Þjóðviljinn - 03.06.1972, Side 3
I.augardagur :(. júni 1372- ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3.
Sj ónvemdarstöð
Það var ys og þys i Bústaða-
kirkju i gær, enda leið að lokaæf-
ingu á barnaóperunni eftir Benja-
min Britten, sem frumsýnd verð-
ur á mánudag á vegum Listahá-
tiðar.
Þessi sýning er mikið fyrirtæki.
Nói (Kristinn Hallsson) situr i
örkinni með kerlu sinni (Ruth
Magnússon) og öðru skylduliði. A
hann öðru hvoru samræður við
Drottin- (Rúrik Haraldsson) og
margvisleg samskipti við
nokkrar kjaftakerlingar og um
70 dýr, sem leikin og sungin eru
af börnum úr nálægum skólum.
Hér við bætast á 7. tug hljóð
færaleikara og svo menn sem að-
stoöa við að reisa örkina hans
Nóa á hverri sýningu. Kannski
hefur aldrei verið rausnarlegra
hlutfall milli flytjenda óperu og
salar — en Bústaðarkirkja tekur
280 manns i sæti.
Garöar Cortes stjórnar flutn-
ingi á barnaóperu þessari.
- sagði heilbrigðisráðherra er hann tók á
móti söfnunarfé af sölu rauðu fjaðrarinnar
Dagana 15. og 16. apríl sl.
fór fram landssöfnun á
vegum Lionshreyfingar-
innará islandi og söfnuðust
rösklega 5 milj. króna. Til-
gangur söfnunarinnar var
að afla fjár til kaupa á
tækjum sem vantar á
augndeildina við Landa-
kotsspitala og sjónpróf-
unartækjum til dreifingar
um landið.
Ásgeir Ólafsson, umdæmis-
stjóri Lions-hreyfingarinnar á ts-
landi afhenti heilbrigðismálaráð-
herra i gær fjármunina og sagði
ma.:
„Takmark okkar með söfnun-
inni var tviþætt. Annarsvegar
kaup á tækjum til dreifingar sem
viðast um landið til augnskoðunar
og hinsvegar kaup á tækjum sem
vantar á augndeildina á Landa-
kotsspitala, svo hún megi teljast
fullbúin nauðsynlegum tækjum.
Söfnunin gekk mjög vel og erum
við Lionsmenn mjög þakklátir
hve menn voru fúsir að kaupa
rauðu fjaðrirnar. Lætur nærri að
4. hver tslendingur hafi keypt
rauða fjöður. Má eflaust þakka
þetta þvi að menn vildu gjarnan
leggja nokkuð að mörkum til þess
að skapa hér bætta aðstöðu til
augnlækninga og sjónverndar”.
Magnús Kjartansson, heil-
brigðisráðherra, þakkaði þetta
mikla framlag Lionsmanna og
sagði i þvi tilefni:
„Við vitum ekki hver margir
blindir menn eru á tslandi i dag.
Árið 1950 var talið að þeir væru
a.m.k. 434 eða um 3 af hverju þús-
undi landsbúa. Þetta var þá há
tala borið saman við nágranna-
löndin, þar sem hlutfallstalan var
talin vera 1 til 1.8 af þúsundi og er
þar átt við Norðurlöndin, Bret-
land og Bandariki Norður-
Ameriku.
t heilbrigðisskýrslum eru
blindir taldir árlega og siðasta
talan 1968 er 224, en með tilliti til
þess, sem fyrr var sagt, þá hlýtur
sú tala að vera of lág; margt hlýt-
ur að vera vantalið.
Um þessar mundir er allmikið
rætt á alþjóðavettvangi um
blindu og varnir gegn blindu.
Þetta var eitt af umræðuefnum á
nýloknu þingi Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar i Genf og þar að
auki, þá sat á fyrra ári á rökstól-
um nefnd sérfræðinga á vegum
Evrópusvæðis Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar til að
kanna og gera tillögur um þessi
mál.
Af þeim umræðum, sem fram
fóru i Genf er það að sjálfsögðu
ljóst, að aðstaða þróunarland-
anna á þessu sviði er svo gjörólik
þvi, sem er hjá hinum þjóðunum,
að þar kemst enginn samanburð-
ur að. Enn eru það smitsjúkdóm-
ar og skortsjúkdómar, sem eink-
um valda blindu i þróunarlöndun-
um.
