Þjóðviljinn - 01.09.1970, Side 3
Þrið'judcigur X. sfeptelmlber 1970 — T’JÓÐVTLiJINN — SÍÐA J
Indénesískir stúdentar lögðu
undir sig sendiráðið í Haag
HAAG 31/8 — Hópur ungra indónesískra stúdenta réðst
í dag inn í sendiráð Indónesíu í Haag og hafði það á valdi
sínu um tíma. Við innrásina kom til skothríðar milli inn-
rásarmanna og hollenzks lögreglumanns sem var skotinn
til bana.
Ekki var gott að ráða af firétt-
um hvað olli þessari aðgorð stúd-
entanna, en sennilega hafa þeir
viljað vekja athygli á ógna.r-
sitjórn þeirri sem ríkir í Indó-
nesíu síðan herforingj arnir tóku
þar völdin af Súkarno og sam-
starfsmönnum hans og stjórn-
uðu einu mesta blóðbaði sög-
unnar; hundruð þúsunda
Harðir barrfagar
trið Phnom Penh
PHNOM PENH 31/8 —
Harðir bardagar geisuðu í
nœsta nágrenni við Phnom
Penh, höfuðborg Kam-
bodju, snemrna í dag og
var haft eftir talsmanni
herforingjastjórnarínnar að
hersveitir hennar hefðu
orðið að hörfa undan
þungri sókn þjóðfrelsishers-
ins sem tók á sitt vald
m. a. baeinn Srang sem
sagður er munu verða mik-
ilvægur í frekari átökum.
„kommúnistia" létu lífið ; því.
t>á er sennilegt að stúdent-
arnir hafi viljað mótmaela vænt-
anlegrí opinberri heimsókn Súh-
artos hershöfðinigja, heilzta leið-
toga herforingjanna, til Hol-
lands, en þangað var hann
væntanlegur innan skamms. Til-
kynnt var í Djakarta í diag að
Súhairto hefðj ákveðið „að fresta
för sinni til Hollands um sinn“.
Mótmæli boðuð
Ýms samtöik vinstrimanna
höfðu boðað mótmælaaðgerðir
meðan Súharto dvelddst í Hol-
landi og taka sendiráðsins hefur
sennilega verið fyrirboði þess
sem orðið hefði ef hann hefði
ekki ákveðið að „fresta" heim-
sókn sinni,
Stúdentamir héldu sendiráð-
inu aðeins fáar kluk'kustundir
en gáfu sig þá sjálfviljugir á
vald hollenzku lögireglunni
sem flutti þá í fangelsi. Tals-
maður sfúdenta sagði að- þeim
hefði verið heitið griðum og
myndu þeir ekkj verða sóttir
til saka, hvorki fyrir innrás-
in,a né víg lögreglumannsins.
Allt í uppnámi
á popp-hátíá
DONDON 31/8 — Allt
ætlaði um koll að beyra
í lok popp-hátíðarinnar sem
haldin var aftur í ár á
eynni Wight. Lögreglan
fékk ekki við neitt ráðið
og þótt langflestir þátttak-
enda, sem taldir eru hafa
verið um 130.000, hafi hag-
að sér skiikkanlega, var
meðal þeirra allfjölmennur
hópur sem lét sér á sama
standa um allt velsæmi og
vann hvers kyns spjöll á
mannvirkjum og er tjónið
af þeirra völdum metið á
ein 30.000 sterlingspund.
□ SMURT BRAUÐ
□ SNITTUR
□ BRAUÐTERTUR
BRAUÐHVSIÐ
...éjTSACK BÁR
við Hlemmtorg.
Laugavegi 126,
Sími 24631.
Abdul Rahman
dregur sig í hlé
KUALA LUMPUR 31/8 — Tunku
Abdul Rahman, hinn aldraði
forsætisráðherra Malasíu, til-
kynnti um helgina að hann ætl-
aði að diraga sig í hlé frá
stjórnmálum og segja af sér em-
bætti 21. september n. k. Hann
boðaði samtímis að varaforsætis-
ráðherrann Tun Abdul Razak
myndi taka við embætti hans.
