Þjóðviljinn - 03.09.1968, Síða 3
Þriðjudagur 3. september 1968'— ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
Frá Tékkóslóvakíu:
Aðeins einn íhaldsmaður af 21 full-
trúa í nýkjðrnu forsæti miðstjórnar
PRAG 2/9 — Miðstjóm kommúnistaflokks Tékkóslóvak-
íu skýrði frá því á sunnudagskvöldið að hún hefði aukið
forsæti miðstjórnarinnar úr 11 í 21 fulltrúa. í hinu nýja
forsæti er ekki nema einn fulltrúi, Bilak, sem alræmdur
er fyrir íhaldssemi og hollustu við leiðtogana í Moskvu.
Dubcek aðalritari sagði í ræðu í gær, að nauðsyn væri
að vinna traust leiðtoganna í Moskvu og lét að því
liggja að hinir 600.000 hermenn í hernámsliðinu mundu
ekki hverfa úr lanöi í bráð, ef Tékkóslóvakar leituöust
ekki við aö fara að óskum sovézku forustunnar.
Jafnframt var skýrt frá því að
14. þing komanúnistaflakksins,
sem átti að hefjast hinn 9. þessa
mánaðar hefði verið frestað í
mánuð.
Það kom í ljós að Oldricn
Svestka hefur verið vikið ,úr
stöðu ritstjóra Rude Pravo, mál-
gagns flokksins og Jiri Setera
hefur verið skipaður nýr rit-
stjóri.
Vasil Bilak eini kunni íhalds-
maðurinn í hinu nýja forsæti var
í, fyrri viiku vikið úr forystu
slóvaska komimúnistaflokksins.
Fréttamenn efast um að hin
nýja skipan rmðstjómar muni
fulínsegja kröfum sovézku for-
ystunnar, en sögur segja að hún
hafi krafizt þess að þvrír ihalds-
menn a.m.k. yrðu kosnir í hið
nýja forsæti.
Sumir eru jafnveJ talddr óttast
að heinámsrfkin missi þolinmæð-
ina og Sovétríkin taki stjórn
landsins í sínar hendur.
Útvarpið í Prág skýrði frá þvi
að Dubcek hefði gert það ljóst
að hið eina sem komið gæti
hinum 600.000 hermönnum í her-
námsliðinu úr landi í bróð væri
að Tékkóslóvakar leituðust við
að fara eftir óskum leiðtoganna
í Moskvu.
Aðrar forsendur taldi hann
eindregna hollustu við Varsjár-
bandalagið. ritskoðun og niður-
kvaðningu hílutleysishugmyndar-
innar.
Dubcek sagði að leiðtogar
Tékkóslóvakíu hefðu ekki gert
sér fuilla grein fyrir hernaðar-
Gríðarlegt tjón
í jarðskjálft-
um í fran
TBHERAN 2/9 — Hinir tveir
miklu jarðsikjálftar sem urðu í
norðaus.turhluta Iran uim helg-
ina hafa samkvæmt óstaðfestum
fréttum orðið 20.000 manns að
bana.
Hinar opiniberu tölur enu 12.000
látnir og 50.000 særðir á land-
svæði þar sem níimilega 100 borg-
ir og sveitaþorp stóðu.
31 bæjamna eru ailgjörlega í
rústum. 100.000 manns hafa
mdsst heimili sín, og hefur tjold-
um verið komið upp fyrir þús-
undir manna. Vatnsleiðslur neð-
anjarðar eru ónýtar og hafa
tanfebalar fná hemum verið sett-
ir í vatnsflutninga.
Beiðnir um bllöð, mat, lyf og
læknishjálp halda áfram að
streyma til Teheran.
hagsmunum Vai'sjárbandalagsins.
Hann lét í ljós þá von að á-
standið gæti komizt í eðlilegt
horf sem allra fyrst þannig sð
hægt verði að flytja smám sam-
an hernámsliðið á braut og fram-
kvæma endurbótaáætlun floklcs-
inis.
Ludvik Svoboda forseti var
kosinn heiðursforseti hins nýja
forsætis og tveir fremstu stuðn-
ingsmenn Dubceks, Oldrich Cern-
ik forsætisráðherra og Josef
Smrkovsky forseti þjóðþinigsins
voru endurkjörnir í forsætið.
Fjórir fullitrúar í forsætinu
eins og það var fyrir innrósina
voi’u ekki end'Urkjörnir og eru
þrír þeirra íhaldsmenn og einn
kunnur fylgjandi Dubceiks, Frant-
isek Kriegel, en hann tók þátt
í Moskvuviðræðunum og var sá I
eini af TékkóS'lóvökunum sem
neitaði að skrifa undir saim-
komiulagið.
