Þjóðviljinn - 26.11.1970, Síða 4
& SlÐA — ÞJÓÐVIUHNTN — Fimimtudagui" 26. nóveimiber 1070.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Fréttastjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skóiavörðust. 19. Simi 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 195.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12.00.
Nýr tónn
Jjing Sambands byggingaonanna, sem haldið var
um síðustu helgi samþykkti athyglisverða á-
ályktun um kjara- og atvinnumál. Er full ástæða
til þess að vekja sérstaka athygli á þessari álykt-
un því þar er bent á samhengi stjómmálabar-
áttu og kjarabaráttu. í ályktuninni er því nýr tónn
í samþykkt verkalýðssam'taka. Þar segja bygg-
ingamenn í samþykkt sinni, sem þeir sam-
þykktu samhljóða: „Barátta verkalýðshreyfingar-
innar hefur einskorðazt við faglegu hliðina. Kom-
ið hefur í ljós, að hana skortir vald til að tryggja
þann árangur, sem næst í eintökum átökum.
Verkalýðsstéttin á íslandi á því fyrir höndum
langvinna baráttu. I þeirri baráttu verða kjara-
átökin aðeins hluti af annarri, sem stefnir miklu
lengra, stefnir að því að ná yfirráðum yfir öllum
valdastofnunum þjóðfélagsins. Framundan eru
pólitísk átök, sem standa imunu árurn saman. Hver
kjaradeila, hverjar kosningar til þings og sveit-
arstjóma eiga framvegis að leiða að sama marki.
Því að hversu mikill sem árangur hverra átaka á
vinnumarkaði kann að verða, verður hann að
engu ef almenningur velur þau öfl til pólitískrar
forystu, sem hann berst við í hinni faglegu bar-
áttu.“
Hvað gera
verkalýðssamtökin?
J ályktun byggingamanna er fjallað sérsfaklega
um síðustu aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn
launafólki: „4. þing Sambandls byggingamanna
lítur svo á, að ríkisstjóm og alþingi hafi kippt
stoðunum undan kjarasamningunum, seim gerðir
voru á s.l. sumri og lýsir þess vegna yfir fyrir
hönd umbjóðenda sinna fullum fyrirvara um
framkvæmd þeirra. í ljósi þeirrar reynslu, sem
fengizt hefur á árinu, hlýtur verkalýðshreyfing-
in að endurmeta afstöðu sína til atvinnurekenda
og ríkisvalds. Heitir þingið á væntanlegan sam-
bandsstjómarfund A.S.Í. að beita sér fyrir kröft-
uguim mótmælaaðgerðum verkalýðsfélaganna
gegn síendurteknum átroðslum á rétt verkalýðs-
ins.“ Sambandsstjómarfundur ASÍ verður hald-
inn um næstu helgi og á þeim fundi hljóta að
koma til umræðu aðgerðir verkalýðssamtakanna
í framhaldi af samþykkt miðstjórnar ASÍ um
skerðingu á vísitölugrundvellinum og kröfu um
nýja kjarasamninga. Það er 1. desember, seim
greiða átti laun samkvæmt síðustu kjarasamn-
ingum með verðlagsbótum samkvæmt vísitölu-
grundvellinum sem við var miðað sl. vor í kjara-
samningunum. Hvað gera verkalýðssamtökin?
— sv.
í dag á Kennaranemi fyrsta
orðið og beinir hann skeyt-
um sínum til yfirmanna skóla
sins. í ððru lagi segir Hús-
móðir sitt af hverju um út-
va/rpsþuli, og loks lýsjr Jó-
hanna Kaldalóns yfir skoðun
sinni á tóbaksreykingum og
taujgarveiklun.
☆
Atburður noktour áttj sér
stað í Kennaraskóla íslands
sl. föstudag, 20/11. sem vakti
mjkla fuirðu og reiði nem-
enda. Sfúdentaráð Háskóla
fslands bafði látið hengja
upp í anddyri skólans plagg,
þar sem auglýst var nem-
endasýning á kvikmyndinni
„Z“ í Austurbaej arbíói. Þessd
sýning átti að fiara fram laug-
ardaginn 21/11 og „Grikk-
landsvaka“ haldin að sýningu
lokinni.