Uppreisn Bandarikjamanna í
Kaliforníu af Mexíkóættum
LOS ANGELES 31/8 — Blóduigir
bardagar urðu á götum Los
Angeles í fyrrakvöld þegar þús-
undir Bandaríkjamanna af mexí-
könskum ættum efndu til mót-
mæla gegn stríðinu í Víetnam.
Til mótmælanna hafði m. a. ver-
ið boðað vegna þess að tiltölu-
lega stærrí hluti ungra manna
af kyni þessa fólks hefðj verið
sendur til að berjast í Víetnam
en Bandarfkjamanna almennt.
Beita byssunum óspart
Lögreglan beitti skotvopnum
sínum til að dreifa mannfjöld-
anum og skaut til bana a. m. k.
einn mann, Rufoen Salazar, að
nafni sem sagður er kunnur
blaðamaður vestur þar. Annar
maður var í gær milli heims
og helju, en um 60 manns munu
hafa hlotið skotsár eða aðra á-
verka í viðureigninni við hina
vopnuðu lögreglumenn. Brot úr
táragassprengju sem Salazar fékk
í höfudið varð honum að bana,
en hann var sjálfur Mexíkóbúi
að ættemi.
119 manns voru handtekin.
Utgöngubann var sett í stórum
hluta borgarinnar, en þegar leið
á nóttina komst aftur á röð og
regla í hverfum Mexíkóbúa en
loft er þar enn lævi blandið.
Mesta hafnarborgin í Evrópu
í lamasessi vegna verkfalls
ROTTERDAM 31/8 — Rotterdam, mesta hafnarborg. Evr-
ópu, var í algerum lamasessi í dag vegna verkfalls 30.000
hafnarverkamanna sem lagt höfðu niður vinnu til að knýja
fra’m kröfur sínar um kauphækkanir.
í fréttum í morgun var saigt
að búast mætti við því að samn-
Æfinga- og tilraunaskóli
Kennaraskólans
tefcur til starfa þriðjudaginn 8. september. Börn-
in komi í skólann sem hér segir:
Kl. 9,00 12 ára deildir
— 9,30 11 ára deildir
— 10,00 10 ára deildir
— 10,30 9 ára deildir
— 11,00 8 ára deildir
— 14,00 7 ára deildir
Skólaganga 6 ára barna hefst 1 byrjun október.
Skólastjóri.
Frá Barnaskólum
Reykjavíkur
Börnin komi í skólana fimmtudaginn 3.
september sem hér segir:
1. bekkur (börn f. 1963)
2. bekkur (böm f. 1962)
3. bekkur (börn f. 1961)
4. bekkur (böm f. 1960)
5. bekkur (böm f. 1959)
6. bekkur (börn f. 1958)
Kennarafundur sama dag kl. 9 f.h.
i
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
3. sept. kl. 10,00 f.h.
3. sept. kl. 11,00 f.h.
3. sep.t kl. 11,30 f.h.
3. sept. kl. 1,00 e.h.
3. sept. kl. 1,30 e.h.
3. sept. kl. 2,00 e.h.
ingar myndu takast milli verka-
manna og atvinnurekendia og
hafnarstjórnin í Rotterdam
kvaðst vongóð um að verka-
menn myndu snúa aftur til
vinnu í dag.
Úr því varð þó ekk; þv; hafn-
arverkamenn höfðu ekki orðið
á eitt sáttir um bráðaibirgðasiam-
loomulag sem samningamenn
þeirra höfðu gert við atvinnu-
rekendjr um helgina.
Kröfur „öfg;amanna“
Vinstrislinniar meðal hiadlnar-
verkamanna voru í Reuters-frétt
sagðir hafa hvatt félaga sína til
að fella bráðabirgðasamkomu-
lagið og talsmaður hafnarstjóm-
arinnar kenndi „öfigamönnum"
um og sagð; að þeir reyndu að
færa sér ástandið í nyt og hefðu
hópar vinstrimanna krafizt enn
meiiri kaúphækfcunar og kjara-
þóta en þegar hefðj verið fallizt
á að greiða þeim.
