Þjóðviljinn - 08.09.1968, Síða 5
Suaniudagur 8. septemi>sr 1968 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA g
Kraftar
skipta ekki
mestu málí
Rætt við Óskar Sigurpálsson:
Óskar sagði að það væru um
það bil 6 ár síðan bann byrjaði
að æ£a lyftingar, en' fyrstu tvö
árin hefðu æfingar verið mjög
stopular vegna allskonar byrj-
unarörðugleika, en segja mætti
að hann hefði æft stanzlaust sið-
ustu 4 árin.
— Hvemig stóð á áð þú byrj-
aðir að æfa lyftinigar, Óskar?
— Ja, ég veit það nú eigin-
lega ekki; við vorum nokkrir
strákar sem æfðum ýmsar
íþróttir eins og gengur, m.a.
fimleika og einhvern veginn
æxlaðist það svo að við tókum
uppá því að æfa lyftingar.
— En var ekki vont að afla
sór nauðsynlegra tækja, þar
sem þessi íþrótt hafði ekki ver-
ið gtunduð hér áður?
— Jú, það voru engin tæki
til og fyrstu tækin mín smíð-
aði ég sjálfur, en ég vann um
þær mundir við jámsmíði. Nú,
eftir að áhugi tók að myndast
fyrir þessu, þá var stofnuð sér-
stök lyftingadeild innan Glímu-
félagsins Ármanns og félagið
keypti öll nauðsynleg tæki til
þjálfunar.
— Hver sagði ykkur til eða
þjálfaði í byrjun?
— Það var enginn til þess þá
, og er ekki enn, því að það er
ekki neinn þjálfari til hér á
landi í lyftingum. AHa okkar
kunnáttu höfum við fengið með
því að lesa erlend blöð og tíma-
rit um þessa íþrótt. og að sjálf-
mn þjálfari er til leiðbeining-
ar?
— Ja, ég veit ekki hvað á að
segja um það; ef maður á þess
kost að fara utan til keppni þá
sögðu gjöldum við þess. Ég hef
til að mynda lært alveg gífur-
lega mikið á að fara út til Nor-
egs og Finnlands í sumar, eink-
um í sambandi við alla tækni,
því að hana er ekki svo gott að
læra af lestri blaða.
— Er þá nokkur leið að ná
fuUkomnum árangri, fyrst eng-
lærir maður að sjálfsögðu'mjög
mikið og getur æft það þegar
heim kemur, en það er 'áuðvitað
bagalegt að hafa ekki þjálfara.
Svo er annað; það er ekki hægt
að halda lögleg kappmót hér.
því að það hefur enginn dóm-
araréttindi í lyftingum hér á
landi og það er of dýrt að fá
hingað erlenda dómara, því að
þeir þurfa að vera þrír.
— Nú var Olympíulágmarkið
í milliþungavigt í lyftingum
437,5 kg. Hvað hefur þú náð
beztum árangri?
— Eins og ég sagði áðan, þá
er ekki hægt að halda lögleg
keppnismót hér, en á æfingu
hef ég lyft 440 kg. í snörun
pressu og jafnhöttun.
— Telurðu að þú getir bætt
þetta mikið?
’—■ Ég er alveg sannfærður
um það og ég er nærri viss um
að með aukinni tækni ætti ég
að geta komizt yfir 500 kg.
— Náð heimsmetinu?
— Farið nokkuð nærri þvi að
minnsta kosti.
— Þetta er ef til viH bama-
leg spuming, en þarf ekki ó-
skaplega krafta til að stunda
þessa íþrótt?
— Þama gætir rnikils mis-
skilnings hjá fólki. Það þarf-
ekki neina ofsa krafta til að
stunda lyftingar, það þaxf fyrst
og fremst taekni og snerpu, það
er hún sem úrslitum ræður. Að
vísu þarf krafta með, en ekki -
eins mikla og margur heldur.
— Hvað heldur þú að þú haf-
ir lyft þyngstu frá jörðu?
— Það veit ég ekki. Ég hef
aldrei reynt það neitt sérstak-
lega. Einu sinni lyfti ég steini
sem er uppi við Árbæ. Hann er
304 kg. Ef til viH gæti ég lyft
meiru, ég veit það ekki.
— Er engin hætta á slysi í
lyftingum, svo sem að menn
missi lóðið ofan á sig?
— Nei, það er mjög lítil hætta
á slysi og ef til viH minni en í
öðrum íþróttum. Ef menn finna
sig vera að missa lóðið, þá pin-
Framhald á 9. síðu.
Olympíufarar Islands 1968
Óskar Sigurpálsson
Einn íslenzku Olympíufar-
anna, Óskar Sigurpálsson, er
hvað minnst kunnur meðal
íþróttaáhugamanna, endá íþrótt
hans, lyftingar, nær óþekktar
hér á landi þar til fyrir tveim
til þrem árum. Þáttur Óskars í
að vinna þessa karlmannlegu
íþrótt upp hér á landi er stór
og framfarir hans í lyftingum
ævintýralegar, jafnvel þó ekki
sé miðað við hinar frumstæðu
aðstæður hér á landi til að iðka
lyftingar.
Ef til viU vegna ^aHs þessa
eða kannski heldur vegna aðdá-
uruar landans, svo öldum skipt-
ir, á sferkum mönnum, fór-
um við á fund Óskars Sigurpáls-
sonar til að rabba við hann um
þessa íþrótt, og fá nánari lýs-
ingu á hvað lyftingar eru í raun
og veru
Guðmundur Gíslason
Ellen Ingvadóttir
Olympíunefnd íslands hef-
ur sem kunniugt er ákveðið að
senda 8 keppendur á Olympíu-
leikana sem haldnir verða í
Mexíkó í októbermánuði n.k.
Þeir sem sendir verða eru:
í SUNDI: Leiknir Jónsson,
sem keppir í 100 og 200 m.
■brin.gusundi. — Guðmundur
Gíslason, sem keppir í 20o m
og 400 m. fjórsundi, 10o m.
flugsundi og 100 m. skrið-
sundi. — BUen Ingvadóittir,
sem keppir í 100 og 200 m.
bringus. og 20(> m. fjórsundi.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
sem keppir í 20o m. fjórsundi
og 100 og 200 m. skriðsundi.
í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM:
Guðmundur Hermannss., sem
keppir í kúluvarpi. Valbjörn
Þorláksson, sem keppir í tug-
þraut. Jón Þ, Ólafsson, sem
keppir í hástökki.
f LYFTINGUM: Óskar Sig-
urpálsson, í milliþungavigt.
AHt þetta íþróttafólk er
löngu þjóðkunnugt fyrir afrek
sín á sviði íþrótta, enda flest
búið að keppa í mörg ár og
sumir af íþróttamönnunum
taka nú þátt í Olympíuleikum
í þriðja sinn, svo sem Val-
bjöm, Jón Þ. og Guðmundur
Gíslason.
Guðmundur Hermannsson
Tón Þ. Ólafsson
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Valbjörn Þorláksson
Leiknir Jónsson