Þjóðviljinn - 18.02.1968, Page 12

Þjóðviljinn - 18.02.1968, Page 12
Norðmenn hlutu sitt sjötta gull í gær Norskur sigur í 50 km. göngu sænskur í 10 km. skautahl&upi Eílesæter vann gönguna, Johnny Höglin hlaupið GRENOBLE 17/2 — Norðmaðurinn Ole Ellefsæter sigr- aði í 50 km göngu en Vedenín frá Sovétrík'junum kom mjög á óvart með því að ná í annað sæti. Keppni í 10 km hlaupi var ekki lokið er blaðið fór í prentun, en Johny Höglin, Svíþjóð, hafði þá beztan tíma og hafði skotið skæðustu keppinautum sínum, Maierog Guttormsen, Noregi, og Verk- erk, Hollandi, aftur fyrir sig. Norðmenn ætluðu sér mikinn hlut í 50 km göngunni. Að henni bálfnaðri var Ellefsæter í fyrsta sæti og Reidar Hjermstadt í 3.; að 40 km loknum var Ellefsæter fyrstur og Pál Tyldum í öðru sæti. En það var aðeins Ellefsæt- er sem hafði þrek til að halda forystunni, hinir tveir urðu að slá af og höfnuðu í fjórða og áttunda sæti. Vedenín frá Sov- étríkjunum tók einhvern glæsi- legasta endasprett sem um get- ur — vann sig upp úr áttunda sæti eftir 25 km í annað sæti. Enn furðulegra þykir að Josef Haas frá Sviss náði í þriðju verðlaun, en menn höfðu ekki Svipmynd úr leiknum „Sláturhúsið Hraðar hendur“. Nýtt leikrit frum- sýnt í Borgarnesi Nýtt frumsamið leikrit, „Slát- urhúsið Hraðar hendur“, verður frumsýnt í Borgarnesi n.k. þriðjudagskvöld. Er sýningin á vegum Ungmennafélagsins Skallagríms og Lionsklúbbs Borgamess, en höfundur leikrits- ins og leikstjóri er Hilmir Jó- hannesson mjólkurfræðingur. Leikrit Hilmis, „Sláturhúsið Hraðar hendur“ er „látustuleik- ur í tveim þáttum og getur gerzt hvar sem er og allsstaðar þar sem slátrun fer fram með ný- Síðara misseri starfsársins: Tvennir Bach-tónleikar og Sálumessa Verdis á dagskrá Starfsár Sinfóníuhljómsveitar íslands er nú rúmlega hálfnað og voru fyrstu tónleikar síðara miss- eris í síðustu viku. Voru á fyrra misseri alls níu áskriftartónleik- ar, oftast fyrir troðfullu húsi, og á þeim tónleikum sem eftir eru í vetur verður margt góðra tón- verka. Aðalstjórnandi hljómsveitar- innar verður áfram Bofidan Wod- isczko og fær í lið með sér ýmsa fræga einleikara, svo sem píanó- leikarana André Tsjaíkovský og John Ogdon. íslenzki cellóleikar- inn Hafliði Hallgrímsson kemur í fyrsta skipti fram með hljóm- sveitinni á tónleikum 18. apríl. Ronly-Riklis frá ísrael mun stjórna tónleikum 7. marz og sov- ézki fiðlusnillingurinn Mikhail Vaiman mun leika fiðlukonsert eftir Prokofféff. * Hbm frægi Baeh-stjómandí Kurt Thomas stjórnar einum tón_ leikum í maí, en á öðmm tón- leikum munu áheyrendur fá að heyra þau Guðrúnu Kristinsdótt- ur, Jórunni Viðar, Gísla Magnús- son og Rögnvald Sigurjónsson flytja konserta eftir Bach nr. 1, 2, 3 og 4 fyrir píanó og hljómsv. 4. apríl n.k. munu Söngsveitin Fílharmonía og Sinfóníuhljóm- sv- taka höndum saman, ásamt einsöngvurunum Ruth L. Magn- ússon, Svölu Nielsen, Magnúsi Jónssyni og Jóni Sigurbjörnssyni og stjórnandanum dr. Róbert A. Ottóssyni, í flutningi Sálumessu Verdis. tizku- aðferðum“. í leiknum er mikið af gamansöngvum í létt- um stíl við þekkt og vinsæl lög og hefur frú Oddný Þorkels- dóttir annazt æfingu á söng og undirleik. Sviðið er kaffistofa í slátur- húsinu, þar sem verið er að byrja að vinna eftir nýja kerf- inu, alls tíu: Balli, fulltrúi dýra- læknisins, leikinn af Hilmari Jó- hannessyni, slátrararnir Alli, Kalli og Steini,’ leiknir af Eyvindi Ásmundssyni, Halldóri Sigur- björnssyni og Geir Björnssyni, ráðskonu leikur Freyja Bjarna- dóttir, Jónu gengilbeinu Þórhild- ur Loftsdóttir, Sigmund bónda Þórður Magnússon, Val Scheving rakara og fréttaritara Jón Kr. Guðmundsson, sláturhússtjórann Jón Þ. Björnsson og Gest Er- lendsson, aðkomumann í