Þjóðviljinn - 19.07.1969, Síða 8
g —í&o&wmmm—’BEweawSacor *. 'fm-weo
ROTTU-
KÓNGURINN
EFTIR
JAMES
CLAVELb
— Hamingjan hjálpi mér, sagði
Peter skelkaður. — Ég gæti eins
reynt að fljúga eins og að reyna
að selja eitthvað.
— Þú getur flogið.
— Án flugvélar á ég við.
Þeir fóru að hlæja og glaðir
yfir því að vera vinir á ný gengu
þeir af stað gegnum frumskóg-
inn.'Þegar þeir voru komnir fram-
hjá svæðinu, þar sem vörðurinn
var á sveimi, fóru þeir eftir mjó-
um stíg og brátt voru þeir hálfam
kílómetrq frá búðunum. Kóngur-
inn var á undan,
Svo komu þeir auga á byssu-
stinginn sem beindist að þeim
•og námu snögglega staðar.
Japaninn sat upp við tré og
horfði beint á þá. Skelfilegt glott
!ék um andlit hans og byssusting-
urinn studdist við hnéð á honum.
Þeir -hugsuðu báðir hið sama.
Guð minn góður!
UtA’am Road! Það er úti um
bkkur, Drepum hann!
Kóngurinn var skjótari í við-
brögðum sínum. Hann æddi að
varðmanninum, þreif af honum
byssuna og lyfti skeítinu til að
berja hann í höfuðið. Peter Mar-
Iowe bjóst til að grípa fyrir kverk-
ar honum, en eimhver eðlisávísun
varaði hann við, og hann dró að
sér hendurnar. — Burt með þig!
Peter Marlowe tók viðbragð og
dró kónginn burtu.
Varðmaðurinn hafði ekki hreyft
sig. Sama illgirnislega glottið var
enn á andliti hans.
— Hvað er þetta maður? Kóng-
urinn tók andköf, skelkaður og
enn með riffilinn á lofti.
t .»-«,Komdu héðar.. í guðs bænum
flýttu þér.
Peter Marlówe þreif ri'ffilinn úr
jliöndjjm kóngsins og fleygði hon-
um að dauða Japananum.
Þá kom kóngurinn auga á slöng-
una hjá manninum. — Hamingj-
an góða, stundi hann þegar hann
gekk nær til að athuga þetta
nánar.
Peter Marlowe reif og togaði
í hann- — Komdu héðan. Hlauptu
í Guðs bænum..
Hann hljóp allt hvað af tók
burt frá trjánum. Kóngurinn þaut
á eftir honum og þeir námu ekki
HARGREIÐSLAN
Hárgreiðslustofa
Kópavogs
Hrauntumgu 31 Sími 42240«
Hárgreiðsla. Snyrtingar.
Snyrtivörur. .
Fegrunarsérfræðingur á
staðnum.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Ðódó
Laugav 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-0-68
staðar fyrr en þeir komu í rjóður.
— Brtu bandóður? stundi kóng-
urinn. — Þetta var bara slanga.
— Það var eiturslanga, hvæsti
Peter Marlowe- — Þær lifa í
trjánum og eru bráðdrepandi.
Þær skríða upp trén og láta sig
detta niður á fórnarlambið. Ein
var á hnjám hans og önnur un'd-
ir honum/ I raun og veru eigum
við að vera þeim þakklátir. Jap-
aninn var enn volgur. Hann hef-
ur ekki verið dauður nema í
nokkrar mínútur. Hann heíði grip-
34
ið okkur, ef hann hefði ekki orð-
iö fyrir biti. Og við megum vera
þakklátir fyrir að hafa lent í
þessu rifrildi. Það gaf slöngunum
tíma. Viö höfum aldrei verið nær
dauðanum.
— Já, við skulum koma burt
héðan, sagði kóngurinn, og hroll-
ur fór um hann.
Þegar þeir voru komnir að
gaddavírnum, settust þeir oj? biðu-
Þeir gátu ekki enn skriðið gegn-
um hann. Enn voru bf margir úti
á sveimi. Það vpru alltaf vofur á
ferð um búðirnár, þeir sem ekki
gátu sofið og þeir sem voru hálf-
sofandi.
Það var gott að hvíla sig, hnén
skullfu undir þeim og þeir voru
þakklátír yfir því að vera á lífi.
En sú nótt, hugsaði kóngurinn.