Niðurstöður þeirrar sér-
fræðinganefndar, er fyrr var til
vitnað, voru þær að þrátt fyrir
framfarir á sviðum augnlækn-
inga, einkum hvað snertir bólgu-
sjúkdóma, þá væri blinda vax-
andi heilbrigðisvandamál á
Evrópusvæðinu. Nefndin taldi að
eina ráðið til að hamla á móti
þessu væri leit að augnsjúkd. á
byrjunarstigi, þvi að með þvi
móti mætti ýmist lækna þá eða
seinka þeim til muna, þannig að
þeir yllu ekki blindu fyrr en þá
seint á ævi.
Þeir þrir augnsjúkdómar, sem
þessi nefnd lagði sérstaka áherzlu
á, að hægt væri að leita uppi og
lækna eða halda i skefjum, eru
sjóndepra meðal rangeygðra
barna, glákublinda, sem yfirleitt
kemur ekki fram i fólki fyrr en
eftir fertugsaldur og sjóndepra
hjá sykursjúkum, sem stafar af
æðabreytingum er sjúkdómurinn
veldur.
Augnlæknar hafa starfað hér á
landi lengi og unnið mjög gott
starf. Skurðaðgerðir vegna augn-
sjúkdóma hafa verið gerðar á
Landakotsspitala nær þvi frá
stofnun hans og nú hefur riýlega
verið stofnuð þar formlega augn-
deild, sem hefur að ýmsu leyti
breytt aðstöðu til lækninga augn-
sjúkdóma. Það er i ráði að önnur
deild verði á Akureyrarspitala og
að þessar tvær deildir geti sam-
eiginlega annazt þá augnsjúkl-
inga alla, sem þurfa sjúkrahús-
vistar við.
Sjónverndarmálin hafa ekki
verið skipulögð, en það standa
vonir til, að þau verði skipulögð i
m jög náinni framtið i samráði við
augnlækna, einkum þá, sem á
Landakoti starfa og hefur heil-
brigðisráðuneytið fullan hug á að
koma þeim málum fram svo fljótt
sem auðið er.
Sjónvernd hér mun i fyrstu
einkum beinast að tveim þáttum
þ.e. að finna og lækna rangeygð
börn með augnþjálfun og að
greina gláku á byrjunarstigi til
þess að hafa hemil á þeim
sjúkdómi.
Sennilega er heppilegast að
reyna að koma slikri sjón-
verndarstöð upp i beinum
tengslum við augndeild og að
hafa saman glákuleitarstöð og
augnþjálfunarstöð, þar sem það
getur bæði sparað húsrými og
starfslið.
Verkefni stöðvar af þessu tagi
væru eftirfarandi:
1. Leit að leyndri gláku meðal
fólks yfir fertugt.
2. Skráning blindra og gláku-
sjúklinga.
3. Skipulagning augn-
lækningaferða og glákuleitar i þvi
sambandi.
4. Rannsóknarstarf, svo sem
skráning sérstakra ætta, sem til-
hneigingu hafa til gláku og að
kanna útbreiösluhætti sjúkdóms-
ins.
5. Eftirlit með þvi að gláku-
sjúklingar fái viðunandi læknis-
meðferð.
Frh. á bis. 15
Örkin ris i Bústaðakirkju
Asgeir Ólafsson umdæinisstjóri l.ionshreyfingariiinar á islandi af-
hendir heilbrigðismálaráðherra söfnunarféð.
Obreytt verð
á bolfiski og flat-
fiski til 1. okt.
Nói Kristinn Hallsson stendur i örk sinni ásamt nokkrum dýrum. örkin er smlðuð fyrir augum áhorf-
cnda á hverri sýningu. (ljósmyndAK)
Útvarp kl. 17.00
Umræður um
öryggismálin
1 dag kl. 5 er á dagskrá útvarps-
þáttur sem nefnist Erlendar
raddir um islenzk öryggismál i
samantekt Einars Karls Har
aldssonar. Rætt verður við Ake
Sparring sem er forstjóri sænsku
alþjóðamálastofnunarinnar.
