Þjóðviljinn - 03.09.1968, Page 4
4 SíÐA — ÞJOÐVIUTNN — Þriöjudagur 3. september 1968.
tJtgefaaidi: Samejningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkuriim.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðeson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línrur). — Áskriftarverð kr. 120,00 á mánuðd. —
Lausasöluverð krónur 7,00.
„Friðsamleg sambúð"
|>egar slota tók þvi tímabili alþjóðaimála sem
nefnt var kalda stríðið tók við nýtt sem kennt
hefur verið við friðsamlega sambúð. Þau umskipti
voru studd mörgum álitlegum rökum og vöktu
miklar vonir hjá almenningi um menningarlegra
ástand í heiminum. En kenningin um friðsamlega
sambúð hefur þróazt í þá átt að hún er bundin við
risaveldin tvö,.Bandaríkin og Sovétríkin, sem hvort
uím sig ræður yfir tortímingarvopnum sem ger-
eytt gætu heimsbyggðinni. Hugmynd þessara stór-
velda um friðsamlega sambúð er augljóslega í því
fólgin að þau eru að skipta heiminum í áhrifa-
svæði, og hvort um sig tekur sér vald til íhlutunar á
sínu svæði án afskipta hins. Sovétríkin og nokkur
fylgiríki þeirra hernema Tékkóslóvakíu og hafa
hin freklegustu afskipti af innanlandsmálum smá-
ríkisins — en senda Bandaríkjunum áður kurteis-
lega tilkynningu um afrekið. Á sama hátt hafa
Bandaríkin beitt ofurvaldi sínu til þess að skipa
smáríkjum fyrir verkum á áhrifasvæði sínu í Hóm-
önsku Aimeríku og víðar — og trúlega sent Sovét-
ríkjunum tilkynningar áður.
^ugljóst er að þessari skiptingu heimsins í áhrifa-
svæði er ekki lokið enn. Sumstaðar 'telja stór-
veldin sig bæði hafa hagsmuna að gæta og hafa
ekki enn komið sér niður á það hvernig haga skuli
sundurhlutan samkvæmt prósentureikningi. Hins
vegar hafa Bandaríkin ætlað sér mun. stærri hlut
í þeirri skiptingu og sýnt það í verki með miklum
árangri. Til að mynda hafa þau í hátt á fjórða ár
haldið uppi mestu loftárásum mannkynssöguhnar
á Norður-Víetnam. Norður-Víetnam er sósíalist-
ískt ríki og hafði gert mikla samninga við Sovét-
ríkin, en engu að síður hefur smáríkið eitt orðið
að standast árásir hins vesturheimska stórveldis
og aðeins fengið vopn til að verja hendur sínar.
Vafalaust er áformað að það mál verði að lokum
leyst með einhverskonar reikningsdæmi um á-
hrifasvæði.
Jþessi þróun er afskræming á öllum hugmyndum
um friðsamlega sambúð. Forsendur friðsam-
legrar sambúðar eru þær að virt sé sú meginregla
að hvert ríki njóti sjálfstæðis og fullveldis án
nokkurrar íhlutunar annarra, og í annan stað er
það forsenda friðar í heiminum að fátæku þjóð-
iraar, þar sem meirihluti mannkyns býr nú við
hungurkjör, fái að njóta efnahagslegs jafnréttis
en séu ekki arðrændar af klúþbi hinna auðugu
ríkja. Þessi óhjákvæmilegu siðferðilegu viðlhorf
virðast ekki eiga auðvelt uppdráttar í heiminum
um þessar mundir, en þó munu þau sigra að lok-
um ef mannkynið á að eiga sér framtíð. Það hef-
ur ekki farið dult að siðferðilegur styrkur kjam-
orkuveldanna miklu hefur minnkað í sama hlut-
falli og efnislegt vald þeirra hefur aukiz'f, en það
er hinn siðferðilegi grundvöllur -sem að lokuim
sker úr um framtíðarþróunina. Stóveldi rísa og
hníga, þrátt fyrir öll vopnavöld sín, en hugmynd-
imar breyta rás mannkynssögunnar. — m.
Lærdómur síldveiðanna
í síðustu viku skýrði ríkisút-
varpið frá því, -að búið væri að
salta rúmlegia 21 þús. tunniur af
síld frá Svalbarðamlðum. Af
þessu magni hefur Valtýr >or-
stelnsson frá Rauðuvík látið
salta 7.500 tunnur um borð í
færeyska skipinu sem hann
hafði á leigu.^og gerði að fljót-
andi söltunarstöð á miðunum.
Nú er þetta skip hætt söltun,
þar sem Valtýr mun ekki hafa
.treyst sér til að leigja það leng-
ur eftir að veiði minnkaði á
miðunum. Rúmlega 800 tunnur
voru saltaðar úr togaranum
Víkingi á Siglufirði, sem flutti
síldina þangað ísvarða í stíum.
