Þjóðviljinn - 26.11.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.11.1970, Blaðsíða 1
Frumvarp um þurrkví í Reykjavík Fimmtudagur 26. nóvember 1970 — 35. árgangur — 270. tölublað. ■ Tveir þingmenn Al- þýðubandalagsins. Magn- ús Kjartansson og Eðvarð Sigurðsson fluttu í gær frumvarp á Alþingi um þurrkví í Reykjavík. ■ Þetta er stónnál fvrir höfuðborgina og raunar landið allt, og gerir fru’m- varpið ráð fyrir að stofn- að verði hlutafélag ríkis- ins, Reykjavíkurborgar og fleiri aðila til málinu fram. að koma ■ Frá þessu merka þing- máli verður skýrt í næstu blöðum. Umræður á Alþingi um tillögu Alþýðubandalagsins um rannsóknarnefnd: Hverjir hræðast rannsóknir á verðhækkanaskriðunni í sumar Við skulu'm minnast þess, að þótt um sé að ræða meiri- hluta og minnihluta á þingi og oft ha-rðan ágreining milli stjóiTiarsinna og stjómarandstæðinga þá eru ráð- herrar einnig ráðherrar þjóðarinnar allrar. Þeim e-ru falin mikilvæg ábyrgðarstörf sem varða þjóðina í heild. Þetta ber ráðherrum ævintega að muna í öllum athöfn- um sínum og forðast sérstaklega, hvort sem það er af gáleysi eða ásetningi, að unnt sé að misnota vald þeirra eða vitnesk'ju af forréttindahópum í þjóðfélaginu, sagði Magnús Kjartansson í umræðum á Alþingi í gær. „Eg er þeirrar skoðunar að ýmsir geri nú minni kröfur til sjálfra sín hér á landi en nauðsynlegt er, og hafi sú lausung verið að ágerast á síðustu árum. Tillaga sú sem hér er flutt felur ekki aðeins í sér kröfu um eðlilega og raunar óhjákvæmilega rannsókn, heldur er henni einnig ætlað að leggja áherzlu á nauðsyn aukins aðhalds og sjálfsvirðingar hjá opinberum sýslunannönnum.“ Frá Rannsóknarstofmm bygrgingariðnaðarins. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).^ TilHagan sem rminnzt er á, og Magnús var aö halda framsögu- ræöu um, var tiMaigan um nann- sákn á aðdraganda verðstöövun- arinnar. Magnús lýsti fyrst tillögunni, Fjárskortur háir rmnsékmm i þágu byggingariðnaBurins □ Forsvarsmenn Rgnnsóknarstofnunair byggingariðnaðarins efndu til bl'aðamannafundar í gær og meðal þess sem kom fram á fundinum var að til rannsóknarstarfa í þágu bygg- ingariðnaðarins er varið um einu prómilfe af allri fjár- munamyndun í iðngreininni á ári. Til samanburðar var þess getið að erlendis færi rannsóknarkostnaður upp í 2% af kóstnaði við fjárfestingu í byggingariðnaði. Á blaðamannafundinum í gser var gerð grein fyrir staxfsemi stofnunarinnar sem felst í hvers konar rannsóknajrstaxfsemi fyrir byggingariðnaðinn. Kom það fram á blaöamannafundinum í máli tormanns stjórnar stofnun- arinnar Sveins K. Sveinssonar, að stofnunin er fjárvana og getur því ekki sinnt sem skyldi þeim verkefnum, sem óneitanlega eru á hennar verksviði, eins og þvi að hafa beint frumkvæði að ýmsum rannsóknum auik gæða- mats og fleiri verkefna. Forstjóri Rannsóknarstofnuna.r byggingariðnaðarins er Haraldur Ásgeirsson og hefur stofnunin nú sitarfað í fimm ár. Stjórnárfor- maður er sem fyrr segir Sveinn K. Sveinsson, en auk hans eru í stjóminni þeir Guðmundur Þór Fálsson arkitekt og Grímur Bjamason pípulagningameistari. Deildarstjórar eru þeir dr. Guðmundur Guðmundsson, verk- fr. t>g dr. Ragnar Ingimarsson, verfcfr. Starfandi sérfræðingar við stofnunina eru fimm talsins, þeir Guðjón