Þjóðviljinn - 04.02.1972, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.02.1972, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Pöstudagur 4. febrúar 1972. Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. * Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. Simi 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 195,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12,00. Stéttastríð j^emadetta Devlin hefur verið mikið fréttum blaða og útvarps á undanförnum árum. Þegar hún lagði til atlögu við innanríkisráðherra á „mestu lýðræðissamkomu heimsins, brezka þing- inu“ (tilvitnun í Mbl.) vakti það enn athygli alls heimsins og þau svör sem hún gaf fréttamönnum eftir þann atburð munu mörgum í minni sem sáu til hennar í sjónvarpsfréttum. Þau svör vom sprottin úr langri baráttu hrjáðrar þjóðar sem býr við innlenda stéttakúgun og erlendan yfirgang. jpátt hefur vakið meiri athygli í fréttunum síð- ustu mánuði en linnulaus átök á Norður-írlandi. Oftast eru þessi átök kölluð trúarbragðaátök milli kaþólskra og mótmælenda, en staðreyndin er sú að þarna er um stéttastríð að ræða, sem harðnar sífellt eftir því sem mótmælendahópurinn gengur blygð- unarlausar fram í því — í krafti brezku stjórnar- innar — að halda kaþólskum niðri í lífskjörum og menningaraðstöðu. Þegar 13 menn voru myrt- ir í Londonderry á^svívirðilegan hátt af herliði brezku stjórnarinnar var sá atburður s.taðfes'ting þess í hverjar ógöngur ástandið á Norður-írlandi er komið. Á sama tíma blasir við að brezka stjórn- in, norður-írska stjórnin og stjórn írska lýðveldis- ins eru allar jafn úrræðalausar og allar jafn í- haldssamar og í eðli sinu andsnúnar sterkum al- þýðuhreyfingum. Þannig er stjórn írlands ófær um að leiða hreyfingu fra vegna þess að almenningur er miklu róttækari en sú stjóm gæti sætt sig við — og framferði stjómanna í Belfast og London hefur tryggt írska lýðveldishemum mikinn stuðn- ing alls almennings. Fyrir ekki alllöngu voru liðs- menn IRA einangraður og hundeltur hópur, en nú er kaþólsk alþýða hvarvetna reiðubúin til þess að veita þeim stuðning og skjól fyrir byssukjöft- um brezkra hermanna. gú spuming sem ráðamenn írlands og Breta standa framimi fyrir í dag er fyrst og fremst sú hvort þeir gera sér grein fyrir því að íhaldssöm stjómaraðferð þeirra getur leitt þá í algerar ógöng- ur og orðið upphaf að voldugri lýðhreyfingu á eyjunum báðum. Á sama tíma og óánægia verka- lýðsins fer vaxandi samfara miklu atvinnuleysi gerist það að Heath-stjórnin rekur endahnútinn á inngöngu Breta í Efnahagsbandalag Evrópu. Að öllu samanlögðu er því ástæða til þess að gera ráð fyrir því að stjórn Heaths muni eiga í vök að verj- ast á næstunni og úrslit mála í hinu marghrjáða Norður- írlandi geta oltið á því hvort verkalýð Bretlands og írlands tekst í sameiningu að velta af sér oki afturhaldssamra stjórnarvsi^'1 $• ^jaráttumönnum alþýðunnar Norður-írlandi fylgja heillaóskir allra íslendinga og það f ánægjulegt að Bemadetta Devlin skuli einmitt um þessar mundir vera væntanleg til íslands. Pólitískar og persónulegar Sem kunnugt er á Sjálf- stæðisflokkurinn í miklium innri þrengingwn um þessar mundir. Birtast þær einkum í þvi að vaxandi óánægju gætir innan flokksins með forustu (Leysi) Jóhanns Haf- steins og Geirs Hiailgrímis- sonar. Þetta hefur meðal ann- ars komið mjög greinilega fram síðustu mónuðina þar sem svo langt hefur gengið að eldri og reyndari forustu- menn Sjálístæðisflokksins haf'a gert út sendinefndir á fund Jóbanns Hafsteins til þess að veita honum jafnt persónulegar sem pólitískar áminningar, Ráðning fram- kvæmdastjóra Styrk forusta Jóbanns Haf- steins á Sjálfstæðisflokknum kom tii dsemis fram á dög- unum þegar ráða átti fram- kvæmdastjóra flokksins, er Þorvaldur Garðar kaus að þjóna sjálíum sér sem starfs- maður þingflokks Sjálfstæðis- flokksdns, Jóhamn Hafstein og Geir Hailgrímsson komust þá að þeirri niðurstöðu að heppi- legast myndi að ráða Magn- ús Gunnarsson sem fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðis- flakksins. Hóf Jóhann í kraftj formennskunnar að safna þessari hugmynd fylgi og hélt áfram þeirri iðju aJIt til þesis fundar er átti að gangá frá ráðningu fram- kvæmdiastjóra En þegar til kom hafði Jóhanni Hafstein, hinum mikilhæfa leiðtoga, láðst að taka tillit til þess, að í Sjálfstæðisflokiknum er einn- ig maður, sem heitir Gunnar Thoroddsen. Sá var í fram- boði i síðustu forsetakosn- ingum og vildi þvi sízt sam- þykkjia Magnús Gunnarsson sem framkvæmdagtjóra. Jó- hanni Hafstein brást boga- listin aldrei þessu vant; þrátt fyrir linnulausan undirróður fyrir hugmynd sinni varð hann að gefast upp fyrir vaidi Gunnars Thoroddsens Og Sig- ufður Hafstein var ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksdns. Af þessu atviki má marka hversu kornjð er forustu Jóhanns Haf stein í Sj álfetæðisflokknum. Á kostnað Jóhanns Svo langt nær nú orðið óónægjan með foruistu Jó- hanns Hafsteins og Geirs Hiallgrímssonar að bún befur nú náð inn i forustugreinar Mórgunblaðsins. Þó hefur Morgimblaðið verið talið sér- staMega hli’ðhollt Geir HaU- grímssyni. En ástæðan til þess að óánægjan með forustu Jó- hanns og Geirs nær inn í Morgunblaðið er sú sem hér skal greina: Fyrir nokkru var haldinn forustumannafúndur í Sjálf- stæðisflókiknum Þar var raett um Morgunblaðið. Kom þar fram mögnuð gagnrýni — ef ekki skammir betur nefnt — á Eyjólf Konráð Jónsison. sem er aðalritstjóri stjórnmála- sknfa Morgunblaðsins. Var þessi gagnrýni svo beinskeytt að ritstjórinn fékk eigi rönd við reist og sat gneypur und- ir hverri skammaræðunni á fætur annarri. Og Geir Hall- grimsson — pólitískur leið- togi Moggaklíkunnar — mátti ekki heldur mæla á þessum fundi. Þama er skýringin á þeirri gagnrýni sem kemur fram á forustu Jóhanns Haf- steins i forustugrein Morg- unblaðsins i gær. Geir ætl- ar sjáifur að reyna að sleppa á kostnað Jóhanns í framkvæmd og túlkun í forustugreininni er fyrst saigt að Sjálfstæðisflokkurinn bafi á s'íðustu áratugum átt meginþátt í því að móta utanríkisstefnu íslands. Síð- an að fflokkurinn hafi lagt grundvöllinn a 3 atvinnumál- um landsmanna (samanber at- vinnuleysig á síðasta kjör- tímabili viðreisnarstjómar- innar — innskot mitt) o» á þessum grunni utanrikis- og atvinnumálastefnu verði Sjálfstæðisflokkurinn „að skoða á ný margl í stefnu Sjálfstæðisflokksins eins og hún hefur verið framkvæmd og túlkuð í dægurbaráttu stjórnmálanna." En Jóhann Hafstein fær ekkf einasta þessar ákúrur að bann hafi bæði framkvæmt og túlkað stefnu Sjálfstæðisflokksins á fráleitan bátt, þess er líka getið að stefnumótandi starf innan flokksins hafi farið úr skorðum og verið í rýrara lagi. Með tilliti til þessa verði að breyta til og gera flokkinn að vettvangj „endursfcoðunar á afstöðu flokksins til fjöl- margra mála.“ — Þar með hefur MorgunblaðiS gefið for- ustu Sjálfstæðisflokksdns einkunnir er snerta stefnu- mótun flokksins í grundvall- aratriðum En ekki þykir nóg.að gert. Enn segir: „Eitt stærsta við- fangsefmð sem Sjállstæðis- flokkurinn stendur frammi fyrir í dag. er afstaðan til æskunnar og þeirra pólitísku hreyfinga sem verið hafa í röðum ungs fólks á sdðustu árurn. Það er staðreynd sem horfast verður í augu við, að ungt fólk hefur á síðari ár- um hneigzt til fylgis við vinstri sinnaða stjómmála- flofcka í vaxandi mæli. ..“ Sjálfstæðisflokfcurmn hafi heldur ekki „megnað að vekjg áhuga þess (unga fólks- ins) á þeim boðskap, sem Sj álfstæðisflokkurinn ’ vill koma á framfæri .. .“ Fyrsti vísir nýrrar stefnu Og nú æflar Sjálfstæðis- flokkurinn semsé að breyta til og reyna að laða að sér ungt fólk. Vafalaust er það fyrsti vísir nýrrar stefnu flokksins. sem fram kemur í forustugrein Morgunbliaðsins í fyrradag. Þar er skrifað um bað skass Bemadettu Hevlin og hneykslazt á því. að hún skyldi ..ráðast á brezka ráðherra í mestu lýð- ræðissamkomu heimsins. (ja héma) brezkia þinginu, klóra þá og bárreyta. Slík fram- koma vekur ekki traust.