Eftir þessu hafa verið saltað-
ar um borð í sjálfum veiðiflot-
anum öllum samtals innan við
13.000 tunnur af síld. Þar með
er' komið á daginn það sem ég
sagði fyrir í byrjun sildveiðanna
á þessum miðum. að veðiskip-
immeð þær skipshafnir sem þau
hafa. hefðu litla og slæma að-
stöðu til söltunar. Norsku sild-
'veiðiskipin sem salta eigin síld
um borð og veiða með snurpu-
nót, þau bafa stærri skipshafn-
ir. enda er fyrirfram ákveðið.
að þau veiði einungis í salt en
ekki í bræðslu.
Hér er tvennu ólíku saman
að jafna. Sé árangur sá athug-
aður. sem fékkst með síldar-
söltun Valtýs Þorsteinssonar á
miðunum, svo og síldarsöltun
Norðmanna, þá getur mönnum
tæþlega dulizt. að í heild hefur
hagnýting síldarinnar á þessum
miðum til söltunar svo og ann-
arrar nýtingar til manneldis, al-
gjörlegá farið í handaskolum,
þegar miðað er við hvað hægt
hefði verið að gera. Það hlutu
allir að sjá í byrjun þessarar
sildarvertíðar þegar menn
vissu hvar .síldarmiðin yoru
staðsett, að ekkert minnsta vit
var í bví. að leggja áherzlu á
síldarflutninga af þessum mið-
um til br'æðslu moð því verði
sem nú er á sildarmjöli og lýsi.
Hitt átti'líka að liggja opið fyr-
ir. að nauðsyn baeri til að bag-
nýta síldaraflann til maoneldis
éftir því sem kostur væri á.
Það eítt gat gefið fyrirheit um;
að útgerðarkostnaður fengist
greiddur. Hér hefur verið farið
þveröfugt að. Áherzla hefur
verið lögð á síldairflutninga til
bræðslu enda þótt engin von
væri til, að slíkir flutningar
gætu borið sig f.iárhagsiega.
Hinsvegar hefur lítið verið gert
af viti til að hagnýta sildina í
salt eða til frystingar. Þama
eru aðeins tveir Ijóéir punktar,
annarsvegar tilraunir Valtýs' til
söltunar um borð í flutninga-
skipi á miðunum og hinsvegar.
flutningur togarans .Víkinigs á
ísvarinni síld til Siglufjarðar.
Sá var þó galli á síldarflutning-
um Víkingsins, að síldin var ís-
uð í stíur en ekki í kassa. Af
þessarrástæðu var aðeins nokk-
ur hluti farmsins nothœfur í
salt. Vanur síldarsöltunarmiaður
frá Siglufirði sem athugaði Vík-
ingssíldina uim borð í skipinu
og aítur í „síldarkössum“, hann
tjáði mér að síldin hefði farið
verst í sjálfri uppskipuninnd.
Þetta er skiljanlegt þeim sem
hafa þekkingu á þessum hlut-
um. Það er ekkert vafamál að
farmur Víkingsins hefði svo til
allur verið söltunarhæfur ef
hann hefði verið fluttur ísvar-
inn í 70 lítra fiskikössum. Þetta
gefur auga leið, hvað hægt er
að gera á þessu sviði. aðeins ef
rétt er fnrið að og sá útbúnað-
ur notaður sem beztur er til
slíkra flutniiíigia.
í l>essu sambandi er rétt að
geta þess, að Siglfirðdngar stofn-
uðu félag sem barðist fyrir slík-
um síldarflutningum í kössum
af miðum fyrir fáum árum. Þeir
Iétu gera teikningu af öllum út-
búraaði um borð í slíku flutn-
ingaskipi, en þar við situr.
Nauðsynlega fyrirg.reiðslu til að
hrindia þessu í framkvæmd hef-
ur skort til þessa. Hefði áherzla
verið 15gð á að 'bagnýta síld-
ina til söltunar og í fryst-
ingu í stað bræðslu og sam-
Viana ásamt nauðsynlegri fyrÍT-
„Nú bíða menn eftir því, að síldin haldi vestur á leið og nálgist Austurlandið éinhvern tíma seint I
haust, og þá á að salta“.
'Þegar sumiairsíldveiðitíminn
nálgaðist í ár mátti lesa í norsk-
um blöðum auglýsingar eftir
mönnum sem væru vanir sildar-
söltun á hafi úti. Hvergi sá mað-
ur slík auglýsingu hér í blöðum.
Hér virðast menn líta þannig á
málin, að allir kunni allt er
viðkemur framleiðslu á fisk- og
síldarafurðum þó þeir hinir
sömu bafi aldrei nœrri slíkri
framleiðslu komið. Og þó er
sannleikurinn sá, að slík fram-
leiðsla er skilyrðislaust háð
þekkingu og mikilli þj álfun í
starfi, ef sæmilega á að takast.
