Þjóðviljinn - 10.10.1971, Side 9
Sunmudagur 10. ofctóber 1971 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA 0
húsnœðismál
lxelgax*
-ívilti
Ef lækka á byggingarkostnaðinn
þarf meðal annars að koma til
Samræming
shipulags- og
framkvæmdamála
— Er byggingakostn að ur á
einingu hærri hér en í ná-
lægum löndum?
— Það er ekki hægt að
segja neitt um það, því við-
miðunina vantar Hér er allt
annar lífsmælikvarði en í
nokkrum nálaegum löndum. Þá
er og byggingarmáti okkar all-
ur annar en flestra ormarra.
Það yrði feiknarlega mikið
verk, að finna sambærilega
viðmiðun og ,auk þes-s m.iög
kostnaðarsamt. Þannig er ekki
hægt að segja að byggingar-
kostnaður sé hér óeðlilega hár,
því viðmiðunin er engin.
Þó eigum við eina viðmiðun
sjálfir. En það er að miða
byggingarkostnaðinn í dag við
þiað, sem hann var fjrrir 30—
40 árum. Þa voru árslaun
manns með meðaltekjiur
embæltismamnia 3/600 krón/ur
og 80 fermetra íbúð kostaði
þá 18 þúsund krónur. Nú er
sami maður með 3-—400 þús-
• und- króna -árslaun. Fyrir sama
. árslaunafjöJda getur bann nú
fengið nýtízku íbúð, 30%
stærri með ölium búnaði
Þetta er nú eina raunhæfia
viðmiðunin sem við höfum.
Þessi viðmiðun sýnir okkur
að raunverulegur bygginga-
kostnaður hefur lækkað, því
nú eru kornnir til fleiri liðir
en þá voru. t.d. gatnagerðar-
gjöld og söluskattur.
— Hafa komið fram ein-
hverjar tillögur um hvernig
lækka . megi byggingakostnað-
inn?
— Það hafa að sjálfsögðu
Hus í byggingu
heimlar írygg*ing*u
> ■
Allir húsbyggjendur leggja í talsverða áhættu.
Margir taka há lán og leggja eignir slnar
a3 veði. Þeim er því afar mikilvægt a5 óhöpp
eða slys raski ekki fjárhagsafkomu þeirra.
•Brunatrygging fyrir hús í smíðum er mjög ódýr,
tryggingartaki greiðir 1,5 af hverju þúsundi.
Ábyrgðartrygging gegn óhöppum eða slysum
á starfsliði er nauðsynleg hvorjum húsbyggj-
anda, því annars kann svo að fara að skaða-
bótaskylda baki honum verulegt tjón.
ALMENNAR
TRYGGINGARg
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700
y/
Skúli Norðdahl
arkitekt hefur mikið
unnið að rannsóknum
á byggingarkos'tnaði
og skrifað um
þá rannsókn sérstakan
bækling, sem
fáanlegur er hjá
Rannsóknarstofu
byggingariðnaðarins.
Auk þess er að
finna grein eftir Skúla
um þessi mál í
Handbók
húsbyggjenda.
komið fram ýmsar tillögur þar
um. Ber þar hæst tillögur um
byggingu stórra eininga. Það
er aðeins trú, að þannig bygg-
ingamái sé ódýrari, en engin
vissa er fyrir því. Það er
meira að segja svo, að frekar
virðist það sem fram hefur
komið í því máli, benda til
þess gagnstæða.
Sannleikurinn er sá, að ekki
er hlaupið að því, að finna út
raunverulegan byggingarkostn-
að og þar af leiðandi að gera
tillögur til lækkunar Hvemig
á t.d. að finna út og reikna
eiginvinnu húsbyggjenda? í
framhaldi af því mætti svo
spyrja hvað sá vinnulauna-
sparnaður húsbyggjenda korni
margíaldur fram, vegna auk-
ins viðhaldskostnaðar, sem
stafar af því að ekki eru
fengnir iðnaðarmenn til að
vinna verk, sem þeir eru sér-
staklega menntaðir til að
vinna.
Þannig spinnast ótal þættir
inn í dæmið og gerir nánast
ómögulegt að rckna það út,
nema með óheyrilegum kostn-
aði. Það er sem sé ekki annað
en fullyrðing, að bygginga-
kostnaður sé of hár hér hjá
okkur, en alls ekld vísindaleg
niðurstaða.
Hitt er svo annað, að fram
hafa kornið ákveðnar tillögur
um það hvemig lækka megi
byggingakostnaðinn. Þar var
reiknað með 15% lækkun
launa, sem þýðir 15% aukin
afköst. Þá vár og reiknað með
15% efnisspamaði, sem svo
kemur fram í auknum við-
haldskostnaði, Þ'annig var
hægt að fá út 30% lækkun
kostnaðarins. Þessar tillögur
þykj,a mér mjög óraunhæfar
og nánast Sáránlegar.
— Eru þá ekki til, að þínu
mati, neinar ákveðnar ráðstaf-
amir, sem gætu ledtt til lækk-
unar byggingarkostnaðar?
— Það er enginn vafi á þvi
að hægt er að lækka bygg-
ingarkostnaðinn með ýmsum
aðgerðum. Þyrfti þá að koma
til meiri stjómun á bygging-
armálum og samræming skipu-
lags og framkvæmdamála.
