirtækjum sem
munu gnæfa yfir atvinnurekstur landsmanna
sjálfra. Sú ráðabreytni er rökstudd með því að
flestar grannþjóðir okkar heimila nokkurn erlend-
an atvinnurekstur í löndum sínum, án þess að
tekið sé tillit til þess að þar er um að ræða þjóð-
ir sem eru tífalt eða hundraðfalt stærri en við. Hitt
er staðreynd að í víðri veröld fyrirfinnst ekki
nokkur sjálfstæð þjóð sem heimilað hefur jafn
umfangsmikla erlenda fjárfestingu og leyfð hef-
ur verið hér á landi; hliðstæður verða aðeins
fundnar í nýlendum og hálfnýlendum. Á þessu
sviði bíður íslendinga vafalaust langvinn og erf-
ið barátta, miklu örlagaríkari átök en þau sem
tengd eru dátasjónvarpinu.
Jjátttaka í þróun umheimsins verður að vera fólg-
in í því að velja og hafna í stað þess að láta ber-
ast með straumnum. Mælikvarðinn verður ævin-
lega að vera sá ásetningur okkar að tryggja full-
valda þjóðríki á íslandi með því að hafa sjálfir
stjórn á öllum meginþáttum í efnahagslífi okkar
og menningu. — m.
iHandknattleikur:
Fram átti slakan leik gegn pólska
liðinu Spojnia og tapaði mel
□ Pólsku meistaramir í handknattleik — Spojnía —
léku fyxsta leik sinn hér á landi á laugardaginn var,
og voru íslandsmeistarar Fram mótherjamir að þessu
sinni. Allur fyrri hálfleikur var heldur dauflega leikinn,
og hafa Framarar ekki átt svo lélegan hálfleik á móti
erlendu liði í fjölda ára. Gestirnir sýndu ekki neitt sér-
stakt, en það dugði þó til þess að þeir gátu leikið sér að
Fram allan fyrri hálfleikinn. Um miðjan síðari hálfieik
tóku Framarar sæmilegan endasprett, og tókst að breyta
stöðunni úr 9:18 í 16:20, eins og lokastaðan varð.
Leikurinn hafði varla staðið
í eina mínútu begar fyrsta
markið var skorað, og var það
Ingólfur, sem það skoraði fyr-
ir Fram, og eftir tvær mínút-
ur stóðu leikar 2:0 fyrir Fram,
og var Ingólfur þar einnig að
verki. Þótti nú séð að Fram
mundi ekki verða í neinum
vandræðum með þessa gesti
Haukanna. En margt fer öðru-
vísi en ætlað er, og eftir fimm
mínútur höfðu Pólverjarnir
jafnað 2:2, og á 7. mínútu taka
þeir svo forustuna. Fram til
þessa höfðu verið heldur lítil
tilþrif verið sýnd, leikurinnvar
hægur og vantaði allan hraða,
og tilbreytni í leikSðferðir. Pól-
verjamir halda áfram aöskora
og eftir 10 mín. standa leikar
4:2, en litlu síðar skorarGylfi
Jóhannsson gott mark eftir
uppstökk við punktalínu.
Um miðjan hálfleikinn standa
leikar 7:3 fyrir Spojnia, ogenn
heldur deyfðin áfram að rfkja
f lciknum, og þó sérstaklega i
liði Fram, sem annað hvort
átti sérlega slæman dag eða
bá þeir vora of kærulausir um
gang leiksins. Á 18. mínútu
bætif Gunnlaugur einu marlii
við, og á næstu 5 mínútum
skora Pólverjarnir 4 mörk, en
Fram ekkert, og standa leikar
10:4.
I lok hálfleiksins taka Fram-
arar svolítinn endasprett, og
skora nú 3 mörk í röð, og
skorar Guðjón tvö þeirra, ann-
að úr vítakasti. Og Sigurður
Einarsson það þriðja af línu.
