Þjóðviljinn - 18.12.1970, Qupperneq 1
ORÐSENDING
FRÁ H.Þ.
Dregið
eftir
5 daga
O Allir stuðningsmcnn
Þjóðviljans eru beðnir að
minnast happdrættisins nú
síðustu dagana.
O Með öflugru lokaátaki
verðum við að tryggja út-
komu Þjóðviljans.
O Umboðsmenn utan
Reykjavíkur cru beðnir að
póstleggja skil fyrir jól
(Listi yfir umboðsmenn
happdrættisins úti á landi
er á 8. síðu).
O Innheimtufólk í Rcykja-
vik er beðið að Ijúka verk-
efnum sínum hið fyrsta.
O Þeir sem fengið hafa
senda miða ættu sem flestir
að létta innheimtufólkinu
störfin með l»ví að gera skil
sjálfir.
O Afgrciðsla happdrætt-
isins er að Skólavörðustíg
19, (gengið inn frá Skóla-
vörðustíg), sími 17500, opið í
dag 9 f.h. til lsl. 6 e.h., og
á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins, Laugavegi 11, sími
18081, opið í dag, föstudag,
samfellt frá kl. 10 f.h. til kl.
10 e.h.
O A morgun, laugardag,
verður opið á Skólavörðu-
sfcíg 19 frá kl. 9 f.h. til kl.
4 e.h. og á Laugavcgi 11 frá
kl. 10 f.h. til kl. 7 c.h.
Langir fundir hjá
samninganefndum
□ Er Þjóðviljinn var búinn til pren'tunar í
gærkvöld sátu samningamenn um kaup og kjör
ríkisstarfsimanna, Kjararáð BSRB og samninga-
nefnd ríkisins, enn á fundi, en búizt var þá við að
samningar yrðu undirritaðir á hverri stundu. —
Samningafundurinn hafði staðið yfir allan dag-
inn, hófst kl. 2 síðdegis, en nóttina áður höfðu
samningamenn einnig verið að fram undir
morgum
Fjárlögin afgreidd i dag:
Fella íhaldið og Alþýðuflokkurinn
hækkun ellilífeyris og örorkubóta ?
Atkvæði greidd á Alþingi í dag við 3. umræðu fjárlagafrumvarpsins
• Þriðja umræða fj árlagafrum'varpsi ns fór fram á Alþingi
í gser, ©n atkvæðagreiðsla verður á fundi sameinaðs
þings í dag, sem hefst kl. 2.
• Þar verða greidd atkvæði um veigamiklar breytingar-
tillögur frá þingVnönnum Alþýðubandalagsins m.a. til-
laga um 175 miljóna framlag til þess að hækka el’li-
laun og örorkubætur og skyldar tryggingabætur um
33%; og tillaga um 15 miljónir til Keninaraskólans, en
húsnæðisvandræði skólans og skilningsleysi stjómar-
valda á þörfum hans er orðið reginhneyksli.
Lúðvík Jósepsson talaði fyrir
tillögunni um hækkun ellilauna
og örorkubóta og skyldra bóta
aimannatrygginganna, en þá til-
lögu flytja allir þingmenn Al-
þýðuþandaiagsiris. Minnti hann
á. að sömu þingmenn fluttu til-
lö'gu um 40% hæ-kkun bótanna
við 2. umræðu fj árlaga en hefðu
nú dregið úr tillögunni, þar sem
ekkj má endurflytj a sömu til-
löguna á sam-a þinginu.
Lúðvík la-gð áherzlu á aó hér
væ-r um brýnt nauðsynjamál að
ræða. Alþingi gæt.i ekki sóma
7 borgarfulltrúar með umboð meirihluta kjósenda leggja til:
Aukin hlutdeild mannsins en
frestun malbiksframkvæmda
Fjárhagsáætlun Reykjavík-
ur fyrir árið 1971 var af-
greidd í nótt. Við afgreiðslu
áætlunarinnar höfðu borgar-
fulltrúar minnihilutaflokk-
arma svo til algera samstöðu
og gerðu þeir grein fyrir því
Stórrán framið
í London í gær
LONDON 17/12 Pi-mm grímu-
Wiseddir menn réðust í dögun inn
i lúxusvillu auðíkýfingsins Ro-
berts Buehanans-M-ichaelsons,
misþyrmdu honum og konu hans
og hurf-u á brott með peninga
og sikartgripi fjyrir uim 23 miij-
ónir króna. Auðkýtfinguirinn var
ednn af vonbiðlum Margrétar
prinsessu áður en hún gifti sig
árið 1962.
að þeir teldu borgarstjórn
skylt að verða við kröfum
minnihlutaful'ltrúanna þar
sem þeir hafa meirihluta
reykvískra kjósenda að baki
sér.
Sigurjón Pétursson var að-
altalsmaðuir Alþýðubanda-
lagsins við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunarinnar og eru
birtir kaflair úr ræðu hans
inni í blaðinu í dag, einnig
er fjárhagsáætlunin gerð að
u’mtalsefni í forustugrein
blaðsins í dag.
Borgarfulltrúar minni-
hl'utafl'okkanna lögðu til að
færa frá malbikunarfram-
kvæmdum yfir ti'l skóla,
barnaheimália, sjúkrahúsa,
ðigurjon jrei'UrsMm.
leikvalla og íbúðabygginga.
Jafnframt var lagt til að
sparað yrði á ýmsum út-
gjaldaliðum borgarsjóðs til
þess að fá aukið fé til þess-
ara félagslegu verkefna, sem
nefnd voru.
