Þjóðviljinn - 04.01.1969, Qupperneq 1
Laugardagur 4. janúar 1969 — 34. árgangur — 2. tölublað.
Skrá yfir ísl. skip 1969 komin út:
Íslenzkur skipastóll hefur
heldur minnkað frá í fyrra
4>-
SKRÁÐIR ATVINNULEYSINGJAR í
REYKJAVIK
7UNDA HUNDRAÐ
105 bœttust viS á fyrsta degi eftir áramótin
Er skráningu atvinnuleysingja í
Reykjavík lauk í fyrrakvöld hjá Ráðn-
ingarstofu Reykjavíkurborgar um
klukkan að verða 8 um kvöldið höfðu
á þessum fyrsta skráningardegi á ný-
byrjuðu ári látið skrá sig 105 manns
til viðbótar 502 er komnir voru á skrá
í lok síðasta árs, þ.e. á gamlársdag. Var
tala skráðra atvinnuleysingja í Rvík
þar með komin upp í 607 og er það um
50 fleira en atvinnuleysingjatalan fór
hæst í fyrravetur en það var 19. febrú-
úar. Hófst skráning atvinnuleysingja
ekki fyrr en í janúar í fyrravetur að
neinu ráði, fyrir áramót voru ekki að
jafnaði nema einn eða tveir menn á
á skrá.
Eftir kynjum skiptast þessir 607 at-
vinnuleysingjar. svo, að karlar eru 495
og bættist 101 við í fyrradag. Konur
voru hins vegar orðnar 112 í fyrra-
kvöld en voru 108 á gamlársdag.
I
Fjölmennasti hópur skráðra at-
vinnuleysingja eru verkametnn eða
277, sjómenn eru 57, trésmiðir 30,
# -
verzlunarmenn 21, múrarar 13, iðn-
verkamenn 10, matsveinár 10, aðrar
atvinnustéttir samtals 77. Afcvinnu-
lausar verkakonur eru skráðar 76, iðn-
verkakonur 17, verzlunarkonur 16 og
matreiðslukonur 3.
í gær var enn stanzlaus strauimur
fólks á Ráðningarsfofunni,\ nýir at-
vinnuleysingjar að láta skrá sig, en
tölur yfir þá lágu enn ekki fyrir síð-
degis í gær, er Þjóðviljinn átti tal við
forstöðumann Ráðningarstofumnar,
Ragnar. Lárusson. Bjóst hann við að
skráningu yrði haldið áfram fram á
* •
kvöld og nýjar yfirlitstölur ekki að fá
fyrr en að skráningu lokinni eða jafn-
vel ekki fyrr en með morgninum.
Þjóðviljanum barst í gær Skrá
yfir íslcnzk skip 1969, sem
Skipaskoðun ríkisins hcfur
gefið út og er þetta Iiklega
fyrsta bók ársins eins og jafn-
an áður. Er í bókinni að finna
skrá yfir öll íslenzk skip mið-
að við 1. janúar auk margs
konar'fróðleiks annars umís-
Ienzkan skipastól.
□ í fréttatilkynningu sem fylgúi
bókinni kemur m.a. fram, að
1. janúar 1969 voru í íslenzka
skipastólnum 842 skip samtals
144.621 brúttórúmlestir. Hef-
ur skipunum fækkað um 26
frá 1. janúar 1968 og skráð
brúttólestatala hefur einnig
minnkað um 5.240 Iestir.
□ í fréttatilkynningu skipaskoð- ’
unarstjóra segir m.a. svo um
íslenzka skipastólinn:
Heildamiðuir.s:töður yfir ísttemzk
skip 1. janúar 1969, eru þessar:
Fiskistkip uindir 100 rúmilestu'm
eru 529 taisins, aills 17.996 brúttó-
lestir. Fiskisikip 100 rúimilestir og
yfir, togairar ekki meðtaldir, eru
204 skdp, saimtals 43.101 brúttó-
lest. Fistkiskip önmur en togamar
eru bannig aillls 733 sfcip, samtais
61.097 brúttóOestir. Togarar eru
28 á skipaskrá, aMs 20.104 tjrúttó-
lestir. Allur fslenzki skipastól!-
inn var 1. janúar 1969, 842 skip,
samibals 144.621 brúttótestir, en
auk bess eru 'skráðir 1116 opm.ir
vélbá’tar, saimitalls 3062 brúttórúm-
lestdr.
Skip strikuð út af skipaskrá
árið 1968, og ný skip á árinu.
AMs voru 37 skip strikuð út af
sidpaskrá frá 1. jamiúar 1968 til
1. _ janiúar 1969, siamitals 6470
brúttólestir.
A árinu 1988 hafa beetzt í ís-
Framhald á 9. síðu.
Reykjavíkurganga '69
er a morgun
□ Á morgun kl. 2.30 hefst Reykjavíkurgangan
á Austurvelli. Áður en gangan leggur af stað flyt-
ur Ingimar Erlendur Sigurðsson rithöfundur á-
varp. Á leið Reykjavíkurgöngu verður haldinn
stuttur fundur og þar talar Birna Þórðardóttir um
hersetu Bandaríkjanna á íslandi og Vietnam-
stríðið.