Rétt fyrir leikslok bæta svo
gestirnir einu.: við og endaði
hálffleikurinn 12:7 fyrir Spojn,-
Framarar vöknuðu of seint
Strax á fyrstu mín. síðari
hálfleiks fá Framarar vítakast,
og er það Guðjón sem það tek-
ur, en bregzt bogalistin, mark-
maður ver auðveldan bolta.
Þetta var vissulega sálrænt á-
fall fyrir Fram, en Guðjón er
greinilega ákveðinn f því að
bæta fyrir og skorar á 3. mín.
leiksins 8:12, en Pólverjar bæta
við rétt á eftir 8:13, og enn
skorar Guðjón 9:13. Ennþá vant-
ar kraftinn og leikgleðina f
- — ---------------------------—<£
SKIPAU fGtltf) ItlhlSINS
M/S HERÐUBREIÐ
fer austur um land í hringferð
15. þ.m. Vörumóttaka á mifi-
vikudag og fimmtudag til Homa-
fjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvík-
ur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Mjóafjarð-
ar, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar, Kópaskers, Ólafs-
fjarðar, Blönduóss, Hólmavíkur,
Norðurfjarðar, Ingólfsfjarðar og
Bolungavíkur.
M/S ESJA
fer vestur um land í hringferð
18. þ.m. Vörumóttaka daglega
til 16. þ.m. til Vestfjarðahafna,
Siglufjarðar, Akureyrar, Húsa-
víkur og Raufarhafnar.
Framliðið og hraðann, og það
sjást engin merki þess að þeir
ætli að taka fram þann leik,
sem. vitað er að þeir eiga. Þetta
notfæra gestimir sér mjög lag-
lega, án þess að sýna verulega
góðan handknattleik. Eftir að
Pólverjarnir höfðu skorað 2
mörk í viðbót var Gunnlaugi
Hjálmarssyni vísað af leikvelli,
og mátti liðið ekki við því, það
var þó hann sem reyndi að
eggja liðið til athafna, endafór
það svo að á meðan hann var
úti skoruðu gestirnir 3 mörk
og stóðu leikar þá 18:9, og var
hálfleikurinn þá um það bil
hálfnaður.
Þá loks er það sem Fram-
arar vakna og skilja að nú er
ekki um annað að gera en
duga eða drepast. Það óhapp
henti og Frámliðið að Ingólfur
varð rétt um þetta leyti að
yfírgefa völlinn vegna smá-
meiösla. En þegar Framarar
voru loks búnir að1 átta sig,
skipti það ekki svo miklu tnáli
þó svo góður maður sem Ing-
ólfur er væri fyrir utan. Þeir
tóku að skora og skoruðu 6
mörk í röð. Guðjón byrjaðimeð
þvi að skora úr víti, siðar Gylfi
Jóhannsson, Gunnlaugur, Gyflfi
Jóhannsson aftur, og þá Guð-
jón. Enn er dæmt vítakast á
Pólverja og ætlar Guðjón að
lyfta knettinum yfir markmann
sem stóð framarlega, en hann
er snöggur og nær honum áð-
ur en hann er kominn inn 1
markið. Guðjón bætir svo svo-
lítið fyrir þetta með þvi að !
skora 15. mark Fram, en þá í
voru 4-5 mínútur eftir af leikn- j
um. Tveim Pólverjum hafði j
verið vísað af leikvelli en
Fram tókst ekki að notfæra
sér það að vera einum fleiri og
skoruðu ekki á meðan.
Pólverjar skora nú 2 mörk í
röð, en Gylfi Hjálmarsson
skorar síðasta mark leiksinsúr
vítakasti, og þannig laukþess-
um íeik með 20:16 \fyrirSpojn-
ia. Voru Pólverjar vel aðþeim
sigri komnir, þeir höfðu algjöra
yfirhönd í 45 mínútur leiksins.
Gestimir Iéku snotran hand-
knattleik.
Þetta pólska handknattleiks-
lið lék snotran handknattleik.
