Þjóðviljinn - 18.01.1968, Qupperneq 1
DMINN
Fimmtudagur 18. janúar 1968 — 33. árgangur — 14. töluhlað
í gœr hafði
221 verið
skróður
atvinnulaus
í gær létu 4i karlmaður
og 2 konur skrá sig at-
vinnulaus hjá Ráðningár-
stofu Reykjavíkurborgar í
Hafnarbúðum. Er þá tala
atvinnuleysingja skráðra
hjá Ráðningarstofunni
komin upp í 221 — 198
karlmenn og 23 konur.
32 verkamenn létu skrá
sig atvinnulausa í gærdag
hjá stofnuninni. Eru þá at-
vinnulausir verkamenn
orðnir 138. Ennfremur létu
skrá sig í gær 1 sjómaður,
2 matreiðslumenn, 2 vél-
stjórar, 1 múrari, 1 hús-
gagnasmiður, 1 verzlunar-
maður og 1 stýrimaður.
En aðeins 2 verkakonur.
Þá eru 16 sjómenn at-
vinnulausir, 6 verzlunar-
menn, 5 matreiðslumenn,
6 trésmiðir, 2 málarar, 9
múrarar, 1 prentari, 1
prentmyndasmiður, 3 vél-
virkjar, 1 iðnverkamaður,
1 pípulagningamaður, 2 raf-
virkjar, 2 fólksbílstjórar, 1
sjúkraþjálfari, 2 vélstjór-
ar, 1 húsgagnasmiður, 1
stýrimaður. Þá hafa 18
verkakonur, 1 verzlunar-
kona, 2 iðnverkakonur, 1
matreiðslukona og 1 ráðs-
kona látið skrá sig.
Ekki er haegt að vinna
bug á atvinnuleysi öðru
vísi en draga það fram sem
staðreynd og ætti fólk að
hafa það ríkt í huga.
Atvinnuleysi er nlí
hjá allstórum hóp
af iðnverkakonum
— segir Ingimundur Erlendsson, varaform. Iðju
□ Fólk sem hefur unnið í verksmiðjuiðnaðin-
um hér í Reykjavík býr núna við atvinnuleysi,
sagði Ingimundur Erlendsson, varaformaður Iðju,
félags verksmiðjufólks, í viðtali við Þjóðviljann
í gærdag.
Utvarpsþáttur felldur niður
vegna umræðu um málaferli bæði fyrir vestan og austan?
Hér er um allstóran hóp að
ræða. Eru það einkum iðn-
verkakonur, en félagsmeðlimir í
Iðju eru um 70% konur. Margar
af þessum konum eru giftar og
hafa þessvegna kynokað sér við
að láta skrá sig atvinnulausar,
sagði Ingimundur.
Þetta er mikill misskilningur
hjá þessum konum og er engin
ástæða til þess fyrir iðnverka-
konur, sem eru fullgildir félags-
meðlimir í Iðju að nýta ekki
þessar bætur úr atvinnuleysis-
tryggingunum eins og þrengt
hefur nú að efnahag reykvískra
alþýðuheimila, þar sem f-yrir-
vinnan er oft aðeins á dagvinnu-
tekjum einum og búast má við
hækkandi verðlagi ennþá á
brýnustu nauðsynjum almenn-
ings.
Nú um alllangt skeið hafa og
verið skýr samdráttareinkenni
hjá öðrum iðnfyrirtækjum í
borginni. Þar hefur ekkj verið
um svo mikla aukningu atvinnu-
leysis að ræða. Farið hefur ver-
ið út á þá braut að stytta vinnu-
tímann hjá hverjum einstökum
og er það misjafnt eftir fyrir-
tækjum.
Við rekum okkur oft á þekk-
ingarskort hjá einstökum félags-
meðlimum um réttindi þeirra og
bætur úr allskonar sjóðum,
sagði Ingimundur, — ætti iðn-
verkafólk að huga betur að bót-
um úr tryggingarkerfinu á tím-
um versnandi efnahagsástands
hjá fólki.
Nú eru aðeins tvær iðnverba-
konur skráðar atvinnulausar hjá
Ráðningarstofu Reykjavíkur-
borgar, þó að vitað sé um all-
stóran hóp af atvinnulausum
iðnverkakonum, sagðj Ingimund-
ur að lokum.
Magnús Torfi Ólafsson hefur
í vetur annazt hálfsmánaðar-
lega þætti í útvarpinu sem
nefndir voru Fljótt á litið. Þar
var rætt um ýmisleg málefni
sem ofarlega voru á baugi
með tónlistarívafi. iNú hefur
útvarpsráð tekið þá ákvörðun
að fella niður þessa vinsælu
þætti — meS því að flytja
þætti Áma Gunnarssonar,
Daglegt lif, fram á þann tíma
sem Magnús hafði áður.
