Þjóðviljinn - 03.04.1968, Qupperneq 5
Miðtvi'kudagur 3. aprSL X968 — 'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA
J6n Rúnar Árnason, signrvegrari í flokki 14 ára og eldri.
Frá íþróttalífi
í Neskaupstað
Neskaupstað, — Frá fréttarit-
ara Þjóðviljans. — fþróttafé-
lagið Þióttnr í Neskaupstað
llefur starfað af nokkrum
krafti í vetur, þótt aðstæður
hafi verið misjafnar til íþrótta-
iðkana. Eínkum er lifandi áhugi
á skiðaíþrótt meðal pilta og
handknattleik hjá stúlkum, en
óvenjumikiLsvelIalög á þorran-
um vöktu einnig hrifningu á
skautaíþrótt hjá ungum sem
gömlum.
Aðstaða til íþróttaiðkana er
annars hér sem víðast annars-
staðar á landinu háð duttlung-
um veðurfarsins, en i byggingu
er veglegt íþróttahús, sem
margir mæna til vonaraugum.
Landsmót UMFÍ, sem haldið
verður að Eiðum um miðjan
júlí næsta sumar, mun eflaust
efla íþróttaáhuga meðal ung-
menna á Austurlandi, og þá
vonandi lengur en til einnar
úaetur. — Formaður Þróttar er
nú Sigurður G. Björnsson.
Skíðaskálinn raflýstur
Framan af vetri unnu fél-ag-
ar í Þrótti að því að safna fé
og reisa skýli yfir litla diesél-
rafstöð við skíðaskála félagsins
í Oddsdal. Var þeirri fram-
kvæmd lokið í janúar, og næg-
ir rafstöð þessi, sem hefur 20
kw. orku, til að lýsa skálann^
og umhverfið, og hugmyndin
er einnig að koma þar fýrir
togvindu. Beinn kostnaður við
framkvæmd þessa var um 80
þúsund krónur, en skýlið var
reist í sjálfboðavinnu. Sjálfur
skíðaskálinn var byggður á ár-
unum 1950-1952, og hefur á
þessum tíma komið í góðar
þarfir, þótt stundum hafi skort
á snjó til skíðaiðkana þar í ná-
grénninu.
Allmörg skíðamót
Mjög snjólétt var hér allt
fram um miðjan marz, en
svellalög hins vegar mikil fram
á þorra. Þrátt fyrir erfiðar
kringumstæður hafa nokkur
skíðamót þegar verið haldin, en
sérstakt skíðaráð innan Þrótt-
ar undir forustu Stefáns Þor-
leifssonar sér um framkvæmd
þeirra. Hér má nefna Þorra-
mót, sem haldið var viku af
febrúar. skíðamót Gagnfræða-
skólans hálfum mánuði seinna,
firmakeppni 10. marz og svo-
kallað Harðarmót. sem er ár-
Sigurður Birgisson og Sigurbergur Kristjánsson, keppendur í
flokki yngri en 14 ára, báðir efnilegir skiðamenn.
viss liður, 16. og 23. marz.
Þátttaka í mótum þessum hef-
ur yfirleitt verið góð hjá pilt-
um og keppt í tveimur eða
þremur aldursflokkum. Flestir
áhugasömustu piltamir eru
undir tvítugs aldri, en aldurs-
mörkin niður á við liggja við
tveggja til þriggja ára aldur,
þótt ekki taki þeir garpar þátt
í keppni.
Nafntogaðasti skíðagarpur
bæjarins er Jón Rúnar Árna-
son, 16 vetra og nemandi í 4.
bekk Gagnfræðaskólans í Nes-
kaupstað. Hefur hann meiri
léttleika og fimi í svigi en aðr-
ir hér um slóðir, og hyggst fé-
lagið tefla honum fram á ís-
landsmótinu á Ólafsfirði inn-
an skamms, og kannski íleirum.
Margir fleiri hafa náð góðum
áran-gri í svigi, og má til nefna
Ómar Björgólfsson, Veigar Ól-
afsson, Rúnar Jóhannsson, Þor-
leif Ólafsson, Jón Ævar Har-
Rikharður Haraldsson, Sigurður Guðjónsson og Vilhjálmur Árna-
son, ungir skíðagarpar í Neskaupstað.
aldsson og Sigurð Sveinbjörns-
son, en úr hópi yngissveina
undir 14 ára aldri skara eink-
um fram úr þeir Ámi Guð-
jónsson, Sigurbergur Kristj-
ánsson, . Sigurður Birgisson og
Þorleifur Stefánsson. Hefur
gengið á ýmsu í viðskiptum
þessara félaga í brautinni í vet-
ur.
Listrænt skautahlaup
Eftir áramót og langt fram
eftir þorra var jörð hér víðast
ísi lögð, svo að méð fádæmum
þótti. Stikuðu ungmenni eftir
götum og túnum á skautum, en^
flestra leiðir lágu á íþróttavöll
bæjarins, þar sem svell var
með ágsétum Um langt skeið,
ljóskastarar uppi og hljómlist
oft háværari en nágrönnum
þóttj gott á kyrrum kvöldum.