Blaðamenn
Blaðamenn í Tékikóslóvakiu
skýrðu frá því í dág, að þeir
muni aðeins fallast á ritskoðun i
laildinu í þrjá mánuði. Blaða-
tóannafélágið lýsti því , yfir að
öll *daigblöð í Prag yrðu talin ö-
lögileg þar til sovézka hemáms-
liðið hefði farið úr byggingum
viðkcmandi blaða og öll frétta-
þ.iónusta væri aftur komin í eðli-
legt horf.
Þá var skýrt fra því að tveir
starfsmenn fréttastofuinnar Cet-
eka heifðu verið í'eknir úr félag-
inu fyrir að hafa starfað með
hernómsiliðinu.
Skólabörn
Skólar hófust að nýju eftir
sumarfríin í aillri Ték'kósló'vaikíu
í dag og fengu börniin í fyrsta
tíma alvarlega aðvörun um að
gera ekikert það sem ögrað gæti
Rússum.
Það var Frantisek Vai'aforsæt-
isráð'herra sem vairaði börn á
aldriniuim 6 til 1,6 ára í útvarps-
ræðu sérstaklega við því að hafa
í framimi ögnunaraðgerðir fyrir
utan útvarpsstöðina í Prag eða á
W encesáastoiiginu.
Kennarairnir brýndu þnessa að-
vörun fyrir börnumkn í fyrsta
tíma, en haft er eftir kennslu-
konu nokkurri í Prag, að hún
hafi sagt börnunum allain sann-
leikann og væri viss um að 99
prösent allra kénnara i landinu
hefðu einnig gert það.
títvarpið.
Svo virðjst seim útvarpið í
Tékkóslóvaikíu hafi fengið fyr-
irmæli um að gera alllt sem í
þess valdi stendur til að efla
ættjarðarást landsmanna og er
Eini kunni íhaldsmaðurinn í hinu
nýja forsæti, Bilak.
nú mikill hluti daigsikrárinnar
þjóðleg tónlist og upplestur úr
þekktum verkum um-sö'guleg efni
frá örlaigastundum í lífi þjóð-
arinnar, segir AFP.
Fluttar eru langar ræður
tékiknesikra þingmanna á þinginu
í Bæheimi er krafizt var full-
veldis og frelsis frá austurrísk-
umigversika konungsdæminu og
lesin eru hetjufovæði frá hemáms-
áruim nazista.
Frásagnir eru allt aftur á sext-
ándu öld, frá uppreisn Jóhanns
Huss og uppreisninni sem hinn
eineygði hershöfðingi, Jan Zizka
stóð fyrir.
Svo virðist segir AFP að for-
ystulið kommúnistatflokksins leggi
sig nú fram um að sameina
Tékka og Slóvaka f þjóðlega
einingu.
Ibúarnir.
Hins vegar ræða ‘íbúamir nú ó-
gjarna við útlendinga og svo
virðist sem þeir hafi sætt sig
við þau fyrirmæli, sem Sövét-
stjórnin hefur gefið.
NTB segir að öll sólarmerki
bendi til þa?s að ræða Dubceks,
þar sem hann skoraði á þjóðina
að leggja sig fram um að svipta
Sovétríkin röksomdum um gagn-
byltingarstarfsemi, hafi sánnfært
Tékktósilóvaka um að nú sem
stendur sé engra kosta völ.
Útvarpið í Bratislava skýrði
frá því í dag, að ástandið í höf-
uðborg Slóvakíu væri óðum að
komast í eðlilegt horf og enn
sjái'st engin merki gagnbyltingar-
sinnanna, sem Varsjárbandalags-
ríkin fimm höfðu að yfirvarpi í
hernáminu.
Mannfall
Rude Pravo, málgagn kommún-
istaflokks Ték'kóslóvaikíu skýrði
frá því í gær, að 25 manns halfi
látið lífið og 431 særzt í Prag
síðan hernámsliðið kom til borg-
arinnar fyrir 11 dögum.
Fjögur hús hafa brunnið upp
og ailvarlegt tjón hetfur orðið á
möt-gum fleiri húsum vegna elda.
Mest hefur tjónið orðið f hverf-
inu umhverfiis útvarpshúsið, sem
var eitt af fyrstu byggingum sem
hernámsliðið tók.
Hcrnámsliðið
Góðar heimildir voru bornar
fyrir því í Prag í gærkvöld að
Sovétríkin hefðu um 1.200.009
hermenn á landamærunum , að
Tékkóslóvakíu og Rúmeníu, fyrir
utan þá 600.000 hermenn sem eru
nú á tékkóslóvöskú landi.
