Þjóðviljinn - 03.06.1972, Blaðsíða 15
l.augardagur :i. júni 1972- —ÞJÓÐVILJINN —StÐA 15
Frá Þroskaþjálfaskóla
Islands
Umsóknarfrestur um skólavist næsta
haust er til 20. júni. Þeir sem þegar hafa
skilað umsóknum eru beðnir að staðfesta
þær fyrir þann tima.
Kópavogshæli, 30. mai 1972
Skólastjóri.
Tilboð óskast i loftræstikerfi fyrir Fæð-
ingardeild Landspitalans.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri Borgartúni 7, Eeykjavik gegn
3.000,00 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 16. júni 1972 kl. 11:00
f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
FÉLAG ÍSLEAIZKRA HLJÓMLISTARMAIA
útvegar yður hljóðfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tcekifœri
Vinsamlegast hringið i 20255 milli kl. 14-17
Iðnskólinn i Reykjavik
IÐNNEMAR
Innritun iðnnema á námssamningi i 1.
bekk næsta skólaárs, fer fram i skrifstofu
yfirkennara (stofu312) dagana 8. 9.14.15.
og 16. júni kl. 9 —12 og 13.30 —16.
Inntökuskilyrði eru að nemandi sé fullra
15 ára og hafi staðizt miðskólapróf með
einkunninni 4,0 i islenzku, reikningi,
ensku og dönsku.
Við innritun ber að sýna: vottorð frá fyrri
skóla, undirritað af skólastjóra, nafnskír-
teini og námssamning.
Nemendum, sem stunduðu nám i 1. 2. og 3.
bekk á s.l. skólaári, verður ætluð skólavist
á næsta skólaári og verða upplýsingar um
námsannir gefnar siðar.
Skólastjóri.
INDVEItSK UNDRAVERÖLD
Vorum aö taka upp mjög glæsilegt úrval af
Bali-styttum og Batik-efnum. Einnig ind-
verskt og Thai-silki — röndótt, köflótt,
mynstrað, einlitt, Batik-mynstrað og
sanserað.
ATH. Við erum flutt að Laugavegi 133 (við
Hlemmtorg).
Úrval tækifærisgjafa fáið þér í JASMIN
Sjótivemd
Framhald af bls. 3.
6. Eftirlit og leit að rangeygð-
um börnum innan skólaaldurs.
7. bjálfun augna rangeygðra til
að þroska þrividdarsjón þeirra.
8. Lækning á sjóndepru rang-
eygðra.
9. Vera kennslustöð, annars
vegar fyrir lækna og lækna-
stúdenta, hins vegar fyrir annað
starfsfólk i heilbrigðisþjónustu,
sem að þessum störfum vill
vinna. Auk þess má vænta þess að
slik stöð gæti miðlað almenningi
fræðslu um þessa sjúkdóma.
Stofnun sjónverndarstöðvar er
enn á umræðustigi, en það er von
okkar, sem aö þessum málum
vinnum, að hún geti komizt upp
innan tiðar eins og áður var sagt
og það er enginn vafi á þvi, að
fjársöfnun eins og sú, sem hér
hefur farið fram, verður lyfti-
stöng og hvati til þess að vinna
þessum málum lið og kappkosta
að komast á þessu sviði
heilbrigðismála i röð þeirra
þjóða, er bezt búa að þegnum sin-
um."
Efld samskipti
Framhald af 5. siðu.
Vietnam og ástandsins i Indókina
i heild.
Sovétrikin áréttuðu samstöðu
sina með réttlátri baráttu þjóða
Vietnam, Laos og Kambodju fyrir
frelsi, sjálfstæði og félagslegum
framförum. Þau styöja einarð-
lega tillögur Norður-Vietnams og
Suður-Vietnamlýðveldisins, sem
er raunhæfur grundvöllur til
lausnar Vietnamvandamálsins,
og beita sér fyrir þvi, að loftárás-
um á Norður-Vietnam verði hætt,
og fyrir skilyrðislausum brott-
flutningi alls herliðs Bandarikj-
anna og bandamanna þeirra frá
Suður-Vietnam til að þjóðir Indó-
kina fái tækifæri til að ákveða
sjálfir örlög sin án utanaðkom-
andi ihlutunar.
Bandarikjamenn lystu þvi yfir,
að að þeirra dómi væri fljótvirk-
asta og árangursrikasta aðferðin
til að ná téðum markmiðum við-
ræður, er leiddu til þess, að allir
bandariskir fangar á þessu svæði
fengju að snúa heim, sem og
vopnahlé i öllu Indókina undir al-
þjóðlegu eftirliti og siðan brott-
flutningur alls bandarisks herliðs
i Suður-Vietnam á fjórum mánuð-
um, og skyldu þá þjóðir Indókina
leysa sjálfar pólitisk ágreinings-
mál.