I. Stefánsson, verk- fr., Gunnlaugur I. Pálssom, arki- tekt, Hákon Ólafsson, verkfr., dr. Óttar P. Halldórsson, verkfr. og Sverriir Soheving Thorsteinsson, jarðfiræðmgur. Nú eru alls starf- andi við stofnunina 25 sérfræð- ingar, forstöðumenn og aðstoðar- menn. Rannsóknarstotfnun iðnaðarins sinnir fjölþættum rannsóknum. Þar má nefna rannsófknir, sem snerta vega- og gatnagerð, steypurannsóknir, jarðvegsrann- sóknir- af ýmsu ta-gi, og fleira. Þá annast stofnunip útgáfustarf- semi, kennslu og fræðslustarf- serni. Stofnunin er til húsa í nýrri byggingu á Keldnaholti, en þar er þegar orðið allt of þröngt um stahfsemi stofnunarinnar. en samkvæmt henni kýs neðri deild rannsótonamefnd þing- manna í samrasmi v:ð ákvæði 39. gr. stjómarskrárinnar, sem ætluð eru tvö verkefni: Að rann- saka aðdraganda verðstöðvunar þeirrar sem kom til framkvæmda 1. nóvember, það er að segja verðlagsþróunina, sem leiddi til þessarar svokölluðu verðstöðvun- ar nú í haust; og í öðru lagi að rannsakað sé sérstaklega þró- un verðlagsmála eftir að for- sætisráðherra boðaði það í sjón- varpi með 18 daga fyrirvara að verðstöðvunaraðgerðir væru væntanlegar. Henti Maginús góðlátlega gam- an að þeim tdlburðuimi Fram- sóknarþingmanna að filytja einn- ig tillögu um slífca rannsótonar- nefnd rétt etftir að tillaga Al- þýðubandalagsins var kcmdn fram, og átti sú nefnd að sjá um fyrra vertoefnið. Framsöton- Hðfitarfjörður — Garðahreppur Alþýðubandalagsféílögin í Hafn- arfirði og Garðahrepp: halda ratobfund í Strandgötu 41 (ihús- næði Skálans) í kvöld ki. 20.30. Gestur fundarins, ViIborgDag- bjartsdóttir kennari, ræðir um sitöðu .konunnair í þjóðfélaginu, rauðsoktoatoreyifinguna o. fl. Kaffiveitingar. Fólagar, fjölmennið. — Stjórnirnar. arþingmaðurinn, sem talaði íum- ræðunum, Halldór E. Sigurðs- soin, vakti einkum attoygl: með því að lýsa yfir að Framsóknar- menn myndu ekki greiða atkvæði með tillögu Magnúsar, og taildi Jóhann Hafctein það eintoar merkilegt! ★ Farið að lögum. Jóhann Hafistein og Matthías Á. Mathiesen höfðu báðir ráðizt á þessa tillögu í umræðunum um verðstöðvunarfrumvarpið, en Magnús var þá erlendis. Svaraði hann nú málfilutningi þeirra með tilvitnunum í rœeður þeirra. Með- al annaars hafði Jóhann Hafstein lýst yfir, að hann myndi etoikert mark taka á tillögu Alþýðubanda- lagsins vegna þess að fflutnings- mönnum hefði verið sikylt að kæna sig fyrir Landsdöm: ef þeir ál'iitu hann sekan! Magnús benti ráðherra á. að Framhald á 9 síðu. 1630 þúsund til hjálparstarfsins: Þurrmjóik og teppi sent til Pakistan — Rauði krossinn og kirkjan safna Fimm tonn af mjólkurdufti og stór farmur af tcppum hefur verið sent frá ísiandi til fióða- svæðanna í Austur Pakistan, en alls nemur söfnun Rauða kross- ins með framiagi ríkissjóðs orðið lVz miljón í peningum og öðru verðmæti og söfnunin á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar 130 þús. kr. Framlag rfkissjóðs nam 900 þús. krónum, en auk þess hefur safnazt hjá RKl verðmæti að upphæð kr. 600 þúsund í pen- ingum og öðmm framlögum, en söfnuninni lýkur um helgina, sagði Eggert Ásgeirsson fulltrúi Þjóðviljanum í gær. Hefur Rauði krossinn þegar sent hjálpargögn Og fjármuni að verðmæti um 1200 þúsund kr. út, peningana til Allþjóða rauða lcrössins, en