Þjóðviljinn - 31.12.1968, Page 4
SÍÐA — ÞJÓÐVTWXNN — X>ri3iudagur 31. ðesemnlber 1068.
Otgefandi: Sameiningarflokk/ui alþýöu — Sósíalistaflokburinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurðusr V. Friöþjófsson.
Auglýsingastj.: Ölafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórn. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavöröustig 19.
Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 150,00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 10,00.
/ deiglunni
'r
^rið sem nú er að kveðja hefur verið mjög tíð-
indasaimt í íslenzkum stíómmálum. Viðreisn-
arstefnan hefur mistekizt svo gersamlega að ekki
verður deilt um ófarnað hennar, og í kjölfar þess
hefur fylgt mjög alvarlegt efnahagsástand, stór-
lega skert kjör launamamna og vaxandi atvinnu-
leysi. Óvissan í efnahagsmálum hefur leitt af sér
hliðstæða óvissu í stjórnmálaþróuninni; hefðbund-
in viðhorf manna hafa riðlazt mjög á árinu, og birt-
ust þau umskipti einkar greinilega í forsetakosn-
ingunum, sem urðu mjög sögulegur stjómmálaat-
burður. Öll þjóðmálin eru nú í deiglunni í ríkara
mæli en verið hefur um langt skeið, óvissan um
fraimtíðina meiri.
'r'
^ þessum tímamótum hafa íslenzkir vinstrimenn
endurskipulagt stjórnmálasamtök sín. Sósíal-
istaflokkurinn hættir störfum um þessi áramót eft-
ir að Alþýðubandalagið hefur verið gert að fornrr
legum sósíalistískum flokki. Á þeim tímamótum er
vert að minnast þess að barátta Sósíalistaflokks-
ins varð mjög árangursrik; hanuim tókst að tryggja
mjög stórfelld umskipti á kjörum og réttindum al-
þýðufólks, mestu lífskjarabyltingu sem íslands-
sagan kann frá að greina. Engu að síður munu flest-
ir binda hugamr við framtíðina á þessum tíma-
mótum, þá baráttu sem Alþýðubandalagið verður
að heyja til þess að tryggja nýja og gerbreýtta
laindsmálastefnu, atvinnuöryggi og sómasamleg
lífskjör, áætlunarbúskap og þjóðleg viðhorf. Ýms-
ir atvinnustjórnmálaimenn spá misvel fyrir þeirri
baráttu, en spádómar þeirra skera ekki úr um neitt;
gengi Alþýðubandalagsins er háð ákvörðunum þús-
unda alþýðumanna um larid allt. Öll saga hinnar
sósíalistísku baráttu á íslandi er saga um samtök
fólksins sjálfs; gengi viínstrihreyfinga er háð því
að þær séu fjöldahreyfingar, þar sem fómarlund og
hugsjónatryggð em aflvakar. Slík fjöldabarátta
hefur aldrei verið nauðsynlegri en nú, þegar vegið
er að afkomu og öryggi hvers vinnandi manns, þeg-
ar hver launamaður um sig finnur hversu lítils
hann er megnugur eiinn, en veit jafnframt af
reynslunni að samtök alþýðumanna geta verið
sterkasta aflið á íslandi. Aðeins með fjöldabaráttu
er hægt að tryggja þau óhjákvæmilegu imannrétt-
indi að allir eigi kost á starfi; aðeins samtök fólks-
ins sjálfs geta fært öllum almenningi þau lífskjör
sem þjóðfélagið megnar að veita ef rétt er stjóm-
að. Aldrei hefur verið mikilvægara etn nú að ís-
lenzkir vinstrimenn muni þau einföldu sannindi
að sameinaðir geta þeir lyft gre'ttistökum, en sundr-
aðir verða þeir leiksoppar þjóðfélagsafla sem ekki
megna að uppfylla þær vonir sem íslendingar
binda við samfélag sitt.
J£f íslenzkir vinstrimenjn muna hið einfalda ’ lög
mál um styrk samheldninnar verður AlþýSu-
bandalagið það þjóðfélagsafl sem lyftir landsmönn-
um úr óvissu og ugg þessara áramóta til nýrrar og
árangursríkrar sóknar. í trausti þess óskar Þjóð-
yiljinn íslendingum gleðilegs nýs árs. — m.
GLEÐILEGT NYTT AR!
Þökibum viðskiptin.
Nýborg s.f.,
Hverfisgötu 76
NYTT AR!
Þökbum viðskiptin.
GLEÐILEGT NYTT AR!
GLEÐILEGT NYTT AR!
Þöbbum viðskiptin.
Þökkum viðskiptin,
Nýborg s.f.,
Hverfisgötu 76
NYTT AR!
Þökibum viðskiptin.
Ragnar Arnalds:
Á TÍMAMOTUM
Um þessi áramót kemur út fyrsta tölublað af nýju málgagni
AlþýSubandaiagsins, pg hefur það hlotið nafnið VÍÐSJÁ. Er blað-
inu ætlað að koma út viku- til hálfsmánaðarlega, þegar útgáfa þess
verður komin á fastan grundvöll, en af fjárhagsástæðum verður
það ekki, fyrr en síðar á þessu ári. Eðlilegt þótti, að áramótagrein
um stjórnmálaviðhorfin, sem ég hef ritað, yrði birt í þessu nýja
blaði.