Vegnia þessa vanmats á nauð-
synlegri þekkingu þegar í hlut
eiga framleiðsluvörur sjávarút-
vegs ýmsar, sem velgengni þjóð-
ar á öllum sviðum stendur og
fellur með, þá erum við að
verða einskonar utanveltuigeml-
inigar á þessu sviði, í stað þess
að vera forustuþjóð.
Það er þessa þróun vanmats
og auminigjaskapar sem verður
að stöðva og hefj a i henn-ar stað
sókn á öllum sviðum fiskfram-
leiðslu, sem byggist á þekkingu
og þjálfun í starfi. Ef þjóðin
tileiknar sér ekk; þennan sann-
leika, þá getur hún ekki orðið
efnalega óháð öðrum.
greiðslu lánaistofnian,a hefði ver-
ið fyrir hendið, þá gæti nú um
mánaðamót ágúst — september
verið komin hér mikil síld á
land, þrátt fyrir fjarlægð mið-
anna, slæma veðráttu og margs-
konia-r erfið-léika sem því eru
samfara.
Nú bíða menn eftir því að
síldin h-aldi vestur á leið og
nálgist Aus-turlandið einhvern
tíma seint í ha-ust og þá á að
salta. Þetta er engin fyrirhyggja
og i algjöru ósamræmi við þá
möguleika sem breytt tæknj síð-
ustu áratuga hefur lagt mönn-
r.m upp í hondur. . :
HSKIMAL
ettif Jéhann
J. e. Kúld
borð í veiðiflotanum, án þess að
gera ráðstafanir til, að svo gæti
orðið.
Þetta var hægt en ekki gert.
Til þess þurfti stærri skipshafn-
ir á skipi-n, ef það átti að vera
framkvæm-anlegt. Svon-a lÖguð
mistök eru leiðinleg og dýr
fyrir þjóðarheildina, því að það
er hún sem endanlega verður að
greiða kostnaðinn.
Ég veit heldur ekki hvað
Landssamb. íslenzkra útvegs-
manna hefu-r hu-gsað viðvíkj-
andi söltun á miðum. Líklega
hafa þeir menn sem þar ráða.
ekki æ-tlað qð leggja nein-a á-
herzlu á síldarsöltun á mið-
unum. því að reikna ver*Sur
með, að þeir hafi vitað hvað
til þess þurfti, ann-að er varla
hugsanlegt. En leiga á tveimur
flutningaskipum til að ann-ast
saltsíld-arflutninga frá veiðiflot
anurn í land, þær ráðstafanir
eru í en-gu samræmi við aðstöð-
una til söltunar ura borð í sjálf-
u-m veiðiskipunum.
Von-andi læra menn af þeim
mistökum sem gerð h-afa verið
í sambandi við hagnýtin-gu sild-
ar frá Svalfoarðamiðum. En
þe-ssi mistök voru óþörf og eru
ekki samboðin fiskveiðiþjóð.
í fyrsta lagi er sú síid, sem
söltuð er þegar komið er fram
á vetur ek-ki eins góð vara og
sú sem söltuð er frá síðari hluta
júlímámaðar og fram í sept-
ember. •
í öðru lagi þá er en-gin vissa
fyrir því að síldin nálgist ís-
land í ár þó allir voni það. Mér
er ekki kunnugt u-m, hve mikill
hluti síldarinnar við Svalbarða
er af norskum stofni og hvað
af íslenzkum. En verði norski
stofninn yfirgnæfandi, þá getu-r
frá minu leikmanns-sjón-armiði
skapazt sú hætta, að síldin haldi
suður og síðan austur, upp að
Noregsströnd, en f-ari ekki vest-
ur á okkar Austfjarðiamið. Við
skulum bara vonia og biðja um,
að þetta verði ekkí á þessu
hausti, því að undfr það erum
við illa búnir og verr en þyrfti
að vera.
f þriðja laigi og það tel ég
þun-gt á metum í þessu sam-
ban-di, að allri okkar saltsíldiar-
sölu og möguleikum til sölu á
írosinhi síld er al-gjörlega teflt
í tvísýnu með því að nota ekki
ú-t í æsar þá möguleika sem
þrátt fyrir allt eru fyrir hendi
á meðan sildin er á miðunum
við Svalbarða.
Frá mínVi sjónarmiði eru af-
skipti Síldarútvegsnefndar af
þessu máli ekki með þeim glæsi-
braig sem þurft hefði að vera,
undir þessum krin'gumsitæðum.
Það er td. fádæma banmaskap-
ur og þekki-ngarleysi hjá sjáv-
arútvegsmálaráðuneytinu og
síldarútvegsnefnd að reikn-a
með mikilli sildiarsöltun um
Athugið
Geri gamlar hurðir sem nýjar Kem á staðinn og
gef upp kostnaðaráætlun án endurgjalds.
Ber einnig á nýjar hurðir og nýiegar.
Sími 3-68-57.
Klapparstíg
Sími 19800
26
BUÐIN
Condor