Liðið féll nokkuð vel sáman, og
var nokkuð sterkt í vörn, og
kunni vel á því lagið að not-
færa sér veilurnar í liði Fram.
Það virtist ekki ráða yfirnein-
um sérstökum athyglisverðum
leikfléttum, þótt aðeinsbrygði
fyrir skemmtilegum leikbrögð-
um.
Beztu menn Pólverjanna
voru Andrzej, Z. Aleksander,
B. Janusz, L. Andrezej og
markmaðurinn Andryezei, sem
varði oft skemmtilega.
Fram Iék langt undir getu.
Það var aðeins síðustu 15
mínúturnar sem Fram lék nokk-
urnveginn eins og vænta má
að þeir geti gert, en allan hinn
tímann voru þeir miður sín.
Kom þar til lítilB hraði, óná-
kvæmni í sendingum, lftill sig-
urvilji, sem nálgaðist kæruleysi.
Að vísu má segja að þeirvoru
oft óheppnir með skot sfn, áttu
t.d. mörg stangarskot. I liðið
vantaði Sigurberg, og hefur
það munað nokkru, en loka-
Ungu handknattleiksunnendurnir í hópi áhorfenda fögnuðu áJkaf-
lega, þegar íslcnzku leikmcnnirnir skoruðu mörkin. Mynd: A. K.
spretturinn sem þeir tókukem-
ur þó upp um þá að þeir,
Ingólfslausir gátu þó jafnað
noktouð hlut sinn, þegar þeir
vöknuðu loks af „blundinum“,
að getan var fyrir hendi, ef
hún hefði verið framkölluð.
Skást slluppu Guðión, þráttfyr-
ír 2 misþeppnuð vítaköst, Gunn-
laugur, og enda Guðmundur
markmaður í síðari hálfleik,
eftir að hann áttaði sig, og
varði þá oft veh
Dómari var Björn Kristjáns-
son og hafði ekki alveg ffullu
tré við verkefnið, en slapp þó
þolanlega, enda rólegur leikur
og stórátakalaus. — Frímann.
■ ■ ■' " ----------------------
Alliance Francaise
Frönskunámskeiðin hefjast bróðlega. — Kennt í
mörgum flokkum.
Innritun og upplýsingar í Bókaverzlun Snæbjam-
ar Jónssonar Sz Co., Hafnarstræti 9, símar 119 36
og 1 31 33.
Væntanlegir nemendur komi til viðtals í háskól-
ann (3. kennslustofu á 2. hæð) föstudaginn 12.
janúar kl. 6,15.
Alliance Francaise.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavík og ýmissa lög-
manna verða neðangreindar bifreiðar og vélknúin öku-
tæki seld á nauðungaruppboði, til lúkningar lögtaks- og
fjárnámskröfum, mánudaginn 15. janúar n.k. kl. 10 ár-
degis að Síðumúla 20 (Vöku h.f.).
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
R 22, R 123, R 1609, R 3557, R 4047, R 4162, R 4180.
R 4919, R 5370, R 5371, R 6345, R 6619, R 6688, R 6918.
R 7090, R 7424. R 7620, R 9007, R 10200, R 10362..
R 10823, R 10924, R 11281, R 11393, R 11554, R 11605.
R 11860, R 13243, R 13279, R 13410, R 13468. R 14523.
R 14933, R 15278, R 15524, R 15575, R 15610, R 15736,
R 16951, R 16383, R 16490, R 17026, R 17089, R 17315,
R 17928, R 17955, R 18174, R 18278, R 18395, R 19016.
R 19318, R 19363, R 19428, R 19451, R 19643, R 19914.
R 20044, R 20295, R 20372, R 20380. R 20425, R 20409.
R 20521, R 20602, R 20728, R 22125, R 22136,, G 2789,
G 2869, L 944, Volkswagen Pick-up bifreið, árg. 1963.
jarðýta Intemational D.T. 9, árg. 1957.
Borgfarfógetaembættið í Reykjavík.