Þjóðviljinn - 19.07.1969, Blaðsíða 4
■ 1IJ
(
u
4 SfBA — ÞJÖÐVTLJIISrN — I^augaírd'agur 19. júÍLí 1960
BALLETKEPPNIN
r
/
MOSKVU
Launafólk stjórni landina
|Jndanfarna mánuði hafa blöðin birt hverja frétt-
ina af annarri um landflótta — sagt hefur ver-
ið frá fjölmennum fjölskyldum, sem flytjast til
fjarlaégra heimsálfa og fregnir af iðnaðarmönnum,
verkamönnuím og skólafólki, sem fer til starfa er-
leridis, birtast dag eftir dag í blöðunum. Margoft
hefur verið bent á hér í Þjóðviljanum, að ástæðan
til þessa geigvænlega ástands er fyrst og síðast
stefna ríkisstjómarinnar; hún hefur gert gjaldmið-
il ísléndinga ónýtan gagnvart erlendum gjaldmiðli,
kaupið ér miklu lægra hér en annars staðar og
kaupgetan lakari, framleiðsluatvinnugreinarnar í
rústum. Landflóttinn verður ekki stöðvaður með
neins konar þvingunaraðgerðum eins og málgagn
ríkisstjómarinnar Morgunblaðið lagði til í vetur.
Fólkið leitar ævinlega þangað sem lífskjörin eru
skást. Og ísl. verklýðsstétt er svo vel verkmennt-
uð á alþjóðlegan mælikvarða að hún getur hvar
sem er fengið atvinnu. Eina leiðin til þess að koma
í veg fyrir landflótta er að fella ríkisstjórnina,
hækka kaupið, bæta lífskjörin og efla framleiðslu-
atvinnuvegina. Vilji Íslendingar áfram lif'a sam
sj^lfstæð þjóð í landi sínu yérða þelr að tryggja
hinn efnahagslega grundvöll. íslenzk menning og
tunga verða ekki varðvéitt í reisn sinni nema því
aðeins að efnahagslegur grundvöllur sjálfstæðis-
ins sé að fullu tryggður. Núverandi ríkisstjóm
hefur ekki tekizt að tryggja þennan efnahagslega
grundvöll. Enda er slíkt ekki í .samræmi við stefnu
hennar. Hún hefur frá öndverðu fjötrað sig á pen-
irigapólitík Alþjóðabankans, sem miðar að því að
gera smærri þjóðir æ auðveldari verkfæri stór-
þjóðanna innan alþjóðlegrar samsteypu auðvalds-
ríkjanna. Stefna ríkisstjórnarinnár er að setja okk-
ur á sama stig og þjóðir Suður-Ameríku-ríkjanna
em nú á, arðrændar og mergsognar af auðhringum
Bandaríkjamanna.
JJn ný stjómarstefna fæst ekki fram öðmvísi erí
að allur íslenzkur almenningur standi saman
gegn hinni háskalegu Stefnu ríkisstjómarinnar og
knýi fraim nýja stjórnarstefnu, sem er 1 þágu heild-
arínnar. Verkalýðshreyfingin, launafólk, á að
stjóma landinu. Launafólk er algjör meirihluti
þjóðarinnar og er sameinað miklu voldugra og
öflugra en fámenn yfirstétt enda þótt hún haldi
fjármagninu og ríkisvaldinu í sínum höndum. Og
verkalýðshreyfingin getur stjórnað landinu. Hún
verður aðeins að tiléinka sér þá óhjákvæmilegu
gmndvallarreglu að launafólk nær ekki árangri
af baráttu sinni nema með sameinuðum pólitískum
aðgerðum. Og við höfum mörg fordæmi frá síð-
ustu áratugum um að verkalýðurinn hefur alla
möguleika til þess að ráða landinu ef hann skil-
ur þéssa gmndvallarreglu og starfar samkvæmt
henni. íslenzka þjóðin hefur aldrei átt meira und-
ir því en nú, að launafólk taki sjálft stjómina í
s'nar hendur á pólitískum gmndvelli og að það
standi saman á jafn einarðan máta crg í verkfalli
eða almennri kjarabaráttu. — sv.
SEM KUNNUGT er af fyriri
fréttum var efnt í fyrsta
skipti til alþjóðlegrar ballet-
keppni í Moskvu i siðasta
mánuði- Þátttakendur í
keppninni voru um 90 tais-
ins frá 19 löndum. Þótti
keppni þessi takast svo vel,
að gera má ráð fyrir að oftar
verði boðað til slíkrar ballet-
keppni í Moskvu.
TRÚLEGA hefði þó balletkeppni
þessi í höfu^borg Sovétríkj-
anna "ékkí' vákið nei'na sér-
staka athygli hér á landi, ef
fslendingur hefði ekki verið
meðal þátttakendanna, Helgi
Tómassoin balletdansari sem
um árabil hefur starfað með
víðfrægum bandarískum
dansflokki, og sýnt í fjöl-
mörgum löndum.
HELGI TÓMASSON tók ekki
aðeins þátt í keppninni sem
einn af 90, heldur skipaði
hann sér í röð hinna al-
beztu, hlaut silfurverðlaunin
í sólódansflokki karla- Hefur
honum, eins og öðrum er-
lendum verðlaunaihöfum í
keppninni í Moskvu, verið
boðið að sýna við sovézk
balletleikhús á næsita leikári,
en óvíst er hvort Helgi getur
• tekið því boði.
HÉR A SÍÐUNNI eru fáeinar
svipmyndir frá balletkeppn-
inni í Moskvu.
Þama situr dómncfndin að störfum I Iiolsoj-lcilihúsinu í'ræga.
Sovczkx dansarinn Mikhail Barnsnikof tckur viö guttverðlaununum úr hendi Ulanovu.
Nýr aðalritari
franskra
sósíalista
PARÍS 17/7 — Franski Sósíall-
istafloklkuirinn kaius í daig semað-
alritara mann sem að sögn frétta-
miamins Reuithers er ákafur fyilg-
ismaður samvdnnu viö kjammún-
ista. Aladn Savary, en svo hedtir
hinin. nýi aðalritari, var kosimn í
starfið anicö 31 atkvæði, Pierre
Mauroy hlaut 19. Mauroy hefur
viljað fara varlega í sakimarum
samivinmu við kommúnista, en æ
•fleiri leiðtogar Sósíalistalflokksins
sikoða nú slika samvinnu som ail-
gert skiiflyrði íyrir því að fHqlkk-
urinn eigi sér ednhverja framitíð.
Savary, som er 51 árs gamail,
hefur verið áberandi imieöal ým-
issa vinstrísamtaika og var einn
af þedm, sem til grtedna kom,u
sem forsetafnamibjóðandi við
kosninigamar í maá, áður en Slós-
íallístar urðu samimála um að
bjóða fraan Gaston Deferre.
Frá verðlaunaafhendingu að lokinni ballctkcppmnni i Rolsoj-Icikhúsinu I júní. Það cr hin fræga
dansmær Ulanova sem er að afhenda tveim af dönsurum Grand Oper í París verðiaun.
— málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis •—
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson fáb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórl: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýslngastj.: Óiafur Jónsson.
Framkv.st|óri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðust. 19. Síml 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 150,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Helgi Tómasson dansar á sviði
Bolsojleikliússins.
l