Sagt er að A-Þýzkaland hafi
næstflesta hermenn en Pólland,
Ungverjaland og Búlgaria hafi
greinilega aðeinis sent fámennar
hersveitir.
Talið er að um 300 manns úr
leynilögreglu Sovétrí'kjanna séu í
Prag, en þeir eru ekki sagðir til
stórræðanna, þar sem enainn úr
innanrikisráðuneyti Tékkóslóvak-
íu vilji vinna með þeim.
Frá því að innrásin var gerð
hafa 541 Tékkóslóvaki beðið um
hæli sem pólitískir flóttamenn
í Austurríki.
Sovézk blöð
Sovézk blöð og útvarp hafa
ekki vikið einu orði að kosningu
hins nýja forssetis miðstjómar
tékkóslóvaska kommúnistaflokks-
ins og telja surnir fréttamenn í
Moskvu að þögnin bendi til þess
að leiðtogarnir í Krem'l hafi enn
ekki tekið á'kvörðun um hvemig
bregðast skuli við því að hið
nýja forsæti miðstjómar er enn
þá hlynntara Dubcek en hið
fyrra.
Fregnir í Moskvublöðunum frá
Tékkóslóvakíu eru í dag mun
hóigværari að orðalagi en upp á
síökastið, en fréttamenn Pravda
ítreka fyrri staöhæfingar um að
andsósíalísk öfl haldi áfram að
hindra það að eðlilegu ástandi
verði aftur komið á í landinu.
Miðstjórnarfundur?
Sá orðrómur gekk i Moskvu í
dag að stór fundur hefði verið
haldinn í höfuðstöðvum mið-
stjómar sovézka flokksins, en í
kvöld hafði ekki borizt nein op-
inber staðfesting á því, að hinir
360 félagar í miðstjóm sovézka
flokksins hefðu komið saman.
Ekki handteknir
Jiri Lederer einn kunnasti
blaðamaður í Tékkóslóvakíu og
þekiktur stuðnángsmaður Dubceks
neitaði því í dag aö tékkósilóv-
askir lisita- og menntamenn hefðu
verið handteknir á hlernáimsdög-
unum.
Lederer lýsti þvi yfir á fuindi
með æðstu mönnum Tékkósilóv-
aka að blaðamenn mundu halda
áfram að segja sannleikann,
„jaflnivel þó við getum ekki sagt
allan sannleikainn.“
Sovétstjórnin ró-
ar stjórn USA
WASHINGTON 2/9 — ^vétríkin
hafa skýrt Bandaríkjunum frá
því að þau hafi enigin áform um
það, að ráðasí inn í Rúmeníu;
að sögm há.ttsettra sendimanna í
Washin.gton í gærkvöldi.
Anatoli Dobrynin siendihlerra
Sovétríikjaninia gekk á fund Dean
Rusiks-j utanríkisráðherra Bamda-
ríkjanna á föstudagslkvöld til að
neita þvi að sovézka ríkisstjtóm-
in hefði það í hyggju að grípa til
hernaðairaðgerða gegn stjóminnd í
Rúmeníu.
HIN NÝJA HÚSEIGENDATRYGGING
INNIFELUR EFTIRTALDAR TRYGGINGAR:
V ATN ST J ÓN STRYGGINGU — GLERTRY GGINGU
FOKTRYGGINGU — INNBROTSTRYGGINGU
BROTTFLUTNINGS- OG HÚSALEIGUTRYGGINGU
SÓTFALLSTRYGGINGU OG ÁBYRGÐARTRYGGINGU
HÚSEIGENDA.
í HINNI NÝJU HÚSEIGENDATRYGGINGU ERU SAM-
EINAÐAR í EINA TRYGGINGU FASTEIGNA-
TRYGGINGAR, SEM HÆGT HEFUR VERIÐ AÐ KAUPA
SÉRSTAKLEGA UNDANFARIN ÁR.
MEÐ ÞESSARI SAMEININGU HEFUR TEKIZT AÐ
LÆKKA IÐGJÖLD VERULEGA.
KYNNIÐ YÐUR HIN HAGKVÆMU TRYGG-
INGAKJÖR.
LAUGAVEGI 103 - SlMI 24425
STÓRÚTSALA
SÍÐASTA VIKA
Ullarkápur, terylenekápur, plastregnkápur, dragtir
og buxnadragtir frá kr. 1400,00. Síðbuxur, peysur,
pils, sumarkjólar, crimplene-kjólar, jersey-kjólar
frá kr. 190,00 og tækifæriskjólar frá kr. 290.00.
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN!
Kjólabúðin MÆR, Laekjargötu 2