vör- urnar beint, mjólkurduft og teppi, sem Loftleiðir hafa fflutt til London, þar sem Flugfélag Pakistans tekur við farminum og flytur áfram til Dacca. Þaðan em birgðaflutningar með þyrlum, smábátum og öllum tiltækum farartækjum til flóðasvæðanna. Hjálparstofnun íslenzku kirkj- unnar er aðili að hjálpairstarfi hliðstæðra stotfnana dönsfcu og þýzku kirknanna og hefur gert ráðstafanir til að senda kr. 250 þúsund upp í gredðslu kostnaðar við það, segir í fréttatilkynningu firá stotfnuninni frá í gær. Hafia hjálparstofnuninni þegar borizt kr. 130 þúsumd vegna aðstoðar- innar við Austur-Pakistan Og hafa viðbrögð almennings verið Framihald á 9. síðu. Fundur um landbúnsðarmá! á Selfossi r Kjördæmisráð Alþýðubanda- iagsins á Suðurlandi boðar umræðufund UM LANDBtJN AÐARMÁL á sunnudaginn. — Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi o.g hefst hann kl. 2 s.d. r Málshefjendur em þeir Rík- harður Brynjólfsson, Stefán Sigfússon og Sigurður Brynj- ólfsson. r Stuðningsmenn Alþýðubanda- lagsins á Suðuriandi eru hvatt- ir til þess að fjölmenna á fundinn. P Vörur og þjónusta hafa hækkað um 11 vísitölustíg \ \ \ \ • Þjóóviljanum barst í gær fréttatilkynning frá Hagstofu Islands um útreikning vísitölu framfærslukostnaðar í nóvem- berbyrjun. Reyndist vísitalan 154 stig miðað við grundvöll- inn 100 2. janúar 1968 og hef- ur hækkað um 7 stig frá því hún var reiknuð út síðast en það var í byrjun ágúst s. 1. • Kauplagsnefnd hefur einn- ig reiknað út kaupgreiðslu- vísitölu fyrir tímabilið 1. des- ember n. k. til 28. febrúar 1971 og reyndist hún 104.21 stig og verðiagsuppbótin því 4.21% sem er sama verðlags- uppbót og gilt hefur frá 1. september s. 1. Er kaup- greiðsiuvísitölunni haldið niðri mcð ráðstöfunum þcim, er fól- ust í verðstöðvunarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar, er Aiþingi samþykkti fyrir skömmu, nið- urgreiðslum, niðurfellingu tveggja vísitölustiga og fleiri aðgerðum, svo sem þeim að taka ekki tillit tii hækkunar á liðunum tóbak og drykkjar- vörur í framfærsluvísitölunni við útrcikning kaupgreiðsiu- vísitölunnar. • Breytingar á einstökum liðum framfærsluvísitölunnar hafa orðið þessar á tímabilinu ágúst til nóvember. • Liðurinn Vörur og þjón- usta hcfur hækkað í heild um 11 stig eða úr 152 stigum í 163. Hafa allir undirliðir hans hækkað meira eða minna: Matvörur í heild hafa hækkað um 11 stig, drykkjarvörur um 14 stig, tóbak um 23 stig, föt og skófatnaður um 13 stig, hiti og rafmagn um 6 stig, heimilisbúnaður, hreinlætis- vörur o. fí. um 8 stig, snyrti- vörur og snyrting um 10 stig, hcilsuvernd um 13 stig, eigin bifreið um 4 stig, fargjöld o. fl. um 8 stig, sími og póstgjöld um 20 stig, iestrarefni, hljóð- varp, sjónvarp og skemmtanir um 11 stig og liðurinn annað um 7 stig. ® Liðurinn Húsnæði hefur hækkað um 3 stig eða úr 115 stigum í 118 stig. • Liðurinn Gjöld til opin- berra aðila hefur hækkað um 3 stig úr 152 í 155. • Frádráttarliðurinn Fjöl- skyldubætur hefur hins vegar hækkað úr 127 stigum i 202 stig eða um 65 stig, þar eð hækkun fjölskyldubótanna var látin verka aftur til 1. nóvember og með því lækkar heildarhækkun framfærs’u- vísitöiunnar niður í 7 stig eins og áður segir. ) 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.