□ Lcið göngunnar cr frá Aust-
urvelli, um Fríkirkjuveg, Sóleyj-
argötu, Njarðargötu, Eiríksgötu,
Miklubraut, Kringlumýrarbraut,
Laugaveg og Bankastræti og sið-
an Lækjargötu að Miðbæjarskól-
anum þar sem göngunni lýkur
með útifundi við Miðbæjarskól-
ann um verkalýðsmál.
□ Fundarstjóri verður Guð-
mundur J. Guðmundsson vara-
formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar og ræðumenn Sigur-
jón Pétursson trésmiður og Hair-
aldur Blöndal prentmyndasmið-
□ Megjnkröfur göngunnar eru:
1. Verndun skoðanafreisis áls-
landi og réttar til að koma skoð-
unum á framfæri samkvæmt
stjórnarskrá.
★
2. Valdbeitingarstefnu ríkis-
stjórnarinnar í kjaramálum verði
hnekkt. Innrás erlendra auðhringa
verði stöðvuð. — Mörkuð verði
bjóðleg sitefn^ í efnahagsmálum
með markvissa heildarstjórn á
atvinnumálum og utanríkisverzl-
un.
3 verkalýðsformenn hvetja
tíl Reykjavíkurgöngu 1969
□ Þrír formenn í þremur þýðingarmiklum félögum launafólks í
Reykjavík hvetja til Reykjavíkurgöngu .með eftirfarandi yfirlýsingu:
Við undirritaðir lýsum stuðningi við Reykjavíkurgöngu 1969 og
hvetjum fólk til þátttöku í henini.
, Eðvarð Sigurðsson, form. Vé rkamannafélagsins Dagsbrúnar.
Jón Snorri Þorleifsson, form. Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Guðjón Jónsson, forrá. Félags jámiðnaðarmanna.
Nýtt málgagn Alþýðubanda-
lagsins, VÍÐSJÁ, komið út
Ingimar Erlendur Sigurðsson
Guðmundur J. Guðjnundsson
gengi þiegar frá byrjun".
Þeir sem á binhvem hátt vilja
styðja hið nýja blað Alþýðu-
bandiailagsins hafi sambamd við
skritflstofiu þess haugavegi 11,,
sími 18081. s
Ct er komið nýtt blað ávcg-
um Albýðubandalagsins VlÐSJA.
Er að Iiví stefnt að blaðið verði
í framtíðinni gefið út hálfsmán-
aðarlega eða vikulega.
í fyrsta tölluíblaði VÍÐSJA.R
segir að bllaðið verði þó eklki
gefið út oítar en mánaðiarlega af
fjárhagsiieguim ástæðum, þó oft-
ar ef þörf krefur og fjárhagur
leyfir.
VÍÐSJÁ verður framivegisi 12
síðma bHað með eánd af inntend-
um og erlendum vettvan'gi. •
1 forsíðugredn um biaðdð: „Nýr
flokbur — nýtt blað“ segir Ragn-
ar Amalds formaður Alþýðu-
bandattaigsins: „Nýtt blað hefur
hafið gömgu sína. Það á érfitt líf
fyrir liöndum eine og öli bttöð.á
Islaindi um þessar muhdir nema
þá hellzt Morgunblaðið. VÍÐSJÁ
snýr - sér til' róttækra ýinsitri-
manna um land alJit og biður
þá að bregðást nú skjótt við og
tryiggja bttaiðSnU fjfettmennan hóp
áskrifenda. Sénstafclega vasntir
hún þess að alliir Alllþýðuibianda-
lagsmenn , veiti henni brauitar-
1 ■ 1 i 1 ~ í "
Happdrætti Þjóðviljans 1968:
Fullnaðarskil sem allra fyrst
□ Enn liggja 'ekki fyrir fullnaðarskil í Happdrætti Þjóð-
viljans 1968 og dregst birting vinningsnúmeranna því
í nokkra daga til viðbótar. Verður tekið á móti skilum
í happdrættinu til Hádegis í dag á afgreiðslu Þjóðvilj-
ans að Skólavörðustíg 19, sími 17500 og á skrifstofunni
í Tjamairgötu 20, sími 17512
□ Inniheimtu- og umboðsmenn happdrættisins sem enn
hafa ekki lokið uppgjöri eru beðnir að gera það sem
allra fyrst svo hægt verði að birta vmningsnúmerin
1 bnáðlega.
Sjö ára drengur
beið bana
Drengurinn sem varð fyr-
ir bíl á Eiríksgötu í fyrra-
kvöld Iézt af afleiðingrum
slyssins. Hann hét Guðjón
Matthíasson, var 7 ára
gamall og átti heima á Ei-
ríksgötu 25.
Drengrurinn var fluttur
. af slysstaðnum á slysavarð-
stofuna — sem er til húsa
i Borgrarspítalanum — 0g
þaðan vestur á Landakots-
spítala — en ejcki á Borg-
arspítalann. Verður það að
teljast furðuleg rá£étöfun.