Auglýsingin hékk í anddyr-
inu í mesta sakleysi fram
eftir miðjum degi. en þá brá
skyndilega svo við, að tveir
af yfirmönnum skólans heimt-
uðu að auglýsingin jrrði tekin
niður og allri miðasölu í
skólanum hsett. Annar mann-
anna kallaði myndina „bölv-
aðan áróður“. Rökin, sem
mennirnir tveir báru fram
Leyfi skólayfirvalda fyrir auglýsingu. —
Eins og falskt lag. — Hann átti frið í
sálu sinni.
fyrir kröfum sínum voru þau,
að ekkj hefði fengizt leyfi
frá skólayfirvöldum fyrir
auglýsingunni! Þetta mun að
vísu rétt, en rökin eru vseg-
ast sagt haldlítil og hlægi-
leg svo ekki sé meira sagt.
K.í. hefur hingað til taiizt
fremur frjálslyndur skóli, en
nú virðist sem hemendur
megi vænta stefnubreytinga
af bálfu yfirvalda skólans og
það mjög til hins verra.
Við nemendur erum skjlj-
anlega furðu lostnir yfir þess-
ari framkomu og það hlýtur
að vera skýlaus krafa okkar
að heimta gildari og frarn-
bærilegri rök fyrir þessu at-
hæfi. — Kennaranemi.
☆
Jóhanna Kaldalóns hringdi
í Þjóðviljann fyrir skömmu
og tjáði blaðamanni hugrenn-
ingar sdnar í sambandi við
þingfrumvarp um að banna
tóbaksauglýsingar í blöðum.
Kvaðst hún ekki vera þeixr-
ar skoðunar að taugaveifcLun
leiddi af sér tóbaksreykingar.
— Hins vegar er það stað-
reynd, að taugasterkt fólk
þolir tóbaksnotkun miklu bet-
ur en aðrir. eins og t.d. hann
séra Friðrik okkar Friðriks-
son, sem reyktj sína vindla
til níræðisaLdurs og varð
aldrei meint af. Enda átti
hann taugajafnvægið og frið
í sálu sinnj, — sagði hún.
— Ég held að ungt fólk nú
til dags sé taugaveiklað og
rótlaust af of miklum
skemmtunum, í mínu ung-
dæmi bar miklu minna á
þessu, enda held ég a0 fólk
hafi þá lifað heilbrigðara
lífi. Maður fór kannski einu
sinni j viku á Borgina og
drakk þar kaffj með vinum
sínum og svo örsjaldan í bíó.
Kannski má snúa dæminu við
og segja, að skaðsemi tóbaks
orsakist af taugaveiklun og
lífsieiða.
Kæri Bæjarpóstur!
Skelfing sakna ég hans
Jóns Múla úr útvarpjnu. Það
er rétt svo að ég nenni að
opna fyrir tækið mitt á
morgnana, þegar ég veit að
hans nýtur ekki við lengur.
Sennilega er hann albezti út-
varpsmaður. sem vjð eigum.
Þessi hægia, þýða rödd hans
á ekki sína líka, og enginn
kemst með tæmar þar sem
bann hetfur hælana, hvað
snertir bugkvæmni og létta
kímni. Tilburðir annarra út-
varpsþula í sörnu átt Mjórna
ejns og falskt lag.
í dag heyrði ég nýjan út-
varpsþul lesa bádegisfréttim-
ar. Hann var óstyrkur og
stamandi og bar erlend nöfn
rammvitlaust fram. Ég geri
mér fulla grein fyrir því, að /
byrjunarörðugleikar fylgja
þessu stairtfi sem öðrum og
annar Jón Múli verður efcki
gripinn af götunni, en samt
beld ég, að Ríkisútvarpið gæti
vandað betur val sitt á þul-
um. Við húsmæðum.ar, sem
erum daglangj bundnar við
heimiHsstörf og böm styttum
okkur gjaman stundjr með
því að hlusta á útvarp, og því
verða góðir þulir og út-
varpsmenn okkaæ helztu heim-
ilisvinjr. Þannig er um marga
fleiri, til dæmis sjúklinga.
