Þjóðviljinn - 09.01.1968, Page 5
1
I
Þilðjudagur 9. janúar 1968 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA g
Handknattleikur:
FH og Spojnia skildu jöfn, 17 -17,
í skemmtilegum leik á sunnudaginn
□ Það leyndi sér ekki, að leikmenn Spojnia áttu, meira
til en þeir sýndu móti Fram á laugardaginn, er þeir
léku við FH á sunnudaginn var. Allur leikurinn var
fjörlega léikinn, jafn og skemmtilegur, og ekki mátti á
milli sjá. Gestirnir höfðu þó oftast ,yfirtökin í mörkum,
eitt eða tvö. Það var þvj' oft skemmtileg „spenna“ í hús-
inu, og fengu gestimir oft klapp fyrir góð tilþrif, og sér-
staklaga heppnaðist þeim ein leikbrella sem þéir fram-
kvæmdu skemmtilega, en svo settu FH-ingar undir þann
„leka“.
Þegar á fyrstu mínútu leiks-
ins skorar Birgir fyrirliði FH
fyrsta markið, mjög laglega
gert og var það skemmtilegt
fyrir Birgi að byrja þannig
300. leik sinn, eftir að hafa
verið sæmdur lárviðarsvéig og
fylgdi með fagur bikar frá F.H..
fyrir leikbyrjun. Þegar á ann-
ari mínútu jafna Pólverjar og
taka forustu litlu 5íða,r. Áður
en fjórar mínútur eru liðnar
jafna FH-ingar og var það
Ámi sem skorar eftir mjög
góða sendingu frá Geir inná
línu. Spojnia tekur aftur for,-
ustu og kemst í 4:2, þegar sjö
minútur eru liðnar. Það er all-
mikill hraði í leiknum og mik-
ill baráttuvilji af beggja hálfu,
og oft skemmtileg tilþrif.
Mínútu síðar er dæmt víta-
kast á Pólverjana og skorar
Geir. Spbjnia-menn bæta tveim
mörkum við, en þeir bræður
örn og Geir bæta enn tveim
mörkum við, og-FH jafnar eft-
ir vítakast . frá Páli, 6:6, á 20-
mínútu. Litlu síðar er Pólverja
visað af leikvelli, en FH-menn
virðast ekki geta notað sér
liðsmuninn, en gestimir jafna
á 24. mínútu og komast enn
tvö mörk yfir, 8:6. Foringinn
Birgir tekur þá til sinna ráða,
og skorar tvö mörk í röð og
9:8 og örstutt til leiksloka, en
það fór þó þannig að Pólverj-
ar tryggðu sér forustuna fyrir
leikhlé með tveggja marka
mun 10:8.
Fyrstu mínúturnar í síðari
hálfleik er sótt og varizt af
miklu kappi og mátti vart á
miUi sjá, en ekki tekst að
skora. Á 4. mínútu er dæmt
vítakast á gestina, og skorar
Páll örugglega. Enn bæta Pól-
verjar 2 mörkum við, en Páll
heggur í það forskot með góðu
marki á 8. mínútu. Litlu síðar
setja Pólverjar , inná mjög
snjallan leikmann, Sylvester að
nafni, sem þeir notuðu ekki
mikið í hvorugum leiknupi, en
hann er landsliðsmaður og er
vafalaust „leynivopn“ liðsins,
og skoraði hann fljótlega er
hann kom inná, 13:10. Þrjú
mörk yfir og liðnar 11 mínút-
ur af, síðari hálfleik svt> að
líkurnar fyrir sigri FH verða
minni og minni og aðeins einu
sinni, í byrjun leiks, höfðu þeir
yfir í leiknum.
Litlu síðar tekst Erni að bæta
einu marki við, en Pólverjar
svara með því að skora tvö
mörk, 15:11. Birgir skorar 12.
mark FH og litlu síðar er
Auðunni vísað af leikvelli, svo
aðv þetta virðist næsta vonlítið
að fá jafnað eða sigrað.
Eftir miðjan hálfleikinn taka
FH-menn góðan sprett, og
skora fjögur mörk í röð. Auð-
unn, Páll, Geir og svo Páll
aftur úr víti. Kristófer hafði
verið lengst af í markinu til
þessa og staðið sig með ágæt-
um, en þá um miðjan hálfleik-
inn kemur ungur maður í
markið, Birgir Finnbogason, og
varði í þetta sinn ennþá betur
en Kristófer, og stappaði það
stáli í FH-menn og komust þeir
í 16:16. Fagnaðarlæti hinna
2000 áhorfenda eru ákafleg.