Byggingaframkvæmdir þurfa
,að vera samfelldar, en til þess
þarf að aðlaga skipulagið að
framkvæmdunum. Með slikri
samræmingu þyrfti eikki sifellt
að vera að flytja til vinnuafl,
heldur væri unnt að fjár-
magna upp nægjanlega stórt
byggingasvæði í senn. Þetta
sparar tvímælalaust miklar
fjárfúlgur.
Hitt er svo annað að ég tel
að ekki sé til nein patent lausn
á þessu máli. Það er sífellt
verið að kenna einhverjum
sérstökum aðilum um bve á-
standið sé illt. án þess að það
sé sannað að það sé illt. Menn
þyrftu að hætta að bera fram
slíkar fullyrðingar og koma
sér niður á jörðina Þá mætti
vafalaust leita á þeim grund-
velli að einhverju því, sem til
lækkunar mætti verða. — úþ.
HINN HELGI RÉTTUR
Það er dásamlegur réttur
eignarrétturinn.
Eí þú er svo heppinn að
eiga afa, ömmu, pabba eða
mömmu, sem ýmist i sveita
síns andlitis eða á einíhvern
annan hátt, hafa komizt yfir
landskika og síðan arfleitt
þig að hcnum, getur hann
orðið þér bærileg tekjulind
um lengri eða sikemmri íma.
Svo ekki sé nú talaö um þá
lukkunnar erfingja. sem
eignazt hafa með einum eða
öðrum hætti lóðir í höfuð-
borginni.
Þannig er nefnilega farið
vemdun þessa helga réttar,
að ávöxtur af annarra iðju,
sem þér fellur í skaut, er
ekki talinn hæfur til skött-
unar svo neinu nemi. Af slík-
um arfi er að vísu greiddur
eignaskattur, sem til þessia
dags hefur ekkj verið umtals-
verður hér á landi, vegna
þess, að matsverð eigna á sér
stoð einihvers staðar í grárri
fomeskju.
Erfingi landsspildu, sem
samkvæmt fomaldarmati
stæði i 200 þús. króna verð-
gildi borgar 2000 kr í eigrua-
skatt árlega. Raunverulegt
verðgildi eignarinnar má
reikna með að sé að minnsta
kosti hundraðfalt þetta mats-
verð, ef landið er staðsett á
bezta hu'gsanlegum stað.
Ef nú erfinginn er virki-
lega klókur selur hann
landsspilduna í smáum
, skömmtum. Ef hann selur
þannig lóðarhluta á toverju
ári, sem næmi einni miljón
að verömœti, dyggði homum
arfurinn í 20 ár. Sölutekj-
umar — 1 miljón — eru
skiattfrjálsar. Erfinginn getur
því lagt niður vinnu, ef vill,
og . ástundað hugðarefni sín
af alúð án fjárhagsáhyggja,
því x miljón eru jú bærileg-
ar ársekjur, þegar ekkert er
borgað af þeim til sameigin-
legra þarfa landsmanna.
Slíkt og þvílíkt heitir
eignatilfærsla.
Svona viturlega hafa for-
verar okkar í landinu vemd-
að þennan heilaga rétt.
Leitiö nýrra aðferða
og lækkió
byggingarkostnaóinn
SKIPULAGNING 0G
ÁÆTLANAGERÐ
VIÐ ÍBÚÐABYGGINGAR
TIKIB NIIUK SAMAN HÚSN/CDISMÁLASTOFNUN
DK. KiARTAN JÓNANNSSON RlKISINS
VIIKMÆDINOUK KÍTKJAVlK Í97I
Aukin vélanotkun og tækninýjungar hafa
gert nýjar aðferðir í byggingariðnaði nauð-
synlegar.
Skipuieggja þarf verkið frá grunni tll að
nýta tæki, mannafla og fjármagn sem bezt.
Markmiðið er lækkun byggingarkostnaðar
og stytting byggingartímans. Leiðinní að
þessu marki er lýst í ritinu SKIPULAGN-
ING OG ÁÆTLANAGERÐ VIÐ ÍBÚÐABYGG-
INGAR eftir Kjartan Jóhannsson verkfræð-
ing. í ritinu er rætt um fullkomnari bygging-
araðferðir og skýrt á Ijósan hátt hvernig gera
má áætlanir um framkvæmdir við íbúðabygg-
ingar.
2. útgáfa er komin. VerS kr. 100.
Söluumboð: ®
Bókaútgáfa Menningarsjóðs p
Skálholtsstíg 7 — Reykjavík
Pósthólf 1398 I
HÚSNÆÐISMALASTOFNUN ríkisins
Húsbygg j endur!
Þér, sem eruð að byggja, skuluð vanda val
yðar á gólfteppum. — Leitið ekki langt yfir
skammt. — Innlend teppaframleiðsla býður
marga góða kosti.
Við getum boðið yður úrvalsvöru unna
af íslenzkum höndum: — Frá Ála-
fossi h.f. — Frá Vefaranum h.f. — Frá
Últíma h.f. — Frá Ábreiðum h.f.
TEPPAHÚSIÐ hf.,
ÁRMÚLA 3 — SÍMI 83510