atvinnu- leit, Friðjón Sveinbjörnsson. Flestir þessara leikara voru með- al þeirra sem þátt tóku í sýn- ingu ungmennafélagsins á Del- eríum Bubonis undir stjórn Jón- asar Árnasonar í fyrra, sem hlaut frábærar viðtökur. Höifundur Jeikrit'sins, Hilmir Jóhannesson mjólkurf-ræðingur, er fæddur Húsvíkingur, en flutt- ist til Borgarness fyrir nokkrum árum. Hann hefur tekið mikinn þátt í félagslífi í þorpinu og fengizt talsvert við að semja og flytja gamanefní í bundnu máli við góðan orðstír, en þetta er fyrsta tilraun hans við samn- ingu leikrits. — S. G. búizt við honum í fyrstu sætun- um. Talið er að menn hafi aldrei gengið þessa vegalengd jafn hratt og í þetta sinn. Sigurveg- arinn, sem færði Noregi sjöttu gullverðlaunin er 29 ára gam- all, skógfræðingur frá Heið- mörk. Úrslit: 1. Ole EHefsæter, Nor- egi, 2 klst. 28 mín 45,8 sek. 2. Vjatséslav Vedenín, Sovétr., 2.29.02,5, 3. Josef Haas, Sviss, 2.29.14,8, 4. P&l Tyldum, Noregi, 2:29.26,7, 5. Melcher Risberg, Svíþjóð, 2:29.37,0, 6. Gunnar Larsson, Svíþjóð, 2:29.37,2, Von Norðmanna, Fred Anton Maier, hljóp í fyrsta pari 10 km og setti nýtt ólympíumet. í þriðja pari hljóp Hollendingurinn sterki, Kces Verkerk, sem talinn var skæðasti keppinautur hans og varð fljótlega Ijóst að hann fengi ekki ráðið við hraða Mai- ers — kom hann í mark með tíu sekúndum lakari tíma. Þótt- ust Norðmenn nú vissir um gull- ið, en þá fór Johny Höglin, sem hefur verið í mikilli framför að undanförnu af stað á miklum hraða, sem honum tókst að halda til enda og koma á 3/10 úr sek. betri tíma en Maier í mark — og tryggja Svíum þriðju gull- verðlaun sin í þessum leikjum. Tími Höglins er að sjálfsögðu nýtt ólympíumet — hið fyrra átti Knud Johannessen, Noregi (15 mín 46,6 sek.). Úrslit: 1. Johny Höglin, Sví- þjóð, 15.23,6, 2. Fred Anton Mai- er, Noregi, 15.23,9. 3. Norðmað- ur, 15.31,8, 4. Per Willy Gutt- ormsen, Noregi, 15.32,6, 5. Kees Verkerk 15.33,9. (hlaupinu var ekki alveg lok- ið þegar bláðið fór í prentun, en þeir sigurstranglegustu höfðu þá allir hlaupið). Wolfgang Schwartz, Austur- ríki, varð hlutskarpastur í list- skautahlaupi karla. Annar varð Timothy Wood Bandaríkjunum, Patrick Pera, Frakklandi, þriðji, og Emmerich Danzer, Austur- ríki fjórði, en hann hafði forystu eftir bundnu æfingarnar. í keppninni á fjórmenntum bobsleðum sigraði fyrsta - sveit Ítalíu, fyrsta sveit Austurríkis varð önnur, Svisslendingar þriðju og Rúmenar fjórðu. Karl Schrantz sigraði í svigi Um það bil sem blaðið var að fara í prentun bárust fregn- ir af úrslitum í svigkeppninni. Þar sigraði Austurríkismaður- inn Karl Schrantz en Frakkinn Jean-Claude varð í öðru sæti og Herbert Huber. Austurríki varð í þriðja sæti. Sunnudagur 18. febrúar 1968 — 33. árgangur — 41. tölublað. ídag hefst úrslitakeppnin á Skákþingi Reykjavíkur 1968 1 fyrrakvöld var tefld síðasta umferð í meistaraflokki á skák- þingi Reykjavíkur. Úrslit í A- riðli urðu þaiu að Guðmundur Sigurjónsson vann Jón Þorvalds- son, Gunnar Gunnarsson vann Stíg Herlufsen, Benóný Bene- diktsson vann Björgvin Víglunds- son, jafntefli gerðu Jón Páls- son og Andrés Fjeisted, Stígur Herlufsen og Hermann Ragnars- son. Úrslit í riðlinum urðu því þessi: 1. Guðmundur 9%, 2. Gunnar 8l/n, 3.-4. Björgvin og Benóný 6, 5. Jón Pálsson 5, 6. Andrés 4%, 7-8. Sigurður og Jón Þorvaldsson 4, 9. Stígur 3Vi, 10. 11. Hermann og Bragi Halldórs- son 2. í B-riðli urðu þessi úrslit: Björn Þorsteinsson vann Jóhann Þóri, . Júlíus Friðjónsson vann Sigurð Kristjánsson, Frank Herl- ufsen vann Gylfa Magnússbn, Leifur Jóstéinsson vann Hauk Kristjánsson (Haukur hætti í mótinu eftir 5 umferðir og reikn- ast öllum vinningur gegn hon- um en hann tapaði þeim 5 skák- um sem hann tefldi), jafntefli gerðu Jón Kristinsson og Bjami Magnússon, Bragi Kristjánsson sat hjá. Úrslit í riðlinum urðu því þessi: 1. Björn 8, 2.