Þjóðviljinn - 09.01.1968, Síða 10
10 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjadagur 9. janúar 1968.
setti svörta töskuna á það, og
dró sig í Mé. McKell tók upp
úr töskunni, meðal annars smá-
epegil á fæti, og setti innihaldið
á borðið.
— Herra McKell, sagði Bob
ÓBrien eins og hann væri að
panta samloku með osti, — gerið
svo vel að breyta yður í Stone
lækni.
Og Ashton McKell, svo sem
hundraðfaldur miljónamæring-
ur og ráðgjafi förseta með
meiru, hófst handa við dulbún-
ing sinn í ásýnd dómarans, kvið-
dómsins, saksóknarans, verjanda,
réttarþjóna, fréttamanna og á-
heyrenda.
Þegar auðjöfurinn var orðinn
að Storne lækni,' sneri hann sér
frá speglinum og' leit á lögfræð-
ing sinn. Fyrst varð djúp þögn
sem síðan var rofin af klið.
Dómarinn barði í borðið og aft-
ur varð þögn.
ÓBrien: — Og þannig lituð
þér út þegar þér voruð Stone
læknir?
— Já, að undanskildum ljós-
brúnu fötumim og göngustafn-
um. ,
— Ég held að við getum gert
Okkur það' í hugarlund. Gott og
vel, herra McKell. Yðar náð, nú
myndi ég vilja gera'hlé á fram-
burði herra McKells meðan ég
kalla til tvö vitni. Ef rétturinn
og saksóknarinn h&fa ekkert við
það að athuga.
önnur ráðstefna, McKell var
sagt að víkja úr stúkunni og 0‘
Brien sagði: — Sækið John Les-
líe-
Leslie var nauðrakaður og í
TRÉSMIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
th \
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og 6nyrtistols
Steinu og Dódó
Laagav. 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðsiu- og snyrtistoía
Garðsenda 21. SIMI 33-968
ELLERY QUEEN:
fjórða
hliðin
á
sömu fötunum og hann hafði
verið í þegar hann fagnaði
Elísabetu drottningu og Filippusi
af gangstéttinni. Hann vann eið-
inn og skýrði frá því að hann
væri dyravörður i Park Avenne
610 1/2 og hefði verið það síðan
húsinu var breytt í íbúðarhús
fyrir nokkrar fjölskyldur. Hann
hefði því þekkt herra Ashton
McKell í rúman aldarfjórðung.
— Sjáið þér herra McKell hér
í salnum?
Leslie leit í kringum sig. Hann
var ringlaður á svipinn. — Nei,
herra minn, það geri ég ekki.
— Jæja, en þekkið þér Stone
lækni? spurði 0‘Bsien.
— Stone lækni? Eigið þér við
lækninn sem kom oft til ungfrú
Grey? Það held ég.
— Sjáið þér Stone lækni hér
í réttarsalnum?
Leslie horfði i kringum sig. —
Já. herra minn.
— Gerið svo vel að benda á
hann ....... þökk fyrir, herra
Leslie. Meira er þáð ekki.
De Angelus saksóknari: —
Herra Leslie, munið þér eftir
kvöldinu þegar ungfrú Leslle
var myrt?
— Já, herra minn.
— Korri þessi maður sem þér
segið að sé Stone læknir í áður-
nefnda byggingu við Park Aven-
ue það kvöld?
— Já, herra minn.
— Klukkan hvað var það?
— Það var síðla kvölds. Um
tíuleytið.
— Getið þér ekki ákveðið
tímann nánar?
— Nei, herra minn, ég hafði
enga ástæðu til þess.
— Urðuð þér varir við ,að hann
færi aftur úr byggingunni?
— Já, herra minn, skömmu
seinna. Eftir nokfcrar mínútur.
Ég veitti því ekki mikla athygli.
— Hálftíma seinna?
—i Það getar verið.
— Þér sögðuð nokkrar mín-
útur.
— Ég veit það einfaldlega ekki
herra minn.
— Meira er það ekki.
0‘Brien endurspurði ekki.
— Ég boða Ramon Alvarez.