Hins vegar verður maður
þreyttur á þeim, sem oft
verða á mismæli, og gera
árangurslitlar tilraunir til að
vera skemmtilegir. Væri ekki
ráðlegt að láta fara fram sér-
stakt hæfnispróf umsækj-
enda um þularstarf eða er
það rétt sem ég held, að stað-
an hans Jóns Múla hafi aldrei
verið auglýst laus tjl um-
sóknar? — Húsmóðir.
utför Hálfdáns Sveinssonar.
Hálfdán var Vestfirðingur,
fæddur í Önundarfirði 7. maí
1907. Foreldrar bans voru þau
hjónin Rannveig Hálfdánar-
dóttir og Sveinn Ámason bóndi
í Hvilft. Móðir hans var dóttjr
Hálídáns ÖmoLfssonar í Medri-
hlíð í Bolungarvík. f móður-
ætt hans voru sjóvikingar og
góðbændur í marga ættliði.
Sveinn faðir Hálfdáns var
Árnason Þórðarsonar, bónda í
Krókj í Norðurárdal. Kona
Áma var Halldóra Benjiamíns-
dóttir, en kona Benjamíns, var
Guðný, ein af mörgum systr-
ur frá Elínarhöfða við Akranes,
dóttir Ásmundar Jörgenssonar
bónda þar. En faðir Ásmundar
var Jörgen sonur Hans Kling-
enbergs, sem hin mannmarga
Klingenbergisætt er talin frá.
Héðan lágu borigfirzkar ætt-
ir, vestur til Önundarfjarðar
og aftur til Akranesis, og hér
festi Hálfdán rætur.
í blóma lífs síns kom hann
hingað, og hér birti hann hug-
sjónir sínar og fylgdi þeim
eftir með Mfj sinu og starfi,
fram tál hinztu stundar, „þétt-
ur á veQli, og þéttiuæ í lund,
þrautgóður á raunastund."
í MHum bæ eins og Akra-
nesi verður mynd samíerða-
fólksins skýr og nátengd manns
eigin veru, og það verður um
stund eins og verkur í brjóet-
inu, þegar einbver þeirra
kveður.
Frá þeim degi er Hálfdán
kom hingað, setti hann svjp-
mót sitt á þennan bæ. Hann
hafði lokið kennaraprófi, og
hér hóf bann barnalkennslu,
sem varð hans aðal ævistarf,
og þeir eru orðnir margjr nem-
endur hans hér á Akranesi,
sem eiga honum gott upp að
unna. Ég hygg, að í þessu
starfi hatfi dýrasti þáttur
skapgerðar hans komið í ljós.
En það var mannúðin, sem var
rauðj þróðurinn í Mfi hans og
startfi. Hann var óvenju næm-
ur á lifandi sálimar í kringjm
sig, og hvorki hann né nem-
endur hans fundu fyirir sér
þann múrvegg skilnjngsíleysis,
sem svo oft skilur mann frá
manni. Manni varð Mýtt í ná-
vist hans, þyí að bonium var
svo einstaklega auðvelt að láta
mannúð sína í ljós. Og það
var þessi kennd í brjósti bans,
sem skipaði honum fram fyrir
skjöldu í baráttunni fyrir rébt-
látara þjóðfélagi, fyirir bættum
kjörum verkafólks, og hann
sagðj oft, að reynsla sín sem
baimakennara hiefði styrkt sig
í þeirri baráttu.
