Þjóðviljinn - 19.11.1968, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.11.1968, Qupperneq 5
Þridjudaguir 19. nóverruber 1968 — ÞJÓÐVTLJTNTí — SlÐA g Fyrri landsleikur fslands og V-Þýzkalands: 21-22 Opin vörn íslenzka liðsins og iéleg markvarzla í upphafi leiks olli tapi Þegax staöan var 5—3 Þjóð- verju-m í hag misnotuðu íslend- ingarnir vítakast, sem ekki varð til að bæta úr skák. Þannig hélzt þetta út fyrri hálfleik að Þjóðverjamir höfðu 2—3 mörk yfir, þó komst munurinn einu sinni niður í 1 mark, 11—10. 1 leikhléi var staðan 13—11 þýzkum í vil. Ingólfur Ósikarsson þyrjaði síðari hálfleikinn á því að skora og minnka þilið niður 1 eitt mark, en gsafan virtást þeim algjörlega fráhvertf, því að innan stundar var aftur kominn þriggja marka munur. 13—16. Þegar hér var komið höfðu aðeins þrír menn í ísl. liðinu sfcorað öil mörkin, þeir Jón Hjaltalín, Geir og Ingólfur, ofí segir þetta sína sögu um hversu einhliða sókntarleikurinn var. Nærri miðjum síðari hálfleik var staðan orðin 15—19, fjög- urra marka munur, og tflestir búnir að gefa upp alla von. Þá gerði Hilmar Björnsspn, landsliðsþjálfari, nokkuð sem telja verður djarft en heppn- aðist fulilkomlega, hann setti alla yngri mennina inná og þeir voru svo sannarlega tnauistsins verðir, því að nú fyrst fór liðið að leifca við getu. Það má segja að Einar Mapn- ússon halfi riðið á vaðið, þegar hann sikoraði tvö mö<rk í röð 01" munurmn var aftur orðinn tvö mörk, 19—17, en ÞjóðVerjamir skoruðu þá sitt 20. miark og Jón Hjaltalín 18. mark landans. Geir Hallsteinsson með knöttinn, þrír Þjóðverjar sækja að honum. Framhald á 9. síðu. ■ Það skyldi þó aldrei vera, að íslenzkir handknatt- leiksmenn séu komnir með álíka minnimáttarkennd gagn- vart Þ'jóðverjum og þeir höfðu gegn Dönum á sínum tíma? Það er von að maður spyrji, þvi að ég fullyrði að við höf- um unnið sterkara lið en þetta þýzka landslið sem lék hér s.l. laugardaig. gæft að þriggja marka forskot vinnist upp í handknattleik, en eins og greinilega var komið í ljós þá var ísl. landsliðið ekki við sitt bezta og vonin um að þeim tækist að vinna upp þetta forskot því heldur lítil. Knötturinn ligguv inni. Þorateinn fær ekki varið. ■ Þessi doði í íslenzka landsliðinu varði fram í miðjan fyrri hálfleik, en þá var munurinn orðinn það mikill að þeir voru allan tímann sem eftir var að vinna hann upp, og það tókst á síðustu mínútunum, þegar staðan varð 21 :21 og heppni ein réði hvorum megin sigurmarkið lenti. Auk þessa lélega kafla hjá ísl. liðinu voru markverð- imir okkar báðir langt frá sínu bezta allan tímann, en þýzki miarkvörðurinn Meyer varði af hreinni snilld og bezt þegar mest reið á fyrir lið hans. Þetta á að sjálf- sögðu sinn stóra þátt í ó- sigrinum. Eins og fyrr segir var byrjum leiksirus silakasti kafli islenzka liðsins, því að þegar um það bil 10 mínútur voru aif leik var staðan orðin 3—0 þýzkum í vil. Ingólfur Ósikarsson sikor- aði fyrsta mark landans en Þjóðverjarnir svöruðU strax fyrir sig og staðam þá 4—1. Að víisu er það ekki sjald- íslendingur og Þjóðvcrji eigast þarna við. Jón Hjaltalín kemiir aðvífandi til hægri. — Ljósmyndirnar tók Ari Kárason. Jón Hjaltalín bjargaði landsliðinu frá stórtapi í síðari landsleiknum Breytti 10 marka mun í 5 á síðustu mínútunum ■ Það var einstaklingsiframtak Jóns Hjaltalíns, sem bjargaði því, að þessi leikur varð ekki svartasti blettur- inn á íslenzkum handknattleik. Þegar einungis 10 mínút- ur voru til leiksloka var staðan 13—23 Þjóðverjunum í hag og al'lsherjar vonleysi hafði