John gamli fór út með yggli-
brún yfir þéssum undarlegheit-
um, bg Ramon tók við af hon-
um- Hann bar það, að hann hefði
verið í þjónustu Ashtons Mc-
Kells sem bílstjóri undanfarin
fimm ár; að síðan um vorið —
í april minnti hann — hafði
hann samkvæmt ósk vinnuveit-
ánda síns, ekið honum í Bent-
leybílnum um fjögurleytið á
hverjum miðvikudegi að aðal-
dyrum Metropolitan Krikket-
klúbbsins. Síðan hefði hann,
Ramon, skjlið bílinn eftir í bíla-
geymslunni bakvið klúbbinn.
— Hvað gérðuð þér þá?
— Ég fékk fyrirmæli um að
hitta herra McKell við klúbbinn
seinna um kvöldið með Bent-
leybílinn.
I
— Sagði herra McKell yður
nokkum tíma hvert hann fór
þessi miðvikudagskvöld?
— Nei, herra minn.
— Og þetta gekk svona til á
hverjum miðvikudegi síðan í
aprfl?
— Með örfáum undantekning-
um, þegar herra McKell var í
Suðurameríku eða Evrópu í við-
skiptaerindum.
0‘ Brien sneri sér við. —
Herra McKell, gerið svo vel að
standa upp. Þökk fyrir. Herra
Alvarez, sáuð þér herra McKell
nokkurn tíma þannig útbúinn?
— Nei, herra minn.
— Þér eruð vissir um það?
— Já, alveg viss.
— Lék yður aldrei forvitni á
að vita hvar herra McKell var
á miðvifcudagskvöldum? hélt O*
Brien áfram. — Án þess að þér
væruð til að áka honum?
Ramon yppti öxlum. — Ég er
bílstjóri, herra minn. Ég geri
það sem mér er sagt.
— Og þér sáuð hann aldrei í
dulargervinu.......?
— Yðar náð, sagði saksóknar-
inn. — Herra 0‘Brien er að þrá-
spyrja sitt eigið vitni.
0‘Brien baðaði út höndunum,
De Angelus gerði slíkt hið sama
bg síðan var Ramon sleppt.
23
— Ég kalla Ashton McKell aft-
ur í vitnastúkuna. Þegar Ash-
ton kom aftur og hafði verið
áminntur um, að hann væri enn
eiðsvarinn, ságði O'Brien: —
Herra McKell, ég ætla að spyrja
yður óþægilegrar spumingar.
Hver var tilgangur yðar með því
að dulbúast á hverjum miðviku-
degi sem Stone læknir sem ekki
var til — og ganga svo langt að
leynja jafnvel dulargervinu fyrir
bílstjóranum yðar?
— Ég vildi ekki að fjölskylda
mín né neinn annar vissi um
heimsóknir mínar til ungfrú
Grey. Það fór kliöur um réttar-
salinn. — Að þessu leyti, bætti
McKell við bitur í bragði, —
virðist mér hafa mistekizt með
hvelli.
Þetta var óheppileg athuga-
semd. Einhver í réttarsalnum
fór að filma og að minnsta kosti
einn fréttamaður fór út til að
hringja í blaðið sitt „sérfræði-
legt álit“, mismælið hefði ef
til vill verið sálrænt viðbragð,
sem sannaði sekt hins ákærða-
En 0‘Brien yggldi sig lítillega;
hann kærði sig ekki um óþarfa
upplýsingar í vitnastúkunni, sízt
frá skjólstæðingum sínum. Sak-
sóknarinn létti af honum áhyggj-
unum, því að hann hafði ekki
áttað sig á orðaleiknum og var
argur yfir því að hinn ákærði
skyldi sitja á aðskiljanlegum
stöðum í réttarsalnum, útbíaður
eins og á leiksýningu. Hann
hafði orð á þessu og dró ekki
— Hinn ákærði verður í dular-
gervinu smástand enn, yðar náð,
sagði 0‘Brien, — og til þess eins
að annað vitni geti borið hver
hann er.
