Þjóðviljinn - 28.11.1971, Side 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVTLJTNTsr — SunniuKÍagur 28. móiveinlber 1971.
— Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og pjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Simi 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 195,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12,00.
FriBlýsing íslandshafa
JjY umræður fóru fram um utanríkismál á alþingi
á dögunum hreyfði Jónas Árnason, alþingis-
maður, athyglisverðri hugmynd um friðlýsingu
hafsvæðisins umhverfis ísland. Jónas tengdi hug'
anyndina m.a. sífelldum umræðum um flotastyrk
Sovétríkjanna á hafinu umhverfis ísland. Um
þetta mál sagði Jónas Ámason í ræðu sinni, að
mjög komi til mála, „að við íslendingar felum
sendinefnd okkar hjá Sameinuðu þjóðunum, að
beita sér fyrir tillögu þess efnis að tiltekið svæði
hér á Norður-Atlanzhafi, sem allra stærst svæði,
sem ísland væri á, yrði friðlýst. Þama myndum
við fara að dæmi Ceylon-manna, sem flytja nú á
þingi Sameinuðu þjóðanna tillögu um friðlýsingu
Indlandshafs. Þetta kann að virðaist óraunhæf til'
laga, en það er margt sem virtist óraunhæft í fyrra
og árið þar áður, sem er raunhæft í dag, svo örar
eru breytingarnar. Það var samþykkt í allsherj-
arnefnd Sameinuðu þjóðanna að taka þessa til'
lögu fyrir, og ég aflaði mér upplýsinga um við-
horf fulltrúa til hennar, og það er ekki annað
sýnna, en að hún verði samþykkt á þessu þingi,
— sem sagt tillaga um friðlýsingu alls Indlands-
hafsins, sem er allmiklu stærra en allt það svæði,
en ég var að nefna rétt áðan.“
]\|áli sínu til frekari stuðnings las Jónas kafla
úr ræðu aðalfulltrúa Ceylons hjá SÞ, Aimera-
singhe, en hann er reyndar sá maður, sem næst
Jacobson er talinn líklegur til þess að verða
kjörinn aðalritari Sameinuðu þjóðanna. En þessi
fulltrúi Ceylons sagði meðal annars um friðunar-
'tillöguna: „Kjarninn í tillögu Ceylons er að gerv-
allur útsær Indlandshafs verði lýstur friðhelgur
gagnvart vigvélum hvort heldur er til sóknar eða
varnaæ og að einungis megi nýta hann í friðsam-
legum tilgangi. Herskip og önnur skip er hafa
vígvélar um borð fái að vísu að sigla yfir hafið,
en ekki hafa þar neina töf á, nema um sé að
ræða neyðartilfelli. Hið sama á við um kafbáta,
siglingar þeirra 1 og á Indlandshafi verði bann-
aðar, nema sannað sé, að förin sé farin í frið-
samlegum tilgangi. Flotaæfingar, njósnir á sjó og
tilraunir með vopn verði með öllu óleyfilegar.“
yíst er að hér hreyfir Jónas Ámason stórmáli
og er vert að leggja áherzlu á það, að nauðsyn
ber til að ríkisstjóm íslands taki þetta mál strax
til athugunar, — og hugmynd Jónasar er einmitf
ákaflega tímabær í dag, ekki sízt vegna s'tórauk-
innar hreyfingar meðal landsmanna gegn hernám-
inu, eins og meðal annars kemur fram í hátíða-
höldum stúdenta 1. desember. — sv.
Ingiberg Magnússon ritar um myndlist:
Postulínshundar
og tannburstabros
:
Arnar Herbertsson og Magnús
Pálsson sýna um þessar mundir
verk sín í Gallery Súm við Vatns-
stíg. Súrrealistískar teikningar
Arnars sýna okkur inn í veröld
fulla af óhugnaði og þjáningu.
Áhorfandanum er líka gefið til
kynna af hverju þetta er sprottið.
„Efsta sætið er autt", valdagræðgi,
hégómaskap. Tómeygar kvik-
myndageddur senda okkur tilfinn-
ingalaust tannburstabros út úr
myndum hans. Hvar er .ekki
„Herbergi vonleysisins" og „Her-
„Skák“ birtir
skákir Fischers og
Petrosjans
Októberihefti tímaritsins Skák
kom nýlega út, og fjiallar meg-
inefni þess um einvígi Fisch-
ens og Petrosjans. FjaTLar
Friðrik Ólafisson fýnst stuttlega
um einvígið almennt en rek-
ur síðan allar skákirnar og
skýrir þær allýtarlegia. Af öðru
efni má nefna „Af erlendum
vettvangi“, þar sem birt eru
úrslit ýmissa erlendra skák-
móta, en einnig er rakin þar
skák Spasskys og O. Kinnmark
frá Svíþjóð, töflu þar sem birt
eru ný íslenzk skákstig, og
fimm skákir frá Norðurlanda-
mótinu 1971.
bergi þagnarinnar" til á tímum
svonefndra allsnægta, á tímum
sjúklegra styrjalda, ofbeldis og
kúgunar. Maðurinn lifir ekki á
brauði einu saman og víst er að
óvíða hefur þögnin orðið dýpri
né vonleysið átakanlegra, en í
herbergi nútímamannsins, mitt í
öllum skarkalanum og möguleik-
unum til fegurra mannlífs.