giipið um sig í íslenzka liðinu. nema hjá Jóni sem sikoraði 5 mörk í röð og Einar Magnús- son 1 án þess að Þjóðver'junum taekist að svara fyrir sig nema einu sinni. Þetta er eitthvert glæsilegasta einstak- lingsframtak sem maður hefur séð og mikil ósköp hlýtur landsliðsnefnd og öðrum forráðamönnum handknattleiks- ins að vera hlýtt til Jóns eftir þetta. Það hefði verið erfitt fyrir landsliðsnefnd að afsaka tap uppá 10 marka mun fyrst hún gerði engar breytingar á liðinu eftir fyrri leik- inn, sem þó var ærin ástæða til, með það fyrir augum að styrkja vömina sem var algiörlega í molum í báðum leikjunum. fraaga í K'aupmannahölfn á sín- Það sýndi sig strax í byrj- un, að það eitt að skipta um markmann, var til einsikis fyrst vömin var ekki styrkt. Það er næstum sama hvaða markmanni hetfði verið stillt upp fyrir aft- an þessa vöm, sá markmaðlur er varla til sem hefði fietað breytt þar einhverju. Það var aðeins fyrstu mínútur leiksins sem hann hélzt í jafnvaafii og eftir að Ingólfur hafði jafnað 2—2 opnaðist ísl. vörnin eins ofi flóðtfiátt og allan fyrri hálfleik- inn gátu Þjóðverjamir næstum labbað í gegn þegar þeim sýnd- ist. Það var svo sann-arlega martröð að sjá markatölumar breytast úr 6—5 fyrir Þjóðverja í 16—8, en þanmig var staðan í leiklhléi. Manni býðiur í grun að álhortfendum hafi verið svip- að innanbrjósts og þeim Islend- inguim sem sán „14—2“ leikinn um tíma. 1 leikhléi töluðu menn um 12—15 marka mun að lokum og það skyldi engum láð þó hann væri svo svartsýnn, því að menm áttu ekiki von mikilla breytinga í síðari hálfleik. Það varð samt sú raumin á að ísl. liðið var allt annað og betra í síðari hálflleik, þó það næði aldrei sínu bezta sem varla ei’ von með 8 marka mun á bakinu í byrjun síðari hálfleilíis. Islenzka liðið náði fljóblega að minnka muninn niður í 6 mörk, en um miðjan hálfleik- inn dofnaði afltur yfir liðdnu ofi munurinn komst í 10 mörk, 23 —13. Algjört vonleysi virtist hafa gripið um sig í liðinu og það var svo sannarlega ekkert undarlegt, en enn maður, Jón Hjaltalín, hafði ekki sagt sitt síðasta orð ofi verður þessi Vinstrihandarskot — og mark. lokalþáttur hans áreiðanlega lengi í minnum hatfður. Jón Skoraði nú 14. og i’5. markið, en Einar Magnússon 16. þá skoruðu Þjóðverjamir sitt 24. mark en þrjú síöustu mörk- in skoraði Jón svo og bjargaði landsliðinu tfrá stórtapi. Þessi úrslit gefa efcki rétta hugmynd um styrkleikamun þessara liða, því að jafnvel þó að vanti nokkra af okkar beztti varnarleikmönnum þá á þefcta ísl. lið að geta mun meira en það sýndi í þessum leik. Þessi úrslit ættu að kenna landsliðs- nefnd að velja varnarleikmenn í stað forfallaðra vamarleik- marma, en ekki sóknarlei’kmenn eins og nú var gert. Meðan hún gerir það efcki, þá nær hún ekki að velja okkar bezta landislið. Mér finnst ekki ástæða til að nefna nema einn mann sér- staklega í ísl. liðinu, þ. e. Jón' Hjialtalín. sem átti frábæran leik. Aðrir léku 1-angt undir getu. Hjá Þjóðverjunum voru beztir þeir Liibking og Munek, eins og í fyrri leiknum, að ó- gleymdum markverðinum Mey- er, sem var eins og töfra- maður í marfcinu á stundum. Dómaramir, þeii- Carf-Olaif Nilsson og Rölf Andreason, dæmdu þennan léik skínandi vel. Mönk Islands: Jón Hjaltalín 7, Geir Hallsteinsson 2, Ingólf- ur 3, Gunnlaugur 2, Einair Magnússon 2, Ólafur Jónsson, Jón Karisson og Auðunn 1 hver. Mörk Þjóðverja: Lubking 6, Munck 7, Bucher 2, Neuhaus 2, Hönning 3, Kusman 1. Múl- ler 2, Grönninig 1. I _

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.