Suarez dómari gaf til kynna
samþykki sitt og 0‘Brien hélt
áfram: — Ég bið yður að segja
okkur frá þvi enn, herra Mc-
Kell, þegar þér komuð í fbúð
ungfrú Grey að kvöldi hins 14.
semtember og hvað gerðist eftir
það. Hann hlýddi á frásögn
Ashtons til enda. — Og þér
munið ekki nafnið á bamum?
Né hvar hann var?
— Nei, það geri ég ekki.
— Vitnið er yðar.
Þráspumingar De Angelusar
voru langvinnar, smámunasamar,
leikrænar og tilgangslausar.
Hann gat ekki haggað frásögn
hins ákærða, þótt hann reyndi
að koma inn efasemdum þar sem
hægt var. Eiginlega stimplaði
hann McKell sem hórkarl, heim-
ilisdjöful, gerspilltan auðkýfing,
svikara við lýðræðið og umfram
allt morðingja. Þetta var listi-
lega gert og Dane og Júdý
engdust í sætum sínum, en það
vottaði ekki fyrir iðrun eða reiði
— né blygðun á sjeinrunnu
andliti McKells eldri; og Róbert
O'Brien hlustaði aðeins með
drengjalegt höfuðið eilitið á
skakk, jafnvel með vott af á-
nægju í svipnum.
Þegar saksóknarinn hafði feng-
ið útrás og settist niður, sagði
O'Brien kæruleysislega: — Kall-
ið Matthew Thomas Cleary í
vitnastúkuna.
Þrekvaxinn maður með hrokk-
ið, grátt hár, vann eiðinn. Hann
var með brotið nef og kringlótt
blá augu sem virtust segja: Við
höfum séð allt og ekkert skiptir
máli. Raddhreimur hans var
hressilegur og röddin nbtalega
hás.
Hann var Matthew Thomas
Cleary, hluthafi og stöku sinn-
um barþjónn í Kerry bar og
matstofu f 59. götu rétt undan
Fyrstu Avenue. Hann hafði
aldrei komizt í kast við lögin,
hamingjunni sé lof fyrir það.
— Jæja, herra Cleary, sagði
O'Brien rólega og gekk yfir til
„Stones læknis“ og kom við öxl
hans. — Hafið þér nokkum tíma
séð þennan mann fyrr?
— Já, herra minn. 1 bamum
mínum eitt kvöldið.
0‘Brien gekk aftur að vitna-
stúkunni, — Þér eruð viss um
það, herra Cleary? Yður skjátl-
ast ekki?
— Örugglega ekki.
Lögregluþjónn fylgdi kven-
manni í sæti aftas í réttarsaln-
um- Andlit hennar var gráfölt
undir blæjunni. Það var Lutetia,
sem loks hafði komið út úr virfci
sínu.
— Herra • Cleary, þér hljótið
að sjá þúsundir andlita yfir bar-
borðið yðar. Hvers vegna munið
þér eftir andlitinu á þessum
manni?
— Það liggur þannig í því,
skal ég segja yður. Hann var
með þetta skegg. Það var nú
það fyrsta. Það er ekki nerna
einn af þúsundi með skegg af
þeim sem koma inn á Kerry
barinn. Og þess vegna tók ég
eftir honum. Og f öðru lagi: á
hillunni bakvið barinn er ég með
stóra krukku með miða á:
„Böm Lorettos". Það er þetta
■munaðarleysingjahæli á Staten
Island. Ég set í hana smáaurana
Anvill - gallabuxur
Amerísk úrvalsvara. — Fæst aðeins
hjá okkur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
BRANDf§ A-1 sósa: Með kföti,
með fiski9 meö hverju sem er
SKOTTA
— Væri þér sama þótt þú talaðir í svo sem fimm mínútur um
fótboflta, ég er orðin svo þreytt á þessu bílatali...
Hafnarfjörður
Þjóðviljaim vantar umboðsmann í Hafn-
arfirði nú þegar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjórinn í
síma 17500.
ÞJÓÐVILJINN
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÓNUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavopi — Sími 40145.
Lótið stilla bílinn
Önnumst hjóla-, ijósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
BlLASKOÐUN OG STELLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun: bromsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Sími 30135.
BifreiBaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar sjálfir. Við
sköpum aðstöðuna. Þvoum og bónum ef óskað er
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24