-3. Bragi og Jón 7, 4. Leifur 6%, 5. Bjarni 6, 6.-9. Júlíus, Jóhann Þ., Gylfi og Frank 41/,, 10. Sigurður 2% 11. Haukur 0. Úrslitakeppnin hefst f dag og tefla þessir saman í fyrstu um- ferð og hs'fa þeir fyrrtöldu hvítt: Bragi Kristjánsson Dg Björgvin Víglundsson, Leifur Jósteinsson og ' Björn Þorsteinsson, Gunnar Gunnarsson og Benóný Bene- diktsson, Jón Kristinsson og Guðmundur Sigurjónsson. Tvennir barnatónleikar Á næstunni mun Sinfóníu- hljómsveit íslands halda tvenna tónleika fyrir börn á skólaaldri, tvisvar hvora. Fram að þessu hefur hljóm- sveitin ekki haldið neina bama- tónleika á þessu starfsári, en sú nýbreytni var tekin upp að senda tæpan helming hljóm- sveitarinnar í sex bamaskóla. Heimsótti hún Melaskóla, Laug- amesskóla, Laugalækjarskóla, Vogaskóla, Breiðagerðisskóla og Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Lék hún fyrir börnin innan ramma kennslustundar. Þorkell Sigur- bjömsson stjórnaði og kynnti hljómsveitina og tónverkin. ★ f framhaldi af þessum heim- sóknum mun hljómsveitin efna til skólatónleika í Háskólabíói. Er gert ráð fyrir, að bömin kaupi áskrift á tvenna tónleika í einu. Fyrri tónleikarnir eru eftir hádegi mánudaginn 26. febrúar, en fyrir hádegi þann 27., en síðari tónleikamir verða haldnir ,í marz, eftir hádegi mið- vikudaginn 27,, en fyrir hádegi þann 28. marz. Tónleikar þess- ir verða augiýstór nánar síðar. Búnaðarþing hefst Á morgun, mánudag, kl. 10 f.h. verður Búnaðarþing sett í Bændahöllinni og er þetta í fimmtugasta sinn, sem það er haldið. Kynning á Nifíungahringnum eftir R. Wagner i útvarpinu 1 dag hefst viðamikil tónlistar- og bókmenntakynning í hljóð- varpinu. Fluttur verður hinn tröllaukni „Niflungahringur" eft- ir Richard Wagner, en svo sem kunnugt er, eru það f jögur stór- virki: Rínargullið, Valkyrjurnar, Siegfried og Ragnarök. Kynningin hefst með því, að Vilhjálmur Þ. Gíslason flytur er- indi um Völsungasögu, en það- an eru ræturnar, sem Niflunga- hringur" Wagners óx af. Árni Kristjánsson, tónlistar- stjóri, mun kynna verkin eitt af öðru í dag, sunnudag 18 febr., og þrjá næstu sunnudaga. f kynn- ingunni verður m.a. fjallað um hið margslungna táknmál, sem Wagner beitti í smíði þessara verka, en táknmálið er lykillinn að skilningi á „Niflungahringn- um“. Árni mun einnig flytja efindi um Bayeruth og segja frá eig- in reynslu af Wagner-hátíðinni þar. Útvarpað verður hljóðritun- um frá hátíðinni s.l. sumar, en þar koma fram fremstu Wagner- túlkendur okkar tíma. ' Umreikna tollpappíra Framhald af 1. síðu. og þarf nú að umreikna þetta. Er nokkuð um að heildsalair hafi látið bíða að leysa út úr tolli vörutegundir úr flokkum sem þeir áttu von á að lækkuðu, þó ekki nærri eins mikið og búizt var við, að sögn Ara Jó- hannessonar yfirmanns Tollpóst- stofunnar. Lækkanirnar koma að- eins á vissar vörutegundir og virðast margir ýmist ekki hafa pantað þær meðan beðið var eftir lögunum eða ekki lagt inn pappírana fyrir þeim. Staðreynd er allavega að sumair þessara vörutegunda hafa verið ófánleg- ar í verzlunum að undanfömu. Á skrifstofu tollstjóra varunn- ið við endurútreikning í gær og fyrradag með öðru, en i toll- póstinum var unnin eftirvinna í gær og taldi Ari að hægt yrði að afgreiða þessar vörur strax ÚTSALA Á KVENSKÓM Mónudagur - þriðjudagur - miðvikudagur Aðeins þessir 3 dagar eftir Verðið stórlækkar á útsölunni 10% AFSUÁTTUR af öllum skófatnaði í verzluninni MUNIÐ: Aðeins 3 dagar eftir" SKÓVAL, Austursfrœti 18 (Ey mundssonark j allara) c

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.