í Þjóðviljanum í gær er
greint frá helztu breytingar-
tillögum minnihlutafulltrú-
anna, en afgreiðslu beirra
var ekki lokið um miðnætti
í nótt er blaðið fór í prent-
un. Verður nánari frásögn
u’mræðna að bíða morgun-
dagsins.
Hafnarbúðum lokað
Bæjarfógetinn í Kópavogi lét
nýlega loka Hafnarbúðum, vegna
vanskila Magn-úsar Ái-nasonar á
söluskatti. Magnús hefur séð um
rekstur á Hafnarbúðum i 2 ár,
og býr hann í Kópavogi.
S'íns vegna gengið svo frá hin-
um gífurlega háu fjárlögum árs-
ins 1971 að ekki væri gert ráð
fyrir að minnsta kost.i þeirri
hæ'kkun sem bann og féla-g-ar
hans leg-gðu nú til, þingmönn-
um væri vansæmd að þvi að
fella tiUögu um að bæt-a kjör
hinna lægst launuðu í þjóðfé-
la-ginn.
★ Kennaraskólahneykslið
Magnús Kjartansson kvaðst
hafa flutt við 2. umræðu til-
lögu um 20 miljónir til Kenn-
araskólans. Talan 20 m-iljónir
væri ekki tala sem hann hefði
búið til út í bláinn, heldur
væri það s-ú upphæð sem skóla-
stjóri Kennaraskólans hefði tal-
ið að nú þyrfti, svo hægt væ-ri
að bæta úr hinn; brýpu hús-
næðisþörf skólanis á næstu ár-
um. Sú tillaga var felld, og
flyttj hann nú við 3. u-mræðu til-
lögu ásam^ Si-guirvini Einarssyni
um 15 miljóni-r.
Veittist Magnú-s hart að
menntamálaráðh., Gylfa Þ. Gísla-
syni, sem mælt hefði með því
til fj árveiit-inganefnd-ar að 20
miljónir yrðu teknar inn á fjár-
lög i þessu skyni, en hefðj svo
ásamt öð-rum ráðherrum og
stjórna-rþingmönnum íellt tiilö'gu
um það framlag til Kenna-ra-
skólanis.
Bygginga-rsögu Kennaraskól-
ans taldi Ma-gnús daemi þess
hvemig ekki ætti að fara að
með skólabyggingar. Byggð-u-r
hefði verið fyrri áfangi, og við
vígslu hans hefði menntamála-
ráðherra hrósað sér mjkið af
afrekinu. En síðari áfan-gi hefði
ekki enn fengizt teiknaður, hvað
þá byggður, og í þess stað hrúg-
að í skólann, sem ætlað var að
ta-ka innan við 200 nemendur,
m’illi 900 og 1000 nemendum.
Híkisstjóminni ætti að vena það
áhugaefni að fjrra sjálfá sig
vansæmd þeirri sem afskipti
hennar af málefnum Kennara-
skólans hefði verið um margra
ára skeið.
Framihald á 9. síðu.
Bjarni Sæmunds-
son í Reykjavík
Jc í gærmorgrun sigldi hlð nýja
hafrannsókna- og fiskileitar-
skip lslendinga, vs. Bjarni
Sæmundsson, í fyrsta skipti
inn á Reykjavíkurhöfn. Skipið
lagðist að bryggju við Granda-
garð og þar verður það, síð-
degis í dag, formlega afhent
Hafrannsóknastofnuninni. Hef-
ur allmörgum gestum verið
boðið um borð í skipið af því
tilefni.
★ Myndina tók ljósm. Þjóðvilj-
ans, A.K. af Bjarna Sæmunds-
, syni við bryggju í gærmorgun.
Fram — FH 23:23
Fyrri leik FH og Fram í 1.
deildarikeppni íslandsimóitsins í
bandknattlei'k í gærkivöld lauk
með jafntefli 23:23. Þetta vair
afar h-arðuir leikur, eins og sést
bezt á því að 8 mönnum var
víeað af leikveíUi.
Málflutningur
í skaðabóta-
máli Daníels
Daníelssonar
Á morguu, laugardag, fer
fram hér í Beykjavík mál-
flutningur i skaðabótamáli, er
Daníel Daníelsson fyrrverandi
sjúkrahússlæknir á Húsavík
höfðaði á hendur sjúkrahúss-
stjóminni þar fyrir brottvikn-
ingu hans úr starfi. Krefst
Daníel bóta að fjárhæð 1
miljón, 580 þúsund krónur.
Mál þetta höfðaði Daníel
með stefnu dagsettri 10 janúar
sl. og var málið þingfest í
bæjarþingi Húsavíkur 27.
febrúar sl.
Þar sem Jóhann Skaftasbn,
sýslumaður, á sæti í sjúkra-
hússtjórninni vék hann sæti
^ þessu. máli og var Steifán
Már Stefánsson, borgardómari
í Reykjavík, skipaður setu-
dómari í málinu, en meðdóm-
endur voru skipaðir Guðmund-
ur Pétursson læknir, forstöðu-
maður Tilraunastöðvarinnar að
Keldum, og Guðmundur Jóns-
son, borgardómari.
Sækjandi málsins fyrir
hönd Daníels er Björn Svein-
björnsson hæstaréttarlögmað-
ur, en verjandi fyrir hönd
sjúkrahússstjórnar er Magnús
Óskarsson hæstaréttarlögmað-
ur.
DlflBVHllNN
Föstudagur 18. desember 1970 — 35. árgangur — 289. tölublað.