En þrátt fyrir útkomu þessa blaðs er Þjóðviljinn áfram stærsta og
útbreiddasta stuðningsblað Alþýðubandalagsins. Ég vil því biðja
hann fyrir áramótakveðju til Alþýðubandalagsmanna um land allt,
um leið og ég vík að stöðu Alþýðubandalagsins í dag í örstuttiv
máli.
Eins og flestum mun kunnugt eiga sér nú stað meiri umskipti
og breytingar í hreyfingu róttækra vinstri manna og sósíalista
en gerzt hefur um áratuga skeið. Á landsfundi Alþýðubandalagsins
í nóvember var samþykkt að breyta samtökunum í stjórnmálaflokk,
sem ekki heimilaði meðlimum sínum að vera í öðrum flokkum
eða flokkspólitískum samtökum. Þetta ákvæði tók þó ekki gildi
þegar í stað. En nú um áramótin er útrunninn sá frestur, sem
mönnum var veittur til að segja sig úr öðrum flokkspólitískum
samtökum eða til að sjá um, að þau yrðu lögð niður.
Sósíalistaflokkurinn hefur nú ákveðið að auðvelda meðlimum
sínum að uppfylla skilyrðin fyrir þátttöku í Alþýðubandalaginu
með því að leggja samtök sín niður. Gils Guðmundsson hefur lýst
því yfir, að hann telji Þjóðvarnarflokkinn ekki Iengur til, þar sem
ekkert þjóðvarnarfélag hafi starfað um árabil, og er þeta vafalaust
viðhorf annarra þjóðvarnarmanna, sem eru félagar í Alþýðubanda-
laginu. Lengi hefur ekkert heyrzt frá Málfundafélagi jafnaðar-
manna eða klofningsfélagi því, sem bar heitið „Félag Alþýðu-
bandalagsmanna í Reykjavík", og verða þau að teljast úr sögunni,
nema annað komi í Ijós.
Á nýju ári .e£ .Só^íalistaflókkurinn ekki Iengur útgefandi Þjóð-
viljans. Stofnað verður nýtt útgáfufélag um blaðið, sem opið verð-
ur öllum Alþýðubandalagsmönnum og raunar öllum sósíalistum,
hernámsandstæðingliíh og róttækum ' meðlimum verklýðsfélaga,
þótt þeir séu ekki í Alþýðubandalaginu. Alþýðubandalagið mun
ekki gefa út sérstakt dagblað, enda hefur það ekki til þess bol-
magn, en Víðsjá verður formlegt málgagn flokksins. Jafnframt
treystir Alþýðubandalagið Þjóðviljanum til að veita sér nauðsyn-
legan stuðning í daglegri sókn og vörn, eins og hann hefur gert
um árabil, en við Alþyðubandalagsmenn munum á móti veita
Þjóðviljanum það lið, sem við megum.
Löngum hefur það einkennt stjórnmálabaráttu bæði hér á landi
og víða annars staðar, að vinstrimenn hafa verið klofnir og sjálfum
sér sundurþykkir, en íhalds- og auðvaldsöflin oftast sameinuð í
traustbyggðum valdaflokkum. Ástæðurnar eru ýmsar m.a. þær,
að flokkar Iaunamanna standa yfirleitt heldur veikum fótum fjár-
hagslega og þola ekki mikil innri átök, en fjársterk dagblöð og
voldugar flokksvélar halda hægriflokkunum saman.
Líklega er þó ekki síður þungt á metunum, að of mörgum vinstri
mönnum hættir til að láta heimiliserjur sitja í fyrirrúmi og deila
harðast á þá, sem næstir þeim standa í skoðunum.. Þetta er vafa-
laust ein meginástæðan til þess, að árum saman eru sósíalískar
hreyfingar hér og víða /annars staðar. að hjakka í sama farinu.
Það smáa sundrar, hið stóra sameinar! Sá maður er blindur, sem
ekki sér, hve þörfin er nú brýn, að Alþýðubandalagsmenn og allir
einlægir vinstrimenn sameini orku sína gagnvart þeim stórbromu
verkefnum, sem framundan eru: að verjast stórárás á lífskjör al-
mennings; að snúa vörn í sókn; að leggja grundvöll að nýrri efna-
hagsstefnu, sem byggist á félagslegum úrræðum og heildarstjórn
í stað blindra gróðalögmála, og loks að knýja fram óháða, þjóðlega
utanríkisstefnu á því ári, sem NATO-samninguxinn verður loksins
uppsegjanlegur.
Á þessum tímamótum þakka ég öllum þeim mörgu, sem átt
hafa þátt í að endurskipuleggja starfsemi Alþýðubandalagsins á
liðnu ári. Það var ekki auðleyst verkefni, en því er nú að mestu
lokið farsællega. Alþýðubandalagið er nú í stakkinn búið að gegna
sínu hlutverki.
Svo óska ég lesendum Þjóðviljans og Iandsmönnum öllum gæfu
og gengis á því ári, sem nú fer í hönd.
Sendibílastöðim h.f.,
Borgartúni 21.
r a '
GLEÐILEGT NYTT AR!
Þökkum viðskiptin.
arðviiuislaxi sf
GLEÐILEGT NYTT AR!
Þökkum viðskiptin.
Faco,
Laugavegi 37 og 89
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Þökkum viðskiptin
MilM'atorgi,
GROÐURHUSIÐ
við Si'gtún.