Sparring hefur kynnt sér öryggis-
mál tslands og m.a. ritað um þau
bækling er hann nefnir „Island,
Europa och NATO”. A eftir
stjórnar Tómas Karlsson, rit-
stjóri, umræðum um öryggismál-
in, en þátttakendur auk hans
verða Björn Bjarnason lögfræð-
ingur og Ragnar Arnalds al-
þingismaður.
A fundi Verðlagsráðs sjávarút
vegsins i gær — yfirnefndar — vai
ákveðið að lágmarksverð þaf
sem gilti til mailoka á bolfiski o}>
flalfiski skuli gilda óhreytt áfrani
og allt til 30. septembcr. Sam
komulag var i nefndinni uni
gildistima fiskverðsins, en verð
ákvörðunin sjálf var gerð með at
kvæðum oddamanns og fulltrús
fiskkaupenda gegn atkvæðun
fiskseljenda. Þeir sem greiddi
atkvæði með vcrðákvörðuninn
voru þeir Arni Benediktsson oj.
Kyjólfur isfeld Kyjólfsson aul
oddmanns, Jóns Sigurðssonar
hagrannsóknarstjóra, en á mót
voru Ingólfur tngólfsson of
Kristján Ragnarsson.
F’ulltrúar seljenda létu greinar
gerö fylgja afstöðu sinni þar sem
fram kemur að þeir höfðu lagt til
10% fiskverðshækkun, en ákvörð
un meirihlutans um óbreytt fisk
verð muni valda útgerð miklum
erfiðleikum. Þá segir i greinar
gerð minnihlutans:
Vegna mikillar útgjaldaaukn
ingar, sem er afleiðing af miklum
verðlagshækkunum, mun útgerð
lamast verulega það sem eftir er
ársins. Augljóst er miðað við
aflabrögð undanfarinna ára, að
útgerðin mun verða rekin með
verulegum halla á sumar- og
haustvertið. Þorskveiðar munu
þvi litið verða stundaöar siðari
hluta ársins, og mun það valda
margvislegum erfiðleikum i hin-
um ýmsu sjávarþorpum og þjóð-
inni i heild.
Með tilvisum til yfirlýsinga og
aðgerða s.l. haust kemur á óvart
sú afstaða rikisstjórnaráð ekki sé
ástæða til að tekjur sjómanna
fylgi almennum kaupbreyting-
um. Frá þvi fiskverð var ákveðið
um áramót hefur kaupgjaldsvisi-
tala hækkað um 8.63 stig, og bein
kauphækkun um 4% kom til
framkvæmda 1. júni. Kauphækk
un verkafólks hefur þvi verið um
12—13% frá áramótum. Sjómenn
hafa hins vegar orðið fyrir tekju-
rýrnun vegna minnkandi afla og
er nú ætlað að búa við óbreytt
fiskverð, þrátt fyrir verulegar
kaupbreytingar annarra stétta.
Afleiðingar þess munu fljótlega
koma i ljós i auknum erfiöleikum
við að fá sjómenn til starfa á
fiskiskipum.
Fulltrúar rikisstjórnarinnar og
fiskkaupenda ákváðu gegn at-
kvæðum fulltrúa útgerðar og sjó-
manna, að hækka enn viðmiðun-
arverð Verðjöfnunarsjóðs til þess
að koma i veg fyrir greiðslu i
Verðjöfnunarsjóð og bæta þannig
hag frystihúsanna. Eftir þessa
breytingu má verðlag hækka um
300 miljónir króna frá s.l. áramót
um, án þess aö komi til greiðslu i
sjóðinn. Þrátt fyrir þessa ákvörð-
un var ákveðið að fiskverð skuli
vera óbreytt, og breytt afstaða til
Verðjöfnunarsjóðs komi frysti-
húsunum einum til góða.
Astæða er til þess að vekja á þvi
sérstaka athygli, að nú er svo
komið, að þrátt fyrir að við fáum
nú hærra verð fyrir fiskafurðir á
erlendum markaði, en við höfum
áður fengið, að úlgerðin er rekin
með halla og sjómenn fá ekki
sambærilegar kauphækkanir og
aðrir. Með sama áframhaldandi á
vixlhækkunum kaupgjalds og
verðlags má gera ráð fyrir að
komi til algjörrar stöðvunar á
fiskveiðum á hausti komanda.
verður komið
upp hérlendis