Var völlurinn eggsléttur um
tíma og þéttskipaður síðari
hluta dágs. Gerðust þar möfg
óskráð ævintýri, og nokkrir ó-
formlegir kappleikir voru á
svið settir.
Stúlkur hugsa um
knöttinn
Ungmeyjum staðarins er legið
á hálsi fyrir slælega þátttöku í
skíðahlaupi. Þetta bæta þær
upp með góðri þátttöku í hand-
knattleik, og hefur Þróttur á
síðustu árum átt meirihluta í
úrvalsliðum í handbolta stúlkna,
sem send hafa verið til
keppni frá Austurlandi. For-
maður handknattleiksdeildar
félagsins er Elma Guðmunds-
dóttir, en hún hefur um nokk-
urra ára skeið verið helzti afl-
vaki þessarar iþróttagreinar á
staðnum. Er það því að vonum,
að hún á nú sæti ekld aðeins
í stjórn Þróttar, heldur einnig
i stjóm UÍA og imdirbúnings-
nefnd landsmótsins á Eiðum.
Elma hafði þetta hélzt um
handboltaæfingar Þróttar-
stúlkna að segja:
Á sl. sumri fór fram for-
kepþni í handknaittleik stúlkna
um réttindi til að keppa á
landsihótinu á Eiðum. Stúlkur
frá UÍA tryggðu sér þá sæti
í úrslitakeppninni ásamt stall-
systrum úr Skagafirði og Kópa-
vogi. Tiltölulega flestar af
stúlkum UÍA-liðsins voru héðan
frá Neskaupstað.
Aðstaða okkar til æfinga
hefur löngum verið erfið að
vetri til og er svo enn. Undan-
fama vetur höfum við æft í
mjölskemmu Síldarvinnslunnar,
rúmgóðu húsnæði en óupphit-
uðu. og notið einkar góðs skiln-
ings og fyrirgreiðslu þeirra,
sem þar ráða húsum. Auðvit-
að höfum við þokað fyrir mjöl-
inu, strax og nauðsyn krafði.
Þama hófum við æfingar sl.
haust og þjálfaði okkur Sigurð-
ur Bjömsson, formaður- fé-
lagsins. Var áhugi mikill, eins
og oftast áður, og mætfu oft
um 30 stúlkur á æfingar. En
svo kom loðnanogfyllti skemm-
una af mjöli um miðjan febrú-
ar, og þá hlutum við auðvitað
að víkja. Eina aðstaðan innan-
húss er þá i leikfimisal barna-
skólans, og þar höfum við hitzt
undanfarið einu sinni í viku
til að halda vöðvunum aðeins
við. Aðstæður eru þaima lítt
fallnartil handknattleiksiðkana.
enda salurinn gamall og úr
sér genginn.
Nú höfum við ráðið þýálfara
Elma Guðjónsdóttir
— driffjöður í handknattleik í
Neskaupstað
fyrir knattleiki á vegum UÍA,
og er hann væntanlegur um 20.
mai í vor. Þá verður áreiðan-
lega æft af kappi og við mun-
um reyna að halda uppi merki
fjórðungsins eftir föngum.
Landsmótið þyrfti að verða
lyftistöng fyrir allt íþróttalif
á Austurlandi auk víðari til-
gangs, sem það þjónar. — H.G.
Aðalfundur Sparisjóðs alþýðu
vérður haldinn í Félagsheimili múrara og rafvirkja
að Freyjugötu 27, fimmtudaginn 18. apríl kl.
8.30 e.h.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
Heimann Guðmundsson form. stjórnar.
Frá Kópavogskaupstað
Bæjarhjúkrunarkona e1 ;til viðtals í síma
40566 frá og með fimmtudeginum 4. apríl
1968.
Sími Heimilishjálparinnar í Kópavogi verð-
ur á sama tíma 40566. — Beiðnum veitt mót-
taka eins og áður kl. 12-13 daglega.
Frá Kópavogskaupstað.
Tilkynning írá Vörumarkaíinum Grettisgötu 2
Höfum tekið upp nýjar sendingar af skófatnaði
Inniskór bama ; kr. 50.
Bamaskór kr. 50 og kr. 70.
Kvenskór kr. 70.
Kvenbomsur kr. 100.
Drengjaskór kr. 120.
Gúmmístígvél bama kr. 50.
Ýmsar aðrar tegundir af skófatnaði.
Hjá okkur fáið
þér mikið fyrir
litla peninga.
KOMIÐ
SKOÐIÐ
SANNFÆRIZT
Krepsokkar kr. 25.
Ungbamaföt kr. 50.
Bamasokkar lcr. 10.
Hárlakk kr. 40.
Eplahnífar kr. 20.
Ömmubökunarjám kr. 20.
Skólapennar kr. 25.
Bítlavesti, ný gerð kr. 150.
Nýjar vörur teknar fram daglega
Vörumarkaðurinn í húsi Ásbjörns Ólafssonar, Grettisgötu 2