árjð 1934. sama áæið og þau
kornu til Akraness ,og hér bafa
þau átt öll sín samvistarái
síðan. Hér ólu þau upp bömin
sín fjögur, Hilmar, Rannvedgu
Eddu, Svein og Helga, sem ödl
hafa fengið í airf mannkosti
foreldra sinna.
Dóra, eins og vdð Afcranes-
jngar köllum bana, hefur
átt hug okfcar frá fyrstu tíð
hún kom hingað, ung og fal-
leg, ásitúðleg og giaðleg, og
ávaUt mun mynd þeirra sam-
an, Hálídán og Dóra.
Undanfarnar vitour hefuir
hugur margra dvaljð hjá Hálf-
dáni og Dóru og fjölskyldu
þeitnra og beðið þeim bilessun-
ar á þrautasitundu. ......
Nú þegar Hálfdán er lótinn
og kveðjustundin komin, drúp-
um við Akranesjngar höfði- og
þökkum mikilhæfum forusitu-
manni giftudrjúg störf, fyrir
bæinn ofckar, og fyrir sam-
fylgdina í háltfa fjórða ára-
tuig. Frá heimdli mínu eru
Hálfdánj Sveinssyni sendar
vina- og saknaðarkveðjur, það
er fyrir svo margt að þakka
er toiðix nú skiljiast.
Og þér elskutega Dóra, böm-
unum þínum, tengdabömum,
barnabömrjm og öðrum vanda-
mönnum, sendum við okkar
dýpstu samúðar- og vina-
kveðjur, minnug þess, að etf
hugsjónir rætast, munu þeir
menn sem héldu þeim á lotfti,
lifa þótt þejr deyi.
Bjarnfríður Leósdóttir.
Alla tíð £ná því hann kom
hingað, starfaði hann og barð-^>
ist í Verkalýðstfélagi Aksraness,
lengst sem formaður féliagsins,
og í söga félagsins eru spor
hans skýirt mörkuð. Á þessum
árum hefur mikið áunnizt á
kjörum verkatfólks. AMt frá
því að fikra siig áfiram frá
örbirgð og öryggisteysi, til
voldugra samtaka, sam mjkils
mega sín.
ÞaQ er gott að muna Hálf-
dán, þegar hann geystist fram
til þess að verja málstað
þeirra, sem minna máttu siín.
Hann var ræðumaður svo af
bar, og andstæðingar hans áttu
fullt í fangi með að verjast
honum á málþingjim.
í Alþýðuflokknum var hann
alla tíð. og fyrir hann sat hann
í bæjarstjóm um langt árabil,
og var um stund bæjarstjóri
Akranesskaupstaðar.
Efcki mun ég í þessaæi stuttu
grein gera skil öllum þeim
trúnaðarstörfum, sem Akranes-
ingaæ fólu Hálfdáni Sveinssyni,
en alstaðar var hann fremst-
ur í flokki vegna mannkosta
sinna.
Hveæsu gott er að Mí*a svo
langan og starfsaman dag.
Ekk; mun ég ljúka þessu
án þess að minnast konunnar
hans, sem eftir hann Lifir,
Dórótheu Erlendsdóttur, ætt-
aðri frá ísafirði. Þau giftust
Auglýsing
Samkvæmt ósk Húseigendasambands ís-
lands, Félags löggiltra endurskoðenda og
fleiri aðila, hefur ráðuneytið ákveðið, að
kærufrestur til fasteignamatsnefnda í
Reykjavík, kaupstöðum og sýslum, vegna
nýja fasteignamatsins, fraimlengist til 20.
desember 1970.
Athygli er vakin á því, að framlagning á
fasteignamatsskrám á áður auglýsitum
stöðum rann út 21. þ.m.
Á tímabilinu til 20. desember verða upp-
lýsingar um matið aðeins fáanlegar hjá.
fasteignamatsnefndum.
Fjármálaráðuneytið, 25. nóv. 1970.
Gerið skil í Happdrætti Þjóðviljans
Minning
HáHdán Sveinsson
kennari Akranesi
í dag stöndum við Akranes-
ingar Mjóðir og hndpnir við