“ Vafalaust em þessi ummæli Morgunblaðsins til þess ætl- uð að vek.ia samúð unga fólksins á íslandi með inn- anríkisráðihierra Breta þeim sem Bemadetta klóraði í kinnina Líklegt er að Morg- unblaðið sé hér þó á villi- götum i þeirri nýju stefnu Sjálfstæðisflokksins að laða til sín ungt fólk Gera má ráð fyrir að ungt fólk hafl fremur samúð með þeim sem misstu vandamenn sína og vini í morðunum i tx>ndon- derry en innanríkisráðherra Breta þó að hann hafi fengið fáeinar rispur af hendi Bemadettu sem eins konar kvittun af hólfu kaþólskra á Norður-frlandi fyrir morðin í Hondonderry. - Söluskattur af bókum renni til ríthöfunda — Svava Jakobsdóttir mælti fyrir tillögu þess efnis Á fundi sameinaðs þings í gær mæltt Svava Jakobsdóttir fyrir tillögu til þingályktunar um endurgreiðslu söluskatts tH rithöfunda, er hún flytur á- saimt Bjama Guðnasyni og Ingvar' Gíslasyni. Tillagan er á þessa leið: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gera ráðstaf- anir til þess, að andvirði sölu- skatts af bókum renni tll rit- höfunda og höfunda fræðirita sem viðbótarritlaun”. I greinargerð með tillögunni segir m. a- (Millifyrirsagnir eru blaðsins). Bókaþjóðin og kjör rithöfunda „Rithöfundar hafa löngum barizt fyrir viðurkenningu á rétti sínum . til sómasamlegrar greiðslu fyrir ritstörf sín. Kröf- ur rithöfunda geta tæpast tal- i?t óhóflegar, þar eð þær mið- ast einvörðungu við það. að rithöfundar geti gefið sig ó- sikipta að samningu bóka án þess að þurfa jafinframt að eyða starfsorku sinni og tíma í önniur störf sér til lófsibjarg- ar. Æ fleiri viðurkenna þá staöreynd í orði, að ritstörf verði ekki stunduð sem lfet- grein. nema þau njóti skiln- ings og viðurkenningar sem fullt starf. Samt hefur sorglega lítið þokazt áleiðis í bagsmunabar- áttu rithöfuinda, og nú er svo komið mólum, að Islendingar — hin foma bókaþjóð — verða að horfast í augu við það, að rithöfundar þeirra búa við verri kjör en þekkjast annars staðar á Norðurlöndum. Undirstaða bókagerðar Útgáfukostnaður meðalbókar (um 250 bls.) mun áætlaður 1 milj. króna. Af þessum heild- arútgjöldum kemur í hæsta lagi 1/10 í hlut rithöfundarins. Algengust riflaun em frá 70— 100 þús kr. Einstaka rithöf- undiar fá rúmlega 100 þús.. margir minna ©n 70 þús- Rit- höfundurintt ber því minnst úr býtum allra þeirra sem við verk hans eru riðnir, enda þótt starf v>nns hljóti að teltast un^ irstaða allra annarra bókagerð- arstarfsgreina. Ef ríkið viðurkennir á annað borð hlut skálda og ritihöfunda í íslenzku menningarlífi, hlýtur það að hlaupa hér undir bagga. Stuðningur ríkisins við ritíhöf- unda er sáralítill. A fjárlögum þessa árs vom rúmlega 8 milj. kr. veittar til Ustamanmalauna, heiðurslauna o-g starfsstyrkja. Þessi upphæð sSkiptist milli hinna ýmsu listgreina, og því rennur elcki nema hluti hennar til rithöfunda. Þá má og benda á, að hluti þessa framlags renn- ur í ríkissjóð aftur sem skatt- tekjur. Framlag sem mun skila sér Auk annars óbeins hagnaðar ríkisins af störfum rithöfunda, svo sem skatttekna af starfs- launum allra, sem verk íslenzkra höfunda leggja beinan gmnd- völl að. faer ríkið 11% í sölu- skatt af hverri seldri bók. Þessi upphæð nam á sl. ári rúml. 19 milj. kr. af inrulendum bðkum. (Áætluð upphæð fyrir árið 1971. Innskot Þjóöviljans). Þessi upphæð er að meginhluta Svava Jakobsdóttir. arður af störfum islenzikra höf- unda, og rithöfundar telja ó- eðlilegt. að ríkiö hagnist á þennan hátt á bókisölu, meðan svo er ástatt, að nær ógern- ingur er fyrir þá sjálfa að gefa sig að ritstörfum. Flm. þessarar þáltill. leggja því til að söluskattur af bók- um rewni til höfundanna sjálfra sem viðbótarriflaun. Þessaxa viðbótarritlauna skuiu einnig njóta höfundar þeirra fræðirita, sem til menningarauika horfa fyrir þjóðina. endS eru ritlaun fyrir- slíkar bækur engu hærri en fyrir skáldverk. Ber að líta á slíka greiðslu í formi við- bótarritlauna sem framlag, er muni skila sér margfaldlega í öflugu bökmennta- og menn- ingaristarfi”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.