Verkföllin í Rotterdam hafa
ekki aðedns tefcið til hafnar-
verfcamanna heldur einnigskipa-
smiða og vélvirkja við hinar
miklu skipasmíðastöðvar í bor-g-
inni, sem og reyndiar í öðrum
hafniarborgum Hollands. Þetta
verkfall sem kallað er „ólöglegt"
er það fyrsta sem orðið hefur
við höfnina í Rotterdam síðan
1947 og bneidd'ist þaðan út til
annarra hafnarborga.
F U N D I Ð
sendiferðahjól.
Upplýsingar á Óð-
insgötu 8, sími 26533
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Tónlistarsfcólinn í Reyfcjavík tekur til starfa 1.
október. Umsófcnarfrestur er til 15. september og
eru umsóknareyðublöð afhent í Hl'jóðfæraverzl-
un Poul Bernburg, Vitastíg 10.
Nýr flokkur í SÖNGKENNARADEILD byrjar í
haust og er námstími þrír vetur.
Nánari upplýsingar um námið og inntökuskilyrði
verða veittar næstu daga á skrifstofu skólans
milli kl. 11 og 12.
INNTÖKUPRÓF verða sem hér segir: í söngkenn-
aradeild mánudaginn 21. september kl. 4 síðdegis.
f aðrar deildir skólans þriðjudaginn 22. septem-
ber kl. 4 síðdegis.
Skólastjóri.
Ekki bara falleg
Hurðirnar okkar þekkjast af fallegri áferð,
vöidu efni og faglegum frágangi. Hitt sést
ekki eins vel. Þær eru gerðar með
fullkomnustu tækni, sem hér þekkist. Smiðirnir
hjá okkur smíða fátt annað en hurðir, —
en því meira af hurðum. Þess vegna merkjum'
við hurðirnar, sem fara frá okkur.
Þá geta allir séð, að þær eru ekki þara
falleg.ar, — heldur líka góðar.
SE. INNIHURDIR ■ GÆDI í FYRIRRÚMI
SIGURÐUR
ELÍASSON HE
AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI,
SÍMI 41380
Skrifstofur vorar
í Reykjavík og Reykjalundi verða lokaðar eftir.
hádegi í dag vegna jarðarfarar.
S. 1 B. S.
Vinnuheimilið að Reykjalundi.
Skriftarnámskeið
hefst föstudaginn 4. sept. Kennd verður skáskrift,
forínskrift, blokkskrift 'og töfluskrift.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir.
Sími 12907.
Tilkynning
Samkvæmt samningi milli vörubílstjórafélagsins
Þróttar í Reykjavík og Vinnuveitendasambands
Islands, og samningum annarra saTnbandsfélaga,
verður leigugjald fyrir vörubifreiðar frá og með
1. september 1970 og þar til öðruvísi verður ákveð-
ið eins og hér segir:
Ðag-v. Eftirv. Nætur-
og helgidv.
Fyrír 2V2 tonna bifr. 246,60 283,30 320.00
— 2l/2 til 3 , t. hlassþ. 273,10 309,80 346,50
— 3 — 3% — — 299,60 336,30 373,00
— 3V2 — 4 — — 323,90 360,60 397,30
— 4 — 414 — — 346,00 382,70 419.40
— 4% — 5 — — 363,80 400,50 437,20
— 5 _ 5% — — 379,20 415,90 452,60
— 5% — 6 — — 394,70 431,40 468,14
— 6 — 6% — — 407,90 444,60 481,30
— 6% — 7 _ — 421,20 457,90 494,60
— 7 _ 7X4 _ _ 434,50 471,20 507.90
— IV2 — 8 — — 447,80 484,50 521,20
Iðgjald atvinnurekenda til Lífeyrissjóðs Landssam-
bands vörubifreiðastjóra innifalið í taxtanum.
Landssamband vöruhifreiðastjóra.