Ef Peter hefði ekki verið með
mér, hefði ég nú verið steindauð-
ur. Ég ætlaði að stíga ofan á Jap-
anann þegar ég lyfti rifflinum.
Löppin á mér var ekki nema sex
tommur frá honum. Ég hata
slöngur. Þessi bölvuð skriðdýr.
Og þegar kóngurinn róaðist
ögn, jókst virðing hans fyrir Pet-
er Marlowe.
— Þetta er í annað sinn sem þú
bjargar lífi mínu, hvíslaði hann-
. — Þú varst á undan að ná riffl-
inum. Ef Japaninn hefði ekki ver-
ið dauður, þá hefðir þú drepið
hann. Ég var of seinn á mér.
— Ég var fyrir framan þjg,
maöur. Kóngurinn brosti. —
.Heyrðu Peter. við erum ágætir
.saman. Með útlit þitt ög gáfur
mínar ætti okkur að vera borgið.
— Líttu á, sagði Peter Marlowe
og þaggaði niður í honum, Grey
kom gangandi handan við gadda-
vírinn. Þeir sáu hann stanza fyrir
utan bandaríska braggann. Þeir
sáu hann bíða í skugganum og
stara út yfir gaddavírinn, næstum
beint á þá.
— Heldurðu að hapn viti um
þetta? hvíslaði Peter Marlowe-
— Ég er ekki viss. En það er
ekki óhætt að skríða inn fyrir
núna. Við verðum að bíða.
Þeir biðui Himinninn fór' að
lýsast. Grey stóð í skugganum og
horfði á bandariska braggann-
Kóngurinn vissi að Grey gat séð
rúmið hans þaðan sem hann stóð.
Hann vissi að Grey gat séð að
hann lá ekki í því. En teppin
voru tekin af því og það gat verið
að hann væri úti á sveimi með
þeim sem voru andvaka. Það
varðaði ekki við lög að vera and-
vaka.
Þeir biðu. Þeir sáu að Grey
skimaði enn einu sinni út yfir
girðinguna og síðan fór hann
burt. Þeir fylgdust með honum
þangað til hann hvarf fyrir horn-
ið hjá fangelsismúmum.
— Þetta getuir verið bragð,
sagði kóngurinn. — Við skulum
gefa honuin nokkrar sekúndur
enn.
Sekúndurnar voru eins og
klukkustundir þegar farið var að
birta og skuggarnir að dvína)
Nú sást enginn í nánd vjð girð-
inguna.
— Komdu; það er nú eða aldrei-
Þeir þutu að girðingunni og eft-
ir andartak voru þeir komnir
gegnum hana og niður í skurð-
inn.
— Farðu heim í braggann,
Rajah. Ég bíð andartak.
— Allt í lagi.
Þrátt fyrir stærðina var kóng-
urinn léttur á fæti og var fljót-
ur heim í skála sinn. Peter Mar-
lowe skreiddist upp úr skurðin-
um. Eðlisávísun fékk hann til að
doka við á skurðbakkanum og
horfa út yfir girðinguna. Svo sá
hann út undan sér að Grey kom
fyrir hornið og stanzaði. Hann
vissi strax að það hafði sézt til
hans.
— Marlowe.
— Ó, eruð það þér, Grey. Getið
þér ekki sofiö hpldui’? sagði hann
og teygði sig.
— I-Ive lengi hafið þér verið
hér?...... .............
— Nokkrar mínútur. Ég var
orðinn þreyttur á rápinu, svo að
ég settist. /
— Hvar er vinur yðar?
— Hver? •
— Kaninn, hvassti Grey.
— Ég veit það ekki. Ætli hann
sé ekki sofandi.
Grey horfði á . kínverska bún-
inginn. Blússan var rifin um axl-
irnar og rennvot af svita. Leir
og trjálauf voru á maga hans og
hnjám.
— Hvernig hafið þér farið að
því að verða svona skítugur? Og
af hverju eruð þér svona sveitt-
ur? Hvað er á seyði?
— Ég er skítugur vegna þess —
er nökkuð athugavert við heiðar-
legan skít, sagði Peter Marlowe
um leið og hann reis á fætur og
burstaði af buxuoum sínuim. —
Og ég er sveittur af sömu ástæðu
og þér eruð Sveittur. Þér vitið —
hitabeltið, hitinn og það allt sam-
an. . . .
— Hvað eruð þér með í vösun-
um?
— Þér haldið auðvitað að allir
séu með vasana fulla af bannvöru.