Hinn snjalli markmaður Pól-
verjanna — Andryzej — var
lítið með í síðari hálfleik, en
þegar komið var út í þessa
sókn FH-inga fór hann í mark-
ið. Enn komast Pólverjar yfir
eða í 17:16 og um 5 mínútur
til leiksloka. Á , 27. mínútu
skorar Geir og jafnar 17:17.
Spurningin er aðeins sú hvor-
um tekst að skora sigurmarkið,
en það er hart varizt, og menn
svolítið gætnir í sókninni, að
missa ekki knöttinn.
Rétt fyrir leikslok fær FH
tækifærið að sigra, þegar dæmt
er vítakast á Pólverja. Skaut
Geir Hallsteinsson á markið en
hinn örfljóti markmaður ver
skotið, og þannig lauk þessum
jafna og skemmtilega leik, með
jafntejli, 17:17.'
Páll Eiríksson er kominn f skotstöðu — og skorar.
Pólski markvörðurinn fær ekki varið; FHH jafnar rétt fyrir leikslok 17:17.
I
Spojnia mun betri en daginn
áðuT.
Pólska liðið sýndi nú mun
betri leik en fyrri daginn móti
Fram, bæði liðið í heild og eins
hver einstakur maður. Þó er
það fyrst bg fremst markmað-
ur liðsins sem bj.argaði því frá
tapi. Hraði þess var mun meiri
og sigurvilji liðsins meiri, það
var eins og þessi harða mót-
staða verkaði þægilega og ör\’-
andi á leik þeirra. Grip þeirra
eru góð og hraði mikill og
þeir eru mun fljótari að stáð-
setja sig eftir tapað áhlaup
mótherjanna, og sáu Hafnfirð-
ingar ekki við . þeim, nema
hvað Kristófer var oft kominn
skemmtilega fram til að grípa
inn /í þessar sóknaraðgerðir1
gestanna.
Liðið er mjög jafnt, hvergi
veila í því; allir liðsmenn
greinilega vel þjálfaðir.
Beztu skyttur þeirra í þess-
um íeik voru: L. Andrezsej
með 4 mörk, Stefán Stanislav
og Silvester með þrjú hver.
FH átti góðan leik.
FH-ingar sýndu enn einu
sinni að þeir eru í toppi hand-
knattleiksins hér, þegar þeim
tekst upp, og það má segja að
þeim hafi tekizt að ná langt í
þessum leik. Þó vantaði menn
í liðið sem oftast eru þar, en
eru nú ekki heilir, eins Og
Jón Gestur, Kristján Stefáns-
son, og svo Einar sem ekki
var með. Þó hefur maður það
á tilfinningunni að þeir valdi
ekki eins hinum hröðu áhlaup-
um, sem þeir áttu til stundum
hér áður, og má vera- að
stærra hús eigi þar sök, en
með tilliti til mótherjanna í
dag, eru þeir mun fljótari að
átta sig á þessum snöggu á-
hlaupum og nota sér það. —
Leikni FH-inganna er. ekkert
slakari en gestanna, en maður
hefur það einnig á tilfinning-
unni að þeir séu ekki í eins
góðri þjálfun og mótherjarnir
voru í dag. Vömin var á köfl-
um opin og fengu Pólverjarnir
af þeim sökum heldur ódýr
mörk, en þama er leki sem
þetta annars ágæta FH-lið þarf
að þétta.
Beztu menn FH-liðsins voru
Geir, Birgir, öm og Páll- Báðir
markmennirnir voru og ágætir.
eins og fyrr segir.
..................
Birgir Björnsson heiðraður,
lék 300. ieik sinn á sunnud.
Áður en leikur FH og Spojma
1 hófst fór fram snotur og
skemmtileg athöfn. Þegarleik-
menn höfðu raðað sér upp, kom
lítil stúlka- með fagran lár-
viðarkrans í fanginu inná sal-
argólfið. Var hún klædd bún-
ingi PH, og í fylgd með henni
var formaður FH, og hafði
hann með sér bikar, kjörgrip
mikinn. Gengu þau beint til
fyrirliða FH-liðsins og setti
unga stúlkan kransinn um
herðar Birgis, og Einar Mathie-
sen, fonmaður FH, afhenti hon-
um bikarinn. Áhorfendur fögn-
uðu ákaflega, og ætlaði lófa-
takinu aldrei að linna. Þegar
gestimir frá Póllandi urðu
þessa varir gengu þeir hver
eftir dhnan og þrýstu hönd
Birgis og óskuðu honum t.il
hamingju..
Eftir leikinn kvaddi mennta-
málaráðherra Gylfi Þ. Gíslason
sér hljóðs og ávarpaði Birgi
með nokkrum orðum, og bað
að því loknu óihorfendur að
hylla Birgi með ferföldu húrra-.
hrópi, sem sannarlega var gert.
