Þjóðviljinn - 16.08.1972, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.08.1972, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. ágúst 1972' ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 3. Afstaða Hollendinga mjög neikvæð Þjóðviljinn birtir hér á eftir orðrétta afstöðu hollenzka utanrikisráðu- neytisins til útfærslu íslenzku landhelginnar: Orðsending hollenzku stjórnar- innar er a þessa leið: „Rikisstjórn Hollands harmar ákvörðun islenzku stjórnarinnar, um að halda til streitu áformum sinum um útfærslu fisveiðilög- sögunnar hinn fyrsta september næstkomandi, en hún leiðir af sér að erlendum fiskiskipum verða bannaðar veiðar innan fimmtiu milna frá grunnlinu, Eins og við höfum áður skýrt frá i bréfi til sendiráðs tslands i London, dagsettu 14. febrúar 1972, þá eru okkur fullljós úrslitaáhrif fiskveiða á islenzkt efnahagslif, Eigi að siður er hollenzka stjórnin þeirrar skoðunar, að vandamál fiskstofnaverndunar verði að leysa innan viðs ramma, og taka þá tillit til allra þeirra aðila er hagsmuna eiga að gæta. Einhliða ákvörðun tslendinga um að eigna sér fiskveiðilögsögu á úthöfum er skaðleg fyrir þá þróun alþjóðlegra laga og réttar, sem að islenzk stjórnvöld hafa alla tið metið mikils. Rikisstjórn Hollands heldur fast við afstöðu sina: hún getur ekk sætt sig við útfærslu lögsög-- unnar i 50 milur, og hún viður- kennir ekki að reglur þess efnis eigi við um hollenzka borgara, flugvélar og skip.” Kaldakvísl í Þórisvatn í gær var Köldukvísl veitt í Þórisvatn, en sú fram- kvæmd er liður í virkjun vatnasvæðis mið- hálendisins. Með þvi að veita Köldukvisl i vatnið verður það 80 ferkiló- metrar að flatarmáli, og stærst stöðuvatna i landinu, en yfir- borðsaukning er 10 ferkilómetrar. Mjög mikill munur verður á yfirborðshæð vatnsins sumur og vetur, eða 20 metrarshækkar um 5 metra frá meðaltalí að sumrinu, en lækkar um 15 metra á vetrum. Það er verktakafyrirtækið Þórisós, sem sér um fram- kvæmdir við Þórisvatn, en þær framkvæmdir er ætlað að kosti um 330 miljónir króna. Yfirverkfræðingur er Páll Hannesson. —úþ Átta lögfræðingar í dómaraembætti Forseti tslands hefir hinn 14. þ.m. samkvæmt tillögu dóms- málaráðherra, skipað 8 lög- fræðinga i dómaraembætti, Borgardómarar við borgar- dómaraembættið i Reykjavik voru skipuð: Auður Þorbergsdóttir, fulltrúi, Björn Þ. Guðmundsson, fulltrúi, og Hrafn Bragason, aðal- fulltrúi. Sakadómari við sakadómara- embættið i Reykjavik var skipað- ur: 1 Jón A. ólafsson, aðalfulltrúi. Héraðsdómarar við embætti bæjarfógetans i Hafnarfirði og sýslumannsins i Gullbringu- og Kjósarsýslu voru skipaðir: Birgir Mar Pétursson, fulltrúi, og Steingrimur Gautur Kristjáns-' son, aðalfulltrúi, Héraðsdómari við embætti bæjarfógetans i Kópavogi var skipaður: Ólafur St. Sigurðsson, aðal- fulltrúi. Héraðsdómari við embætti bæjarfógetans á Akureyri og sýslumannsins i Eyjafjarðar- sýslu var skipaður: Freyr ófeigsson, fulltrúi. Hér má sjá hluta af beitingavélinni, langri og flókinni vélasam- stæðu. Beitinga menn senn úr sögunni? VéL, sem beitir á við 3-4 menn komin til landsins Nú getur svo farið að sú gamla stétt manna, beitingamenn líði undir lok. Ekki er ósennilegt að beitingamenn séu með elztu stéttum hér á landi. Astæðan fyrir hvarfi þessararstéttar er beitingavél ein mikil sem komin er hingað til lands og að þvi er fróðir menn telja mun hún taka við allri linubeitingu i fram- tiðinni, hvort heldur er hjá landróðrarbátum eða útilegu- bátum. Vél þessi er hin flóknasta og ákafl. skemmti- lega saman sett. Hún er norsk uppfinning og smiði, og það var Asþór RE, sem fór fyrir skömmu fyrstu reynsluferðina með þessa vél og gafst hún i alla staði vel. Vélin hreinsar önglana eftir að fiskur hefur verið goggaður af linunni, stokkar linuna upp og beitir hana siðan og allt án þess að mannshöndin komi þar nokkuð nærri, nema hvaö stýra þarf beitusildinni að sér- stöku færibandi á vélinni, en þaðan fer hún i niðurskurð og siðan krækist hún á öngulinn. Mikil vinna var að setja þessa vél niður en þar voru þó yfirstignir byrjunarörðugleik- ar, sem i ljós komu, þannig að i framtiðinni verður það ekki mikið verk að setja vélarnar niður og enn minna verk að taka þær upp þegar skipt er um veiðarfæri. Skipstjórinn á Asþóri RE Þorvaldur Arnason, sagði að það væri engum vafa undir- orpið að þetta væri það sem koma skal i Hnubeitingu, enda væri illmögulegt orðið að fá menn i þá vinnu. t þessari reynsluför fékk Asþór rúm 30 tonn á 10 dögum. Nú þegar hafa 12 útgerðar- menn látið i ljós áhuga á að fá sér svona vél en þeir ætla að biða eftir reynslunni af þessari sem er um borð i Þorvaldur Arnason skipstjóri á Ásþóri RE. Asþóri. Verð vélarinnar mun vera milli 1,5 til 2 milj. kr. og er þá niðursetning ekki með- talin. —S.dór. I I I Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum yfir einn af hinum stóru kartöfluökrum þeirra Þykkbæinga, en þar er útlit fyrir meðaluppskeru i ár. Utlit fyrir meðal kartöfluuppskeru Aö því er Eðvald B. Malmkvist yfirmatsmaöur garðávaxta sagöi í viðtali við Þ jóðviljann í gær, er út- lit fyrir meðaluppskeru á kartöflum i ár. Ef tíð helzt góð og ekki þarf að taka upp kartöflur fyrr en undjr miðjan september, fer uppskera hér sunnanlands sennilega nokkuð uppfyrir meðallag, en annars gerir hún ekki meira en að halda sér í meðallagi. Otlit er fyrir nokkuð gooa upp- skeru á Hornafiröi, en aftur á móti hafa kartöflur verið seinni til i Eyjafirði, en þessir tveir staðir, ásamt suðurlandsundir- Iendinu, eru mestu kartöflu- ræktunarstaðir landsins. Nýjar islenzkar kartöflur komu á markaðinn um siðustu mánaða- mót en i svo litlum mæli að þær hafa hvergi nærri nægt eftir- spurn. Hinsvegar er útlit fyrir að i næstu viku verði komið það mikið magn af islenzkum kartöflum á markaðinn að nægja muni. 1 fyrra kom upp sveppasýki i islenzkum kartöflum og var sá sveppur áður óþekktur hér á landi. 1 sumar hafa kartöflu- bændur unnið að þvi að sótt- hreinsa uppskerutæki sin og hús- næði til að koma i veg fyrir að þetta endurtaki sig, en álitið er að sveppurinn stafi af ónógu hrein- læti. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.