Þjóðviljinn - 15.07.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 15.07.1972, Síða 7
Laugardagur. 15. júli. 1972 WÓÐVILJINN — StÐA 7. Þegar reglugerðin um 50 milna fiskveiðilögsögu hefur verið undirrituð og þannig orðin að islenzkri löggjöf, þá er ekki úr vegi að rifja upp helztu áfangana að þvi marki s.l. 14 ár. Rétt er að minna á, að reglugerðir um útfærslu landhelginnar byggja allar á landgrunnslögunum frá 1948. Þvi þarf ekki að samþykkja lög um útfærsluna, heldur er hér um að ræða reglugerðir, sem byggja á fyrrnefndum lögum og öðlast lagagildi við undirritun. Þannig færðu íslendingar út landhelgina með einhliða reglugerð árið 1952, í 4 mílur. Frá fundi Alþingis 15. febr. s.l. er ályktunin um stækkun landhelginnar i 50 mflur var einróma sam þykkt. svæðum til ársins 1964. Jafnframt skuldbundu íslendingar sig til að tilkynna þessum þjóðum frekari útfærslu landhelginnar með sex mánaða fyrirvara og hlita því að málið færi fyrir Alþjóðadómstól- inn i Haag. Eftir þennan samning var litið aðhafzt i landhelgismálinu og nær ekkert unnið að kynningu á erlendum vettvangi á rétti Islendinga til landgrunnsins alls. Hins vegar varð á þessum tima fram til 1970 mjög mikil breyting á skoðunum þjóða á viðáttu land- helgi, og varð þróunin i þá átt, að æ fleiri þjóðir tóku sér allt frá 12 upp i 200 milna landhelgi. Þá gerðist það einnig, að Bretar stækkuðu sina landheígi i 12 milur með einhliða aðgerð, án þess t.d. að tilkynna íslendingum þá stækkun. Landhelgismálið aftur á dagskrá 1970. Það var fulltrúi Alþýðubanda- lagsins i utanrikismálanefnd, Gils Guðmundsson, sem fyrst lagði til árið 1970 að utanrikis- málanefnd Alþingis tæki land- helgismálið til rækilegrar at- hugunar. 1 framhaldi af þeirri til- lögu tók þáverandi forsætisráð- herra, Bjarni Benediktsson, málið upp i rikisstjórninni og fékk samþykkt á rikisstjórnarfundi 4. júni 1970, að skipuð skyldi sérstök landhelgisnefnd með fulltrúum allra flokka. 1 nefndina völdust: Bjarni Benediktsson, Emil Jónsson, Lúðvik Jósepsson, Þórarinn Þórarinsson, Hannibal Valdimarsson. Landhelgismálið á Alþingi 1971 Landhelgisnefnd flokkanna hóf þegar störf og voru þar nokkuð skiptar skoðanir um, hvernig forma ætti tillögur um útfærslu, hvenær hún ætti að eiga sér stað, við hvaö ætti að miða og hvernig lita ætti á landhelgissamningana frá 1961. Hver flokkur lagði fram sinar tillögur. Vorið 1971 var siðan unnið að samræmingu þessara tillagna, en ekki náðist samstaða um eina tillögu. Við- reisnarflokkarnir lögðu sina til- lögu fram og stjórnarandstaöan aðra. Lagði stjórnarliðið til að skipuð yrði nefnd til að skilgreina landgrunnið miðað við sem næst 400 m dýptarlinu, möguleg hag- nýtingarmörk eða 50 milur, og átti sú nefnd siðan að skila frum- varpi til laga um rétt tslendinga. Stjórnarandstaðan sagði i tillögu sinni, að færa skyldi út land helgina i 50 milur eigi siðar en 1. sept. 1972, ákveðin skyldi 100 milna mengunarlögsaga, og lýsti landhelgissamningana frá 1961 ekki lengur bindandi fyrir tslendinga. Viðreisnarstjórnin lét meiri- hluta Alþingis samþykkja sina tillögu, eniAlþingiskosningunum 13. júni 1971 féll stjórnin, en land- helgismáiið hafði verið eitt helzta hitamál kosninganna. Landhelgismálið hjá vinstri stjórn Vinstri stjórnin undir forsæti Ólafs Jóhannessonar var mynduð 14. júli 1971 og fyrsta málið i mál- efnasamningi hennar var land- helgismálið. Þar segir: ,,Að landhelgissamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja verði sagt upp og ákvörðun tekin um útfærslu fiskveiðilandhelgi i 50 sjómilur frá grunnlinum og komisú útfærsla til framkvæmda eigi siðar en 1. september 1972. Jafnframt vcrði ákvcðin hundrað sjómilna mengunarlögsaga.” Þegar var hafizt handa um framkvæmd þessarar stefnu. Sérstök áherzla var lögð á kynn- ingu landhelgismálsins á alþjóða- ve‘tvangi, og einnig kynntu full- trúar tslands i Hafsbotnsnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrirhugaða útfærslu 1. sept. 1972 i 50 milur. Einkum var þessi kynning öflug i ágústmánuði s.l.. Skömmu fyrir 1. sept 1971 sendi islenzka rikis- stjórnin tilkynningu til brezku stjórnarinnar og þeirrar vestur- þýzku, að stjórnin liti svo á, að samningarnir frá 1961 væru ekki lengur bindandi og að landhelgin yrði færð út i 50 milur 1972. Siðan hafa verið miklar umræður um málið bæði innan lands og utan. Samþykkt Alþingis i febr. s.l. Þann 15. febrúar 1972 sam- þykkti sameinað Alþingi einróma með 60 atkvæðum tillögu i land- helgismálinu eins og utanrikis- málanefnd samhljóöa hafði gegn- ið frá henni. Aður hafði breyt- ingatillaga stjórnarandstæðinga verið felld með 32 atkv. gegn 28. Þingsályktunartillagan eins og hún var samþykkt hljóðar svo. „Alþingi itrekar þá grund- vallarstefnu íslendinga, að land- grunn Islands og hafsvæðið yfir þvi sé hluti af islenzku yfirráða- svæði, og ályktar eftirfarandi: 1. Að fiskveiðilandhelgin verði stækkuð þannig, að hún verði 50 sjómflur frá grunnlinum allt i kringum landið, og komi stækkunin til framkvæmda eigi siðar en 1. september 19727. 2. Að rikisstjórnum Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýzka- lands verði enn á ný gerð grein fyrir þvi, að vegna lifshagsmuna þjóðarinnar og vegna breyttra aðstæðna geti samningar þeir um landhelgina, sem gerðir voru við þessi riki 1961, ekki lengur átt við Mynd úr þorskastriðinu 1958. Enn mótmæla Bretar. Enn er haft i hótunum við Islendinga. og séu Islendingar ekki bundnir af ákvæðum þeirra. 3. Að haldið verði áfram sam- komulagstilraunum við rikis- stjórnir Bretlands og Sambands- lýðveldisins Þýzkalands um þau vandamál, sem skapast vegna út- færslunnar. 4. Að unnið verði áfram i samráði við fiskifræðinga að ströngu eftir- liti með fiskistofnum við landið og settar, eftir þvi sem nauðsynlegt reynist, reglur um friðun þeirra og einstakra fiskimiða til þess að koma i veg fyrir ofveiði. 5. Aö haldiö verði áfram sam- starfi við aðrar þjóðir um nauð- synlegar ráðstafanir til þess að koma i veg megnun sjávar og heimilar rikisstjórninni að lýsa einhliða yfir sérstakri mengunar- lögsögu á hafinu umhverfis Is land .” Viðræður við Breta og Vestur-Þjóðverja. Allt frá þvi rikisstjórn og Al- þingi gáfu út yfirlýsingu um út- færslu landhelginnar i 50 milur hafa átt sér stað viðræður á al- þjóöavettvangi um landhelgis- málið. Þær hafa þó fyrst og frem- st verið við þá aðila sem við sömdum við á sinum tima 1961, þ.e. Breta og Vestur-Þjóðverja. Hafa allmargir viðræðufundir verið haldnir og hafa utanrikis- og sjálvarútvegsráðherra haft þær viðræður með höndum af Is- lands hálfu. Talið var, að nokkuö hefði miðað i samkomulagsátt um tima, og voru taldar likur á að bráðabirgðasamkomulag næðist um fiskveiðar þessara þjóða inn- an 50 milna markanna vissan um- þóttunartima. Þann 12. júli slitnaði þó upp úr þessum viðræö- um á fundi i Reykjavík. Þótt slitnað hafi upp úr þessum við- ræðum að sinni, telja flestir enn likur á að samkomulag sé mögu- legt fyrir 1. sept. 50 milurnar islenzk lög. 1 gær undirritaði Lúðvik Jósepsson sjávarútvegsráðherra reglugerð um 50 milna fiskveiði- lögsögu við Island. Þar meö hefur ráðherra staðfest með undirskrift sinni, að 50 milna fiskveiðilög- saga sé islenzk lög, og samkvæmt reglugerðinni kemur 50 milna lögsagan til framkvæmda 1. sept. 1972. Þar meö er enn einum áfanganum náð i baráttunni fyrir rétti ,|slendinga til yfirráða yfir náttúruauölindum sinum við strendur landsins, — mikilvægum áfangaí sjálfatæðisbaráttu þjóöar er byggir^TTfsafkomu sina á sjávarafla. Skipsbáturinn á Eastbourne á leið milli skips sins og togarans Northern Foam, þar sem islenzku varð- skipsmennirnir voru teknir fastir 1958. Þá beittu Bretar valdi til að neita okkur um 12 mflna landhelgi, sem þeir sjálfir hafa nú.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.