Emgin skýring hefur verið
gefin á þessari ráðstöfun. En
beinast liggur við að leita
hennar í síðasta þætti Magn-
úsar á laugardaginn var. Þar
fjallaði Magnús um málaferli
í tveim helztu stórveldum
heims, Bandaríkjunum og Sov-
étrfkjunum, gegn þeim sem
hafa virka andstöðu gegn
stefnu stjórnarvalda í við-
kvæmustu málum í hvoru
landi fyrir sig; stefhu sovézkra
vald’hafa gagnvart ritfrelsi og
bandarískra í Vietnam og kyn-
þátcamálum. »
Magnús ræddi um málaferli
og harða dóma yfir Ginsiburg
og félögum hans í Moskvu,
sem hafa verið fordæmd af
mörgum ágætum mönnum,
ekki sizt rithöfundum, hér á
landi, svo og af öllum ísllenzk-
um dagblöðum. Hann minntist
og í því sambandi á merka
Magnús Torfi Ólafsson
bók eftir konu sem lengi sat
í fangabúðum Stalíns, Evgeníu
Ginsburg. En Magnús gat
einnig um dóma og réttarhöld,
sem ekki hefur verið gefinn
jafnmikill gaumur í blöðum,
a.m.k. ekki hérlendis. Um
dóma yfir hinni þekktu þjóð-
lagasöngkonu Joan Baez fyrir
þáttöku hennar í mótmælaað-
gerðum gegn Vietnamstríðinu
og yfir blökkumannaskáldinu
LeRoi Jones fyrir ólöglegan
vopnaburð og þó ekki sizt fyr-
ir kvæði sem voru talin hvetja
til kynþáttaóeirða. Ennfremur
gat Magnús um málaferli sem
standa fyrir dyrum yfir hfeims-
frægum uppeldisfræðingi, dr.
Benjamin Spock, og félögum
hans, sem eru ákærðir fyrir
að hvetja ungmenni til að
neita að berjast í Vietnam;
vofir yfir þeim allt að fimm
ára fangelsi.
1 þessu sambandi fórust
Magnúsi Torfa Ólafssyni orð
á þá leið, að mlklar vonir
væru við það bundnar, að
nógu margir menn í risastór-
veldunum tveim hefðu hug-
rekki til að mótmæla gerræði
valdamanna í þýðingarmiklum
málum. Rás viðburða leiðir
síðan tiil þeirrar spumingar
hvort heiðruðu útvarpsráði
finnist þetta óleyfileg kenn-
ing? Eða hvort ef til vill megi
aðeins tala um málaferli í
Sovétríkjunum en ekki í
Bandaríkjunum?
Þessi spuming er og nær-
tæk vegna þess hve mjög hef-
ur að undanfömu hallað á ó-
gæfuhlið í fréttaflutningi og
fréttaskýringum ríkisútvarps-
ins. Helzt dæma er fréttaflutn-
ingur sjónvarps frá Vietnam,
sem tekur eirahliða mið af
bandarískum sjónarmiðum —
svo ekki sé minnzt á ham-
farir aðstandenda þáttarins
Efst á baugi á því merkilega
sviði sem nefnist hlutleysi út-
varpsins.
Borgarstjórnarfundur í dag kl. 5 sd.:
Rafmagnshækkanirnar til
afgreiðslu í borgarstjórn
□ Á fundi borgarstjómar Reykjavíkur í dag kl. 5 síð-
degis kemur m.a. til annarrar umræðu og afgreiðslu til-
laga meirihluta borgarráðs um hækkun á gjaldskrá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur svo og tillaga Guðmundar Vig-
fússonar og Kristjáns Benediktssonar um frestun á hækk-
un rafmagnsverðs og varatillaga þeirra um að rafmagn til
heimilisnota skuli ekki 'hækka.
Me^al mála sem liggja fyrir
fundinum er eftirfarandi fyrir-
spurn frá borgarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins:
„Hvað miðar störfum nefnd-
ar þeirrar, er borgarráð kaus
23. maí 1967 „til að kanna af-
komu og rekstur Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur í samráði
við útgerðarráð og forstjóra
BÚR og gera tillögur til
borgarráðs og borgarstjómar
um rekstur útgerðarinnar" —
og hvenær má vænta tillagna
hennar?“
Þá kemur til umræðu á fund-
inum eftirfarandi tillaga frá
Sigurjóni Björnssyni borgarfull-
trúa Alþýðubandalagsins:
„Borgarstjórn Reykjavíkur
telur nauðsynlegt að vinna að
því, að þegar á næsta sumri
verði skipulögð sumarstarf-
semi fyrir böm á aldrinum 8-
12 ára, sem dveljast í borg-
inni yfir * sumarið, borgar-
stjórnin kýs 3ja manna nefnd,
er undirbúi málið og leggi
fram tillögur eigi síðar en 1.
marz n.k.“
Þá liggur og fyrir fundinum
tillaga frá Úlfari Þórðarsyni um
það að borgarstjórn feli borgar-
ráði að athuga hvort borgarsjóð-
ur eigi að kaupa sérstaka trygg-
in,gu fyrir nemendur á skyldu-
námsstiginu vegna slysa, sem
þeir kunni að verða _ fyrir í
skólatímum og leiði til varan-
legrar örorku.