Þetta var sannarlega verðug
viðurkenning ,sem Birgir hlaut
þarna, ekki aðeins fyrir það að
hann var að byrja sinn 300.
leik, hann átti það ekki síður
skilið fyrir störf sín utan leiks-
ins, sem fomstumaður, þjálfari,
og alltaf sama eldsálin um
handknattleiksmál. HafTjfirðing-
ar hafa átt marga góðá hand-
knattleiksmenn, en ég held að
það sé ekki of sagt og ekki
hallað á neinn þótt sagt sé
að í engum þeirra hefur sam-
einazt gins ágætur leikmaður á
leikvelli, og velviljaður og á-
hugasamur forustumaður í
handknattleiksmálum FH. Mér
er heldur ekki grunlaust um,
að Birgir hafi verið ' innsti
kjarninn , sem myndaðist í
Hafnarfirði á sínum tíma þeg-
ar þróttmiklir piltar tóku
handknattleikinn þar uppá sína
arma* uppúr 1950, og tókst síð-
ar að ná svo langt sem raun
ber vitni, og alþjóð veit, og
voru þá margir þeirra sem
vissu hvað þeir vildu.
Þessir viljasterku og áhuga-
sömu menn úr Hafnarfirði, eiga
ef til vill meiri þátt í því, á-
samt þjálfana sínum Hallsteini
hvað handknattleikur á Islandi
er kominn langt á alþjóðamæli-
kvarða, en flest annað, þótt
margir hafi veí unnið að mál-
um handknattleiksins.
Þess er rétt að minnast ein-
mitt nú þegar Birgi Björns-
syni er veitt verðug viðurkenn-
ing fyrir sitt mikla og góða
starf fyrir handknattleikinn og
er þó saga hans langt frá því
öll sögð, því i dag erjar hann
af sínum alkunna áhuga stór
verkefni, bæði innanfélags og
utan. Til hamingju Birgir, og
þökk fyrir marga skemmtun í
leik, og öll störfin utan vallar.
Frimann.
Birgir Björnsson, fyrirliði FH,
inn. — (Ljósm.
með lárviðarsveiginn og bikar-
Þjóðv. A. K.).
..................................
Dórnari var Karl Jóhannsson
og dæmdi vel og af röggsemi,
eins og hans er vandi.
Þessir gestir Knattspyrnufé-
lagsins Hauka í Hafnarfirði
fara nú norður á Akureyri og
leika þar við gestgjafana, svo
og lið frá Akureyri, og er þetta
í fyrsta sinn sem erlendur
handknattleiksflokkur keppir á
Akureyri. Það var ætlun
Hauka ,gð fá þriðja leikinn hér
í Reykjavík til þess að reyna
að tryggja fjárhagsafkomu
heimsóknarinnar t>g virðist sem
það hafi ekki verið að ófyrir-
synju, aðsókn var ekki það
mikil að leikjunum. En sam-
herjar þeirra í Reykjavík, þ.e.
Handknattleiksráð Reykjavfkur
lagðist á móti þessari mála-
leitan þeirra, eins og þeim var
frekast unnt. og munu hafa
beygt stjóm Iþróttabandalags
Reykjavikur til að fallast á
sitt mál, sem þó mun hafa
verið málinu velviljuð. Munu
HKRR-menn hafa borið fyrir
sig að flýta þyrfti Islandsmót-
inu, að þessi leikur myndl
spilla fyrir aðsókn að heimsókn
félags í Reykjavík í marz, sem
þó mun ekki með vissu vitað
hvort af verður. Þetta geta
varla kallazt sterk rök fyrir
neitun þessari, og ekki verður
það kallaður góður skilningur
eða gott samstarf við samherj-
ana i næsta byggðarlagi. Virð-
ist hér vera um að ræða mjög
mikla þröngsýni og skort á
velvilja í garð náungans, sem
er að vinna að sörrfu málefn-
um. Það má segja að stjóm
Iþróttabandalags Reykjavíkur
sé nokkur vorkunn að fara
ekki í beint berhögg við skoð-
anir eins af undirsetum sínum,
en handknattleiknum er vor-
kunn að hafa ekki víðsýnni og
samvinnuþýðari menn í for-
ustu í stærsta og öflugsta hér-
aðssambandinu í landinu.
Frímann.
ÖNNUMST ALLfl
HJÓLBflROflNÖNIiSTU,
FLJÓTT OG VEL,
MEÐ NÝTIZKU T/EKJUM
W" NÆG
BÍLASTÆÐI
OPID ALLA
DAGA FRÁ
kl. 7.30-24.00
KJ0LBARÐAVIÐ6ERD KÓPAVOGS
v Kársnesbraut 1
Sími 40093
i