Arnar leyfir okkur einnig að
skyggnast inn í „Herbergi gleð-
innar" en kaldranaleg er sú
þar sem naktir mannslíkamar
á eggjum rakvélarblaða. Teikning
arnar þykja mér vera bezti hlut-
inn af sýningu Arnars, þrungnar
innihaldi og afburða vel gerðar.
Grafíkmyndir hans ollu mér aftur
á móti nokkrum vonbrigðum.
Línuteikningin í þeim er þó víða
góð, en grátónarnir eru imdarlega
magnlitlir. Um þær myndir sem
Arnar hefur prentað í litum hirði
ég ekki að fjölyrða, því grafík-
myndir sem ekki eru góðar í svart
hvítu, verða sjaldnast betri eða
verri við að þær séu prentaðar
í Iitum. Að öllu samanlögðu tel
ég þó að Arnar geti með velþókn-
un litið yfir það sem hann hefur
gert, því margt af því er harla
gott.
Magnús Pálsson sýnir tvær
gagnvirkar seríur af hundum,
gerðar úr gipsi og grasi úr Mos-
fellssveit. Hundarnir hans Magn-
------------------------:-----------
Magraús Pálsson
listaverk
ifofistibm
m lía&siaii? f?i.
AE INDVERSK UNDRAVERÖLD x ÍMJæ
GWÍ
Jólavörurnar komnar ,
Mikið úrval fallegra og listrænna
muna, tilvaldra til jólagjafa.
Einnig reykelsi og reykelsisker.
Kjörnar jólagjafir í JASMIN
Snorrabraut 22.
mmðft
úsar vaxa upp úr grasi og verða
aftur að grasi. Einfölduð líffræði-
leg saga, ef við viljum taka það
svo. Hundamál og alls kyns
hundalógik hafa verið vinsad hér
að undanförnu, svo það er hreint
ekki illa til fundið að sýna okkur
æviskeið hundsins í stórum drátt-
um, þótt þetta geti vissulega átt
við fleira en hann. Hver lifir ekki
á einhvern hátt á ávöxtum jarð-^
arinnar? Magnús segir sjálfur að
hundarnir sínir minni mjög á
postulínshunda fyrri tíma, enda
mun það eina hundahald sem
leyfilegt er á þessum síðustu tím-
um.
Það má sjálfsagt deila um hvort
hundar þessir skuli teljast til
meiriháttar listaverka frekar en
postulínshundarnir fyrrum. Sjálf-
um finnst mér þeir uppfylla allar
þær formkröfur sem eðlilegt er
að gera til slíkra verka. Mér finnst
það auk þess ekki óskemmtileg
tilhugsun að ímynda mér þá
komna inn í stássstofu, undir
harðviðarþilju eða grjótvegg. Að
Iokum mætti benda hæstvirtri út-
hlutunarnefnd listamannalauna á
allan þann kjarnmikla gróður sem
vex í Mosfellssveitinni, ef hana
skyldi vanta á jötuna, þegar næst
kemur að hinni árlegu fóðurgjöf
til íslenzkra listamanna.
Sýning þeirra félaga Arnars og
Magnúsar er að sönnu ekki ýkja
frumleg né byltingarkennd, en þó
Iíkleg til að ýta við einhverjum
frómum sálum, ef þær skyldu
leggja leið sína í Gallery Súm nú
í skammdeginu.
Ingiberg Magnússon.
Dagstofu-húsgögn
Borðstofu-húsgögn
Svefnherbergishúsgögn
Góð greiðslukjör og
verð mjög hagstætt
HNOTAN
húsgagnaverzlun,
Þórsgö*tu 1. Sími 20820.
Langtum minni rafmagns-
eyðsia og betri upphitun
meS
nDHi
RAFMAGNSÞILOFNUM
Hinir nýju ADAX rafmagns-
þilofnar gera yður mögulegt
að hita hús yðar upp með
rafmagni á ódýran og þægi-
legan hátt.
Jafnari upphitun fáið þér
vegna þess að ADAX ofnarnir
eru með tvöföidum hitastilli
(termostat) er virkar á öll
stillingarþrepin. Auk þessa
eru ADAX ofnarnir með sér-
stökum hitastilli er lætur ofn-
inn ganga á lágum, jöfnum
hita, sem fyrirbyggir trekk frá
gluggum.
Leitið nánari upplýsinga um
þessa úrvals norsku ofna.
3 ÁRA ÁBYRGÐ
EINAR FARESTVEIT & CO HF
Bergstaðastræti 10
Símar: 16995 —- 21565
J