Per Olof Sundmun hlaut bók-
menntaverðl. Norðurlandaráðs
Finninn Kokkonen hlaut tóilskáldaverðlaunin
KAUPMANNAHÖFN 17/1 — Sænski
rithöfundurinn Per Olof Sundman
hlaut bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir skáldsögu sína „Loft-
siglingar Andrésar verkfræðings“ sem
að mati dómnefndar „sameinar innri
og ytri spennu og sérkennilega skáld-
lega meðferð staðreynda". Finninn
Joonas Kokkonen hlaut tónlistarverð-
laun ráðsins fyrir þriðju sinfóníu sína.
Per Olof Sundman
Ákvörðuirin var tekin á fundi
verðlaunanefnda í Kaupmanna-
höfn í dag og verða þau aflhent
við hátíðlega athöfn í Osló 17.
febrúar í sambandi við fund
Norðurlandaráðs.
Skáldsaga Sundmans byggir á
sögulegum viðburðum: tilraun
Svíans Andrées og tveggja rnanna
annarra tffl að fljúga í loftbelg
yfir Norðurpólinn. Tilraunin
mjstókst og spurðist ekki til
mannanna fyrr en'árið 1930, 33
■iöíiá-iM
áhim eftir að þeir hurfu — fund-
ust þá lík þeirra og dagbókar-
slitnur sem segir frá helgöngu
þeirra félaga á norðurhjarni.
Af þessum efnivið er Sund-
man sagður hafa gert mjög
sterka bók. Hann sýni þekktum
staðreyndum mikla trúmennsku,
haldi sjálfum sér í skefjum,
freistist ekki til ytri hetjuljóma,
tilfinningaskrúðs eða táknbygg-
ingar, láti rás viðburða, ná-
kvæma veruleikatúlkun um að
i
I
!
Verður hætt við toHalækkanirnar?
Fjármálaráðherra ætlar að athuga hve mikið fari í styrki og uppbætur
□ Við umræður um nýtt stjórnarfrumvarp um toH-
heimtu og tolleftirlit spurði Þórarinn Þórarinsson fjár-
málaráðherra hvort ekki væri brátt væntanlegt stjórn-
arfrumvarp um lækkun tolla sem boðað var sem afleið-
ing gengisfellingarinnar.
□ Fjármálaráðherra Magnús Jónsson svaraði því til
að dregizt hefði að leggja slíkt stjórnarfrumvarp fram
vegna þess að vitað væri um stórfelld útgjöld úr rík-
issjóði í sambandii við greiðslur til bátaútvegsins og hrað-
frystihúsanna. Teldi ríkisstjórnin óvarlegt að afsala
miklum tekjum meðan ekki væri séð hve miklu þessi
aðstoð við sjávarútveginn og hraðfrystihúsin næmi.
□ Frumvarpið sem fjármálaráðherra var að mæla
fyrir er mikill lagiabálkur í 80 lagagreinum um toll-
heimtu og tolleftirlit, og er byggt á frumvarpi nefndar
sem skipuð var 1962 og endurskoðun þess á sl. ári.
r 4
\
l
segja harmsögu heimskautafar-
anna þriggja.
Bókin hefur hlotið mjög góða
dóma í heimalandi höfundar.
Ritdómari Svenska Dagblládet
kallar bókina mikið skáldverk
og mannlegt afrek, maður sé
dapur yfir því að henni sé lok-
ið og spyr hvort bók verði bet-
ur hrósað. Stig Ahlgren segir m.
a.: Töfrandi skáldsaga. Skjalfest
Jules-Veme-ævintýri sem lýsir
ágætlega tíðarandanum. Sund-
man lætur heillast af hinu leynd-
ardómsfullla, hörmulegum örlög-
um, ævintýrinu sem mótmælum
og gátu“.
Per Olof Sundman hlaut í dag
Framhald á 9. síðu.
Enn leitað
Enn er leitað • mannanna
þriggja, Guðmundar Óskars Fri-
mannssonar, Kristjáns Bemódus-
sonar og Bjama Kristinssonar.
Fyrirhugað var að leita í gær-
kvöld í sumarbústöðum fyrir
innan Reykjavík. Er það gert
vegna þess að á föstudag sást til
ferða Bjama. Fór hann með
strætisvagni kl. 11.50 a.m.k. upp
að Rofabee, en endastöð vagnsins
var Geitháls.