Bandarikin lýstu sig fús til að
hefja alvarlegar viðræður við
Norður-Vietnama til að finna þá
lausn á striðinu i Indókina, er
réttlát mætti teljast fyrir alla
aðila.
Ekki beint gegn einum
né neinum”...
Aðilar taka skýrt fram, að sam-
komulagi þvi og samningum, er
náðust i viðræðunum i Moskvu,
sem og eðli og inntaki viðræðn-
anna, sé á engan hátt beint gegn
einum né neinum. Báðir aðilar
viðurkenna hlutverk, ábyrgð og
sérstöðu annarra hlutaðeigandi
rikja og viröa gildandi alþjóðleg-
ar skuldbindingar og samninga
og meginreglur og markmið
stofnskrár SÞ.
Aðilar leggja jákvæðan dóm á
árangur viðræöna æðstu manna
SSSR og USA i Moskvu. Þessi
árangur ber þess vott, að þrátt
fyrir andstæð þjóðfélagskerfi,
hugmyndafræði og pólitiskar
meginreglur SSSR og USA, eru
möguleikará að þróa gagnkvæmt
hagstætt samstarf milli þjóða
beggja landa i þágu friðar og al-
þjóðlegs öryggis.
Báðir aðilar létu i ljós ósk um
að halda uppi nánu sambandi
varðandi ýmis þau vandamál, er
til umræðu voru. Þeim kom sam-
an um, að heppilegastir væru
reglubundnir samráðsfundir, þar
á meðal fundir æöstu manna, um
þau mál. er bæði rikin láta til sin
taka.
R. Nixon Bandarikjaforseti
þakkaði fyrir þá gestrisni, er
hann hefði orðið aðnjótandi i
Sovétrikjunum, og bauð aðal-
ritara KFS, L.I. Brésnef, forseta
Æðsta ráðs SSSR N.V. Podgorni,
og A.N. Kosygin forsætisráðherra
að heimsækja Bandarikin á þeim
tima, er báðum aðilum hentaði.
Boðið var þegiö.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h.
Gjaldheimtunnar i Reykjavik og sam-
kvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 2.
f).m. verða l'ÖgtÖk l'átin fara fram fyrir
ógoldnum fyrirframgreiðslum opinberra
gjalda, samkvæmt gjaldheimtuseðli 1971,
sem féllu i gjalddaga 1. febrúar, 1. marz,
1. april, 1. mai og 1. júni 1972.
Lögtök til tryggingar fyrirfram-
greiðslum framangreindra gjalda, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin að
8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, verði tilskyldar greiðslur
ekki inntar af hendi innan þess tima.
Reykjavik, 2 júni 1971.
Borgarfógetaembættið.
Auglýsing
Með skirskotun til laga um lax- og silungs-
veiði nr. 76, 25. júni 1970,er hér með vakin
athygli á þvi, að óheimilt er að nota veiði-
tæki eða veiðibúnað við veiðar i ám og
vötnum hér á landi, sem notaður hefur
verið erlendis, nema hann sé
sótthreinsaður áður.
Þvi er hér með skorað á veiðieigendur,
leigutaka veiðivatna og aðra þá, er greiða
för erlendra veiðimanna til íslands, að
þeir veki athygli á þessum ákvæðum, ella
geta hlotizt af óþarfa tafir, kostnaður og
óþægindi.
Fisksjúkdómanefnd
31. mai 1972
Iðnskólinn í Reykjavik
— Verknámsskóli
iðnaðarins:
Innritun i verknámsdeildir næsta skóla-
árs fer fram i skrifstofu yfirkennara
(stofu 312) dagana 8. 9. 14. 15. og 16. júni
kl. 9 — 12 og 13.30 — 16.
Inntökuskilyrði eru, að nemandinn sé
fullra 15 ára og hafi staðizt miðskólapróf
og hlotið einkunnina 4,0 i islenzku, reikn-
ingi, dönsku og ensku.
Við innritun ber að sýna, prófskirteini,
undirritað af skólastjóra fyrri skóla og
nafnskirteini, en námssamningur þarf
ekki að vera fyrir hendi.
Þær deildir verknámsskóla iðnaðarins,
sem hér um ræðir, eru:
Málmiðnaðardeild: fyrir þá sem hyggja á
iðnnám eða önnur störf i málmiðnaði og
skyldum greinum, en helztar þeirra eru:
allár járniðnaðargreinar svo og bifreiða-
smiði, bifvélavirkjun, blikksmiði, pipu-
lögn, rafvirkjun, skriftvélavirkjun og út-
varpsvirkjun.
Tréiðndeildir: aðallega fyrir þá, sem
hyggja á iðnnám eða önnur störf i tré-
iðnum. Skólastjóri.