Það er ekki bannað að ganga um
í búðunum þegar maður getur
ekki sofið.
— Stt er það, svaraði Grey, —
en það er bannað að fara út fyrir
búðirnar.
Peter Marlowe horfði kæruleys-
islega á hann, en honum var ó-
rótt. Hvern fjandann átti Grey
við með þessu? Vissi hann eitt-
hvað? — Það væri hreinasta brjál-
æði að reyna það.
— Já, satt er það. Grey horfði
á hann lengi og alvarlega. Svo
snerist hann á hæli og gekk burt-
Peter Marlowe starði á eftir
honum. Hann gekk sjálfur í hina
áttina og leit ekki í áttina að
bandaríska bragganum: 1 dag
kæmi Mac heim af sjúkrahúsinu.
Peter Marlowe brosti þegar hann
hugsaði um gjöfina sem hann
myndi færa honum við heimkom-
una. '
ÞRIÐJA BÓK
15
Það var rétt eftir dögun-
Peter Marlowe lá hálfsofandi
í fleti s’nu. Hafði þetta verið
draumur? spurði hann sjálfan
sig og allt í einu var hann glað-
vaknaður. Svo snerti hann var-
lega klútbleðilinn sem þéttirinn
var vafinn í, og vissi að það hafði
ekki verið neinn draumur. Hann
fór fram úr bg vakti Larkin.
— Hæ, Peter, sagði Larkin og
barðist við svefninn- — Hvað er
á seyði?
Það var erfifct fyrir Peter að
þegja um fréfctina af þéttinum, en
kominn líka. Loks kom Mac. Hann
var gulleitur í andliti, augu hans
blóðhlaupin og hendur han,s
skulfu, en hitasóttin var um garð
gengin. Hann gat aftur brosað.
— Það er gott að þú ert kom-
inn aftur, sagði Larkin.
— Já, er það ekki?
Peter Marlowe tók fram litla
pakkann, hirðuleysislegur í fasi-
— Já, annars, sagði hann með
uppgerðar kæruleysi. — Kannski
geturðu gert eitfchvað við þetta.
Mac vafði utanaf pakkanum
áhugalaust.
— Hamingjan hjálpi okkur,
sagði Larkin.
Tökum að okkur
viðgerðir, breytingar, viðbyggingar, gler-
ísetningu og mótauppslátt. Útvegum einn-
ig menn til flísalagninga og veggfóðrunar.
Athugið: Tökum einnig að okkur verk upp
til sveita. — Vönduð vinna með fullri
ábyrgð. — Sími 18892.
FéiS þér (slenzk gólftepp! frði
TEPPU
Zlltimct
TEPPAHÚSIfl
Ennfremur ódýr EVLAN teppf.
Sparið tíma og tyrirhöfn, og verzfiK á einum stað.
SUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAViK PBOX1311
Jarðýtur - Traktorsgröfur
' Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur, traktors-
gröfur og bílkrana til allra framkvœmda, innan
sem utan borgarinnar.
arövixinslan sf
Síðumúla 15. — Símar 32480 og 31080.
Heimasímar 83882 dg 33982.
HÚSEIGENDUR
Tek að mér að skafa upp og olíubera úti-
hurðir og hverskonar utanhúss viðar-
klæðningu. — Upplýsingar í síma: 20738.
Trésmiðaþjóqustan
veitir húseigendum fullkomna viðgerða- og við-
haldsþjónustu á öllu tréverki liúseigna þeirra,
ásamt breytingum og annarri smíðavinnu úti sem
inni. — SÍMI 41055.
HÚSAÞJÓNUSTAN s.f.
MÁLNIN GARVINNA
ÚTI — INNI
Hreingerningar, lagfœrum ýmis-
legt s.s. gólfdúka, flísalögn, mós-
aik, brotnar rúður og fleira.
Þéttum steinsteypt þök. —
Bindandi -tilboð, ef óskað er.,
SÍMAR: 40258 og 83327
SÓLÓ-eldavélar
Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgum stœrðum og
gerðum. — Einkum hagkvœmar fyrir sveitabæi,
sumarbústaði og báta.
Varahlutaþjónusta.
■
Viljum serstalclega benda á nýja gerð einhólfa
eldavéla fyrir smærri báta og litla sumarbústaði.
ELDAVÉLAVERKSTÆIH
JÓHANNS FR.
KRISTJÁNSSONAR h.f.
Kleppsvegi 62 — Sími 33069.